Morgunblaðið - 26.01.1974, Qupperneq 15
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1974
15
m* 1 w • f /
limes skýrir tra
gömlum njósna-
hring í Bretlandi
London, 25. janúar, NTB.
FYRRVERANDI starfsmaður
tékknesku leyniþjónustunnar
hefur gefið brezkum stjór'nvöld-
um ítarlegar upplýsingar um
njósnahring, sem starfaði í Bret-
landi á sjötta áratugnum. Meðal
þeirra, sem hann hafði á sfnum
snærum, voru þrfr þingmenn og
fjöimargir háttsettir embættis-
menn.
Leyniþjónustumaður þessi, sem
heitir Josef Frolik, flúði fyrir
mörgum árum til Bandaríkjanna
og býr þar nú undir nýju nafni.
Hann kom til London í síðustu
viku til að gefa brezku stiórninni
FRÉTTA af skákum
þeirra Byrne og
Spasskys er beðið með
hvað mestri eftirvænt-
ingu. Spassky hefur nú
tvo vinninga, en Byrne
engan.
Skákmennirnir eru í
mikilli taugaspennu
upplýsingar og þá náðu frétta-
menn frá ,,The Times“ í hann og
fengu upplýsingar í leiðinni.
í viðtali við Times segir Frolik,
að á sjötta áratugnum hafi Aust-
ur-Evrópuríkin rekið umfangs-
meiri njósnastarfsemi i Bretlandi
en nokkru öðru landi að undan-
skildum Austurríki og Austur-
Evrópuríkin rekið umfangsmeiri
njósnastarfsemi í Bretiandi en
nokkru öðru landi að undanskild-
um Austurríki og Vestur-Þýzka-
landi. Leyniþjónustum þeirra
tókst að koma mönnum sínum inn
í stjörnunarkerfið, þingið og
verkalýðshreyfinguna.
Að því er Frolik segir, tók
brezka leyniþjónustan þing-
mennina þrjá til bæna, eft-
ir að hún hafði fengið upp-
Framhald á bls. 18
I loftbelg upp
í 44 þús. fet
Indlandi, 25. janúar, AP.
TVEIR brezkir loftbelgsflug-
menn tilkynntu í dag, að þeir
hefðu slegið met í flughæð i
„heitaloftsbelgjum" með því að
komast upp í 44 þúsund feta hæð,
yfir miðhluta Indlands. Fyrra
metið var 36.200 fet og var það
annar þátttakendanna núna, Juli-
an Nott, sem setti það yfir Heres-
fordshire í Bretlandi í júlí 1972.
Með honum við að setja þetta nýja
met var Felix Pole.
Loftbelgurinn þeirra heitir
Daffodil og sérstakir hæðarmælar
skráðu flughæð belgsins. Hæðar-
mælarnir verða sendir til
„Federation Aeronautic Int-
ernationale", sem skráir met og
setur reglur um skemmtiflug i
loftbelgjum.
Chiíe
kærir
Svíþjóð
STJÓRN Chile hefur kvartað
umdan því hjá Sameinuðu
þjóðunum, að sænska stjórnin
hafi lagt fram fé til andspyrnu-
hreyfingarinnar í Chile. í
kvörtuninni er sagt, að með því að
leggja hreyfingu til fé, sem hafi
það að yfirlýstu inarkmiði að
steypa stjórn landsins með vopna-
valdi, hafi Svfþjóð brotið sátt-
mála Sameinuðu þjóðanna.
Sænsk yfirvöld halda því fram,
að kvörtunin sé á misskilningi
byggð. Peningarnir hafi fengizt
með einkasöfnun en ekki opin-
berri söfnun eða fjárveitingu og
þeir voru afhentir Beatriz
Allende, ekkju fyrrverandi for-
seta landsins, sem lét lífið í bylt-
ingunni 11. setpember siðastlið:
inn.
Olof Palme forsætisráðherra
var að vísu viðstaddur afhending-
una en yfirvöld segja, að hann
hafi verið þar sem formaður
sósíaldemókrata, en ekki sem for-
sætisráðherra. Þau vilja því ekki
fallast á, að sáttmáli Sameinuðu
þjóðanna hafi verið brotinn í
þessu tilfelli.
Svíþjóð hefur engan sendiherra
f Chile, síðan Edelstam var rekinn
þaðan fyrir andspyrnu sina og
aðstoð við flóttamenn. Hins vegar
er þar sendiráðsritari og eitthvað
starfslið, sem er undir mjög
ströngu eftirliti.
