Morgunblaðið - 28.12.1973, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.12.1973, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973 23 Friðbjörn Benónísson skólastjóri - Minning núpi yfir sumartímann, sem höfðu máske verið dálítið baldin heima fyrir, en Kristján hafði mjög gott lag á börnum, ræddi við þau, fræddi og kenndi til verka. Þetta urðu allt fyrirmyndarborg- arar og miklu ástfóstri tóku þau við hann mörg hver. Kristjáni voru falin mörg trún- aðarstörf innan sveitar sinnar, sem hann rækti af sinni alkunnu samviskusemi. Mjög var hann nat- inn við skepnur og oft sóttur til annarra, að hjálpa i þeim efnum, því oft var erfitt að ná til læknis, enda Kristján ávallt boðin og bú- inn að liðsinna, þar sem þess var þörf. Okkar kynni hófust, er ég gekk að eiga dóttur þeirra hjóna, Guðmundu, árið l945. Frá þeirri stundu þróaðist milli okkar mikil og góð vinátta, sem aldrei bar skugga á. Stundum dvaldist ég á heimili þeirra á Arnarnúpi í sum- arleyfum minum og þangað var gott að koma úr ys og þys borgar- innar, í kyrrð og ró dalsins. Þetta hlýja og ljúfa heimili tók manni opnum örmum og ekki létu börn- in þeirra sitt eftir liggja, að gera lífið sem ánægjulegast. Það voru dýrðlegir dagar. Kristján var hagsýnn, framsýnn og dugnaðarmaður hinn mesti. Hann nýtti hlunnindi jarðarinnar sem kostur var og tók upp nýjung- ar að vel athuguðu máli. Börnin, sem heima voru, studdu hann með ráðum og dáð og hans ást- kæra eiginkona var hans styrk- asta stoð og ávallt sterkust, þegar mest á reyndi. En svo brást honum heilsan og hann varð að bregða búi. Það hef- ur verið þungbær ákvörðun þeim hjónum, að yfirgefa fallega dal- inn, indæla heimilið og litlu kirkj- unasemþaulétusérsvo anntum. Fjölskyldan fluttist {il Reykjavík- ur 1956. Fljótlega eftir að suður kom, eignuðust þau sitt eigið hús með samstilltu átaki fjölskyld- unnar. Þar stofnuðu þau fyrir- myndarheimili, sem þeirra var von og visa. Um svipað Ieyti veikt- ist kona mín alvarlega og var oft langdvölum á sjúkrahúsi, uns hún lést árið 1959. Þá veittu tengda- foreldrar minir mér þann styrk og þá hjálp er mér var ómetanleg og ógleymanleg. Og litlu dreng- irnir, sem oft gengu til þeirra og dvöldust hjá þeim um lengri og skemmri tima, munu aldrei gleyma því heldur. Guð launi þeim það allt. Seinna þegar ég giftist aftur, tóku Guðbjörg og Kristján eiginkonu minni og fóst- urbörnum tveim höndum og aldrei gerðu þau upp á milli barn- anna, enda hugsuðu öll börnin ávallt til þeirra sem ömmu og afa. Seinni árin, eftir að Guðbjörg og Kristján voru orðin ein, eign- uðust þau litið en fallegt heimili að Stóragerði 1. Reyndar voru þau aldrei ein, þvi börnin þeirra voru allar stundir hjá þeim, þegar tími og tækifæri gafst. Og oft var gestkvæmt hjá þeim, því alltaf voru móttökurnar jafn hlýjar og notalegar. Nú er Kristján horfinn til æðri heima og leiðir skiljast um sinn. Því vil ég flytja þakkir frá allri fjölskyldunni i Hamarsgerði, fyr- ir ljúfu samverustundirnar og fögru minningarnar um einlægan vin tengdaföður og