Morgunblaðið - 22.02.1974, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR 1974
Framboðslisti
í Kópavogi
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnar-
kosningar í Kópavogi var ákveðinn á fundi fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi sl. þriðjudag, að undan-
genginni skoðanakönnun, sein fram fór hinn 2. febiúai
sl. Framboðslistinn er þannig skipaður:
1. Sigurður Helgason 12. Erlingur Hansson
hæstaréttarlögmaður fulltrúi
2. Richard Björgvinsson 13. Guðfinna Helgadóttir
viðskiptafræðingur nemi
3. Stefnir Helgason 14. Kristinn Skæringsson
framkvæmdastjóri skógarvörður
4. Axel Jónsson 15. Torfi Tómasson
bæjarfullti'úi f ram kvæmda st jóri
5. Bragi Michaelsson 16. ÖlafurE. Einarsson
húsgagnasmiður f ramkvæ mda st jóri
6. Helgi Hallvarðsson 17. Björg Pétursdóttir
skipherra húsfreyja
7. Árni Örnólfsson 18. Steinar Steinsson
rafvirki tæknifræðingur
8. Ingimundur Ingimundartson 19. Sigurður Steinsson
bifreiðarstjóri f ram kvæ mdast jóri
9. Kristófer Þorleifsson 20. Ölafur St. Sigurðsson
cand. med. héraðsdómari
10. Asthildur Pétursdóttir 21. Jósafat J. Líndal
húsfreyja sparisjóðsstjóri
11. GuðmundurGislason 22. Kjartan J. Jóhannsson
bókbindari héraðslæknir
Ognaði konu með
gamalli kindabyssu
S j álfs tæðisflokksins
Axel Jónsson
bæjarfulltrúi
Bragi Michaelsson
húsgagnasmiður.
Helgi Hallvarðsson
skipherra.
Mótmæla breytingu
á orkulögum
Mörg mál afgreidd á búnaðarþingi
LIÐLEGA þrítugur maður frá
Eyrarbakka hefur verið úrskurð-
aður í gæzluvarðhald í allt að 60
daga og til að gangast undir geð-
heilbrigðisrannsókn, en í fyrri
nótt ógnaði hann 28 ára gamalli
kunningjakonu sinni í Reykjavík
með kindabyssu og skaut einu
skoti f vegg til hliðar við hana.
Einnig veitti hann henni áverka á
hófði með byssuskeftinu, er til
átaka kom á mi 11i þeirra.
Lögreglan í Reykjavík var
kvödd að húsi í Vesturbænum
laust eftir kl. 02 í fyrrinótt'. Hafði
íbúi hússins heyrt skarkala í
kjallaraíbúðinni og kvatt til lög-
regluna. Lögreglan varð að brjóta
sér leið inn í íbúðina og þar fann
hún fyrir manninn, konuna og sjö
ára gamla dóttur hennar. Var
Skírteini til
kandídata HI
AFHENDING prófskírteina til
kandidata fer fram við athöfn í
hátíðasal Háskólans laugardaginn
23. febrúar 1974 kl. 14. Blandaður
kór háskólastúdenta syngur.
Rektor Guðlaugur Þorvaldsson
ávarpar kandídata, en deildarfor-
setar afhenda prófskírteini.
maðurinn handtekinn og færður I
fangageymslu, en konan var flutt
í slysadeild, þar sem gert var að
höfuðsári hennar, en skurðurinn
var það mikill, að sauma þurfti
nokkur spor. Stúlkan var ómeidd.
Við yfirheyrslur mannsins hef-
ur komið I ljós, að hann hafði átt
vingott við konuna um nokkurt
skeið, en hún hafði látið í veðri
vaka, að hún vildi slíta þessum
vinskap. Kom maðurinn frá
Eyrarbakka síðdegis á miðviku-
dag og hafði með sér gamla kinda-
byssu og skot í hana, sem hann
hafði tekið traustataki á Eyrar-
bakka. Fór hann fyrst í vínútsölu
og keypti sér áfengi og síðan til
konunnar og kom þangað um kl.
