Morgunblaðið - 09.01.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 1974
15
Spassky ákafur
að hitta Fischer
á nýjan leik
Philadelfia, 8. janúar, AP.
BORIS Spassky fyrrverandi
heimsmeistari í skák er mjög
gramur yfir því, að skákreglur
leyfa ekki, að hann fái sjálfkrafa
tækifæri til að endurheimta titil
sinn úr höndum Bobby Fischers.
Spassky er nú í Puerto Rieo, þar
sem h'ann býr sig undir keppni
við stórmeistarann Rober Byrne
frá Bandarík.junum.
i símaviðtali við fréttamann AP
sagðí Spassky: „Reglurnar eru
óraunhæfar. Nú verð ég að berj-
ast fyrir réttinum til að mæta
Bobby Fischer á nýjan leik."
Þrjátíu og níu förust, þegar þessi Fokker F-28 farþegaþota rakst á hús í lendingu
á flugvellinum í Turin á ítalíu. Þrír farþegar komust af. Skyggni var mjög
slæmt, þegar vélin var að lenda, og fór hún of lágt í aðfluginu, með þessum
afleiðingum.
Einvígi þeirra Spasskys og
Byrnes er eitt af fjórum, sem öll
hefjast á sama tíma í næstu viku
(14. janúar). Sigurvegarinn mun
keppa við Bobby um heims-
meistaratitilinn. Spassky kvaðst
ekki búast við, að Byrne verði
auðveldur viðureignar.
Solzhenitsyn hefði átt að
skrifa um metuppskeruna ’73
segir franskur ritst jóri, sem tekur þátt í herferðinni gegn honum
Varsjá, 8. jan., AP.
0 Pólsk og tékknesk dagblöð
hafa nú tekið undir árásirnar á
sovézka rithöfundinn Alexander
Solzhenitsyn, sem sovézkir fjöl-
miðlar hófu fyrir nokkru. Saka
þau hann um að vinna gegn
bættri samvinnu austurs og
vesturs og segja, að skoðanir hans
veki furðu meðal framfara-
sinnaðra manna á Vesturlöndum.
0 Þá hefur Charles Laroche rit-
stjóri „Franee Nouvelle*', tíma-
rits kommúnista I París, komið
fram í sjónvarpi í Moskvu, þar
sem hann gagnrýndi Solzhenitsyn
harðlega fyrir sömu sakir og
sagði, að sýnilega hefði rithöf-
undurinn ekki mikinn áhuga á
sovézkum raunveruleika „ella
hefði hann skrifað um metupp-
skeruna í Sovétríkjunum á
síðasta ári í stað þess að vekja
upp drauga fortíðarinnar til að
vekja nútímafólki ótta“. Þetta
kvað ritstjórinn og sýna, að
Solzhenits.vn ætti vel heima í hópi
afturhaldssinnaðra andstæðinga
bættra samskipta austurs og
vesturs.
Tass sagði í dag frá rit-
stjórnargrein í tékkneska blaðinu
„Rudo Pravo", þar sem hafðiverið
skrifað, að útgáfa hinnar nýju
bókar Solzhenitsyns," Archipelag
Gulag, hefði verið til þess ætluð
að draga athygli frá þeim vanda-
málum, sem nú steðjuðu að
kapitalískum rikjum. Hefur Tass
eftir „Rudo Pravo ', að kommún-
istaríkin geti verið hreykin af
framgangi sinum á si. ári, en kapi-
talistaríkin hafi þau ráð ein til að
vinna gegn stnum margvíslegu
vandamálum að „traðka á
mannréttindum, stuðla að drápi
beztu sona Chile, þegja um hern-
aðareinræði í Grikklandi og
styðja fasista í S-Afríku ", eins og
þar var komizt að orði, samkvæmt
frétt AP.
Loks segir, að handrit Solz-
henitsyns hafi lengi verið
hjá útgefendum á Vesturlöndum,
en þeir hafi beðið eftir heppi-
legum tíma til að gefa bókina út.
Pólska blaðið „Trybunu Ludu'*
hefur farið hörðum orðum um
rithöfundinn og er það í fyrsta
sinn, sem þar birtist persónuleg
gagnrýni á hann af blaðsins hálfu.
