Morgunblaðið - 24.11.1973, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.11.1973, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1973 15 Útlægir Grikkir hvetja til frekari baráttu Aþenu, Parts 23. n<5v., AP. RÖSKLEGA eitt hundrað útlægir Grikkir, ýmsir þeirra þekktir, gáfu í dag út yfirlýsingu I París, þar sem þeir hvetja til þess, að grfsk alþýða haidi ótrauð áfram baráttunni gegn stjórn Papado- poulosar og vottastúdentum og verkamönnum óskipta aðdáun fyrir að sýna þá hreysti og hug- rekki að ganga kvíðaiausir fram gegn b.vssukjöftum skriðdrek- anna. Öllum Grikkjum ber skylda til að styðja þessa baráttu." sagði f yfirlýsingunni. Þar er skorað á svokallaða bandamenn og vini grísku þjóðar- innar — og segir AP, að þar sé væntanlega sneitt að Bandarikja- mönnum og ýmsum Evrópulönd- um, sem hafa stutt grísku stjórn- ina — að hætta þegar stuðningi við Papadopoulos. Meðal þeirra, sem undirrita áskorunina, er leik- konan Melina Mercuri, tónskáldið Theodorakis, blaðaútgefandinn Helen Vlachos, Lady Fleming og fleiri. I Aþenu hefur stjórnin slakað á reglum um útgöngubann, og er það nú í gildi frá klukkan 1 eftir hádegi til fimm síðdegis. Ekki kom til óeirða í dag, en fréttir herma, að handtökum sé haldið áfram. Nú hefur verið staðfest að þrettán manns hafi látið lífið í átökum við hermenn og lögreglu á dögunum. Skip f órst i höfn 1 óskaplegu veðri Ashod, ísrael, 23. nóv., AP. FJÖGUR þúsund lesta flutninga- skip frá Kýpur fórst í höfninni í Ashod í Israel í dag og með því 21 maður. Ástæðan fyrir slysinu var óskapiegt óveður, og var sjógang- urinn svo mikill, að öldur risu marga metra upp fyrir brimgarða hafnarinnar. Ein aldan þeytti skipinu utan í brimgarð og brotn- aði það þá mikið og sökk skömmu sfðar. Veðurofsinn var svo mikill, að björgunarsveitir í landi gátu ekk- ert aðhafzt, það hefði verið hrein- asta sjálfsmorð að hrinda út báti til að reyna að komast út að skip- inu. Talsmaður björgunarsveita ísraelska flotans sagði, að eina leiðin, sem þeir hefðu séð til bjargar, hefði verið að áhöfnin henti sér fyrir borð með björgun- arvesti til að láta sig reka upp að ströndinni, en það hefði hún ekki gert. Þrír menn björguðust, nokkurn veginn á þennan hátt. Þeir stukku að vísu ekki sjálfviljugir frá borði heldur hrifu öldur þá með sér, en þeir bárust að landi, þar sem björgunarsveitarmenn óðu út eft- ir þeim. GADDAFIIPARIS MEÐ FÖRUNEYTI Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, hefur ákveðið að draga úr bensfnnotkun um hrfð vegna ástandsins f eldsneytismál- um í heiminum. Þessa dagana ferðast hún um Nýju-Delhi f léttikerru, sem hún fékk léða, ásamt hesti og ökumanni, hjá forsetaembættinu. Sem sjá má notar forsætisráðherrann tfmann, sem fer f ferðir um borgina, til lesturs. Ekki er eldsneytissparnaðurinn þó lengra kominn en svo, að öryggisverðirnir, sem fylgja forsætisráðherranum að jafnaði, aka enm um f bifreið. Paris, 23. nóvember, AP. MOAMMAR GADDAFI leiðtogi Libýu kom til Parísar í dag og er, að sögn, f einkaheimsókn. Föru- neyti hans og undirbúningur all- ur er þó á þann veg, að líkara er opinberri heimsókn. Hann hefur beðið um og mun fá fundi með ýmsum frönskum ráðamönnum. Pierre Mesmer forsætisráð- herra tók á móti Gaddafi á flug- vellinum og þykir þar með hafa undirstrikað ákafa Frakka í að hafa gott