Morgunblaðið - 25.01.1974, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JANUAR 1974.
Palestínu-Arabar
fái fulltrúa í Genf
EGYPTAR og Sovétmenn hvetja
til þess, að fnlltrúi Palestínu-
Araba fái að sitja friðarsamn-
ingaráðstefnuna um Miðaustur-
lönd og verði það samþvkkt hið
allra fyrsta. Var þetta kjarni f
orðsendingu, sem birt var í
Moskvu, eftir að Ismail Fahmvs,
utanríkisráðherra Egyptalands,
Mann-
skaðar
24. jan. AP.
MARGIR brunar urðu i
heiminum í gær og urðu í
þeim manntjón og eignatjón.
Auk hrunans mikla í Belgíu,
þar sem skóladrengir létust,
varð eldsvoði í íbúðarbvggingu
í New York og létust ellefu
manns.
I Burma kom upp eldur í
járnbrautarklefa og hlutu
þeir, sem voru í klefanum,
aivarleg brunasár.
A Eilippseyjum létust 18
manns og 21 slasaðist, er fólks-
flutningabíll fór út af
veginum og eldur kom upp í
honum.
I Suður-Kóreu brann til ösku
stærsta vefnaðarverksmiðja
landsins. Fjórtán hundruð
verkamenn voru við störf,
þegar eldurinn kom upp og er
ekki vitað til annars en þeir
hafi komist út, heilir á húfi.
Nýársmót TBR
ÞÖ að tæpur mánuður sé liðinn af
nýja árinu gengst TBR fyrir
nýársmóti sinu í badminton 2. og
9. febrúar n.k. Mótið fer fram í
Alftamj'rarskólanum og hefst
klukkan 16.50 báða dagana, fyrri
daginn verður leikið í einliðaleik,
a- og b-flokkum karla og kvenna,
og síðarí daginn í meistaraflokki
beggja kynja. Þátttaka tilkynnist
til Hængs Þorsteinssonar í síma
35770 eða 82725 fyrir 31. janúar.
Fimmtug
í DAG verður Elsa Elíasdóttir 50
ára. Hún er nú til heimilis á
Hjálpr'æðishernum í Reykjavik.
í hennar lífi sem margra ann-
arra hafa skipzt á skin og skúrir.
Heilsuleýsi hefur hún átt við að
stríða frá því hún var 35 ára
Elsa óist upp á Ljósstöðum í
Glerárþorpi, Akureyri, hjá þeim
sæmdarhjónum Olafi Eiríkssyni
og Bj ö rgú H al ldórsdótt u r.
Elsa hefur verið svo gæfusöm
að velja sér Jesú sem leiðtoga lifs
síns, því að hann er einasti vinur-
inn, sem gefur kraft og styrk,
þegar oss finnast haföldur lífsins
himinháar.
Guð bíéssi þér daginn Elsa mín
og gefi þér gæfuríka framtíð.
S.L.E.
var að ljúka þriggja daga opin-
berri heimsókn í Sovétríkjunum.
Segir í orðsendingunni, að mál
þessi verði ekki til lykta leidd
með neinum sóma né að neinu
gagni, nema fulltrúar Palestínu-
manna fái að leggja orð í belg.
— 39 milljónir
Framhald af bls. 36
viðgerð stóð. Hluti af þessari
kröfu, um 6 milljónir króna, er
tengdur atriðum, sem telja
verður til stofnkostnaðar skipsins
— og eru því ekki allir kröfuliðir
vegna galla. Eiu þar t.d. ýmsar
lagfæringar, sem teljast felast í
stofnkostnaði.
Líkur benda til, að lögfræðileg
deila geti komið upp í sambandi
við ábyrgð ríkissj-óðs, en Reykja-
víkurborg telur ríkisvaldið skaða-
bótaskylt, þar sem hún gerði
kaupsamníng við ríkið um kaup á
skipinu. Hefur því borgin
eingöngu samning við rfkið, sem
aftur gerði samning við spænsku
skipasmíðastöðina.
F E RÐAÁÆTLU N
ICELAND TOURS
1974
.
