Morgunblaðið - 28.12.1973, Page 2

Morgunblaðið - 28.12.1973, Page 2
2 MÓRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESÉMBER 1973 Bjarni Sæmundsson framleiðir rafmagn fyrir Hafnarbúa Enn er algjört ófremdarástand í rafmagnsmálum Hornfirðinga, þvf aðfararnótt jóladags bilaði nýja túrbínan þar og taka varð upp rafmagnsskömmtun á ný. Kólnað hefur þvf á nýjan leik í húsum Hornfirðinga, en þar er rafmagn nú skammtað í tvo tíma í senn. Rafallinn við túrbínuna er mjög mikið skemmdur eða gall- aður og veit enginn hvenær hann kemst í gang á ný. Til þess að leysa vanda Hornfirðinga til bráðabirgða var rannsóknarskip- ið Bjarni Sæmundsson sent áleið- is til Hafnar f gærkvöldi og á skipið að framleiða rafmagn fyrir Illa gengur að ákveða fiskverðið UM áramót á nýtt fiskverð að taka gildi, en horfur eru á, að ekki verði búið að ákveða verðið fyrir þann tíma. Stjórn Verðlagsráðs sjávarút- vegsins fjallaði um fiskverðið allt fram til 17. desember, en þá þótíi einsýnt, að hún kæmist ekki að niðurstöðu um fiskverðið. Var þá málinu vfsað til yfirnefndar Verðlagsráðsins, sem þessa dag- ana fjallar um málið. Sveinn Finnsson framkvæmda- stjóri Verðlagsráðsins sagði í samtali við Mbl. í gær, að enn væri ekkert hægt að segja um fiskverðsákvarðanir, en hann neitaði þvf ekki, að illa gengi að ákveða fiskverðið að þessu sinni. Hafnarbúa um tíma, en alls getur skipið framleitt 1000 kw. Friðrik Kristjánsson stöðvar- stjóri Rafmagnsveitna ríkisins á Höfn í Hornafirði sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ekkert hillti undir það, að Smyrlabjarg- árvirkjun gæti hafið rafmagns- framleiðslu á ný. I gærmorgun, er menn komu að lóni virkjunarinn- ar var það gjörsamlega tómt eins og fyrri daginn. Erlendir sérfræð- ingar væru nú á leið til landsins til að reyna að gera við rafal túr- bínunnar, en ekki væri vitað hve- nær þeir kæmu, né hve langan tima það tæki að gera við hana, en eitt væri víst, að rafallinn væri mikið skemmdur. Til þess að bjarga Hornfirð- ingum til bráðabirgða hefði verið ákveðið að senda rannsóknarskip- ið Bjarna Sæmundsson til Horna- fjarðar og láta skipið framleiða Framhald á bls. 18 Dregið í happ- drætti Krabba- meinsfélagsins Dregið var í happdrætti Krabba- meinsfélagsins á aðfangadag. Annar vinningurinn, bifreið af gerðinni Dodge Dart, kom á miða nr. 10120 og hinn vinningurinn Simca fólksbifreið kom á miða nr. 43000. Vitað er um vinnings- h a f ;> Dodge-bilsins en eigandi Simca-bílsins hefur enn ekki gef- ið sig fram, en sá miði var seldur í happdrættisbílnum 1 Banka- stræti. Birt án ábyrgðar. Borgarstjóri og frú þakka ættingjum Ragnars Asgeirssonar hina veglegu gjöf. Kjarvalssafni ber- ast veglegar gjafir REYKJAVlKURBORG opnaði sýningu á verkum Kjarvals hinn 27. desember sl. Meðal mynda, sem til sýnis eru úr hinu fasta Kjarvalssafni borgarinnar, eru sex nýjar, sem safninu hafa borizt að gjöf. Er hér um að ræða þrjár teikn- ingar og eina vatnslitamynd frá börnum þeirra Grethe og Ragnars Asgeirssonar, sem gefnar voru til minningar um náin vináttubönd milli föður þeirra og listamannsins. Mál- verk á steini, sem Kjarval gerði 1937, gaf frænka hans Karitas Bjargmundsdóttir, og lítið olíumálverk var gefið af þeim bræðrum Einari Friðriki og Guðmundi M. Björnssonum. Myndir þær, sem börn Grethe og Ragnars Asgeirssonar gáfu eru: Sjálfsmynd, rauðkríts- mynd frá 1920, Ragnar Ásgeirsson, einnig rauðkríts- mynd frá 1920, Sterling f þoku, vatnslitamynd frá 1912 og Profteikning, kolkrítsmynd frá 1914. Hin innfjálga sjálfsmynd er fræg, og svo er um fíngerðu vatnslitamyndina Sterling í þoku, sem Kjarval málaði þegar hann dvaldist vetrarlangt í Lundúnum og- hafði skoðað Turners í Tate Gallery. Sagt er, að þegar Kjarval sýndi myndina í fyrsta skipti, hafi menn furðað sig á nafninu þar. eð Sterling var hvergi sjáan-! legur. Er Kjarval var spurður hverju þessu sætti svaraði hann eins og frægt er: „Það er rétt, Sterling sést ekki vegna þess að hann er í þokunni.