samband við Arabarík- in. Um 200 lögreglumenn, vopn- aðir vélbyssum, héldu vörð um flugvöllinn, þegar vél Gaddafis lenti og hans verður vandlega gætt meðan hann dvelur i París. I för með leiðtoganum eru með- al annars yfirmaður herráðs- Libýu, yfirmenn flotans og flug- hersins og ráðherrar þeir, sem hafa með höndum fjármál, efna- hagsmál og olíumál. Þegar hefur verið ákveðið að Gaddaf i eigi fund með Pompidou forseta og verður hann haldinn á laugardagsmorg- Suður-Vietnam, Kambódía: Búizt við stórsókn komm- únista í byrjun árs 1974 Saigon, 23. nóvember, AP. Suður-víetnamska herstjórnin tilkynnti í dag, að Norður- Vfetnam hefði um nokkurt skeið verið að undirhúa stórsókn, sem líklega hæfist í byrjun næsta árs, en þurrkatíminn í Vfetnam er frá sfðari hluta desember fram f lok HAMINGJUOSKIR FRÁ TED WILLIS MORGUNBLAÐIÐ hefur borizt bréf frá Lord Willis, sem á sæti í lávarðadeild brezka þingsins og hefur margsinnis lýst opinber- lega stuðningi við Islendinga í fiskveiðideilu þeirra og Breta. Þar segir: „Ég er himinlifandi yfir því, að deilan vegna fisk- veiðilandhclginnar hefur nú verið til lykta leidd, og mig langar að óska öllum tslending- um til hamingju með það sam- komulag, sem nú hefur náðst. Þessi ánægjulega lausn hefði ekki verið hugsanleg, cf ekki hefði komið til staðfesta og skyn- semi fslenzku þjóðarinnar." Lord Willis segir síðan, að hann sé þeirrar skoðunar, að lausnin á deilunni hafi áhrif langt út fyrir íslandsstrendur og feli í sér mikilvægt spor í þá átt að vernda náttúruauðlindir. „Með þessari viðleitni hafið þið tryggt framtíð komandi kynslóða íslenzku þjóðarinnar og sýnt afdráttar- laust, hvers smáþjóð er megnug, þegar meginreglum er framfylgt af einurð.“ Ted Willis þakkar síðan öllum þeim tslendingum, sem hafa ritað honum til að votta honum þakkir fyrir „þann smáa skerf, sem ég hef verið fær um að Ieggja af mörkum í þessari baráttu svo og mörgum öðrum, serú ég ræddi við, þegar ég var á íslandi fyrir skemmstu." Lávarðurinn lætur í ljós ánægju með það, að gömul bræðrabönd og forn vinátta íslendinga og Breta skuli hafa nú verið styrkt að nýju og vonandi aukist gagnkvæmar heimsóknir þessara þjóða. Kveðst hann meðal annars hafa rætt við fulltrúa sam- takanna „Friends of Iceland“ um það, hvernig efla megi og styrkja samtökin, svo að þau geti átt sinn góða þátt í, að góð samskipti dafni milli þjóðanna tveggja. júnf. Sagði herstjórnin, að kommúnistar myndu beita öllu tiltæku liði sínu f þessari sókn. Að undanförnu hafa verið að berast fréttir frá Víetnam um mikla birgðaflutninga kommúnista til þeirra svæða, sem þeir hafa á sinu valdi í Suður- Víetnam. Einnig hefur verið unnið að lagningu nýrra vega. í dag var svo upplýst, að Norður-Vfetnam hefði kvatt margar hersveitir heim til að endurþjálfun þeirra gæti hafizt og væri áherzla lögðá að samhæfa sókn fótgönguliðssveita, stór- skotaliðs og skriðdreka. Frá Kambódíu berast þær frétt- ir, að stjórnin þar sé einnig að búa sig undir, að kommúnistar hefji mikla sókn, þegar þurrka- tfminn hefst. Hersveitir stjórnar- innar hafa hafið sókn gegn ýms- um stöðvum kommúnista og leggja sérstaka áherzlu á að opna þjóðveg númer fjögur, sem er eina samgönguæðin á landi milli höfuðborgarinnar Phnom Penh og einu úthafshafnar landsins. Mannrán Mflanó, 23. nóv. AP. ITÖLSKUM