Morgunblaðið - 13.12.1973, Qupperneq 43
WUsA,
Það nýjasta
I dömu-
°g
herratízku
Bergstaóastræti 4a Sími 14350
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973
„Vil, að menn séu ærlegir”
— sagði Joe Hooley og sveik svo KR-inga
þessi: Aarhus KFUM 14, 2)
Helsingör 12, 3) Fredricia
KFUM 11,4) Stadion 9,5) AGF 8,
6) Efterslægten 7, 7) Stjernen 7,
8) Skovbakken 6, 9) HG 4 og 10)
Virum 2. HG hefur leikið einum
leik færri en hin liðin.
Bjarni Jónsson
Enn stórleik-
ur hjá Bjarna
AARHUS KFUM, hand-
knattleiksliðið sem Bjarni
Jónsson leikur með í Danmörku,
hefur stöðugt forvstu í dönsku 1.
deiIdarkeppninni f handknattleik
og virðast hlaðamenn þarlendis á
einu máli, að allar likur séu á þvf,
að liðið vinni Danmerkur-
meistaratitilinn í ár. Um helgina
vann það einn helzta andstæðing
sinn, Stadion, með 19 mörkum
gegn 15, og er nú með 14 stig að
loknum 8 umferðum. I öðru sæti
er Helsingör með 12 stig.
Bjarni Jónsson fær mikið hrós i
dönskum blöðum eftir leikinn
gegn Stadion, en þá skoraði hann
5 mörk og þótti einn bezti varnar-
Ieikmaður liðs síns. „Bjarni
Jónsson átti stórkostlegan leik.
Ilann skoraði með fimm þrumu-
skotum, sem Lasse Petersen,
markvörður Stadion, sá ekki fyrr
en þau voyu í netinu," segir eitt
blaðanna. i viðtali við eitt blað-
anna segist Bjarni ætla að vera
með í því að vinna Danmerkur-
meistaratitilinn með Aarhus
KFUM áður en hann fari heim til
Islands. Blöðin segja, að Bjarni
hafi verið eini leikmaðurinn, sem
ekki kvartaði yfir hörkunni og
hrindingunum i þessum leik —
hann er vanur miklu harðari
handknattleik á Islandi, segja
þau.
Urslit i öðrum 1. deiklar
leikjum i Danmörku um siðustu
helgi urðu þessi:
Skovbakken — Efterslægten
16—25
Viruin — Fredrieia KFUM
14—17
Helsingör — AGF 22—13
HG — Stjernen ' 19—11
I leik Ilelsingör og AGF skoraði
Jörgen Petersen 8 mörk og þótti
sýna stórkostlogan leik.
Röð liðanna og stig i keppninni
um Danmerkurmeistaratitilinn er
— MÉR líkar ekki við menn, sem
ganga um Ijúgandi, ég vil, að
menn séu ærlegir. Þessi orð voru
meðal þeirra sfðustu, sem Eng-
lendingurinn Joe Ilooley sagði
við forráðamenn KR, er hann
dvaldi hér á landi fvrir tæpum
mánuði. Þá sagðist hann vera
ákveðinn f að koma til KR-inga
næsta sumar og þjálfa 1. dcildar
lið félagsins; svo ákveðinn var
Hoole.v f að koma hingað, að hann
var farinn að gera áætlanir um,
hvernig hann færi að þvf að gera
KR-inga að Islandsmeisturum.
Nú hafa veður hins vegar skipazt
f lofti, og Joe Hooley hefur gert
samninga við norska félagið
Molde, samningar þeir, sem Hool-
ey gerði við KR voru aðeins
munnlcgir og taldi hann sig ekki
bundinn af þeim.
Ákvörðun Hooleys um að taka
Norðmennina fram yfir KR kom
eins og reiðarslag yfir KR-inga,
því siðastliðinn laugardag ræddi
Sveinn Jónsson formaður knatt-
spyrnudeildar KR við Hooley og
þá sagði sá enski, að hann ætti
aðeins eftir að skrifa undir samn-
inginn, sem KR-ingar höfðu sent
honum. Þá kom ekki annað til
Athugasemd frá
lyftingamönnum
Vegna greinar á fþróttasfðu
Þjóðviljans 4. desember s.l. um
Reykjavíkurmótið f kraftlyft-
ingum. viljum við lyftingamenn í
lyftingadeild Armanns og KR,
senda frá okkur eftirfarandi at-
hugasemd:
I umræddri grein segir orðrétt:
„Annars er varla hægt að tala um
kraftlyftingar sem alvöru
keppnisgrein. Þær eru eiginlega
aðeins kraftæfingar, sem undir-
staða fyrir allar greinar íþrótta og
hvergi iðkaðar sem keppnisgrein
nema hér á landi, eitthvað í Sví-
þjóð og eru ekki alveg óþekkt
grein í Noregi. Það er því heldur
hlálegt að heyra forráðamenn
lyftingaríþróttarinnar vera að
tala um Norðurlandamet eða
heimsmælikvarða í kraftlyft-
ingum''
Hér er farið með staðhæfingar,
sem óneitanlega gera mjög svo
lítið úr störgóðum afrekum kraft-
fvftingamanna okkar islendinga
og finnst okkur því ófært annað
en að leiðrétta opinberlega stað-
hæfingar Sigurdórs Sigurdórsson-
ar fþróttafréttaritara Þjóðviljans.
