Morgunblaðið - 09.01.1974, Page 4

Morgunblaðið - 09.01.1974, Page 4
MORGUNBI/AÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 1974 FaZ . I I .I H. l V uitr 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 BILALEIGA CAR RENTAL ir 21190 21188 Itel 14444 • 25555 V/IM/M lBllALEIGA CAR RENTAL M I OM-IMHTM.- I Hverfisgötu 18| 86060 SKODA EYÐIR MINNA. Shodb IBGAH AUÐBREKKU 44-46. SlMI 42600. Ferðabilar hf. Bílaleiga. Sími 81260 Fimm manna Citroen G. S. station. Fimm manna Citroen G.S. 8—22 manna Mercedes Benz hópferðabílar stjórum). (m bil- ÁLFNAÐ ER VERK ÞÁ HAFIÐ ER 0 SAMVINNUBANKINN RAFMÆLAR Rýkomnlr Garðar Gíslason h.f. Sími 11506 OKCLEGR STAKSTEINAR Hvers vegna reynir Tíminn að blíðkaMagnús? Magnús Kjartansson birti s.l. laugardag grein um raforku- mál f blaði sfnu Þjóðviljanum, þar sem hann reynir að bera hönd fyrir höfuð sér vegna þess hneykslanlega ástands, sem upp er komið í raforkumálum þjóðarinnar. Út af fyrir sig er það ekki frásagnarvert, þótt ráðherrann reyni af veikum mætti að halda uppi vörnum fyrir sjálfan sig í blaði sínu. Hitt er öllu eftirtektarverðara, að Tíminn, málgagn Fram- sóknarflokksins, birtir þessa grein einnig á laugardag, og það sem meira er, í gær birtist forystugrein í Tímanum, þar sem lof er borið á Magnús Kjartansson fyrir afrek hans á sviði raforkumála. Nú er það svo, að framsóknarmenn eiga Magnúsi Kjartanssyni ekkert að þakka eftir tveggja og hálfs árs stjórnarsamstarf. I ríkis- stjórninni hefur hann reynzt bæði frekur og aögangsharður og reynsla framsóknarmanna af samvinnu við hann jafnvel enn verri en af samstarfinu við Lúðvík Jósepsson. Þess vegna geta þessar tilraunir Tímans til að blíðka Magnús tæplega staf- að af því, að þeir séu að borga fyrir sig. Framsóknarmönnum er líka ljóst, að aðgerðarleysi Magnúsar Kjartanssonar í raf- orkumálum hefur þegar haft hinar alvarlegustu afleiðingar og er hægt að rifja upp nokkur dæmi um það. Afrekin í stuttu máli má segja, að afrek Magnúsar Kjartanssonar séu þríþætt I raforkumálum. t fyrsta lagi tafði hann í heilt ár, að framkvæmdir gætu hafizt við Sigölduvirkjun með þeim afleiðingum, að raforka sem búast mátti við frá Sigöldu á árinu 1976 kemur ekki fyrr en á árinu 1977. 1 öðru lagi kom hann í veg fyrir litlar héraðs- virkjanir í Norðurlandi vestra með þeim afleiðingum. að veru- legur hluti raforkunnar þar er nú framleiddur með keyrslu díselstöðva, en allir vita, hvaða kostnaður vegna óhóflegrar olíunotkunar fylgir slíkri raf- magnsframleiðslu. í þriðja lagi lagði Magnús Kjartansson 100 milljón króna hund milli Norðurlands vestra og Norður lands eystra. Eftir þessum hundi átti að flytja rafinagn, en sá hængur er á, að ekkert raf- magn er til að flytja, hvorki í Norðurlandi vestra né í Norðurlandi eystra og er óhætt að fullyrða, að enginn ráðherra hefur um langt árabil tekið jafn dýra ákvörðun, sem ekkert gagn hefur orðið að, og Magnús Kjartansson í þessu tilviki. Og þar að auki löðrungaði hann forsætisráðherra, sem auðvitað var andvígur þessari meðferð á kjördæmi sínu. Nú blasir við neyðarástand í raforkumálum á Norðurlandi og Austurlandi og fyrir það geta íbúar þessara landshluta þakkað Magnúsi Kjartanssyni. Þetta er fram- sóknarmönnum ljóst og þess vegna er enn ástæða til að spyrja hvers vegna Tíminn reynir að bliðka Magnús Kjartansson með því að klappa honum á kollinn og segja hon- um, að hann hafi verið dugleg- ur í raforkuntálum lands- manna Varnarmálin Morgunblaðið telur sig