Forsíðan á bæklingi Ferðafélagsins 1974.
Aukin þátttaka hjá F.í. —
Ferðaáætlun 1974 komin
KOMIN er út ferðaáætlun Ferða-
félags Islands fvrir árið 1974. A
sl. ári var ferðum fjölgað í 222 og
jafnframt urðu þátttakendur
fleiri en árið á undan eða 6343.
Varð aukningin 21,7%, því á
árinu 1972 voru farnar 168 ferðir
með 5212 farþega. Af 6343 far-
þegum sl. ár voru útlendingar 960
eða 15%. Flestir urðu farþegarn-
ir í Þórsmörk eða 2656 í 52 ferð-
um. Næst komu Landmanna-
laugar með 22 ferðir og 804
farþega. 43 fararstjórar voru í
ferðum F.í. sl. ár.
1 ferðaáætluninni fyrir þetta ár
er gert ráð fyrir 200 ferðum, sem
skiptast í 22 sumarleyfisferðir,
128 styttrí ferðir, 34 Þórsmerkur-
ferðir, 19 Landmannalaugaferðir
og 6 Kjalarnesferðir. Tekur
lengsta ferðin 17 daga en sú
styttsta hluta úr degi. Verður gist
í skálum félagsins þegar því
verður við komið, annars í tjöld
um. Ferðafélagið á nú 16 skála,
sem eru misstórir. Stærstir eru
Skagfjörðsskáli í Þórsmórk og
Tungnafellsskálar á Sprengi-
sandi, rúma 160—200 manns
hver. Landmannalaugar taka við
110 —150 manns i skála, en
minnst rúm er f skálanum á
Jökulhálsi við Snæfellsjökul, eða
fyrir 10 manns.
Sumarleyfisferðir félagsins
taka 4—17 daga í sumar. Má þar
nefna 5 daga ferð til Vestmanna-
eyja, 6 daga ferð um Snæfellspes,
Breiðafjörð og á Látrabjarg, 6
daga ferð í Skaftafell og á Öræfa-
jökul og gengið um staðinn, 9
daga ferð í Hvannalindir og
Kverkfjöll. Þá eru þrjár Hor.n-
strandaferðir 7 daga og 10 daga
11 daga ferð í Suðursveit, Horna-
fjörð og Lönsöræfi, 17 daga ferð í
Kerlingarfjöll og Arnarfell, 9
daga ferð á Mývatnsöræf i, 8 daga
ferð um útkjálka og annes Vest-
fjarða, 4ra daga ferð um Vonar-
skarð og á Vatnajökul, 6 daga ferð
í Eldgjá og Fjallabaksveg syðri,
12 daga ferð um Miðlandsöræfin,
12 daga ferð í Kverkfjöll, Brúar-
öræfi og á Snæfell, 12 daga ferð
um Miðausturland, 9 daga ferð á
Snæfjallaströnd, í Grunnavík og á
Drangajökul, 6 daga ferð í Hrafn-
tinnusker, Eldgjá og Breiðbak,
4ra daga ferð á Trölladyngju og
Vatnajökul og 4 daga ferð norður
fyrir Hofsjökul og loks 4ra daga
aðalbláberjaferð í Vatnsfjörð.
A sunnudögum eru farnar
styttri ferðir, sem hefjast fyrst kl.
13, sú fyrsta 6. janúar, og sumar
kl. 9.30 þegar dag fer að lengja,
en þá verða ferðirnar gjarnan
lengri. Er mikið gengið um i ná-
grenní Reykjavíkur. Og um há-
sumarið eru iðulega farnar
gönguferðir kl. 8 á kvöldin,
byrjað á Jónsmessunni. Siðasta
stutta ferðin er svo áramótaferð i
Þórsmörk 31. desember. Bæði um
hvítasunnu og verzlunarmanna-
helgi er um að velja fjölmargar
styttri ferðir. En stuttu ferðirnar
eru alls 128.