afa. Guð blessi minningu hans. 0. M. ÞESSI fáu orð eru rituð til þess að minnast Friðbjarnar Benónis- sonar skólastjóra, er lézt laugar- daginn 15. des. s.l. Andlát hans bar óvænt að höndum, en þó hefir sjúkdómur sá, er varð hon- um að bana, vafalaust verið lengi að búa um sig, en um það vissi enginn, því að það var ekki venja hans að kvarta né hlífa sér á nokkurn hátt, og þvi var hann í fullu starfi fram á siðasta dag. Starf skólastjóra er mjög erfitt, sé því gegnt af alúð og skyldu- rækni, en Friðbjörn gekk jafnan heill og óskiptur að hverju starfi og hlifði sér hvergi. A þeim árum, sem hann gegndi skólastjórn í Austurbæjarskólanum, urðu ýms- ar breytingar. Elzti skóli borgar- innar, Miðbæjarskólinn, var sam- einaður Austurbæjarskólanum. Sú breyting var mörgum kennur- um og nemendum Miðbæjar- skólans erfið, en Friðbirni tókst með lipurð sinni og ljúfmennsku að gera gott úr því, þannig að hinir aðkomnu nemendur og kennarar urðu ótrúlega fljótt heimafólk. Allar nýjungar í kennsluháttum voru teknar upp.í, i Austurbæjarskólanum fyrr en víðast annars staðar, og má þar til nefna málakennslu á barnaskóla- stigi og breytingu á hefðbundinni handavinnukennslu drengja og telpna, til að vinna að jafnrétti, en allt misrétti, hvernig sem það birtist, var honum mjög á móti skapi. Friðbjörn vann mikið að félags- málum kennara, og var hann lengi formaður Landssambands framhaldsskólakennara og vann að bættum hag félaga sinna af mikilli alúð og ósérhlífni, enda hafa kjarabætur handa kennur- um sjaldan verið meiri en þann tíma, sem hann hafði mála þeirra með höndum. Friðbjörn Benónisson var fædd- ur 12. des. 1911 í Laxárdal i Strandasýslu, sonur hjónanna Benónís Jónassonar, bónda í Laxárdal, og Sigríðar Guðmunds- dóttur. Hann stundaði fyrst nám við héraðsskólann að Reykjum og siðan við Kennaraskólann og lauk kennaraprófi 1937. Hant» fór til framhaldsnáms í Svíþjóð og stundaði nám í uppeldisfræði við háskólann í Stokkhólmi á árunum 1945 — 47. Hann var kennari við barnaskólann í Vestmannaeyjum 1940 — 45 og skólastjóri við heimavistarskólann að Jaðri 1947 — 49 og síðan lengi kennari við Lindargötu skólann í Reykjavik. t Faðir okkar og tengdafaðir HARALDUR JÚLÍUSSON, kaupmaðurá Sauðárkróki, andaðist á heimili sínu 2 7. desember. Bjarni Haraldsson, Maria Haraldsdóttir, Guðfinnur Einarsson, t ÞÓRARINN GUNNARSSON, Gunnarssundi 1. Hafnarfirði, lézt að Sólvangi 24. desember. Útförin er ákveðin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, laugardaginn 29 des. kl. 1 0.30 Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á minningarsjóð Guðrúnar Einars- dóttur við Fríkirkjuna í Hafnarfirði. Þorbjörg Ólafsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar og fósturfaðir DAVÍÐ FRIÐRIKSSON, frá Gamla Hrauni B-götu 24 Þorlákshöfn, lézt að kvöldi 22. desember Jarðsett verður frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 29 desember kl 13.30 Þeir, sem vilja minnast hins látna er vinsamlega bent á Hjartavernd eða S.