Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1974, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 21. tbl. 61. árg. LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1974. Prentsmiðja Morgunblaðsins. Grikkland: Verða morðingj- arnir náðaðir? Miklar öryggisráðstafanir Grfskir hermenn f brynvörðum vagni á verði við Aþenuflugvöll. Þota frá Oiympicflugfélaginu er að koma inn til lendingar. Aþenu, 25. janúar, AP. HERVÖRÐUR i Grikklandi var í dag stóraukinn við oliuhreins- unarstöðvar, iðnfyrirtæki og flug- velli af ótta við hefndaraðgerðir skæruliðasamtakanna Svarta september vegna dauðadómanna, sem kveðnir voru upp i gær yfir tveimur félögum samtakanna fyr- ir morðin á 5 manns á Aþenuflug- velli á sl. ári. Grísk stjórnvöíd óttast, að skæruliðasamtökin muni með ein- hverjum aðgerðum reyna að fá mennina látna lausa, eða að um hreinar hefndaraðgerðir verði að ræða. Sem kunnugt er gerði hópur skæruliða tilraun i sl. mánuði til að fá mennina látna lausa, er þeir rændu farþegaflugvél frá Luft- hansa eftir fjöldamorð á Rómar- flugvelli. Tóku ræningjarnir 14 gísla og flugu með þá til Grikklands, þar sem þeir hótuðu að taka þá alla af lífi ef grísk yfirvöld létu ekki morðingjana lausa. Yfirvöldin hétu hins vegar að fara mildum höndum um ræningjana við réttarhöldin og héldu þá flugvélarræningjarnir til Kuwait, þar sem þeir gáfust upp, en stjórnvöld afhentu þá siðar samtökum Palestínu-Araba. Talið er hugsanlegt, að forseti Grikklands. Gizikis hershöfðingi, náði morðingjana og visi þeim úr landi en i dómsúrskurði réttarins í Aþenu er mönnunum tveimur lýst sem ógnun við öryggi Grikklands. 3. herinn laus úr herkví á mánudag Jerúsalemmálið erfiðast, segir Kissinger Washington og Tel-Aviv, 25. janúar, AP. HENRY Kissinger utanríkisráð- herra Bandaríkjanna skýrði frá því í gær, að hann hefði haft samhand á ný við sýrlenzka ráða- menn um aðskilnað herja Sýr- lands og ísraels í Golanhæðum: „Við vonum, að þetta geti leitt til samningaviðræðna," sagði Kiss- inger, en vildi ekki ræða nánar um málið, er fréttamenn spurðu hann. Kissinger sagði, að ísraelar hefðu nú til athugunar tillögur Sýrlendinga og myndu koma með gagntillögur, sem Bandaríkja- menn myndu senda Sýrlands- stjórn. Kissinger sagði þetta, er hann kom af fundi með utanrfkismála- nefnd fulltrúadeildarinnar. Einn þingmanna hafði það eftir Kiss- inger, að samningaviðræðurnar milli Sýrlendinga ög ísraela yrðu miklu erfiðari en viðræðurnar milli ísraela og Egypta og að vandamálin i sambandi við rétt- indi ísraela og Palestínu-Araba í Jerúsalem yrðu erfiðust viðfangs. Annars sagði þingmaðurinn, að Kissinger hefði lftið viljað segja um viðræðurnar vegna þess, að þær væru á svo viðkvæmu stigi. Skv. fréttum frá Tel-Aviv er talið líklegt, að ísraelar verði komnir svo langt með brottflutn- ing herja sinna frá vesturbakka Súezskurðar á mánudag, að hægt verði að byrja að flytja hermenn hafa verið i sl. 3 mánuði. Um 20 úr þriðja her Egypta yfir skurð- þúsund menn eru í 3. hernum. Þá inn úr þeirri herkví, sem þeir Framhald á bls. 18 Færeyjar: Alger samstaða um að hafna EBE-aðild r Atti að sparka Kissinger ? Los Angeles,25. janúár, AP. BANDARÍSKA stórblaðið Los Angeles Times skýrði frá því í dag, að Henry Kissinger utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna hefði verið þeirrar skoðunar, að rannsókn leyniþjónustu- deildar Hvíta hússins, sem nefnd hefur