Morgunblaðið - 13.12.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.12.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973 Dvínandi traust á Brezhnev 1. grein voru ekki lengur trúverðugar og hann varð að láta undan, meðal annars vegna þess, að hann réð ekki yfir vopnum, sem stóðust samjöfnuð við vopn Bandaríkja- manna, hvorki kjarnorkuvopnum né venjulegum, eldflaugum né skipum, ef til hættuástands kæmi — og þetta vissu Bandaríkja- menn. Eftir Kúbu-deiluna hófst efldur vígbúnaður í Rússlandi, Krúsjeff var tregur til þess að leggja blessun sína vfir hann. en neyddist til þess vegna þrýstings frá haukunum. Hann var langtum hægari og minni en þeir kröfðust eins og greinilega kom í ljós, þeg- ar hann jókst hröðum skrefum eftir fall Ki'úsjeffs 1964. Sem eftimaður Krúsjeffs gekkst Brezhnev fyrir vígbúnað- inum fyrst eftir fall Krúsjeffs, en þó hefur ýmislegt bent til þess á sfðari árum, að veruieiki vfgbún- aðarkapphlaupsins hafi fljótlega orðið til þess, að hann gerði gang- skör að því að setja taumhald á haukana, sem höfðu hjálpað hon- um til valda. Krúsjeff hafði sjálf- ur komizt til valda með keimlík- um hætti, fyrst með því að saka Krúsjeff Georgi Malenkov forsætisráð- herra um að vanrækja varnir Iandsins og steypa honum sfðan af stóli með hjálp heraf lans. En þeg- ar hann hafði greitt allar pólitísk- ar skuldir olli veruleiki vfgbúnað- arkapphlaupsins því, að fljótlega kastaðist í kekki með honum og herforingjunum. Þessi endurteknihg gefur til kvnna, að eitt pólitískt lögmál að minnsta kosti á jafnt við í austri og vestri. Það sést greinilega á þvf, hvernig John F. Kennedy notaði „eldflaugagapið', sem var ekki til, í baráttu sinni gegn Eis- enhower forseta og hvernig hann reyndi síðan að hafa taumhald á Pentagon. Það sést líka á því, hvernig Nixon vísaði svokölluðu kjarnorkujafnræði á bug f kosn- ingunum 1968 og neyddi sfðan Pentagon með eftirgangsmunum til að sætta sig við Salt-samning inn, sem vegsamaði þá hugmynd að öllu nema nafninu. Henry Jackson öldunardeildarmaður notar nú sömu aðferð til þess að reyna að treysta stöðu sína fyrir næstu forsetakoningar, og í Kreml beita haukarnir sömu að- ferð gegn Brezhnev. Vera má, að samningarnir um t ak mörk un kj arnorkuvfgb úna ðar séu þegar farnir að brevta öllu þessu, en i svipinn gætu sovétauk- arnir vel haldið því fram, aðtrúin á Brezhnev hefði beðið öbætan- legan hnekki. Þetta er ekki fyrsta sinn, sem Brezhnev hefur dregið í land. 1 stríðinu 1967 í Miðausturlöndum hótuðu Sovét- rfkin að láta til skarar skrfða gegn Israel, en hörfuðu frá barmi hengiflugsins, þegar Johnson for- seti „miðaði Sjötta flotanunV — eins og hann orðaði það — að svæði átakanna. Ilaukarnir sýndu Brezhnev í tvo heimana á storma- sörnum fundi í miðstjórn flokks- ins.sem var haldinn, þegarstríðið stóð sem hæst — en hann sigraði og andstæðingar hans voru lækk- aðir í tign. Einn þeirr'a var Alex- ander Shelpin stjórnmálaráðsfull- trúinn, sem lengst hefur gengið í því að láta opinberlega í ljós and- úð sína á því, hvernig Brezhnev hefur haldið á málunum í þvf hættuástandi, sem hefurríkt. Brezhnev hefur hvað eftir ann- að dregið i land, þegar svipað hefur verið ástatt — til dæmis í árekstrum Sýrlendinga og Jór- daníumanna 1970, þegar Banda- Dr. Kissinger hefur opinber- lega látið 1 Ijós aðdáun sfna á Vietor Zorza, höfundi greinar- flokksins „Átökin í Kreml“, sem Morgunhlaðið hefur tryggt sér einkarétt á, og það ekki að ástæðulausu. Dannin um. að Zorza hefur haf t á réttu að standa