Morgunblaðið - 13.12.1973, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973
STJORN Alþjóðabankans hefur
nú samþykkt að lána Landsvirkj-
un 10 millj. dollara, eða 840 millj.
fsl kr., til virkjunargerðar við Sig-
öldu. Jafnframt láni Alþjóða-
bankans er fulllokið samningum
um lán frá Manufacturers Hanov-
er Ltd, London og nokkrum fleiri
bönkum að upphæð 30 millj. doll-
ara, vegrta Sigölduvirkjunar. Lán-
ið frá Alþjóðabankanum er af-
borgunarlaust f.vrstu fjögur árin
og endurgreiðist á árunum
1978—1988, vextir eru 7‘/i%.Hitt
lánið er til 10 ára, og er ætlunin
að brevta bví í lán til lengri tima
samkvæmt fyrirheiti þar að lút-
andi. Gert er ráð f.vrir, að Sigöldu-
virkjun taki til starfa á árinu
1976, og verður hún 150 MW.
Jóhannes Nordal formaður
stjórnar Landsvirkjunar sagði á
blaðamannafundi í gær, að upp-
haflega hefði verið gert ráð fyrir
að byggja Sigölduvirkjun í tveim
áföngum, en nú væri líklegt, að
niðursetningu þriðju vélarinnar
yrði flýtt og allar vélarnar settar
niður í einum áfanga, en hver vél
er 50 MW.
Aðspurður hver næsta stór-
virkjun á eftir Sigöldu yrði sagði
Jóhannes, að það yrði að öllum
líkindum virkjun við Hrauneyja-
foss. Ef virkjunarframkvæmdir
þar yrðu ákveðnar fljiitlega gæti
sú virkjun tekið til starfa á árinu
1978. Búið væri að hanna virkjun
við Hrauneyjafoss. og jrði sú
virkjun að Iíkindum 20 MW
stærri en Sigölduvirkjun. Orkan
þaðan yrði mun ódýrari en frá
Sígöldu, jafnvel '4, þannig að sú
virkjun yrði mjög hagkvæm.
Stofnkostnaður við Sigöldu-
virkjun er áætlaður 5520 millj. kr.
miðað við núverandi gengi og án
vaxta á byggingartíma. Það, sem
meðal annars gerir virkjunina
svona dýra, er hið mikla miðlun-
arlón, sem þúrfti að gera fyrir
ofan stífluna, en það verður 175
milljón rúmmetrar að rúmmáli,
þar af nýtanlegt rými til miðlunar
um 140 millj. rúmmetra. Þetta
lón verður einnig miðlunarlón
fyrir Búrfellsvirkjun og Hraun-1
eyjafossvirkjun, og hefur þegar
verið tekið í notkun vegna Búr-
fellsvirkjunar.
Sagði Jóhannes, að þau erlendu
lán, sem búið væri að semja um
vegna Sigölduvirkjunar, næmu
alls 4716 millj. kr. Að öðru leyti
væri gert ráð fyrir , að fjármögn-
un stofnkostnaðar virkjunarinnar
yrði tryggð með innlendú láni að
fjárhæð .350 millj. kr„ jöfnum
framlögum eigenda Landsvirkj-
unar, rikisins og Reykjavíkur-
borgar að fjárhæð alls 350 millj.
kr. samtals og með fé úr rekstri
Landsvirkjunar, um það bil 700
millj., en það fé á einnig að ganga
til greiðslu á vöxtum á byggingar-
tímanum.
Framkvæmdir við Sigölduvirkj-
un eru nú hafnar hjá bvgginga-
verktaka, sem er Energoprojekt í
Júgóslavíu. Um þessar mundir
starfa þar um 55 manns, þar af 6
Júgóslavar, er stjórna verkinu,
auk nokkurra eftirlitsmanna.
Gert er ráð fyrir, að sumarið 1975
verði mannafli þar f hámarki og
að þá starfi um 450 manns hjá
byggingaverktaka, en um 120
manns hjá verktaka véla- og raf-
búnaðar, um 30 manns verði í
eftirliti, þannig að samtals verða
um 600 manns við vinnu.
