Morgunblaðið - 14.02.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRUAR 1974
Anwar Sadat
forseti
á blaðamannafundi.
Eftir
John de St. Jorre
Sadat
kœfir
gagnrýnina
Þegar Muhammad Heykal
var vikið úr starfi aðalritstjóra
Al-Ahram — aðalmálgagns
egypzku stjórnarir.nar — í fyrri
viku, var hann ekki fyrsta
fómarlambið í valdabarátt-
unni, sem hófst þar i landi eftir
októberstríðið, þótt brottvikn-
ing hans hafi vakið mesta at-
hygli.
Iiklegt er, að áframhald
verði á þessari valdastreitu.
Hún hefur þegar orðið ýmsum
þekktum mönnum að falli, og
fleiri geta fylgt. Stjórnvöld í
Egyptalandi hafa lengi átt
erfitt með að þola andstöðu, og
vandamálin i sambandi við frið-
arsamninga við ísrael hafa
valdið miklum erfiðleikum.
Allt frá því að Sadat forseti
fór með sigur af hólmi í keppn-
inni um forsetaembættið I maí
1971 hefur hann sýnt óvænta
herkænsku. Þar sem hann
skortir það mikla aðdráttarafl
og álit, sem fyrirrennari hans
— Nasser — hafði til að bera,
hefur Sadat sýnt meira litillæti
I afstöðu sinni í þjóðarinnar og
þá ekki síður í garð annarra
Arabaleiðtoga, þótt hann hafi
aldrei látið neinn efast um það,
hver ræður i raun.
Af þessum sökum hefur stjórn
Sadats fengið á sig orð fyrir
meira umburðarlyndi en fyrri
stjórnir, þótt ekki hafi enn
verið komið á því frjálslyndi,
sem hann gaf fyrirheit um f
kosningabaráttunni 1971.
I hvert sinn, sem Sadat hefur
talið sér ógnað, hefur hann ver-
ið fljótur að grípa til gagnráð-
stafana. Þegar Aly Sabry leið-
togi vinstrisinna virtist orðinn
hættulegur keppinautur um
vötdin, lét Sadat handtaka
hann og nánustu samstarfs-
menn hans í desember 1971.
Ári seinna, í október 1972, rak
hann yfirmann hersins, Sadek
hershöfðingja, úr embætti.
Sadek, sem byggði upp herinn,
sem ári siðar hertók Bar-Lev
varnarlínu Israela, var orðinn
of valdamikill og vinsæll að
dómi Sadats.
Fyrir stuttu rak svo Sadat
annan vinsælan hershöfðingja,
Shazly, sem var forseti herráðs-
ins. Shazly hafði réttilega við-
urkennt, að hann ætti nokkra
sök á því, að hersveitum ísraela
tókst að ráðast yfir á vestur-
bakka Súez-skurðarins i
októberstriðinu, en sennilegt
er, að pólitískar og persónuleg-
ar ástæður hafi verið undir-
staða ákvörðunar forsetans.
Stúdentar, verkamenn og
vinstrisinnaðir menntamenn
hafa hverjir í sínu lagi gripið til
mótmælaaðgerða gegn stjórn-
inni. Þótt Sadat hafi þá jafnan
brugðið við með festu, hefur
hann ekki sýnt óþarfa hörku. Á
sama tima og hann hefur haldið
góðum tengslum við herinn og
bætt kjör borgarastéttarinnar,
hefur hann hreisað til í öllum
stofnunum landsins, eins og í
eina stjórnmálaflokki landsins
og þinginu. Eina undantekning-
in var Al-Ahram, en blað þetta
var i rauninni aðeins einn mað-
ur — Muhammad Heykal.
Heykal er góður blaðamaður
(þótt ekki sé hann sérlega
skemmtilegur penni), og jafn-
vel enn betri stjórnmálamaður.
Hann var þegar valdamikill og
naut sérstakra forréttinda á
dögum Nassers, og hann var
sannfærður um enn meiri
frama undir leiðsögn Sadats.
Þegar Sadat var að hreinsa til
meðal keppinauta sinna i maí
1971, gat Heykal átt von á því
að falla með forsetanum, tækist
hreinsunin illa, því að báðir eru
þeir fylgjendur hægri arms
flokksins. Eftir að Sadat hafði
tryggt sig í sessi sneri Heykal
sér að því að gera Al-Ahram að
rlki í ríkinu og notaði blaðið til
að túlka eigin skoðanir og gagn-
rýna stefnu stjórnarinnar.
Sadat lét þetta viðgangast,
jafnvel þótt Heykal væri
bendlaður við margt það, sem
Sadat var ekki að skapi. Þrátt
fyrir allt var Heykal hæfur ráð-
gjafi og þægilegur félagi. En á
síðasta ári fór að bera á ágrein-
ingi þeirra á milli, bæði varð-
andi stefnu og stjórnmál.