Til þessa hafa fjölmiðlar í Pól-
landi látið við sitja að endurtaka
gagnrýni sovézkra fjölmiðla á
Solzhemtsyn, en ekki bætt við frá
eigin brjósti.
Talið er, að árás blaðsins nú
bendi til samræmdrar herferðar
kommúnistaríkjanna í heild gegn
Solzhenitsyn, en ekki er mönnum
ljóst, hvert endanlegt markmið
herferðarinnar er, hvort til
stendur að stefna honum fyrir
rétt eða grípa til annarra aðgerða
gegn honum.
Meðal annars, sem Trybunu
Ludu telur Solzhenitsyn til ávirð-
ingar, er, að hann hafi haft samúð
með nasistum. Blaðið segir og, að
enginn fari í
grafgötur um hatur Solzhenit-
syns á Sovétrikjunum og þeirri
stefnu stjórnarinnar í Moskvu að
hafa friðsamlega sambúð við aðr
ar þjóðir — því að hann hafi
ekki gert minnstu tilraun til að
halda því leyndu. „Hann hefur
sýnt þetta hatur í ýmsum bókum,
greinum ogyfirlýsíngum, sem
birrzt hafa nýiega í vestrænum
blöðum," segir: Trybunu Ludu“
og bætir við, að framfarasinnaðir
menn á Vesturlöndum hafi lesið
það, sem hann hefur látið frá sér
fara, með vaxandi undrun og
hneysklun. „Hann hefur gert
allt, sem i hans valdi stendur til
að sýna land sitt og þjóð í sem
verstu ljósi ..." heldur blaðip
áframogsegiraðlokum: „Jafnvel
stríðsglæpamenn nasista geta
reitt sig á hjartagæzku hans."
Persónufrelsi
skert í Suður-
Seoul, S-Kóreu, 8. jan., AP.
CHUNG Hee Park forseti S-
Kóreu, gaf I dag út neyðartilskip-
an, þar sem lagt var blátt bann
við hvers konar tilraunum til að
„afneita, vinna gegn, mistúlka
eða ófrægja" stjórn hans. Sam-
stundis hættu öll s-kóreönsk bliið
að segja frá þeim kröfum, sem
uppi hafa verið hafðar í landinu
að undanförnu, um aukið lýðræði
og persónufrelsi.
Innifalið I þessum ráðstöfunum
forsetans, — sem jaðra við herlög
— var, að engum skyldi leyfilegt
að gagnrýna þær. Sömuleiðis var
bannað að breiða út eða birta
fréttir um þá, sem gerzt hefðu
brotlegir við tilskipan forsetans.
Talsmaður stjórnarinnar sagði, að
bann þetta næði einnig til
erlendra fréttamanna og ráðlagði
þeim að fara varlega í fréttaflutn-
ingi sinum. Viðurlög við broti
gegn tilskipan forsetans geta orð-
ið allt að fimmtán ára fangelsi.
Verður þeim, sem sakaðir eru
um slík bort, stefnt fyrir herrétt.
Þess er sérstaklega getið, að í
tilskipan stjórnarinnar eru ekki
nákvæmar upplýsingar um, hvað
bannað sé, svo að hún getur lagt
býsna breiðan skilning í, hvað til
brota telst.
Með þessari tilskipan Parks er
bundinn endi á mánaðarþíðu, sem
verið hefur í stjórnmálalífi S-
Kóreu ogfylgdií kjölfar meirihátt-
ar breytingar í stjórn landsins.
Samkvæmt stjórnarskránni, sem
Park setti landinu meðan herlög
voru þar í gildi 1972, hefur hann
víðtækt vald yfir öllum greinum
stjórnarinnar og ríkisins og getur
með tilskipan takmarkað grund-
vallarréttindi landsmanna.
Nokkrum klukkustundum áður
en tilkynnt var um tilskipan for-
setans hafði aðalandstöðuflokkur
stjórnarinnar.
Nýi lýðræðisflokkurinn, til-
kynnt, að hann mundi taka þátt í
Boris Spassky
Robert Byrne fer til Puerto
Rico á þriðjudaginn til keppn-
innar við Spassky. Hann hefur
sagt við fréttamenn, að hann telji,
að Spassky sé undir miklum
þrýstingi til að fá titilinn aftur til
Sovétrikjanna.