Það fer að sjálfsögðu eftir at-
vinnuástandi hér innanlands,
sagði Jóhannes, hvort verktakar
þurfa að flytja inn erlent vinnu-
af 1 til verksins, en ýmsa sérhæfða
menn munu þeir þó allavega hafa
þörf f.vrir erlendis frá.
Þegar virkjun við Sigöldu hefur
verið bætt við kerfi Landsvirkj-
unar, mun aukning tr.vggðar
orkuvinnslugetu kerfisins verða
um 800 gígawattstundir á ári og
seljanleg afgangsorka um 300
að afkastageta vatnsaflastöðva
Landsvirkjunar eykst urn sem
næst 50% með tilkomu Sigöldu-
virkjunar. I áætlun Landsvirkj-
unar er nú gert ráð fyrir, að ofan-
greind aukning á orkuvinnslu
fullnægi orkuþörf almennings-
veitna fram á árið 1981. Er þá
reiknað með, að hægt verði að
selja 400—500 gfgawattstundir á
ári af forgangsorku og afgangs-
orku til orkufreks iðnaðar og full-
nægja auk þess eftirspurn eftir
rafmagni til húshitunar, en allur
húshi tunarkostnaður á orkuveitu-
svæði Landsvirkjunar hefur verið
áætlaður um 280 gígawattstundir
áári.
Lfkan af Sigölduvirkjun. Freinst
eru brýr Búrfellsvegarins, en þar
fyrir ofan er stöðvarhúsið og að-
rennsliskurðurinn.
Meðalorkuverð frá SigÖldu-
virkjun er nú áætlað 60 aurar
kílówattstundin. en það verður þó
eitthvað dýrar til almennings.
A fundinum kom fram, að lín-
urnar frá Búrfelli til Reykjavíkur
eru nú f góðu ásigkomulagi. Það
kom í Ijós, að þær voru ekki upp-
haflega hannaðar fyrir nægilega
mikinn vindhraða. en möstrin
hafa nú verið lagfærð. Þau voru í
upphafi gerð eftir sömu hönnun
og línan frá Soginu, en sfðar kom
f ljós, að framleiðandi mastranna
frá Sogitiu hafði styrkt þau.
Þegar Sigölduvirkjun tekur til
starfa verður orkuframleiðsla
Landsvirkjunar sex sinnum meiri
en þegar Landsvirkjun gerist
aðili að Sogsvirkjun árið 1965.
Þá kom fram á fundinum, að
næstu stórvirkjanir Landsvirkj-
unar á eftir þei'rri við Hrauneyja-
foss, verða f Þjórsá. annaðhvort
við Sultartanga eðaí Efri-Þjórsá.
Sigölduvirkjun tilbúin 1976
Orkuframleiðsla Landsvirkj-
unar þá 6 sinnum meiri en ’65
gígawattstundir á ári. Þetta þýðir.
Skóli tsaks Jónssonar
Isaks Jónssonar skóla-
stjóra minnzt
MANUDAGSKVÖLDIÐ 3. des-
ember sl. hafði kennarafélag
Skóla Isaks Jónssonar boð inni
í skólanúm f tilefni af því, að
þann dag voru tíu ár liðin frá
því að ísak Jönsson skólastjóri
lézt. Boðið var nánústu ættingj-
unt ísaks, skólanefndarmönn-
um, stjórn Minningarsjóðs
ísaks Jónssonar og foreldra
hans og nokkrum fleiri gestum
Ingibjörg Ýr Pálmadóttir for-
maður kennarafélagsins bauð
gesti velkomna. Ilún gat um
tilefni þessarar samkomu, sem
hún kvað kennara skólans vilja
minnast á þennan hátt. Þá
rifjaði hún upp minningar frá
þeirn árum, er hún, barn að
aldri, var nemandi í skólanum,
og tilgreindi nokkur ljóslifandi
dæmi um kennsluaðferðir
isaks, einkum í átthagafræði.
Sagði Ingibjörg, að þessi
reynsla hefði komið sér aðgóðu
gagni, þegar hún fyrir nokkr-
um árurn gerðist kennari við
skólann. Að Iokum afhenti Ingi-
björg skólanum gjöf frá
kennarafélaginu, hljómplötur
til notkunar við kennslu, og er
það fvrsti vísir að liljómplötu-
safni skólans.