Sannleikurinn er nefnilega sá, að
kraftlyftingar eru stundaðar sem
keppnisgrein f fjölda mörgum
löndum. Til dæmis í Bandaríkj-
unum, Kanada, Bretlandi, Frakk-
landi, Belgíu, Hollandi, Þýzka-
landi, Finnlandi, Svíþjöð og
Noregi. Bandaríkjamenn raun-
verulega fundu upp kraftlyfting-
ar sem keppnisgrein, ef svo má
segja, enda stunda langtum fleiri
Bandarfkjamenn kraftlyftingar
en hina svokölluðu tvíþraut,
þ.e.a.s. snörun og jafnhöttun, þótt
hún sé einnig geysimikið stunduð
þar. Þeir eiga líka langflest
heimsmetin í power (þe. kraft-
lyftingum). Bretar eru einnig
mjög framarlega í þessari grein
lyftinga, svo og Finnar og Norð-
menn.
A þessari upptalningu má
glöggt sjá hversu fáránlegar stað-
hæfingar Sigurdórs eru og ósjálf-
rátt flögrar aðokkur sú spurning,
hver eiginlega tilgangurinn með
þessum skrifum hafi verið. Lyft-
ingaíþróttir er kornung íþrótta-
grein hér á landi og þarf því öll
þau jákvæðu skrif og umtal sem
mögulegt er að fá, en jákvæð
áhrif skrifa Sigurdórs eigum við
erfitt með að koma auga á. Þessi
grein hans er slæm, við viljum
jafnvel taka svo djúpt í árinni að
segja, að ef við hefðum látið
henni ósvarað, hefði hún getað
unnið kraftlyftingaíþróttinni
mikið tjön, þvf hver nennir að
eyða tíma sínum í að glápa á
menn keppa sín á milli í grein,
sem einungis er stunduð hér á
landi, eitthvað i Svfþjóð og örlítið
í Noregi.
Það er raunverulega furðulegt,
að maður, sem kallar sig íþrótta-
fréttaritara, skuli ekki vita ein-
földustu staðreyndir um kraft-
lyftingaiþróttina og jafnvel enn
furðulegra að hann skuli ekki
reyna að fela þessa fávizku sfna.
Ef til vill eru íþróttafréttaritarar
hinna blaðanna lítið betur að sér
um þessa ágætu fþrótt, en þeir
hafa líka hingað til látið sér
nægja að skýra frá staðre.vndum,
en ekki birt furðufréttir eins og
Sigurdór gerir hér.
Við viljum þvf eindregið benda
Sigurdór á, að afla sér þekkingar
á þessari ágætu íþrótt úr er-
lendum lyftingablöðum áður en
hann tekur sér næst penna hönd
til að skrifa frásögn af kraftlyft-
ingamóti. Ef honum hins vegar
finnst fþröttin ekki þess virði að
eyða einhverjum tíma í að afla sér
vitneskju um hana, þá viljum við
f komandi framtíð afbiðja okkur
öllskrif fráhans hendi.
Allra sfðast viljum við svo
benda á örfá atriði:
a) Starfandi er alþjöðlegt sam-
band kraftlyftingamanna.
b) Ileimsmeistaramót er háðár-
lega og vonandi senda forráða-
menn keppendur þangað næsta
ár.
c) Unnið er íni að því, að koma
á landskeppni við Svíþjóð, sem
hugsanlega gæti orðið á miðju
næsta ári.
Með þökk fyrir birtinguna,—
Lyftingadeild Ármanns,
Lyftingamenn úr KR.
greina hjá honum en að koma
hingað til lands. Ekki fréttu KR-
ingar um þessa ákvörðun Hooleys
frá honum sjálfum, heldur kom
frétt um þetta frá norsku frétta-
stofunni NTB í fyrradag.
Sveinn Jónsson hafði samband
við Hooley í gær og spurði, hvort
frétt NTB væri á rökum reist.
Sagði Hooley svo vera. — Ég
skammaðist og skammaðist og
hann gat ekkert sagt* sagði
Sveinn f samtali við Morgunblað-
ið í gær, minnti hann m.a. á orð
hans um heiðarleika og hann varð
hinn aumasti. Fyrst maðurinn er
ekki ærlegri en þetta, þá var eins
gott að losna við hann strax. Við
KR-ingar erum þekktir fyrir
ýmislegt annað en að gefast upp
og höfum þegar komízt í samband
við annan enskan þjálfara, sagði
Sveinn að lokum.
Joe Holley—hafði heitiðKR-ing-
um að gera þá að Islandsmeistur-
um. Nú hefur honum snúist
hugur og fer til Noregs næsta
sumar.
IÞROTTAFRETTIR MORGOMSINS
Einar bætti metið
Metið, sem Skúli
Óskarsson, UlA, setti f kraft-
þraut millivigtar á Reykja-
vfkurmeistaramótinu á dög-
unuin. varð ekki langlift. A
innanfélagsmóti, sem Ar-
mann gekkst fyrir f Sænsk-fs
lenzka fr.vstihúsinu um
helgina, bætti Einar Þor-
grímsson, KR metið með því
að lyfta samtals 607,5 kg.
Met Skúla var 605 kg. Einar
lyfti 217,5 kg í hnébeygju-
lyftu, 157,5 kg í bekkpressu,
'en það er jafnt meti hans í
þeirri grein, og í réttstöðu-
lyftunni náði Einar að lyfta
232,5 kg.