Hann gaf í skyn, að í Sovét-
rtkjunum hefði verið lagt hart að
Spassky að fylgja harðari leik-
reglum en hann gerði í Reykja-
vik.
Skáksérfræðingar hafa haft orð
á því, að þjálfari Spasskys, sem
nú er með honum á Puerto Rico,
Egor Bondarevsky var ekki með
honum i heimsmeistarakeppninni
í Reykjavík. Þykir það m.a. benda
til, að Spassky verði nú að hlíta
meiri „aga”.
„Ég held, að það sé mjög
óheppilegt," sagði Byrne „ekki
fyrir Spassky heldur fyrir mig.“
aftur
Kóreu
meiriháttar herferð, þar sem
kröfur yrðu frambornar um nýja
og lýðræðislegri stjórnarskrá.
Ýmsir trúarleiðtogar og aðrir tals-
menn aukinna persónuréttinda
höfðu haft forgöngu um, að slík
herferð yrði farin, án þess að baki
þeim stæðu nokkur skipulögð
samtök.
Charles Bohlen látinn
NÝLEGA lézt í Washington
fyrrverandi sendiherra Banda-
ríkjanna víða um lönd, Charles
Eustis Bohlen, kunnur sérfræð-
ingur utn málefni Sovétrfkj-
anna og starfsmaður banda-
rfska utanríkisráðuneytisins (.
fjörutíu ár.
Bohlen var ráðgjafi fjögurra
forseta á starfsferli sínum, en
átti í vök að verjast á sínum
tíma gegn öldungadeildarþing-
manninum Joseph McCarthy,
sem tortryggði hann mjög sök-
um tengsla hans við sovézk mál-
efni, og John Foster Dulles
gekkst fyrir því, að Bohlen yrði
sendur i eins konar útlegð til
Filippseyja, þar sem hann var
sendiherra á árunum
1957—59.
Bohlen var fæddur árið 1904.
Háskólanám stundaði hann
m.a. í Harvard og hóf störf í
utanríkisþjónustunni árið 1929.
Hann afréð snemma að sérhæfa
sig i máléfnum Sovétrikjanna
og þar að lútandi og þegar sam-
skipti Bandaríkjanna og Sovét-
rikjanna jukust að marki með
heimsstyrjöldinni síðari, var
hann einn af fáum starfs-
mönnum utanríkisráðuneytis-
ins, sem undir þá þróun mála
voru búntr. Hann varð túlkur
og ráðgjafi Roosevelts forseta
og tók með honum þátt í ráð-
stefnunni á Yalta — og siðar
með Truman í ráðstefnunni í
Potsdam.
Á árunum 1953—’57 var Boh-
len sendiherra Bandaríkjanna í
Sovétríkjunum og á árunum
1962—'68 í Frakklandt. Einnig
starfaði hann í ýmsum emb-
ættum í sendisveitum Banda-
ríkjanna og sendiráðum i Prag,
Berlin, London, Brússel, Te-
heran og víðar.
Bohlen, sem jafnan gekk
undir gælunafninu „Chip", var
tiðum kallaður til skrafs og
ráðagerða í Hvíta húsinu, þegar
mikið var í húfi. í ritstjórnar-
grein, sem Washington Post
skrifar um hann, er þess
minnzt, þegar Kennedy forseti
kallaði hann á sínum tíma til að
lita á loftmyndirnar, sem Sovét-
menn höfðu komið til Kúbu. Er
þess getið, að engu hafi skipt,
hvorum flokki forsetar til-
heyrðu. Bohlen hafi gefið öll-
um sín ráð jafn heilshugar,
byggð á rækilegri þekkingu og
reynslu.
Þess má að lokum geta, að
Charles Bohlen kom til Islands
vorið 1970 i boði félaganna
Varðbergs og Samtaka um vest-
ræna satnvinnu. Hélt hann fyr-
irlestur á þeirra vegum og
dvaldist hér á landi nokkra
daga ásamt konu sinni.
Ibl'llVIll je.tjlll IgC)/lI H-) ,’J.rM III' lca-j/
jger i ngu *ibv mq m muru on.r tbv mtoi ío/u 'isiiiiniiiiuii'ii