Morgunblaðið - 14.02.1974, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 14.02.1974, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1974 25 Halldór Pétursson Vopnafirði - Minning Stórhrið og veður- ofsi í Mývatnssveit Björk, Mývatnssveit, 12. febrúar. ALLA síðastliðna viku var hér mjög umhleypingasöm tíð. Flesta daga snjóaði eitthvað og einnig var allmikill skafrenningur. Færð á sumum vegum var stundum erf ið, þó var reynt að halda þeim opnum. Um hádegi á laugardag brast á norðan stórhrið, mikii fannkoma og véðurhæð t'ylgdu þessu veðri, sem stóð þar til sið- degis á sunnudag. Flestir vegir urðu ófærir, enda víða feikna- miklir skaflar. í gær var svo sæmilegt veður. Var þá vegurinn ruddur frá Húsa- vík. Síðdegis komu flutningabilar Kílisiðjunnar þaðan til að sækja kísilgúr. Þegar búið var að lesta bílana og átti að leggja af stað til baka, var komið vitlaust veður og vonlaust að fara út i slíkt. Bif- reiðastjórarnir settust því að hér og eru enn veðurtepptir enda allt orðið ófært á bíl og ekkert hægt að komast, nema með hjálp snjó- ruðningstækja. Varla hefur séð út úr augum hér i dag og ofsarok var alla siðastliðna nótt. Snjóbíll hef ur flutt mannskap i og úr vinnu hjá Kisliliðjunni og svo hefur kóf- ið verið mikið, að bilinn var næst- um eina kukkustund i morgun að fara þriggja kílómerta leið. Ekk- ert hefur verið kennt hér i skólan- um siðan fyrir helgi vegna óveð- urs og ófærðar. Nokkrar truflanir voru hér á rafmagni i morgun og rafmagnslaust um tíma. Þá hafa einnig orðið verulegar trufl anir á útvarpi og sjónvarpi und- anfarin þrjú kvöld. Hefur fólk bókstaflega gefizt upp við að horfa, enda allt á fleygiferð á skerminum. Eru margir að vonum heldur óhressir yfir þessu ástandi. — Kristján. árum, komust ekki hjá því að veita þessari vörpulegu konu eft- irtekt, því að það sópaði að henni hvar sem hún fór og röggsemi hennar og skyldunækni í starfi var einstök. Una gat virzt nokkuð hrjúf og snögg upp á lagið og hún lét í sér heyra, þegar á þurfti að halda. En undir hrjúfu yfirborði leyndist öðlings manneskja, sem öllum vildi vel. Enda sýnir stór vinahópur hennar, hvern mann hún hafði að geyma. Una var mjög félagslynd kona og tók beinan þátt i ýmiss konar félagsstarfssemi. Hún starfaði af eldmóði í Kvennadeild Slysa- varnafélags tslands meðan kraft- ar og heilsa leyfðu. Málefni þess félagsskapar stóðu hjarta hennar nær, enda hafði hún kynnst sjón- um og vályndi hans af eigin raun áæskuárunum suður íGarði. Hún missti tvo bræður og mág sinn í sjóinn. A 75 ára afmæli sinu var Una kjörin heiðursfélagi Kvenna- deildarinnar og þá viðurkenningu mat hún mikils. Auk þessa var Una fulltrúi á þingum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Una annaðist Kristinu Björns- dóttur mágkonu sína blinda mörg síðustu árin, sem Kristín lifði. Hér hefur verið stiklað á stóru um æviferii Unu Þorsteinsdóttur, sem gæfi þó tilefni til margfalt lengri greinar. En orð eru fánýt, og minning okkar um Unu verður varanlegri. Eiginleikar hennar standa okkur ljóslifandi fyrir sjónum. Una var stórbrotin í skapi, hún var skaprfk og sagði sína meiningu umbúðalaust hverjum, sem í hlut átti. Hún var oft á tíðum