Þórsmörk og Landmannalaugar
eru mjög vinsælir staðir. Fer
Ferðafélagið í Þórsmörk á hverju
föstudagskvöldi frá 3. maí til 28.
júní. í Landmannalaugar verður
farið á hverju föstudagskvöldi frá
31. maí frain í október og á
laugardögum er haldið áfram í
Eldgjá og Veiðivötn. Kjalferðir
eru farnar á föstudagskvöldum
12. júli og til 23. ágúst og ekið þá í
Kerlingarfjöll, Hveravelli og
Karlsdrátt.
Lög eftir Sigfús Halldórs-
son flutt í Bústaðakirkju
Ford Torino
árg. '70, tveggja dyra sportmódel til sölu. Tilbúinn til
tollafgreiðslu. Tilboð merkt: „Torino — 3103“ sendist
afgr Mbl.
Á SUNNUDÁGINN kemur mun
kór Garðakirkju á Alftanesi flytja
verk eftir Sigfús Halldórsson tón-
skáld við messu í Bústaðakirkju i
Reykjavík. Söngstjóri kórsins er
Þorvaldur Björnsson organisti, og
einsöngvari verður Kristinn
Hállsson óperusöngvari. Einnig
leikur Auður Ingvadóttir einleik
á selló. Prestur Garðakirkju, séra
Bragi Friðriksson, stígur í stólinn
og flytur prédikun, og að auki
syngur kór Bústaðakirkju undir
stjórn organista kirkjunnar, Birg-
is Ás Guðmundssonar.
Verk þau, _sem Gaiðakórinn
—Húshitun
Framhald af bls. 5
hendi. Til þessa þurfi að hraða
virkjun nýtanlegrar vatnsorku á
Vestfjörðum, auka afköst dreifi-
kerfisins og leggja tengilinu til
orkuveitusvæðis Landsvirkjunar.
0 Alþingi og ríkisstjórn komi í
veg fyrir alvarlega byggðaröskun
vegna hins gífurlega mismunar á
húshitunarkostnaði — eftir því
orkuformi, sem notáð er — og er
bent á þessa valkosti:
a) Lagður verði á almennur
orkuskattur.
b) Aflað verði tekna til jöfnun-
ar orkuverðs með áframhaldandi
á 1 a g n i n g u v i ðl a g agj a I d s.
e) Veittar verði ívilnanir við
álagningu tekjuskatts í þeitn
byggðarliigum, þar sem orkuverð
er óeðlilega bátt.
flytur nú í Bústaðakirkju, voru
flutt í Garðakirkju síðastliðið
haust og var frábærlega vel tekið.
Er þess því að vænta, að þe'ir
muni margir, sem leggja leið sína
í Bústaðakirkju á sunnudagirin
kl. 2, tií þess að hlýða á flutning
þessara laga, sem öll eru samín
við sálma eða andleg ljóð.
— Endurskins-
merki
Framhald af bls. 3
degi, slæthri færð og skyggni. Ef
bifieið er ekið i myrkri með lágan
ljósgeisla sést gangandi vegfar-
andi ekki fyrr en í um 25 m
fjarlægð. Ef hinn gangandi veg-
farandi ber endurskinsinerki sést
hann hins vegar i 125 m fjarlægð.
— Snjóblásarar
Framhald af bls. 2
til borgarbúa um eðlilegan út-
búnað, þegar slíkt veðurfar er og
færð. í tiðarfari, sem verið hefur
að undanförnu, þar sem margs
konar veður hefur jafnvei verið
sama sólarhringinn, rigning, snjó-
koma og frost, er erfitt verk að
halda götum og gangstéttum
Itreinum og víða í borginni er
komið lag á lag ofan af sandi og
klaka. Með þessum úrbótum er
vonast til þess, að unnt verði að
draga úr því hættulega færi, sem
venð hefur.
— Island —
Noregur
Framhald af bls. 3
ernes Pressekontor, Oppland
Arbeiderblad, Fremtiden (í
Drammen), stjórnmálanefnd
Arbeiderbladets í Osló og er nú
ritstjóri Rogalands Avis i Staf-
angri.
Evind Berdal upplýsinga-
stjóri, f. 1928. Eftir nám i
stjórnmálafræðum og blaða-
mennsku í Noregi, Bandaríkj-
unum og Oxford starfaði hann
við bandarísk og norsk blöð.