eru mörg. Hann spáði til dæmis falli Krúsjeffs nokkru áður en at- burðurinn gerðist þótt Banda- rfkjastjórn kæmu tfðindin ger- samiega á óvart þrátt fyrir þá mannmörgu leyniþjónustu, sem hún hefuryfir að ráða. Zorza spáði innrásinni í Tékkóslóvakíu. þött hún kæmi einnig vestrænum ríkisstjórn- um á óvart. Löngu áður en Rússar og Kfnverjar fóru að deila fyrir opnum tjöldum sagði Zorza ítarlega frá leyni- legri togstreitu þeirra. Victor Zorza er tní prófessor við John Hopkins-háskóla í Washington, en skrifaði áður 1 brezka hlaðið The Guardian. Greinar eftir hann birtast nú f blöðitm eins og Christian Sei- enee Monitor, The Times og Washington Post. Sovézkt herskip við Island. ZORZA Spáði falli Krús- jeffs ÁRÖÐUR Rússa hefur gefið greinilega til kynna hvaða stefnu sovézki kommúnistaleiðtoginn, Leonid Brezhnev, f.vlgir í þeírri valdabaráttu. sem nú er háð í Kreml. Brezhnev virðist hafa sætt árás- um fvrir að láta undan fyrir Nix- on, þegar forsetinn fyrirskipaði viðbúnað herafla Bandaríkjanna uin allati heim á dögum stríðsins í Miðáusturlöndum. Brezhnev ætl- aði að senda sovézkt herlið til Miðausturlanda eins og hann sagði Hvíta húsinu, með sam- \innu Bandaríkjamanna eða án hennar, ef þeir neituðu. Þegar Bandaríkin tilkynntu um viðbún aðinn, lét hann undan á mjög svipaðan hátt og Nikita Krúsjeff forsætisráðherra dró í land í Kúbu-deilunni. Þegar Krúsjeff var gagnrýndur fyrir þetta svar- aði hann því til. að fyrir honum hefði vakað að bjárga heiminum f rá stríði. En veigamesta röksemd Krússjefs — og Breznev beitir henni nú sér til varnar — var sú, að Kfnverjar notuðu hættuástand- ið til þess að æsa til styrjaldar milli Sovétríkjanna og Bandaríkj-; anna og að þeir mundu hagnast mest á slíkum átökum. Þegar Brezhnev heldur þvf nú fram með því, sem hann leggur sovézkum blöðum í munn að „mikilvægasta markmið'1 Peking- stjórnarinnar í stríðinu í Miðaust- urlöndum hafi verið að egna til „beinna hernaðarátaka'' milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, á hann raunverulega við það, að haukarnir i Kreml séu að þóknast Kfnverjum. Vegna hins þráláta ötta Rússa við Kinverja gæti Brezhnev varla fundið haldbetri röksemd gegn andstæðingum sín- um. Hún kom Ki'úsjeff vissulega að góðum notum, um tíma að mínnsta kosti. En að lokum var annar lærdómur Kúbu-deilunnar veigameiri að diimi Kremlhauk- anna og hann stuðlaði að falli Krúsjeffs á sama hátt og annar lærdömur Miðausturlandastríðs- ins getur kostað Brezhnev stöð- una, þegar hann hefur sfazt inn. Þegar Krúsjeff lét undan í Kúbu-deilunni töldu sovéthauk- arnir afleiðinguna þá, að ekki væri hægt að taka mark á honum 1 árekstrum, sem síðar gæti komið til milli Sovétríkjanna og Banda- rfkjanna. Kjarnorkuherfræði byggist á blekkingu. Samkvæmt .henni skiptir ekki meginmáli, hvort mótaðilinn ætlar vísvitandi að beita kjarnorkuvopnum. Mestu máli skiptir, að vitað sé, að leið- togar þjöðarinnar séu fastir fyrir og nógu ákveðnir til þess aðauka áhættuna svo mikið, að líkur á þvf aukist, aðannar hvor aðilinn beiti kjarnorkuvopnum. Blekking Krúsjeffs hafði aldrei eins mikil áhrif og hún áður hafði eftir Kúbu-deiluna — hvorki í Berlín né í öðrum stórfelldum deilumál- um, því ekki var lengur hægt að taka hann trúanlegan. Tiltækur hernaðarmáttur var annar lærdómur, sem Kreml- haukarnir drögu af Kúbu-deil- unni. og hann á sér margar hlið- stæður í árekstrunum í Miðaust- urlöndum. llótanir Krúsjeffs VICTOR ZORZA: • • 1 • Kreml

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.