verið „pfpulagn- ingadeildin", á fréttaleka frá bandaríska öryggisráðinu, hefði miðað að því að hrekja sig úr starfi. Segir blaðið, að rannsókn þessi hafi verið gerð að undirlagi ráðgjafa Nixons, þeirra Johns Erlichmans og Roberts Haldemans, sent grunuðu Kissinger um græsku vegna fyrri ráð- gjafastarfs hans hjá Nelson Rockefeller þáverandi ríkis- stjóra i New York og að þeir hefðu einnig verið orðnir hræddir um, að aukinn hróður Kissingers gæti varpað skugga á stöðu forsetans sjálfs. Rann- sóknin var í sambandi við leka af fundum öryggisráðsins, en fréttir. þaðan birtust í dálki hins kunna og umdeilda Jacks Andersons árið 1971. Þórshöfn, Færeyjum, 25. janúar. Einkaskeyti til Mbl. frá Jogvan Arge. ALGER samstaða var hjá ölium flokkum í Lögþingi Færeyja í gær um, að færeyska heima- stjórnin geti ekki mælt með aðild Færeyinga að Efnahagsbandalagi Evrópu og jafnframt stUddu allir flokkar tillögu um, að Færey- ingar hefji viðræður um við- skiptasamniug við EBE, einkum varðandi fisk og fiskafurðir. Mai'kaðsmálanefnd Lögþings- ins fékk tillögur landsstjórnar- innar og stjórnarandstöðuflokks- ins til meðferðar á þriðjudag og var hún Jbeðin að hraða störfum, þar sem Danir þurfa að tilkynna ákvörðun Færeyinga á ráðherra- fundi EBE, sem haldinn verður i Briissel nk. miðvikudag, og leggja fram óskina um samningsvið- ræður. Meany vill Nixon fyrir rétt Washington, 25. janúar, AP. GEORGE Meany formaður bandarísku verkalýðssamtak- anna AFL-CIOsendi í dag bréf til 113 aðildarfélaga sam- bandsins, þar sem hann sagði, að Nixon forseti hefði. með því að nota sér glufur skattalag- anna, sett fordæmi. sem setti efnahagskerfi landsins í mikla hættu. Sagði Meany í bréfinu, að ef bandarískur almenningur færi að fordæmi forsetans, myndi sá efnahagsgrundvöllur, sem stjórn landsins byggði á, bresta. Að sögn talsmanns samtakanna er tilgangurinn með bréfi þessu að fá verka- lýðsforingja í Bandaríkjunum til að auka þrýsting á þing- menn landsins um, að Nixon verði dreginn fyrir ríkisrétt með embættissviptingu i huga. Engin undan London, 25. janúar, AP. VONIR Breta um, að hægt yrði að snúa aftur til eðlilegrar vinnu- viku urðu að engu í dag, er Patrick Jenkin orkuinálaráð- herra Breta skýrði frá því í brezka þinginu í dag, að yfirvof- andi allsherjarverkfall kola- námainanna gerði það nauösyn- legra en nokkru sinni áður, að brezkur iðnaður héldi sig við þriggja daga vinnuviku og al- menningur sparaði enn meira við sig rafmagn heima fyrir, til þess glæta fram- hiá Bretum að forða frá enn frekari styttingu vinnuvikunnar. Jenkin sagði, að rikisstjórnin hefði ihugað að létta hömlunum af vinnutímanum, en ákvörðun framkvæmdaráðs kolanáma- manna um að láta fara fram alls- herjaratkvæðagreiðslu um verk- fallsheimild, hefði útilokað slikar aðgerðir. Framkvæmdaráðið sam- þykkti sem kunnugt er með 16 atkvæðum gegn 10 að hvetja til allsherjarverkfalls. Niðurstöður atkvæðagreiðslu verkamannanna munu liggja fyrir síðar í þessari viku. Jenkin sagðist vilja taka það skýrt fram, að brezka stjórnin væri með aðgerðum sínum að vernda brezku þjóðina gegn verð- bólgu og sagði, að fyrri ríkis- stjórnir landsins hefðu verið sam- mála um, að of háar launakröfur hefðu ætið verið meginástæðan fyrir verðbölgu. Hann neitaði því, að rikisstjórnin væri að knýja fram átök við kolanámamenn og verklýðssamtökin i heild.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.