Morgunblaðið - 13.12.1973, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973
7
Neville Chamber-
lain þáverandi for-
sætisráðherra í
Þýzkalandi árið
1938. Hann lærði
ekki af reynslunni.
Lá við uppgjöf
Breta 1940
í erlendum blöðum var nýlega
skýrt frá því, að birt hafi verið
í Bretlandi skjöl varðandi
fundi ráðherranefndarinnar,
sem hafði með höndum yfir-
stjórn styrjaldarrekstursins á
árum síðari heimsstyrjaldar-
innar. Kemur þar margt fram,
sem ekki var áður vitað, meðal
annars að svo virðist sem litlu
hafi munað, að Bretar gæfust
upp fyrir Þjóðverjum 28. maí
1940.
Það var þennan dag, sem
brezka ráðherranefndin felldi
með eins atkvæðis mun tillögt
Ilalifax lávarðar, þáverandi ut-
anríkisráðherra, og Neville
Chamberlai-ns fyrrum forsæt-
isráðherra um að leggja niður
vopn um leiðog Frakkar.
I lok maímánaðar 1940 var
uppgjöf Frakka skammt und-
an, og brezku hersveitirnar í
Frakklandi i miklum vanda.
Brottflutningur brezka hersins
frá Dunkerque hófst 27. maf,
og sama dag var lögð fram
skýrsla brezka herforingja-
ráðsins um ástand og horfur.
Taldi herforingjaráðið senni-
legt, að hersveitir Ilitlers
gerðu fljótlega innrás í
England
Brezka flotanum var um
megn að stöðva innrásartil-
raunir Þjóðverja til lengdar,
nema ef brezki flugherinn
hefði yfirburði í lofti. Næðu
Þjóðverjar fótfestu á Eng-
landi, var brezki herinn ekki
fær um að hrekja þá þaðan.
Allt byggðist þvi á yfirburðum
i lofti, en herstjórnin óttaðist,
að Þjóðverjum tækist með loft-
árásum sínum að stöðva alla
smfði herflugvéla.
Belgfski herinn gafst upp, og
Frakkar voru að þvi komnir að
semja sérfrið. Þegar svona var
komið, taldi Halifax lávarður,
að Bretar næðu betri friðar-
skilmálum, ef þeir semdu við
Þjóðverja strax, áður en
Frakkland félli.
Brezkar kennslubækur í nú-
timasögu hafa haldið því fram,
að algjör samstaða hafi verið
um að halda styrjöldinni gegn
Þjóðverjum áfram, þar til sig-
ur væri unninn. En skjölin
sýna annað.
Ráðherranefndin var skipuð
fimm mönnum, þeim Winston
Churchill forsætisráðherra,
Halifax og Chamberlain frá
Ihaldsflokknum, og svo Clem-
ent Attlee og Arthur Green-
wood frá Verkamannaflokkn-
um. Á fundi nefndarinnar 27.
mai lagði Halifax lávarður til
að Bretar féllust á tillögu Paul
Reynauds, forsætisráðherra
Frakklands, um að fá Benito
Mussolini einræðisherra ítalíu
til að reyna að miðla málum,
en ítalir voru þá ekki orðnir
aðilar að styrjöldinni. Var gert
ráð fyrir því, að Bretar
greiddu ítölum sáttasemjara-
starfið með Möltu og Gíbraltar.
Hafði Halifax lávarður þegar
rætt þetta mál við Bastianini,
sendiherra italfu í London,
tveimur dögum áður.
Attlee lýsti strax algjörri
andstöðu við tillögu Halifax,
og Greenwood benti á afleið-
ingar þess, ef italir fengju yf-
irráð yfir Möltu og Gíbraltar.
Fundinum lauk svo án þess að
nokkur ákvörðun væri tekin,
en Chamberlain hafði þá látið í
það skfna að hann væri að
vissu leyti fylgjandi tillögu
Halifax.
Daginn eftir, 28. maf, ítrek-
aði Ilalifax tillögu sfna. Hann
hélt því fram, að það jafngilti
ekki uppgjöf, þótt Mussolini
>n-ði fenginn til að miðla mál-
um, og til að forða landinu frá
hörmungum sakaði í það
minnsta ekki að kanna friðar-
skilmála Hitlers. Taldi hann
ekki, að sjálfstæði Englands
gæti stafað nein hætta af
þeirri könnun.
Eftir nokkrar umræður var
ljóst, að Halifax og Chamber-
lain voru fylgjandi þessum
friðarumleitunum, en Attlee
og Greenwood á móti. Valt því
málið á atkvæði Churchills, og
svar hans var ótvírætt: Enga
uppgjöf. „Við látum ekki
Frakka draga okkur niður í
svaðið," sagði ChurchiII. „Ef
Frakkar eru ekki lengur fúsir
að halda baráttunni áfram,
geta þeir gefizt upp. Ilugmynd
Reynauds miðar aðeins að því
að forða Frökkum frá þeirri
háðung að þurfa að semja sér-
frið."
Þar með var umræðunum
lokið, og Reynaud sendi orð-
sendingu þess efnis, að Bretar
ætluðu ekki að taka upp samn-
inga við óvininn. Ekki liggur
ljóst fyrir, hvort þeim Hitler
og Mussolini hafi verið kunn-
ugg um. hve nærri uppgjöf
Bretar voru um þetta leyti.
Það er að sjálfsögðu ósköp
eðlilegt, að hvorki Halifax né
Chamberlain skuli minnast á
fundina tvo 27. og 28. maí í
endurminningum sínum.