nokkuð fljótfær, þeg- ar ákafinn bar hana ofurliði. En þó að mönnum gæti sinnast við hana af þeim sökum, var það aldrei til frambúðar og það var ekki hægt annað en að smitast af glaðværð hennar og hressileika. Una var með afbrigðum gestrisin og veitti af rausn enda þótt efni væru oft lítil framan af, og hjálp- semi hennar var viðbrugðið. Eftir langa og erfiða starfsævi var Una orði n þrotin af kröftum, og ég hygg að hún hafi orðið hvíldinni fegin, þvi að hún vissi að hún átti von góðrar heimkomu. Af Meiðastaðasystkinunum eru nú aðeins tvö á lifi, Halldór, út- vegsbóndi í Vörum í Garði og Hallbera húsfreyja i Reykjavik. Ég votta þeim og öllum ættingjum Unu mína dýpstu hluttekningu. Blessuð sé minning hennar. Ingvi Þorsteinsson. MIG langar að senda kveðju austur á Vopnafjörð. Þar var fyrir skömmu jarðsunginn frá Hofs- kirkju Halldór Pétursson frá Hauksstöðum, en þar átti hann lengst heima. Hann andaðist i fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 24. janúar. Hann var fæddur á Vakursstöðum 10/12 1914 sonur hjónanna Elisabetar Sigurðar- dóttur og Péturs Olafssonar. Eg kynntist Halldóri ekki fyrr en árið 1967. Þá var hann um tíma á heimili mínu. Maðurinn minn hafði verið í Reykjavík undir læknishendi, og var nú kominn heim, en óvinnufær. Eg hafði ekki hjálp nema það sem góðir nágrannar komu án þess þó að hafa tima til, þvi í sveitinni hefur venjulega hver nóg með sig. Þá bauðst hann til að koma og var hjá okkur meðan með þurfti. Hann hefði ekki getað hugsað Hildur i Þúfu, eins og hún var daglega kölluð, var fædd 1. júní 1886 að Fljótakróki i Meðallandi, foreldrar hennar voru Þuríður Magnúsdóttir og Sveinn Einars- son. Barn að aldri missti hún föð- ur sinn, en dvaldist næstu tvö árin með móður sinni, fór þá að Ásum í Skaftártungu og ólst þar upp hjá sira Sveini og konu hans, þar taldi hún sér hafa liðið vel. Hvað Hildur var lengi i Ásum eða hvar hún dvaldist eftir það er mér ekki fullkunnugt um, en að Þúfu fluttist hún 1915, þá fyrir stuttu gift eftirlifandi manni sín- um Guðjóni Magnússyni frá Fagradal í Mýrdal. Þau bjuggu í Þúfu óslitið síðan þangað til á siðastliðnu vori, að Guðjón brá búi og fluttist að Hákoti í Þykkvabæ til dóttur sinnar og tengdasonar, en þangað hafði Hildur flutzt fyrir rúmu ári sök- um heilsuleysis, og naut hún þar betur um skepnurnar en hann gerði, þótt hann hefði átt þær sjálfur. Dagfarsprúðari mann hef ég ekki þekkt. Alltaf jafn hæg- látur og prúður, en þó glaðvær. Eftir þetta var Halldór heimilis- vinur hjá okkur og mikill auðfúsugestur, þegar hann kom. sem hglzt var, ef hann átti leið framhjá. Stundin var ekki alltaf löng, en ánægjulegt fannst mér að fá mér kaffisopa með honum í eldhúsinu minu á Ljótsstöðum. Skröfuðum við þá margt saman og ég fann betur og betur, hver ágætismaður hann var. Við hjónin og dóttir okkar sendum systkinum hans, sem öll eru búsett á Vopnafirði og heimilisfólkinu á Hauksstöðum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Halldórs Péturssonar. Ragnhildur Gunnarsdóttir. hinnar beztu umönnunar á þvi góða heimili, þar sem allir keppt- ust um að létta henni lífið. Ég, sem þessi fáu orð rita, kom oft að Þúfu mér til ánægju og man