Morgunblaðið - 14.02.1974, Side 20

Morgunblaðið - 14.02.1974, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRUAR 1974 Geysilegar bilanir ;fr^sh2a,tl sjó né landi vegna veðurs og ó- færðar. Fyrir nokkrum dögum gerði eitt mesta brim, sem sézt hefur á Ölafsfirði síðan 1962, lok- aði það nær höfninni með þara og sandi, þannig að einungis minnstu bátar geta athafnað sig þar. Ekki er vitað me'ð vissu um bilan- irnar á línunni til Ólafsfjarðar frá Skeiðfossvirkjun, en ljóst er, að snjóflóð við Bakka i Ölafsfirði hefur brotið staura og línan einn- ig slitnað vegna ísingar. Engin dísilrafstöð er á Ölafsfirði, enda hafa rafmagnstruflanir verið fá- tiðar þar undanfarin ár. I Grenivik hefur verið raf- magnslaust með öllu síðan aðfar- arnótt þriðjudags, en um 70 staur- ar hafa brotnað á línunni frá Fnjóská norður í Grenivík og er allt Höfðahverfið rafmagnslaust. 1 frystihúsinu i Grenivík eru um 2000 kassar af frystum fiski, en talið var, að þeir myndu ekki skemmast, því að vona var á lítilli dísilrafstöð með flóabátnum Drangi frá Akureyri og átti hún að komast í notkun í nótt sem leið. Hún gefur rúm 100 kílówött og á að sjá Grenivík fyrir rafmagni til ljósa, hitunar og matargerðar og frystihúsinu til að halda frosti á frystigeymslum. Alveg er síma- sambandslaust við Grenivík, en talstöðvar notaðar í staðinn. Mik- ið hefur fallið af snjóflóðum í Dalsmynni og hafa þau m.a. tekið af eina brú og fært veiðihús yfir Fnjóská. A Dalvík og nágrenni hafa um 20 staurar brotnað, en rafmagn hefur þó verið á meginhluta þess svæðis. Snjóflóð hafa brotið staura i Öxnadal, og eru sveitabæ- ir þar rafmagnslausir, einnig hafa flóðin brotið staura í línunni, sem i fyrra var lögð milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar að tilhlutan Magnúsar Kjartanssonar orku- málaráðherra, en hún hafði ekki ennþá verið notuð til orkuflutn- inga. í Fljótunum í Skagafirði hafa um 50 staurar brotnað og eru um 30—40 bæir þar rafmagnslausir. Viðgerðarflokkar eru komnir þangað, en samgönguerfiðleikar hafa hamlað mjög starfi þeirra. I Önundarfirði eru brotnir um 60—70 staurar og allt svæðið þar fyrir norðan er því úr sambandi við Mjólkárvikjun. Hins vegar eru dísilstöðvar víða á svæðinu og einungis nokkrir bæir i Önundar- firði munu algerlega rafmagns- lausir. Um 30 manns eru í við- gerðum, en sækist starfið afar seint vegna ófærðar. A Snæfellsnesi voru um 50 staurar brotnir í Staðarsveit og rafmagnslaust þar og í Breiðuvík. Viðgerð er hafin þar. Víða annars staðar var einnig um bilanir að ræða, en þær voru taldar minni háttar. Símabilanir voru víða miklar, bæði á landssímalínum og innan- sveitarlínum. Mestar voru bilan- irnar á Vestfjörðum, og var sjálf- virka símasambandið rofið við ísafjörð, Þingeyri, Flateyri, Bol- ungarvík og Súðavík, en hægt að hafa samband við þessa staði um handvirkar línur við afar slæm skilyrði þó. Ennfremur var síma- sambandslaust að nokkru norður á Ströndum, og við Hofsós, Greni- vík, Kópasker, Raufarhöfn, sím- stöðvar í Axarfirði og Þórshöfn. Bilanirnar voru viðst hvar vegna línuslits, en sums staðar höfðu einnig brotnað staurar, m.a. 20 á milli Hólakots og Hraunsmúla á Snæfellsnesi. Hafizt var handa um viðgerðir í gær, en mikil ófærð' og skortur á farartækjum munu hamla viðgerðum. Af Landssímans hálfu er lögð áherzla á viðgerðir á landssíma- línum, en sveitasímalínur látnar bíða, ef nauðsynlegt er. Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar síðdegis í gær var fært öllum bílúm upp f Borgar- fjörð og eins austur til Víkur í Mýrdal, en austan Víkur var ein- ungis fært stórum bílum og þá allt til Hafnar í Hornafirði. Um aðra hluta landsins, frá Snæfells- nesi til Austfjarða, máttisegja, að allar leiðir væru ófærar og erfitt að reyna að ryðja þær, þar sem ennþá snjóaði víðast hvar. Augnabliksmyndir úr herbiiðum deiluaðila. Menn setjast niður og stinga saman nefjum — ræða gang mála — eins og efri myndin ber með sér, þar sem fulltrúar ASl sitja og spjalla. En á meðan kanna vinnuveitendur tilboð ASl — eins og neðri myndin sýnir. — Samninga- málin Framhald af bls. 36 prósentulegar hækkanir á kaupi. Rætt er um breytta flokkaskipan á grundvelli samninga verka- mannafélaganna. Viðræðufundir hófust á Hótel Loftleiðum í gærdag klukkan 15, en fundinum í fyrradag lauk að- fararnótt gærdagsins klukkan 02. Um sjöleytið í gærkvöldi var gefið kvöldverðarhlé til klukkan hálf níu og bjuggust samningamenn við fundum fram eftir kvöldi eða jafnvel fram á nótt. Vinnuveitendur skoðuðu í gær tilboð ASÍ, en i gærkvöldi hafði VSÍ ekki lagt fram formlegt gagn- tilboð, hins vegar hafði verið hreyft nokkrum hugsanlegum breytingum. Var í gærkvöldi unn- ið að því meðal aðila VSl, að sam- bandið legði fram nýtt gagntilboð. Er Mbl. ræddi í gær við Björn Jónsson sagði hann, að greinilega hefði miðað í rétta átt síðustu sólarhringana, en þó væri enn mikið eftir óunnið. — Ummælin Framhald af bls. 36 væri um mjög alvarlegan atburð að ræða, sem ekki væri unnt að láta ómótmælt. Væri óhætt að fullyrða, að slík framkoma yrði ekki þoluð í neinu fullvalda sjálf- stæðu riki. Hefði handtöku rithöf- undarins verið mótmælt af al- menningi og ríkisstjórnum um víða veröld. Geir Hallgrímsson tók mjög i sama streng og sagði aðfarirnar gegn Solzhenitsyn vera dæmi um ástandið, eins og það væri i Sovét- ríkjunum. Sjálfsagt hefði verið að gera sérstakan sjónvarpsþátt um ofsóknirnar gegn honum. Væri slíkt til þess fallið að minna menn á, að frelsi væri ekki sjálfgefinn hlutur. Rakti hann, hvernig vinir okkar í Finnlandi hefðu þurft að láta undan skoðanakúgunar- stefnu Sovétríkjanna og fagnaði því, að íslendingar stæðu ekki í sömu sporum og þeir. Halldór Blöndal sagði hér ekki einungis vera um að ræða velferð eins manns, heldur viðhorfið til einstaklingsfrelsisins, okkar sjálfra. Væri Alþingi misboðið, ef ráðherra lýsti því ekki yfir í þing- inu, að umkvörtun hins sovézka sendimanns yrði mótmælt. Ekki bárust svör við þessu frá utan- ríkisráðherra. Stefán Jónsson taldi áhuga „ihaldsmanna" á máli þessu vera tengdan áhuga þeirra á, að annað herveldi en Sovétríkin héldi áfram óeðlilegri stöðu sinni í landinu. Jónas Árnason vakti eins og áð- ur segir máls á þessu sama máli í neðri deild og taldi óréttlæti rússneskra yfirvalda gagnvert Solzhenitsyn gefa okkur tilefni til að taka á öðru ranglæti, eins og því, sem beitt hefði verið í Banda- rikjunum gagnvart Daniel Ells- berg. Ingólfur Jónsson sagði með- ferðina á hinum rússneska höf- undi minna okkur á, hversu þakk- látir við mættum vera fyrir að búa í landi, þar sem frelsi ríkti. Ekki væri unnt að bera mál Solz- henitsyns saman við það, sem gerzt hefði i einstökum löndum í hinum frjálsa heimi. T.d. væru nú æðstu valdhafar í Bandaríkjunum opinberlega undir rannsókn. Slíkt gæti aldrei