hafa ástæðu til að ætla, að það sé afar einföld skýring á því, hvers vegna Tíminn hampar Magnúsi Kjartanssyni svo mjög um þessar mundir. Ástæðan er sú, að nú standa yfir miklar viðræður innan stjórnarflokk- anna um varnarmálin og fram- sóknarmenn vinna aðþvíaðná samstöðu milli stjórnarflokk- anna um ákveðna úrlausn í varnarmálum. Magnús Kjartansson hefur haft uppi margvíslegar hótanir í sam- bandi við varnarmálin og enn taka framsóknarmenn þann kostinn að kyssa á vöndinn, reyna að blíðka Magnús og gera honum allt til hæfis í stað þess að setja honum kosti. ^SHT spurt og svarad I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og hiðjið uin Lesendaþjónustu Morgun- hlaðsins. Q Friðun rjúpu? Magdalena Asgeirsdóttir, Oð- insgötu 8, Reykjavík, spyr: „Hvers vegna er rjúpan ekki friðuð? Gerir hún einhvern usla?" Dr. Finnur Guðmundsson fuglafræðingur svarar: „Það er algerlega undir Al- þingi komið, hvort rjúpan verð- ur friðuð eða ekki. Hins vegar tel ég persónulega enga nauðsyn bera til þess, að hún verði friðuð, en ef það er þjóðarvilji, að rjúpan verði al- friðuð, þá hefði ég út af fyrir mig ekkert á móti því. Rjúpan gerir engan umtals- verðan usla fremur en aðrir fuglar, sem veiddir eru í rikum mæli, t.d. lundinn. Ef á annað borð á að alfriða rjúpuna, þá væri rökrétt að al- friða um leið alla íslenzka fugla, en til þess tel ég enga knýjandi nauðsyn, eins og sakir standa.“ □ Sædýrasafn og dýragarður Sverrir Þórðarson, Þórsgötu 12, Reykjavík, spyr: „Sædýrasafnið við Hafnar- fjörð er stofnun, sem notið hef- ur mikillar velvildar opinberra aðila, sem hafa fjármagn að baki sér. Nú er sagt frá því í blöðunum, að þar suður frá eigi að verja 20—30 milljónum króna af almannafé til fram- kvæmda við safnið. — Sædýra- safnið hefur sennilega nokkra sérstöðu, en eigi að síður þykir mér viðeigandi að beina þeirri spurningu til Náttúrufræði- stofnunarinnar, hvort hún hafi fjallað um þá stefnumótun, sem mér hefur skilizt að verið sé að framkvæma með þessari millj- ónatuga fjárfestingu. Er það álit stofnunarinnar, að hægt sé að breyta þessu sæ- dýrasafni í dýragarð? Er þá í rauninni eitt og hið sama sæ- dýrasafn og dýragarður? Dr. Finnur Guðmundsson hjá Náttúrufræðistofnun tslands svarar: „Um Sædýrasafnið út af fyrir sig hef ég ekki nema gott eitt að segja. Það var upphaflega stofnað sem sædýrasafn, en ekki hugsað sem dýragarður. En ef stefna á að því að gera úr því dýragarð fyrir þéttbýlis- svæðið á Suðvesturlandi, þá tel ég staðarval ákaflega óhentugt, og jafnvel fráleitt. Ef á annað borð á að stefna að því að koma upp vísi að dýra- garði fyrir þetta svæði, þá þarf að kanna miklu rækilegar hvar staðhættir væru heppilegastir fyrir slíka stofnun. Slíkir stað- hættir eru alls ekki fyrir hendi þar sem Sædýrasafnið er nú. Þetta mál í heild krefst miklu rækilegri undirbúnings og yfir- vegunar áður en ákvörðun verður tekin um framtiðarstað fyrir dýragarð á Suðvestur- larrdi." Formannafundur Bridgesam- bands Islands var haldinn laugardaginn 1. desember 1973 í Domus Medica. AIls mættu 14 fulltrúar frá 10 aðildarfélögum, en félögin innan BSÍ eru alls 18. Forseti Bridgesambandsins, lón Ásbjörnsson, setti fundinn og rakti störf stjóriiar á sl. ári. Kom Jón víða við i skýrslu sinni og fjallaði m.a. um þörfina á að halda námskeið fyrír keppnis- stjóra og útgáfu keppnisreglna og laga í sérprentunum. Þá ræddi forsetinn einnig um íslandsmót og landsliðsúrtöku- mót sl. starfsárs ásamt Norður- landamótinu