Hildi létta á fæti og fljóta í hreyfingum, en svo færðist aldurinn yfir og fæturnir biluðu, hún sat I stóln- um sínum blíð og brosandi, fagnaði mér innilega, þegar ég kom í eldhúsdyrnar og þakkaði komuna, þegar kvatt var, slfkra heimsókna er gott að minnast. Eg kom líka að Þúfu eftir að Hildur fór og naut þar alls góðs eftir sem áður, en ósköp fannst mér stóllinn hennar auður og skarðið eftir hana stórt, en stærst var það þó hjá manni hennar og syni, sem nú voru orðnir einir eftir. Ég vissi lika, að þeir fundu vel tómleikann þó að þeir kvört- uðu ekki, enda hvorugum þeirra líkt að bera tilfinningar sinar á torg. Hildur var létt og glöð i lund og heimilisrækin svo af bar, ekki var hún heimtufrek eða kröfuhörð um efni fram, enda alin upp á þeim tima, sem ekki þýddi að heimta alla hluti, en vel kunni hún að meta siðari árin öll þau þægindi, sem nútiminn krefst. Þau Hildur og Guðjón eignuð- ust 4 börn og eru 3 á lifi, döttur sína Guðrúnu misstu þau á bezta aldri og varð þeim sár harmur, sem þau báru með æðruleysi. Ekki var Hildur fyrir að láta mikið bera á sér, þó var hún mannblendin og gestrisin. Vinsæl var hún i sínu nágrenni og bezta húsmóðir þeim, sem hjá henni dvöldu. Fleira mætti gott um Hildi segja, en þar sem þetta átti aðeins að vera kveðja frá mér og fjöl- skyldu minni fyrir löng og góð kynni, votta ég manni hennar og öllum aðstandendum mína inni- legustu samúð. H. Þ. Pompidou kominn á ról á ný Paris 11. febrúar — AP GEORGE Pompidou, Frakklands- forseti mun í dag hefja sín venju- legu störf eftir inflúensuveikindi sín, að því er heimildir innan forsetahallarinnar hermdu í dag. Segja heimildirnar, að Pompidou hafi í veikindum sfnum haldið áfram athugunum á plöggum og málum forsetaembættisins eins og ekkert hafi í skorizt, svo og verið í stöðugu símasambandi við helztu embættismenn sína. En hann hefur tekið fyrir persónu- lega fundi og hann felldi niður ráðgerðar viðræður við Albert Bernhard, forseta Gabon, sem er i heimsókn f Frakklandi, svo og hinn vikulega fund sinn með Pierre Messmer, forsætisráð- herra. Heimildirnar segja, að eigin- kona Pompidous, Claude, hafi einnig veikzt af inflúensu. Veikindi forsetans hafa valdið miklum bollaleggingum i Frakk- landi um að forsetinn verði að segja af sér vegna heilsuleysis. Einhildur Sveinsdótt- ir Þúfu — Kveðja Kiwanis-klúbburinn Hekla 10 ára: Gaf líknar- og björg- unarfélögum gjafir KIWANIS-KLUBBURINN Hekla varð 10 ára hinn 14. janúar síðast- liðinn, en hann er elzti klúbbur Kiwanis-hreyfingarinnar á Is- landi og er hún þvf jafngömul honum. I tilefni afmælisins afhenti klúbburinn hinn 1. febrú- ar síðastliðinn fimm góðgerðar- félögum gjafir. Félögin, sem gjafir hlutu, eru Flugbjörgunar- sveitin, Heyrnleysingjaskólinn í Reykjavík, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Krabbameinsfélag Islands og Iivalarheimili aldraðra sjómanna. Um kvöldið 1. febrúar var sfðan afmælishóf Heklu, en þar var Einar A. Jónsson, aðai- féhirðir gerður að heiðursfélaga, en hann var aðalfrumkvöðull að stofnun klúbbsins. Fyrir 10 árum, þegar Einar A. Jónsson stóð fyrir fegurðarsam- keppni Islands, kynntist hann Kiwanis-hreyfingunni i Talassee í Flórída hjá