Morgunblaðið - 13.12.1973, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973
31
Lilja Sölvadóttir
— Minningarorð
I dag er gerS útför Lilju Sölva-
dóttur, en hún lézt 5. þ.m. For-
eldrar hennarvoru Guðrún F’rið
riksdóttir og Sölvi Víglundsson.
Guðrún var fædd 24. september
1874, dóttir hjónanna Guðrúnar
Bjarnadóttur og Friðriks Þor-
grímssonar bónda á Kvfgindisfelli
í Tálknafirði. Sölvi var einnig af
traustum vestfirzkum ættstofni,
fæddur aðGeirseyri, Patreksfirði
17. desember 1870. Hann fór strax
að stunda sjóinn fyrir vestan, er
hann hafði aldur til, fyrst á ára-
bátum, en síðan á skútum. Flutt-
ist hann til Reykjavíkur og lauk
prófi frá Stýrimannaskólanum ár-
ið 1896. Var sfðan lengst ævinnar
skipstjóri. Hann kvæntist sinni
ágætu konu árið 1897 og bjuggu
þau alla sfna tíð hér í Vesturbæn-
um. Töldu bæði það sitt mesta
gæfuspor að verða lífsförunautar,
en sambúð þeirra varð nærfellt 58
ár. Sölvi lést 20. ágúst 1955, en
Guðrún7. marz 1966.
Lilja, sem var einkabarn, stund-
aði nám við Kvennaskólann í
Reykjavík, en starfaði síðan í
Landssímastöðinni hér í borg
fjölda ára. Ung var hún heitbund-
in Eyþóri Tómassyni Kjaran stýri-
manni, en hann andaðist í blóma-
lífs árið 1919. Tregaði hún mjög
unnusta sinn. Vorið 1930 giftist
Lilja Guðmundi Guðmundssyni
bankagjaldkera frá Re.vkholti.
Kom þá í hennar hlut að ganga í
móðurstað tveim ungum börnum
Guðmundar af fyrra hjónabandi,
Laufeyju og Gunnari, en móðir
þeirra lézt árið 1929. Var Lilja
þeim vanda vaxin, og varð mjög
hlýtt milli hennar og systkinanna.
Lilja missti mann sinn árið 1950,
og hafði hjónaband þeirra verið
mjög farsælt. Tók hún miklu ást-
fóstri við börn stjúpbarna sinna
og síðar börn þeirra, en þauGuð-
mundur voru barnlaus.
Eftir lát föður síns annaðist
Lilja móður sína af sérstakri um-
hyggju og alúð, og vék ekki frá
henni til hinztu stundar. Lilja var
stórbrotin kona, f senn skapstór
og skapmild, og mjög raungóð.
Hún hafði ágæta frásagnargáfu,
var sérstaklega orðheppin, er eitt-
hvað skoplegt bar á góma. Hús-
móðir var hún mikil. Þótti á yngri
árum með fegurri konum hér f
bæ. Ég þakka löng, hlý og góð
kynni, og óska henni velfarnaðar
á þeim óförnu slóðum, sem hún
var viss um að lægju fram undan.
Einar Arnalds.
Kveðja.
Amma Lilja er dáin.
Margs er að minnast, margt ber
að þakka. Ótal ánægjustundir á
heimili okkar og í faðmi fjölskyld-
unnar. Lilja var kát og hress og
mjög barngóð. Oft hljóp hún und-
ir bagga, ef börnin urðu veik eða
á þurfti að halda og var jafnan
aufúsugestur. Lilja hafði mikla
frásagnargáfu, sem bæði börn og
fullorðnir kunnu vel að meta. Nú
er hún horfin af sjónarsviðinu.
En minningin um góða konu lifir.
Endurminningin merlar æ
í mána silfri hvað, sem var,
yfir hið liðna bregður blæ
blikandi fjarlægðar,
gleðina jafnar, sefar sorg;
svipþyrping
sækir þing
í sinnis hljóðri borg.
G.Th.
Kristín og Jónas.
BaUerup
Hrærir, peytir, hnoðar, blandar,
hristir, sneiðir, rífur, brýnir, bor-
ar, burstar, fægir. bónar.
Vegghengi, borðstatif, skál.
Hentar litlum heimilum - og
ekki siður þeim stóru sem
handhæg aukavél við smærri
verkefnin.
FYRSTA FLOKKS FRÁ
FÖNIX
HÁTÚNI 6A.SÍMI 24420
JÓLASKEIBIN 1973
Fæst hjá flestum
skartgripasölum.
jia - HÚSID - TEPPADEILD
Gærumottur og rýjamottur í úrvali.
Teppaflísar og filtteppi.
Margar gerðir og litir.
Nylon teppi frá kr. 950.— pr. fm.
Amerískt rýjateppi aðeins
kr. 1.415.— pr. fm.
Verið velkomin og verzliÓ þar sem úrvalið
er mest og kjörin bezt
||| JÓN LOFTSSON HF
Hringbraut 121 10 600
scenslc hönnun
fyrir heimilið
HUSGAGNAVERZLUN
. KRISTÍÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugav(;gi 13 H(;ykjavik sími 25870