Morgunblaðið - 13.12.1973, Page 13
MOHCiUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUK 13. DESEMBEK 1973
13
Bækur Ægisútgáfunnar 1973
MENNIRNIR
j BRÚNNI
Þœttir af starfandi
skipstjórum
AAennirnir í brúnni
Draumar og dulskyn
Þættir af starfandi skipstjórum, Guðmundur
Jakobsson, skráði.
Þetta er f jórða bindi þessa bókaflokks og hafa
þá alls verið kynntir 26 aflasælir, dugandi skip-
stjórar. Að þessu sinni eru það, Einar Sigurðs-
son, skipstjóri á Aðalbjörgu frá Reykjavik,
Gunnar Arason, skipstjóri á Lofti Baldvinssyni
frá Dalvik, Halldór Brynjólfsson, skipstjóri á
Lómi frá Keflavik, Magnús Þórarinsson, skip-
stjóri á Bergþór frá Sandgerði, Marius Héðins-
son, skipstjóri á Héðni frá Húsavik og Tryggvi
Gunnarsson, skipstjóri á Brettingi frá Vopna-
firði.
I bókinni eru yfir 80 myndir.
JÓSEFÍNA NiÁlSDÓTTIR
Draumar óg
dulskyn
óvenjulega draum-
spök og skyggn kona,
Jósefina Njálsdóttir,
segir hér frá reynslu
sinni i dulrænum
efnum, og það er
margt og merkilegt,
sem fyrir hana hefur
borið á langri ævi.
Hér eru ekki miðlar
á ferð, heldur beint
samband við dul-
heima, sem okkur
venjulegu fólki eru
jafnan lokaðir.
Þorsteinn Matthias-
son hefur skráð þess-
ar frásagnir.
Þræðir örlaganna
nefnist nýja bókin eftir Denise Robins, Val-
gerður Bára Guðmundsdóttir þýddi.
Denise er afburðasnjall ástarsagnahöfundur
og erlend blöð taka svo sterkt til orða að hún sé
„tvimælalaust fremst slikra höfunda, að bækur
hennar hafi verið þýddar á öll tungumál þjóða
sem ritmál eiga og hafi selst i milljón upp-
lögum”.
Hér á landi hafa bækur Denise notið vaxandi
vinsælda, en samt ekki selst eins mikið og efni
standa til og er þar fyrst og fremst um að
kenna áhugaleysi útgefanda, sem ekki hefur
mikla ást á þessu annars ágæta lestrarefni.
Afburðamenn
og örlagavaldar
20 ævisöguþættir
mikilmenna sögunn-
ar og er þetta önnur
bók útgáfunnar af
þessu tagi.
Þessar bækur eru
skemmtilega
skrifaðar og fróðleg-
ar öllum þeim, er
vilja skyggnast litil-
lega i fortiðina.
Bárður Jakobsson
þýddi þetta bindi.
AFBURÐAMENN
0G
ÖRLAGAVALDAR
Brautryðjendur
Bók sem Þorsteinn Matthiasson hefur skráð og
búið til prentunar.
Þetta er fyrsta bók i bókaflokki, sem ætlað er
að gera nokkur skil islenzkum mönnum, sem
hafa með sérstæðum hætti lifað lifi sinu, landi
og þjóð til farsældar. Sá maður er nú varð
fyrstur fyrir valinu er óskar Clausen, sem
flestir tslendingar munu kannast við og á sér
óvenjulega sögu.
Nokkur sýnishorn úr bókum Óskars eru hér
birt, en hann hefur skrifað alls 26 bækur og er
ekki séð fyrir hve margar þær verða að lokum
þvi enga uppgjöf er á honum að heyra.
í fremstu víglínu
t FREMSTU
VIGUNU
Eftir Sven Iiazel.
Þetta er fimmta bók
útgáfunnar eftir
þennan vinsæla höf-
und, sem flestir telja
fremstan núlifandi
striðsbókahöfunda.
Lengi var honum likt
við Hemingway og
Remarque, en nú
segja þeir i útlandinu
að hann sé búinn að
máta báða.
Bækur Hazels, sem
komið hafa út á is-
lenzku, hafa allar
selst upp.
Villingar og furðufuglar
Á brún hengiflugsins
skáldsaga eftir Morris L. West, en hann er tal-
inn meðal fremstu höfunda leynilög-
reglu-sagna. Bækur hans hafa selst i risaupp-
lögum og hann hefur komið til greina við
Nobelsverðlaunaveitingu.
Þessi bók fjallar um ævintýralegan feril blaða-
manns, sem reynir að ná i ,,Stóru fréttina”.
Málið varðar örlög heilla þjóða, en ljónin á
veginum reynast mörg og ýmsir eru þeir, sem
ekki æskja þess að málið upplýsist. Auðvitað
kemur blessað kvenfólkið nokkuð við sögu og
spennandi er bókin allt til enda.
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi.
Það eru ekki allar bækur merkilegar, sem út
eru gefnar. Að sjálfsögðu er þvi einnig svo far-
ið hjá Ægisútgáfunni, en þið getið verið viss um
að frá þeirri útgáfu fáiöþíð aldrei leiðinlega
bók.
ÆGISÚTGÁFAN
Þingholtsstræti 23