Ágreiningsefnin eru aðallega
þrjú. Þeir eru ósammála um
Nasserisma, Gaddafi forseta
Lfbýu og ákafar tilraunir hans
til að sameina Arabaríkin í eitt
ríki og um stefnu Bandarikj-
anna varðandi Mið-
Austurlönd. I öllum þessum
málum hefur Heykal komið
fram sem harðlinumaður, en
Sadat sýnt meiri sveigjanleika,
og, að því er Bandaríkin snert-
ir, sérstakt, jafnvel blint,
traust.
Heykal hafði verið vinveittur
hershöfðingjunum Sadek og
Shazly og tekið undir með
„haukunum" innan hersins,
sem voru andvigir vopnahléinu
og samningum Kissingers um
aðskilnað herja Egypta og Isra-
ela. Ágreiningur hafði lengi
ríkt milli Heykals og dr. Abdul
Kader Hatems upplýsingamála-
ráðherra, sem nú er orðinn
stjórnarformaður Al-Ahram.
Það er grátbroslegt í sam-
bandi við fall Heykals, að um
langt skeið var hann talinn
„maður Bandarikjanna" í
Kaíró. Sadat hafði oft beitt hon-
um sem milligöngumanni gagn-
vart Bandaríkjunum, og þótt
Heykal hafi verið gagnrýninn á
stefnu Bandaríkjanna, var
hann enn harðari í garð Rússa,
og þeir höfðu mikla óbeit á hon-
um. En honum samdi ekki við
dr. Kissinger, og vinátta Sadat
og bandaríska utanrikisráð-
herrans blómstraði svo skjótt,
að engin þörf er lengur fyrir
neinn milligöngumann.
Heykal er fallinn í bili, en
sögu hans þarf ekki að vera
lokið. Það er mikil teygja i
egypzkum stjórnmálum, og
ekkert nýtt, þó að fallin stjarna
skíni á ný. En meðan Sadat er
að þræða sprengjum stráða leið
til friðar, er ljóst, að hann lætur
enga andstöðu viðgangast
heima fyrir.
HESTAMENN. Er kaupandi að góðum hesti Vin- samlegt hringið I síma 36946. ÞORRAMATUR — VEIZLUMAT- UR Matarbúðin, Hafnarfirði sér um þorramatinn í þorrablótin, 1 6 teg- undir innifaldar. Einnig köld borð og annan veizlumat. MatarbúSin, Hafnarfirði S. 51 186.
VIL GJARNAN LÁNA eina milljón I eitt ár, gegn fast- eignaveði. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 20. febr merkt: „Viðskipti — 3337". BÁTUR ÓSKAST vantar 4—7 tonna trillu. strax. Ekki mjög gamla. Upplýsingar í sima 27447 eftir kl. 8
HAFNARFJ. OG NÁGRENNI. Úrvals saltkjöt, ódýrar rúllupylsur, ódýru dilkasviðin, bacon, ódýr á- vaxtasulta. Kjötkjall. Vesturbr. 12. BROTAMÁLMAR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði Staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 25891.
HAFNARFJÖRÐUR OG NÁGR. Úrbeinað hangikjöt 495 kg. Nautabuff 495 kg Nautahakk 295 kg. Úrvals unghænur. Kjötkjall. Vesturbr. 1 2. SANDGERÐI Til sölu vel með farin 3ja herb íbúð Sérinngangur. Hagstætt verð og greiðsluskilmálar. Fasteignasalan, Hafnargötu 27. Keflavlk, simi 1 420
GARÐUR Til sölu nýtt einbýlishús. 4 svefn- herbergi. Stórar stofur. Fasteignasala Vilhjálms og Guð- finns, Vatnsnesvegi 20, Keflavík, símar 1 263 og 2890. KEFLAVÍK Til sölu rúmgóð 2ja herb. ibúð með sérinngangi. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavik, sími 1420.
TRJÁKLIPPINGAR og áburðardreifing. Þórarinn Ingi Jónsson. Sími 36870. CHEVROLET Vega G.T. 1972 til sölu Nýinn- fluttur frá U.S.A. uppl i sima 35200 og 21712og 13285.
ADALFUNDUR
Eyfirðingafélagsins verður haldinn í Kaffiteríunni, Glæsi-
bæ fimmtudaginn 21. febrúar kl. 8.30.
Stjórnin.
Ævintýrahelmur
húsmæora
Kryddhúsið í verzl. okkar í Aðalstræti 9.
Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun hinna
ýmsu kryddtegunda kl. 2-6 í dag.
Verið velkomin.
Matardeildin
Aðalstræti 9.
# # # HVERS VEGNA SKYLDU ALLAR
UTSÝNARFERÐIR SELJAST UPP LÖNGU
FYRIRFRAM?
# # # SVARIÐ ÓSKAST SENT FERÐA-
SKRIFSTOFUNNI ÚTSÝN FYRIR KL. 5,18.
Þ.M. OG VERÐUR ÞAÐ BIRT í NÝRRI
FERÐAÁÆTLUN ÚTSÝNAR SEM KEMUR ÚT
24. Þ.M.
VERBLAUN
FYRIR BEZTA SVARIÐ: || I M ■ N f
# # • ÓKEYPIS AUSTURSTRÆTI 17
2JA VIKNA FERÐ SÍMAR: 26611
MEÐÚTSÝN OG 20100.
TILCOSTA DELSOL.