Janúar, AP.
ALLIR skákmennirnir átta, sem
keppa um réttinn til að tefla við
Bobby Fischer um heims-
meistaratitilinn, áttu að tefla í
dag (föstudag), en taugaspennan
er farin að hafa sín áhrif á kepp-
endurna. Robert Byrne frá
Bandaríkjunum frestaði fimmtu
skák sinni við Boris Spassky á
miðvikudag vegna ofþreytu og
andvökunótta. Henrique Meck-
ing, frá Brasilíu frestaði skák
sinni við Viktor Korchnoi frá
Sovétríkjunum af sömu ástæðu.
Byrne og Spassky tefla í Puerto
Rico. Spassky hefur unnið tvær
skákir, en Byrne en’ga, og þarf
Rússinn því aðeins einn vinning
ennþá til að komast í undanúrslit-
in í apríl. Reglurnar eru þannig,
að ef hvorugur keppandinn hefur
þrjá vinninga eftir 16 skákir,
vinnur sá, sem hefur betri stöðu,
þ.e. hefur unnið eina eða tvær
skákir. Ef þeir eru jafnir er varp-
að hlutkesti. Jafntefli eru ekki
talin.
Mecking og Korchnoi halda
áfram fimmtu skák sinni i
Augusta í Georgíu i dag. Skáksér-
fræðingar segja, að Korchnoi hafi
haft beri stöðu, þegar skákin fór í
bið á miðvikudag. Þeir hafa leikið
fjórar skákir, sem allar urðu jafn-
tefli og munu eigast við í sjötta
skipti á morgun.
í Moskvu tefla sovézku stór-
meistararnir Anatoly Karpov og
Lev Polugaevsky sina fimmtu
skák í dag. Karpov, sem er 22 ára
gamall, var kjörinn bezti skák-
maður Sovétríkjanna árið 1973 og
hefur einn vinning gegn engum. í
Palma á Mallórca eígast svo við
þeir Tigran Petrosjan fyrrver-
andi heimsmeistari frá Sovétríkj-
unum og Lajos Portisch frá Ung-
verjalandi. Þeir hafa teflt þrjár
skákir til þessa og alltaf gert jafn-
tefli.
Olíufélögin stór-
græddu árið 1973
New York, 25. janúar, AP.
ÞRJÚ af stærstu olíufélögum
Bandarfkjanna hafa upplýst, að á
árinu 1973 hafi tekjur þeirra auk-
izt frá 28 og allt upp í 47 prósent.
Mobile Oil Corporation, næst
stærsta olíufélag landsins,
upplýsti, að tekjurnar hefðu auk-
izt um 47 prósent, úr 574,2
milljón.um árið 1972 upp í 842,8
milljónir dollara 1973.
Shenn, sem er sjöunda stærsta
olíufélag Bandaríkjanna, til-
kynnti, að tekjurnar hefðu aukizt
um 28 prósent, úr 260,5 milljón-
um dollara upp i 332,7 milljónir
dollara. Stærð félaganna er reikn-
uð út frá olíusölu þeirra árlega.
Fyrr í vikunni hafði Exxon
Corporation, stærsta félagið í
olíuiðnaðinum, tilkynnt, áð tekju-
aukning þess á árinu hefði verið
59 prósent og Cities Service og
Union Oil i Kaliforníu hafa
upplýst, að aukningin hafi verið
um 50 prósent hjá hvoru þeirra.
Háværar raddir hafa heyrzt um
það í Bandaríkjunum að undan-
förnu, að oliukreppan hafi i raun-
inni verið tilbúningur oliufélag-
anna, sem hafi m.a. verið að reyna
að auka tekjur sínar. Ekki liggja
fyrir neinar beinar sannanir um
þetta ennþá, en sérstök rann-
sóknarnefnd hefur verið skipuð
til að fjalla um málið.
Viljaekki
aukna efna-
hagsaðstoð
Washington, 24. janúar, AP.
FULLTRÚ ADEILD Banda-
ríkjaþings felldi í gær
tillögu um að hæKka fram-
lag til Alþjóðlegu þróunar-
stofnunarinnar úr 960
milljónum dollara upp í 1,5
milljarð, og er talið, að því
hafi valdið bæði reiði vegna
olíubanns Arabaríkjanna og
andstaða gegn aðstoð við er-
lend ríki almennt.