“ Við opnun sýningarinnar, afhenti Haukur Ragnarsson gjöfina fyrir hönd þeirra systkina, en borgarstjóri, Birgir ísleifur Gunnarsson, veitti henni viðtöku fyrir hönd Reykjavfkurborgar. Eitt þeirra verka, sem tilheyrir gjöfinni, Suðurnesjamenn, er ekki á þessari sýningu en mun væntr anlega bætast í hópinn innan tiðar. Gjöf Karitasar Bjargmunds- dóttur heitir Engill, en það er málað á stein árið 1937 og oliu- málverkið frá þeim bræðrum Einari Friðriki og Guðmundi nefnist Rjúpur og er málað á léreft. Auk þessara sex mynda eru á sýningunni 74 málverk en ráðgert er, að sýningin standi til vors. Berserkr brotnaði þegar honum var skipað á land vestanhafs Geimrannsóknaskip í Reykjavík SOVÉZKA rannsóknaskipið Vladimír geimfari Komarov kom til Reykjavíkur í gærmorgun. Umhleypingasamt um jólin „Óhætt er að segja að jólaveðrið er búið að vera nokkuð umhleyp- ingasamt, tvær lægðir eru farnar framhjá landinu og sú þriðja kemur í dag,“ sagði Páll Berg- þórsson veðurfræðingur þegar við ræddum við hann i gær. Hann sagði, að á aðfangadag hefði verið hláka víðast hvar um landið en þá hefði verið suðaustanátt. Á jóladag var víða ágætisveður, til dæmis var indælisveður á Austurlandi, en er leið á daginn snerist veður meira til vesturs og um leið frysti lítils háttar. Á annan í jólum gerði aft- ur SA-átt og þá snjóaði víða um hríð. 1 fyrrakvöld var komið frost aftur á Vestf jörðum og sömuleiðis á Egilsstöðum og í gær snerist vindur meir til norðurs og víða norðan lands var komið 5—6 stiga frost, en. í Reykjavík var þá frostið orðið 3 stig. Þriðja lægðin frá því á Þorláks- messu kemur upp að landinu í dag og því má búast við, að í dag snjóí í Reykjavík. Kom skipið hingað til að taka vatn og vistir að sögn utanríkis- ráðuneytisins. Vladimfr geimfari Komarov er um 17.500 lestir að stærð og er skipið notað til að fylgjast með gervitunglum yfir Norður- Atlantshafi. Eins og sjá má á myndinni eru mjög stórar radarkúlur og skerm- ar á yfirbyggingu skipsins. ÞAÐ óhapp vildi til þegar verið var að skipa íslenzku listisnekkj- unni Berserkr á land í Norfolk f Bandarfkjunum f sfðustu viku, að uppskipunartæki bilaði og féll snekkjan niður á hafnargarðinn. Við það stórskemmdist hún og óvfst er hvort hægt verður að gera við hana. Berserkr er um 28 lestir að stærð og smíðaverð skipsins var yfir 20 millj. fsl. kr. Gunnar Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Hitatækja h.f., en það fyrirtæki lét smíða Berserk hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að það hefði verið fimmtudaginn 20. desember s.l., sem óhappið átti sér stað. Verið var að taka Berserk í land úr Brúarfossi í Norfolk í Bandaríkjunum, og voru tæki úr landi notuð til þess. Skyndilega er snekkjan var rétt komin út fyrir borðstokk skipsins féll hún niður á hafnarbakkann. Ekki er vitað hvað óhappinu olli, en snekkjan sjálf er mjög mikið skemmd. Sagði Gunnar, að Berserkr hefði átt að fara á skemmtibáta- sýningu í Miami í febrúar næst- komandi, en óvíst væri með öllu hvort tækist að gera við snekkj- una fyrir þann tfma, eða hvort hægt væri að gera við hana. Við hefjum strax byggingu á nýrri snekkju ef nokkur tök eru á sagði Gunnar, þessa dagana bfð- um við eftir tilboði frá Kanada- manni, sem áhuga hefur á að fá snekkju sem Berserk smíðaða hjá okkur. Innanlandsflug gengur erfiðlega ALLT frá því á Þorláksmessu hef- ur innanlandsflug Flugfélags tslands gengið frekar erfiðlega, og á aðfangadag féllu niður 5 ferðir. A annan f jólum átti að fljúga til nokkurra staða á land- inu en það tókst ekki. Sömuleiðis gekk flugið illa í gær. Sveinn Sæmundsson blaðafull- trúi Flugfélagsins sagðist í gær, að á aðfangadag hefðu aðeins þrjár vélar komizt á leiðarenda. Ferðir til Akureyrar, Egilsstaða, Sauðárkróks og Húsavíkur hefðu fallið niður og vél hefði orðið að snúa við yfir flugbrautinni í Eyj- um. I gær var flogið með 150 far- þega til Akureyrar í þremur ferð- . um, til Egilsstaða var búið að fara eina ferð og vél, sem lenda átti í Neskaupstað, varð að snúa þaðan og lenda á Egilsstöðum. Sagði Sveinn, að millilandaflug gengi mjög vel og væri mikið að gera í þvi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.