og Evrópumótinu. Miklar umræður urðu um skýrslu forsetans og tóku marg- ir til máls. Alfreð Alfreðsson kom m.a. i þessum umræðum inn á eitt það mál, sem erfiðast virðist ætla að vera að eiga við, þ.e. áfengisnotkun samfara spilamennskunni. Urðu nokkrar umræður um þetta mál og lýstu menn ánægju sínni yfir þeim árangri, sem náðist á sl. ári. I lok þessa dagskrárliðs færðu fundarmenn forseta þakkir fyrir ötult starf hans á sl. ári. Gjaldkeri sambandsins, Hannes Jónsson gerði grein fyrir fjárhag félagsins og kom þar fram, að einhver halli mundi verða á sl. ári en mun minni en búizt hafði verið við. Mestu réð þar um, að firma- keppnin tókst mjög vel á sl. ári. 9 aðilar tóku þátt í umræðum um f járhag sambandsins. Fyrirliði landsliðsins, Alfreð G. Alfreðsson, gerði grein fyrir utanferðum landsliðsins. Á Norðurlandamótið voru sendar tvær sveitir, í opna flokkinn og unglingaflokkinn, en á Evrópu- meistaramótið var ein sveit send. Um árangra sveitanna hafði Alfreðgert mjög ítarlegar skýrslur, sem lagðar voru fram fjölritaðar á fundinum. „Aðhaldsgagnrýni" kom fram á fyrirliða landsliðsins fyrir að hafa ekki farið eftir settum reglum um æfingar landsliðs- íns og tók Alfreð gagnrýninni vel og sagði að hún hefði við rök aðstyðjast. Karl Sigurhjartarson ræddi urn fyrirhugaða hópferð B.S.I. á ólympíumótið, sem fram á að fara á Kanaríeyjum í mai n.k. Kynnti Karl hin góðu kjör, sem Flugfélag íslands býður upp á í sambandi við þessa ferð. Kom þar m.a. fram, að ferðin kostar um 23 þús. fyrir 14 daga dvöl. Dreifði Karl upplýsingaritum um ferðina til allra formanna á fundinum. Lagði Karl áherzlu á, að nauðsynlegt værá að þátt- tökutilkynningar bærust til sín sem állra fyrst, því hér væri um að ræða síðustu Kaharieyjaferð Flugfélagsins veturinn '74. Alfreð G. Alfreðsson kynnti hina nýju bikarkeppni B.S.Í., sem fram fer í janúar n.k. Skýrði Alfreð frá sams konar keppnum, sem fram fara á hin- uin Norðurlöndunum. Fyrir- hugað er að spila 27 spil í 10 para riðlum í hverju félagi á öllu landinu í sömu vikunni en á spiladegi hvers félags. Keppnisgjald er kr. 150.00 pr. 'mann og rennur hagnaður af keppninni til unglingalandsliðs B.S.Í. Spilin eru forgefin og verða send féiögunum næstu daga. Vegna fyrirspurnar, sem barst á fundinum, tók Alfreð fram, að vitaskuld væri hægt að spila í eins mörgum 10 para riðlum í hverju félagi og þátt- taka gæfi tilefni til. Forseti BSI ræddi um val landsliðsins fyrir næsta ár og óskaði eftir skoðunum fundar- manna um hvort þeir óskuðu eftir breytingum frá því úr- tökumóti, sem haldið var til vals á siðasta landsliði. Miklar umræður urðu um þetta mál og voru ekki allir á sama máli hvaða leið væri heppilegust til að velja landslið. Greinilegt var, að mikill meirihluti fundarmanna var fylgjandi úr- tökumóti og þá flestir í óbreyttu formi. En þar sem for- mannafundir eru aðeins ráð- gefandi en ekki til að taka endanlegar ákvarðanir vár málinu vísað til stjórnar BSÍ. Að lokum þakkaði forseti fundarmönnum komuna og gagnl^gar umræður og sleit fundi. XXX Á morgun hefst aðalsveita- keppni TBK. Spilað verður í tveimur flokkum og er 1. flokk- ur opinn öllum ungum og göml- um. TBK vill benda á, að ef ungt fólk hefði áhuga á að komast inn í keppnisbridge er þetta einstakt tækífæri fyrir það og er þvi boðið að hringja i formann félagsins i kvöld og afla upplýsinga. Hann er Tryggvi Gíslason og hefir sima 24856. A.G.R.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.