1961 til 1966 var hann fram-
kvæmdastjóri fyrir „Nasjonal-
komitéen for internasjonalt
ungdomsarbeid" og jafnframt
framkvæmdastjóri fyrir „Den
norske Atlanterhavskomité"
(aðildarfélag að The Atlantic
Treaty Association). Starfs-
maður upplýsingadeildar At-
lantshafsbandalagsins í París
og Brússel 1966—'73, síðan
upplýsingastjóri hjá norðurher-
stjórn NATO, (AFNORTH) í
Kolsas í Noregi.
Ellmann Ellingsen fram-
kvæmdastjóri hjá Den norske
Atlanterhavskomité, f. 1943.
Lögfræðingur, námsferðir til
Suður-Ameríku, Bandaríkj-
anna og Kanada, formaður í
Norges Konservative Student-
erforbund 1968—1970, síðar i
miðstjórn Norges Forsvarsfor-
ening og er varaformaður í At-
iantic Association of Young
Politieal Leaders.
Johan Jorgen Holst rann-
sóknastjóri Norsk Utenrikspoli-
tisk Institutt, f. 1937. Háskóla-
próf í stjórnmálafræðum fram
haldsnám við Columbia Uni-
versity, rannsóknir við Center
for International Affairs, Har-
vard University, rannsóknir við
Hudson fnstitute i New York
1967—'69, prófessor við Carle-
ton University í Ottawa 1970. Á
sæti í ráðgjafanefnd norsku
ríkisstjórnarinnar um vígbún-
aðareftirlit og afvopnun. Rit-
verk m.a.: „Norsk sikkerhets-
politikk i strategisk perspek-
tiv" (1967), „Why AMB? Policy
issues in the Missile Defence
Contorversy" (New York'
1969), „El'—Norges vei?"
(Oslo, 1972), „Security, Order
and the Bomb" (1972), „The
Small and the Powerful:
Nordic Security and the
Naval Situation in the North-
East Atlantic" (1972) og
„Five Roads to Nordic Securi-
ty" (1973).
Kjell Magne Bondevik stór-
þingsmaður, f. 1947. Þingmað-
ur Kristlig Folkepartí fyrir
Mæri ogRaumsdal. Hefur starf-
að í stjörn Æskulýðsráðs ríkis-
ins, stjórn norsku friðarsveit-
anna, stjórn Kristlig Fblkepart-
is Ungdom og landsstjórn
Kristelig Folkeparli. Ritstjóri
„Ny veg" 1967—'70. Var ritari
forsætisráðherra frá okt. 1972
til ág. 1973.
— Loðnulöndun
Framhald af bls. 2
Bergá með 40 á Hornafjörð, Hilm-
ir með 380 á Eskifjörð, Asgeir
með 370 á Seyðisfjörð, ísleifur
með 250 á Stöðvarfjörð, Höfrung-
ur III. með 260 á Reyðarfjörð,
Víðir 250 á Seyðisfjörð, Álftafell
með260 á Reyðarfjörð, Harpa RE
með 250 á Eskifjörð.
Síðan á miðnætti er um að ræða
rösklega 6000 lestir frá 27 bátum.
Grindvíkingur með 300 lestir á
Seyðisfjörð, Kristbjörg II. méð
240 á Hornafjörð, Guðmundur
með 720, en ekki var vitað hvort
hann færi á Seyðisfjörð eða
Vopnafjörð, Keflvíkingur með
220 á Seyðisfjörð og Faxalxirg
með 470 á Seyðisfjörð, Héðinn
með 350 á Seyðisfjörð, Sæberg
með 100 á Eskifjörð, Þórkatla II
með 180 á Seyöisfjörð og Ólafur
Sigurðsson AK með 70 á Horna-
fjörð, en síðasta skipið i upptaln-
ingunni meldaði sig kl. 20 í gær-
kvöldi.
Alls er því í þessari upptaln-
ingu um að ræða 40 skip með um
12000 lestir af loðnu.