iðjuhöldi, Aldo Cannevale, sem rekur mikla plastverksmiðju f Mflanó var rænt úti fyrir heimili sínu aðfar- arnótt föstudags. Var þetta annað mannránið á Norður-ítalfu á tfu dögum og það sjöunda í röðinni s.l. tfu mánuði. Lýðveldissinnar í Fær- eyjum bjóða fram til danska þjóðþingsins Þórshöfn, föstudag, frá Jogvan Arge. SJÖ framboðslistar hafa verið lagðir fram fyrir þjóðþingskosn- ingarnar, sem fara fram f Færeyj- um 13. desember næstkomandi. Meðal annars hefur verið lagður fram listi hins lýðveldissinnaða Þjóðveldisflokks. en þetta er í fyrsta skipti, sem hann býður fram til kosninga á danska þing- Ákveðið var á fundi fyrir nokkrum dögum að bjóða fram, og er flokksleiðtoginn, Erlendur Patursson, einn af sex mönnum á listanum. Hinir fimm flokkarnir í færeyska lögþinginu hafa einnig lagt fram sína lista og svo er einn utanflokka listi. Færeyjar velja tvo menn á danska þjóðþingið og nú sitja þar fulltrúar sósíaldemó- krata og Fólkaflokksins. Ungverjaland hættir við frjálsar fóstureyðingar BREZKA blaðið Daily Tele- graph, skýrði frá þvf fyrir skömmu, að miklar breytingar væru fyrirhugaðar á fóstur- eyðingaiögum í Ungverjalandi, en þar eru þær nú löglegar og auðvelt að fá þær framkvæmd- ar. Breytingarnar verða gerðar vegna þess, að sögn stjórnar- innar, að ekki fæðist nóg af börnum til að tryggja æskilega aukningu þjóðarinnar. íbúar Ungverjalands eru alls 10,5 milljónir og eru að meðal- tali 14 fæðingar á hverja þúsund íbúa, en dánartala er 10 til 12 á hverja þúsund íbúa. Þetta er ekki talið nægilegt til að tryggja eðlilegt fólksfjölg- un. Meðan fóstureyðingar voru algerlega bannaðar fæddust 23 börn á hverja þúsund íbúa. Á síðasta ári voru fram- kvæmdar 178.400 iöglegar fóstureyðingar, en á sama tíma fæddust ekki nema 153.265 heilbrigð börn. Stjórnin hefur nú gert áætlun um að fjölga fæðingum upp í 16 á hverja þúsund íbúa og draga mjög úr fóstureyðingum. Ófrískar konur hafa undan- farin ár haft óskoraðan rétt til að láta framkvæma fóstur- eyðingu. Ástæðurnar fyrir þvf, að fæðingarhlutfallið er nú svo óhagstætt eru meðal annars þær, að mikill skortur er á hús- næði, laun eru svo lág, að konur verða að halda áfram að vinna úti eftir að þær gifta sig og svo hafa orðið miklar breytingar til batnaðar á úrvali neyzluvöru. Fólk kýs þvf að takmarka við sig börnin til að geta lifað betra lifi. MÆÐRALAUN Til þess að örva fólk til barn- eigna verða meðal annars tekn- ar upp fjölskyldubætur i ýms- um myndum. Kona, sem er heima og lítur eftir tveim smá- börnum, mun t.d. fá hærri laun frá ríkinu en meðaltekjur kvenna nema, þegar þær vinna úti. Þá verða einnig settar upp ráðteggingastofur fyrirfólksem vill gera fjölskylduáætlanir, ög kennsla aukin í heimilis- og kynferðisfræðslu í skólum. Samkvæmt hinum nýju lögum um fóstureyðingar verður að leggja umsókn fyrir þriggja manna ráð sem tekur af stöðu til hvers tilfellis fyrir sig. Hægt verður að áfrýja til fimm manna æðra ráðs ef óskað er. I Ungverjalandi eru þegar til ströng viðurlög við ólöglegum fóstureyðingum, og margir læknar hafa Verið fangelsaðir fyrir að framkvæma þær á einkalækningastofum sfnum. Nýju lögin munu koma harðast niður á stúlkum undir 18 ára aldri. Samkvæmt þeim hafa þær ekki réttindi til að fá pillur til að hindra þungun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.