Ástæðan fyrir því, að Chur-
ehill og Attlee gera það ekki
heldur, er sennilega sú, að þeir
hafi ekki viljað láta það kom-
ast i almæli, að sundrung hafi
ríkt innan stjórnarinnar á ör-
lagastundu.
Orðrómurinn, sem eitt sinn
gekk um, að þeir Ilalifax lá-
varður og Neville Chamber-
lain væru sffellt að reyna að
koma á friðarsamningum við
Hitler, hefur bersýnilega við
rök að styðjast, þótt reynt hafi
verið að þagga hann niður. Nú
verða söguskráendur að taka
það, sem sannara reyndist inn
i bækur sínar. Ekki verður
þessi viðbót til þess að auka
álit mannanna tveggja, sem
stóðu að samningunum i
Mtinchen árið 1938. Þeir höfðu
sýnilega ekki lært af reynsl-
unni og héldu enn, að imnt
væri að semja við Hitler.
(Urdönskum blöðum)
JÓLATRÉ sigræn og sáldfri jólatré. €innig sáldfritt greni Fjallafura og Silki- fura. Jólatréssalan, Drápuhlið 1. BROTAMALMAR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði Staðgreiðsla. Nóatúni 27, sími 25891
BÍLA-BRAUTARTEPPIN er jólagjöfin fyrir. strákana Fást að Nökkvavogi 54, sími 34391 Sendum gegn póstkröfu NOTAÐ MÓTATIMBUR óskast af stærðinni .1 x6 Upplýsingar í sima 30131
FULLORÐIN KONA óskar eftir léttri heimilisaðstoð hjá manni 60—65 ára Þarf að hafa sér stofu og aðgang að eldhúsi. Tilboð sendist Mbl. ásamt nafni, heimilisfangi og simanúmeri merkt „3051'fyrir 18.desember JEEPSTER '67 V6 vél, á nýjum nagladekkjum, isl. klæðning, til sölu og sýnis hjá Agli Vilhjálmssyni.
ANTIK HÚSGÖGN! Borðstofusett. sófasett, stakir stól- ar og skápar Selst á sanngjörnu verði Upplýsingar i sima 20738 milli kl. 1 —6. KEFLAVIK glæsilegt úrval af herra snyrti- vörum. Rakarastofa Harðar.
VOLVO AMAZON óskast keyptur árgerð 1 963 — 1968 Staðgreiðsla Upplýsingar i sima 37203 TILJÓLAGJAFA Hvíldarstólar, skrifborðsstólar, barnastólar, píanóbekkir, innskots- borð, spilaborð. vegghillur. blaða- grindur og margt fleira Nýja Bólsturgerðm, Laugavegi 134 Simi 16541
ÓSKAEFTIR að kaupa Land-Rover disel, árg '72 eða '73 Árg. '68 kemur einnig til greina Hringið i sima 71979 milli kl 7 og 9 i kvöld. NÝ FULLFRÁGENGIN 2JA HERB. ibúð i Breiðholti til leigu frá ára- mótum. Mjög fallegt útsýni. Til- boð sendist afgr Mbl merkt „7925 " fyrir laugardag
BRJÁLUÐ LJÓÐ Nokkur áskrifuð eintök af öllum fjórum Ijóðabókum minum, fást i bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnar- stræti 4. Hallbjörn Benjamínsson YTRI-NJARÐVÍK Einstaklingsibúð til leigu Sími 18745
NJARÐVÍK 3ja herb. ibúð til leigu nú þegar, Upplýsingar i sima 2829 DRIF í TRADER '63 Óska eftir að kaupa drif í Trader vörubil '70 Einnig kæmi til greina drif úr Volvo 3 75. Upplýsingar í síma 369 10 og 84139
WILLYS JEPP 63 til sölu Bill i sérflokki Ný skúffa, nú dekk, ný klæddur innan. ný sprautaður. Kr. 200 þús. Simi 21 550 KEFLAVÍK Úrval gjafakassa fyrir herra Rakarastofa Harðar.
HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Niðursoðnu ávextu 1 flokks. ódýr- ir komnu aftur Rauðkál 4 50 kr dósin 9 pund Tekex 1 98 kr 6 p Ódýr ávaxtasulta Kjötkjallarinn. Vesturbraut 12 HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Jólahangikjötið úrbeinað á 495 kr kg Svinakjöt, steikur. ham- borgarahryggir. kótilettur. úrbem- aðir léttreyktu bógar. lágt verð Kjotkjallarinn. Vesturbraut 12
BÍLAVERKSTÆÐIÐ BJARG Bjargi við Sundlaugaveg simi 38060 Getum bætt við okkur viðgerðum fyrir jólin. Bilaverkstæðið Bjarg, Bjargi við Sundlaugaveg, simi 38060 HAFNARFJÓRÐUR OG NÁGRENNI Úrbeinuð dilka hamborgaralæi'i með spekki á 495 kr kg. Dilka hamborgarahryggu ódýrir Rúllu- pylsur 27 5 kr st. Saltað og nýtt hrossakjöt Kjötkiallarinn. -Vestuibraut 12
uuoouuuyou««yoo()uuuuuooou
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
Jólatré og greinar
*
Jólatrésskreytingar
*
Opi6 alla daga kl. 11-23
Jólatrésmarkaðurlnn,
Brautarholti 20.
(Á horni Brautarholts og Nóatúns)
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
ooooo