Í.B.S. Ingibjörg Guðmundsdóttir Guðbjörg Þóra Daviðsdóttir Jóhann Daviðsson Haukur Benediktsson. LOKAÐ Verslunin veróur lokuÓ 28. des. vegna flutninga, opnum aftur laugardag 29. des. I Ármúla 18 Byggingavörur hf. Laugaveg 178 Hann var siðan skólastjóri Austurbæjarskólans frá 1968 til dánardags. Friðbjörn var kvæntur Guð- björgu Einarsdóttur hjúkrunar- konu, og áttu þau eina dóttur, Guðrúnu Sigríði kennara. Frið- björn bar það með sér, hvar sem hann fór, að hann var gæfu- maður i einkalífi sínu og átti gott heimili. Konu hans og öðrum ættingjum færi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Að lokum vil ég þakka vini min- um, Friðbirni Benónissyni, fyrir ágæta samvinnu þann tíma, er við störfuðum saman. Ég tel vel við- eigandi að gefa skólamanni ein- kunn að leiðarlokum: Hann var drengur góður og vammlaus mað- ur. Hjalti Jónasson. Frú Marja Braathen aldarfjórðungi. Sú samvinna var með eindæmum góð og til fyrir- myndar. Með henni hófst mjög persónuleg kynni þeirra Braat- henshjónanna við marga Is- lendinga og upp úr þvi íslands- ferðir þeirra, sem margir minnast með þakklæti. ekki hvað sist vegna hinna miklu gjafa þeirra hjónatilskógræktar á íslandi. Þau hjónin höfðu mörg áhuga- mál og létu margt gott af sér leiða. Hugur frú Marju beindist einkum að listaverkum og göml- um vopnumen af hvorutveggja átti hún fágæt söfn. Hún vann líka að ýmsum mannúðarmálum og spaðaði hvorki tima né fé til þeirra. Frú Marja var borin og barn- fædd í Sviþjóð, og þar kynntust þau Ludvig G. Braathen á út- legðarárum hans i síðari heims- styrjöldinni. Allir íslendingar, sem höfðu k.vnni af frú Bratthen minnast hennar nú með þökk og söknuði. S.Mog H. B. Umsóknir um styrk úr Finnska |C-sjóÖnum Finnski JC-sjóðurinn er stofnaður af Junior Chamber Finnlandi og Junior Chamber Islandi með fé, sem safnað var í Finnlandi og Svíþjóð með sölu límmiða með íslenzka fánanum. Markmið sjóðsins er að styrkja skólanám unglinga frá Vestmannaeyjum á aldrinum 14—19 ára, utan Vestmannaeyja. Styrkveiting JC-sjóðsins nær til hverskonar náms, nema skyldunáms og háskólanáms. Umsækjendur geta verið aðstandendur styrkþega eða styrkþegi sjálfur. Ef styrkþegi nýtur fjárhagsaðstoðar frá fjölskyldu sinni, er styrkurinn greiddur til fjölskyldunnar. Stjórn sjóðsins skipa. Erkki Aho, Kouvola, Finnlandi, Jón E. Ragnarsson og Ólafur Stephensen, Reykjavík. Endurskoðendur eru: Rolf Zachariassen, Heilola, Finnlandi og Reynir Þorgrímsson, Kópavogi. Ctfyllt umsóknareyðublöð skal senda til: Finnska JC-sjóðsins, pósthólf 579, Reykjavík. Eyðublöðin skulu hafa borist fyrir 31. Des. 1973 Skrifstofur bæjarstjórnar Vestmannaeyja í Vestmannaeyjum og í Hafnarbúðum afhenda umsóknareyðublöð og gefa jafnframt nánari upplýsingar. FINNSKI JC-SJÓÐURINN PÓSTHÓLF 579 REYKJAVÍK SUNNUDAGINN 16. desember lést frú Marja Braathen í Osló, eiginkona Ludvigs G. Braathens, flugvéla- og skipaeiganda. Þau hjón hafa um mörg ár verið góð- kunn íslendingum, allt frá þvi er samstarf hófst milli Loftleiða og flugfélags Braatthensfyrirnærri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.