Hilmari Skagfield. Þegar heim kom, var fyrsti undir- búningsfundur að stofnun klúbbs ins Heklu, og sátu hann 30 menn og skrifuðu 25 þeirra undir umsóknarform að stofnun hans. Var Kiwanis-klúbburinn Hekla sjötti klúbbur Kiwanishreyfingar- innar í Evrópu, en nú eru þar starfandi hartnær 200 klúbbar. Núverandi forseti Kiwanis- klúbbsins Heklu er Magnús R. Jónsson. Magnús tjáði Mbl, að starf hreyfingarinnar á íslandi hefði fyrst og fremst beinzt að líknar- og menningarmálum. Hefði klúbburinn veitt aðstoð til margvislegra málefna, bæði til félaga, stofnana og einstaklinga. Auk þess hafa verið keypt og gefin margvísleg lækningatæki, má þar m.a. nefna 3 tæki til Krabbameinsfélags íslands, tæki til Landspitalans, fæðingar- deildarinnar o.fl. Verðmæti þessarar aðstoðar i peningum er um 5,5 milljónir króna. Auk þess hefðu klúbbfélagar unnið marvis- leg störf í þágu þeirra, sem minna mega sín, og eru því miður utan- garðs vegna afskiptaleysis sam- borgaranna. Fjórir Heklu-félagar, bæði fyrr- verandi og núverandi, hafa átt sæti í Evrópustjórn Kiwanis- hreyfingarinnar og var Páll H. Pálsson m.a. forseti Evrópu- stjómarinnar um skeið. Þær gjafir, sem gefnar voru að þessu sinni, eru þessar: Flugbjörgunarsveitin fékk 20 þúsund króna framlag til yfir- byggingar á bifreiðum þeim, sem sveitinni voru nýlega gefnar. Heyrnleysingjaskólanum i Reykjavík voru afhentir 20 les- lampar. Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra verða afhent kælingar- tæki. Krabbameinsfélag Islands fær afhenta smásjá og Dvalarheimili aldraðra sjómanna fær tæki til hjartarannsókna. Þá má geta þess, að eiginkonur klúbbfélaga hafa stofnað eigið félag, sem þær nefna Sinawik og er sama nafn og orðið Kiwanis.— aðeins lesið aftur á bak. Félags- skapur þessi er fslenzkt fyrir- brigði og starfar á sama grund- velli og Kiwanis-hreyfingin. Er mikil gróska í Sinavik-félags- skapnum og áhugi kvennanna mi kill. Helztu fjáröflunarleiðir Ki- wanis-hreyfingarinnar em herra- kvöld, sem klúbbarnir halda, en Hekla hefur einnig gefið út jóla- merki til ágóða fyrir starfsemi sína og einnig hafa félagarnir selt páskaegg og flugelda. Fyrir næstu páska mun Hekla koma með á markaðinn sérstaka kaninu, sem þeir kalla Kiwanis- kanínuna. IVIynd þessi er tekin, þegar Kiwanis-klúbburinn Hekla afhenti gjafirnar, sem klúbbur- inn gaf í tiiefni 10 ára afmælis síns. A myndinni eru frá vinstri klúbbfélagar og gefendur: Leifur Ársæisson, Amór Hjálmarsson, Jón Grétar Guðmundsson, Rúnar Björgvinsson fulltrúi Heyrnleys- ingjaskólans, Eggert G. Þorsteins- son, fulltrúi Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra, Páll Magnússon, Jón K. Ólafsson, Egill Hjálmars- son, Ólafur Bjarnason, formaður Krabbameinsfélags tslands, Ketill Jónasson, Jónfna Guð- mundsdóttir, forstöðukona æf- ingastöðvar Lamaðra og fatlaðra, Arthur Stefánsson, Magnús R. Jónsson. forseti Heklu, Magnús Jensson, Sigurður M. Þorsteins- son, formaður Flugbjörunar- sveitarinnar, Vilhjálmur Sig- tryggsson, Magnús Guðmundsson, Pétur Sigurðsson, formaður stjórnar DAS, Karl Þorsteinsson, Axel H. Bender, Rafn Sigurðsson, forstjóri DAS, og Axel Smith.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.