Tillagan var felld með 248
atkvæðum gegn 155. Með
henni voru 108 demókratar
og 47 repúblikanar, en á
móti 118 demókratar og 130
repúblikanar. Sumir and-
stæðingar tillögunnar bentu
á, að stofnunin, sem ep i
tengslum við Alþjóðabank-
ann, lánaði fé með 1 prósent
vöxtum á sama tíma og
lægstu vextir i Bandaríkjun-
um væru 8,5 prósent. Þeir
segja, að Bandarikin eigi nú
að einbeita sér að því að
styrkja sinn eigin efnahag.
Kafbátakapphlaupið:
Rússar geta smíðað
mun hraðar en USA
BANDARÍSKA blaöið „The
New York Times“ skýrði frá
því nýlega, að Sovétríkin væru
að auka getu sína til smíða
kjarnorkukafháta og hefðu
hafið smíði nýrrar tegundar,
sem nefnd hefur verið
„Challenge“. Upplýsingar þess-
ar, sem koma frá handaríska
varnarmálaráðuneytinu, koma
ekki mjög á óvart, en eru frek-
ari sönnun þess, að Sovétríkin
eru staðráðin í að láta Banda-
ríkin ekki fara of langt fram úr
sér hvað kafbátaflota snertir.
Hin nýja kafbátategund
Sovétríkjanna er nokkru stærri
en Delta-gerðin, sem bættist í
sovézka flotann 1972. Höfuð-
munurinn er þó sá, að
Challenge-kafbátarnir geta bor-
ið 16 langdrægar eldflaugar
með kjarnaoddum, en Delta-
kafbátarnir aðeins 12.
Tilkoma þessa nýja kafbáts á
rætur sínar að rekja til sam-
komulags Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna um takmörkun
kjarnorkuvígbúnaðar. í því er
meðal annars kveðið á uni há-
marksfjölda kafbáta og þeirra
eldfiauga, setn þeir mega bera.
Sovétrikin mega mest eiga 62
kafbáta, sem geta borið samtals
950 heimsálfuflaugar. Ef þau
hefðu haldið áfram að smíða
Delta-kafbátana, sem bera 12
flaugar hver, hefðu þau ekki
getað náð 950 flauga há-
markinu nema með því að
smíða of marga kafbáta. Þau
hafa því ákveðið að byggja
stærri báta til að geta náð báð-
um hámarkstölunum.
Þegar samkomulagið var gert
við Bandaríkin, áttu Sovétríkin
45 kafbáta, sem annað hvort
voru þegar komnir á sjó eða
verið var að ljúka við smíði á. 1
dag eiga þau um 50 kafbáta á
sjó eða í smíðum. Bandaríkin
eiga aftur á móti 41 kafbát, sem
ber heimsálfuf laugar. Hins veg-
ar eru sovézku flaugarnar
aðeins vopnaðar einni kjarn-
orkusprengju, en þær banda-
risku bera márgar, þannig að
þótt Sovétrikin eigi fleiri flaug-
ar hafa Bandarikin vinninginn,
þegar sprengjurnar eru taldar.
Bandarikin hafa einnig nýjan
kafbát á teikniborðinu, hann er
af svonefndri Trident-gerð og
ntun geta borið 24 eldflaugar.
Það eru þó nokkur ár þangað til
bátar af þeirri gerð verða
komnir á sjóinn.
Bandarikin hafa þó ekki jafn
miklar áhyggjur af þessari nýju
tegund sovézkra kafbáta og af
getu Sovétríkjanna til að smíða
þá. Þau eiga nú þegar stóra
kafbátasmíðastöð á norður-
ströndinni í grennd við Mur-
mansk og aðra á Kyrrahafs-
ströndinni nálægt Vladivostok.
Með þessu geta þau smiðað kaf-
báta þrisvar sinnum hraðar en
Bandaríkin, ef þeim dettur það
í hug. A siðustu árum hafa
Sovétrikin framleitt um 12
kjarnorkukafbáta á ári, og er
helmingur þeirra ætlaður til að
bera eldflaugar, en hinn helm-
ingurinn vopnaður tundur-
skeytum til að granda skipum
og öðrum kafbátum. Bandarík-
in hins vegar hafa framleitt um
tvo kafbáta á ári og er gert ráð
fyrir, að þeim fjölgi upp í fimm
á ári í náinni framtíð.
m&m