Næstur tók til máls Sveinn
Benediktsson framkvæmda-
stjóri, formaður skólanefndar.
Hann ræddi um brautryðjanda-
starf isaks Jónssonar í skóla-
málum, svo og ýntsar aðferðir
við kennslu yngri barna, sem
ísak beitti sér fyrir, þ. á m.
hl jöðlestraraðf erði na við
byrjendakennslu í lestri.
Sveinri hefur verið formaður
skólailefndar frá árinu 1946, en
þá var skólanum breytt, sökum
f járhagserfiðleika, úr einka-
sköla i sjálfseignarstofnun. Það
mun sízt ofmælt, að Sveinn
Benediktsson hefur jafnan
sfðan verið með atkvæðamestu
og áhugasömustu stuðnings-
mönnum ísaksskóla. Rejndi
mjög á atorku hans fyrstu árin,
þegar unnið var að húsbygg-
ingarmálum skölans og örlög
hans raunar ráðin þar með
Fleiri lögðu frant mikið og
óeigingjarnt starf á þessum
straumhvarfatímum. Einn
þeirra var Gunnar E.
Be n ed i k t sson h æ s t a ré 11 ar 1 ög-
ntaður, sem átti sæti í skóla-
tiefnd frá 1946 til dánardags.
Næstur talaði Helgi Elíasson
f yrrv. fræðslu málastjöri,
stjórnarmaður í Minningarsjóði
Isaks Jónssonar og foreldra
hans. Iiann fór hlýjum orðum
um hinn látna skólamann og
rifjaði upp ýrnsar minningar
frá kynnum þeirra og sam-
vinnu urn nálega 40 ára skeið.
Sérstaklega ræddi Ilelgi urn
samstarf þeirra ísaks Jóns-
sonar við að semja og síðar
endurskoða lestrarkennslubók-
ina Gagn og gaman. Þá afhenti
hann skólanum, fyrir hönd
isak Jónsson
stjórnar Minningarsjöðsins,
skuggamyndavél, sem keypt
hafði verið fyrir úthlutunarfé
úr sjóðnum.
Þessu næst var sýnd kvik-
ntynd úr starfi skölans, tekin
um 1962 af Vigfúsi Sigurgeirs-
syni.
Þá buðu kennarar skólans til
kaffidrykkju. A meðan setið
var að borðunv minntist for-
maður skólanefndar nokkurra
hollvina skólans, m.a. frú Aðal-
bjargar Sigurðardóttur, sem
um margra ára skeið átli sæti í
skólanefnd og var jafnframt
prófdómari við skölann.
Fyrir hönd ættingja isaks
heitins Jónssonar þakkaði
Andri isaksson kennurum og
skólastjóra. svo og fyrrverandi
starfsmönnum skólans. fyrir
störf þeirra í hans þágu. Einnig
færði hann þeim þakkir fyrir
tryggð þeirra við stofnanda
skólans og þær hugsjónir virks,
fjölbreytts og þjóðlegs upp-
eldis- og kennslustarfs. sem frá
upphafi hefðu verið leiðarljós
að starfsemi skölans.
Anton Sigttrðsson skólastjöri
Isaksskóla þakkaði fyrr-
greindar gjafir til skölans og
peningagjöf í Minningarsjóð.
sem borizt hafði þá um kvöldið.
Fór hann nokkrum orðum um
Minningarsjtiðinn. en framlög-
um úr honum skal varið lil
kaupa á kennsluáhöldum eða
til að styrkja skólann á annan
hátt. Skýrði skólastjöri frá þvf.
að við skólaslít á sl. vori hefði
faðir eins nemandans afhent
sér tiu þústtnd kr. gjöf í Minn-
ingarsjóðinn i tilefni af þvi. að
yngsta barn hans var þá að
Ijútka námi úr átta ára bekk.
Ilöfðu þá börn hans öll — tíit
talsins — lokið námi frá Isaks-
skóla. — Kvaðst skölastjörinn
vona. að skólinn mætti áfram
njöta sama trausts og verið
hefði.
(Frá stjörti Minningarsjöðs
Isaks Jönssonar og foreldra
hans).