gerzt í Sovétríkjunum. Matthías Á. Mathiesen tók und- ir orð annarra þingmanna og lýsti hryggð yfir örlögum hins rúss- neska rithöfundar. Væri ekki smekklegt að fjalla um þetta mál á sama hátt og Jónas Árnason gerði. Benedikt Gröndal sagði ekki nýtt, að kvartað væri af erlendum aðilum undan efni blaða. Annað gilti sjálfsagt um útvarpið. Lýsti hann sömu skoðunum á málinu og aðrir þingmenn. — Þing Framhald af bls. 16 Á hinn bóginn hafa lögin skapað nokkra óvissu um gildi löggerninga, sem mjög algengir og mikilvægir eru í viðskiptum manna, einkum húsaleigusamn- inga, sölusamninga um húsnæði og verksamninga. Eráratuga hefð um visitöluviðmiðun í samning- um þessum, einkum húsaleigu- samningum, og verður að draga í efa réttmæti þess að ógilda notkun þeirra í því formi nú. Hef- ur notkun vísitöluákvæða i samningum þessum viðgengist þrátt fyrir setningu laganna. Hafa byggingaraðilar áskilið vísitölu- kvöð í sölusamningum um íbúð- ir, sérstaklega eftir að fram- kvæmdalán Byggingarsjóðs ríkis- ins komu til skjalanna." Síðar segir: „Það má draga mjög í efa, að það samrýmist réttarvitund HÍP vill ekki verkfall nú FÉLAGSFUNDUR var f gær hald inn f Hinu fslenzka prentarafé- lagi og var þar tekin fyrir afstaða trúnaðarmannaráðs félagsins til synjunar um verkfallsboðun. I upphafi fundarins kom fram, að stjórn félagsins hafði verið þrf- klofin f afstöðu sinni til verkfalls- boðunar. Formaðurinn, Þórólfur Daníelsson, vildi samstöðu með ASl og verkfallsboðun hið skjót- asta, tveir stjórnarmenn vildu ekki verkfall og fjórir með skil- yrðum, þ.e. að önnur bókagerðar- félög hæfu samtfmis verkfall. Eins og komið hefur fram í fréttum sagði Þórólfur Daníels- son af sér formennsku í félaginu vegna ágreinings við trúnaðar- mannaráðið. Á fundinum í gær komu fram tvær tillögur. Annars vegar að trúnaðarmannaráðið endurskoðaði afstöðu sina til verkfallsmálsins, og var hún felld með 90 atkvæðum gegn 39, og hins vegar tillaga um, að trúnað- armannaráð HÍP sæi um samn- ingamál félagsins þar til stjórnar- kosning hefði farið fram. Sú til- laga var samþykkl með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða. Með þessum málalokum hefur Prentarafélagið slitið samstöð- Leiðrétting í frétt um doktorsvörn Magga Jónssonar í blaðinu urðu prent- villur. Hann lauk prófi frá Sví- þjóð 1960. Móðir hans hét Guðrún Jóhannsdóttir. unni, sem það hefur átt til þessa með öðrum launþegafélögum, og er orsökin m.a. sú, að félagsmenn líta svo á, að sá tími, sem kjara- baráttan fer nú fram á, henti fé- laginu mjög illa. Stjórnarkjör í Hinu Islenzka prentarafélagi er nú á næsta leyti og rennur framboðsfrestur til að skila listum út hinn 18. febrúar næstkomandi. —_ ♦ ♦ ♦-------- Nægt rafmagn á ný á Siglufirði Siglufirði, 13. febr. TVEIR skuttogarar lönduðu hér afla í dag, Dagný 20 lestum og Ólafur bekkur frá Ólafsfirði 30 lestum. Ólafur bekkur gat ekki landað á Ólafsfirði, þar sem höfn- in þar er viðsjárverð og einnig er þar rafmagnsskortur. Rafmagnsmálin hér á Siglufirði eru komin í mjög viðunandi horf, því að önnur Ijósavél síldarverk- smiðjanna er komin í notkun til viðbótar við disilrafstöðina, sem fyrir var. Ástandið er því mjög viðunandi, þótt 20—30 staurar á linunni frá Skeiðfossvirkjun séu brotnir og verði ekki starfhæfir næstu dagana. Veður hefur gengið mjög niður hér síðari hluta dagsins í dag. Götur bæjarins eru mjög erfiðar yfirferðar, því að jarðýta bæjar- ins hefur ekki komizt yfir að ryðja þær allar. — Steingrímur. — Solzhenitsyn Framhald af bls. 36 kominn til Vestur-Þýzkalands: — Eg trúi því ekki fyrr en ég heyri í honum, fyrr en hann segir mér það sjálfur. Ef hann er kom- inn þangað þá hefur hann verið fluttur burt með valdi. Hún kvaðst ekkert geta sagt um eigin áform á þessu stigi, hún þyrfti að tala við mann sinn og ráðfæré sig við hann og fá að vita, hvaf væri eiginlega að gerast, áður er. hún gæti tekið nokkra ákvörðun. ÞEIR VERÐA AÐ DREPA MIG Áður en Solzhenitsyn var hand- tekinn hafði hann raunar samið yfirlýsingu, sem gaf ekki sovét- stjórninni marga kosti varðandi meðferðina á honum. í henni sagði hann, að ef hann yrði send- ur í vinnubúðir yrði þeir einfald- lega að drepa sig, þvi að hann myndi aldrei hlýða skipunum um að vinna þá vinnu, sem þeir fengju honum. Hann myndi aldrei vinna með þeim og þeim tækist aldrei að þagga niður í honum nema með því að drepa hann. ERSAKHAROV NÆSTUR? Það fréttist fljótlega um Moskvu, að Solzhenitsyn hefði verið handtekinn, og vinir hans flykktust til heimilis hans til að vera konu hans til styrktar. Meðal þeirra var eðlisfræðingurinn manna að skerða nú samnings- frelsi að þessu leyti á tímum mik- illar verðbólgu, þegar ljóst er, að verðákvörðun í upphafi samnings getur ekki staðist fyrir seljanda nema með fyrirvara um breyti- leika verðs í samræmi við verð- þróun á samningstíma. Banni við slíkum ákvæðum er vonlítið að framfylgja, og eru ávallt ráð til að komast fram hjá slikum bönnum með ýmsum ákvæðum, ef aðeins vísitala eða hliðstæður verðmælir er ekki nefndur.“ Þrír brezkir til Norðfjarðar ÞRlR brezkir togarar komu til Norðfjarðar á þriðjudag, tveir voru með veikan mann, en sá þriðji kom vegna vélarbilunar. Þeir héldu allir út aftur um nótt- ina. UPI Andrei Sakharov Andrei Sakharov, sem einnig hef- ur verið óvæginn gagnrýnandi. „Þetta er hefnd fyrir Gulag- eyjahafið," sagði hann, „samvizka heimsins verður að mótmæla þvi, sem hefur gerzt. Við erum sorg- mæddir vegna þessa. Við erum sorgmæddir hans vegna, okkar vegna og heimsins vegna. Við höldum í hvert einasta skipti, að nú hafi yfirvöldin gert sín síðustu mistök og verði næst gáfulegri. En þau koma okkur alltaf á ó- vart.“ Sakharov sagði, að sér kæmi ekki á óvart, þótt fleiri „óá- nægðir“ yrðu teknir til meðferðar á næstunni og hann væri ofarlega á listanum. TIL NORÐUR- LANDA? Ýmsir vinir Solzhenitsyns telja ekki ólíklegt, að hann muni setj- ast að á Norðurlöndum, líklegast i Noregi eða Svíþjóð. Hann hafði rætt við ýmsa vini sina um mögu- leikana á því, að sér yrði vísað úr landi og hvar hann ætti þá að setjast að. Honum leizt bezt á eitt- hvert Norðurlandanna, meðal annars vegna loftslagsins. — Loðnumjöl Framhald af bls. 2 ur ættu sér nú stað á mjölmark- aðnum. Danir hefðu nýlega selt mjöl á 3.60 pund proteineining- una eða um 8 dollara, og sölur hefðu verið gerðar á enn lægra verði. „En,“ sagði Gunnar, „þarf eng- inn að kvarta yfir þessu verði, þvf það verð, sem nú fæst, verður að teljast mjög gott, en er ekki hægt að miða alltaf við það hæsta, sem fengizt hefur.“ Hann sagði ennfremur, að sennilega kæmist hreyfing á mjölmarkaðinn aftur, þegar í ljós kæmi hvernig loðnuveiðar Norð- manna gengju og hvort Perú- menn gætu veitt það magn af ansjósu, sem þeir ætla sér.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.