17. Er vinið var þrotið, hitnaði i
kolunum milii þeirra og kvaðst
hann ætla að skjóta sig, ef hún
breytti ekki ákvörðun sinni, og
jafnvel hana líka. Hlóð hann byss-
una siðan og skaut einu skoti í
vegginn fyrir aftan hana. Rétti
hann henni síðan byssuna, en hún
brást hin versta við og kom til
átaka milli þeirra, m.a. grýttu þau
blómapottum, og loks barði hann
hana í höfuðið með byssuskeft-
inu. Rétt á eftir kom svo lögregl-
an á staðinn.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var maðurinn ekki
mikið ölvaður, er hann var hand-
tekinn.
BÚNAÐARÞING stendur nú yfir
í Reykjavík og hafa mörg mál
verið rædd á þinginu og margar
tillögur I framfaramálum land-
búnaðarins hafa verið samþykkt-
ar. llér fer á eftir yfirlit yfir
Siglufjörður
FUIXTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfé-
laganna á Siglufirði kemur sam-
an til fundar n.k. sunnudag 24.
febr. kl. 4 I Sjálfstæðishúsinu.
Rætt verður um niðurstöður
prófkjörs og bæjarstjórnarkosn-
ingarnar. Aðal- og vara-fulltrúar
eru hvattir til að mæta.
Eyjólfur Konráð Jónsson rit-
stjóri situr fundinn.
helztu tillögur, sem samþykktar
hafa verið:
BÆNDUR UNDIRBÚI
umhverfisíviAl
Búnaðarþing ályktar að mæla
með, að tillaga úl þingsályktunar
um umhverfismál sem nú liggur
fyrir neðri deild Alþingis (127.
mál) verði samþykkt, enda telur
þingið sjálfsagt, að bændasamtök-
in fái aðild að undirbúningi laga-
setningar um umhverfismál.
AUKIN LEIÐBEINING í
FISKELDI (KI FISKRÆKT
Búnaðarþing beinir þeirri
eindregnu áskorun til ríkisstjórn-
ar og Alþingis, að fjárveiúngar úl
Veiðimálastofnunarinnar verði
auknar til mikilla muna þegar á
næstu fjárlögum, svo að hún geti
rækt af fullum krafti leiðbein-
ingarþjónustu sína við bændur og
aðra eigendur veiðiréttar í land-
inu.
KONUR KANNI VERÐ-
LAG APRJONLESI
Búnaðarþing felur stjórn
Búnaðarfélags íslands að bjóða
K venfélagasambandi íslands
samstarf um afskipti af verðlagi á
heimaunnu prjónlesi, s.s. lopa-
peysum o.fl. Kannað verði verð-
lag og verðmyndun á þessum vör-
um i smásölu og útflutningi, með
það fyrir augum, að ofangreindir
aðilar gefi sameiginlega út leið-
beiningar um lágmarksverð
þeirra til framleiðenda, sem
tryggi sanngjörn vinnulaun við
þennan mikilvæga heimilisiðnað.
JÖFNUN SKURÐRUÐNINGA
Búnaðarþing beinir þvi til
búnaðarsambandanna, að þau
hvert á sinu svæði hvetji bændur
til þess að jafna úr skurðruðning-
um og græða þá upp, svo fljótt
sem auðið er, þar sem ófrágengn-
ir skurðruðningar eru viða lýti i
landslaginu.
Jafnframt vill þíngið minna á,
að í sumum flatlendissveitum
hafa bændur talið, að búpeningur
hefði nokkurt skjól af uppgrefti
úr skurðum og því gæti komið til
mála, að þar sem svo hagar til
mætti lagfæra og græða upp
skurðruðningana til skjóls fyrir
bei tarpening.
KJÖTRANNSÓKNASTÖÐ
VERÐI KÖMIÐ UPP
Búnaðarþing telur það miklu
varða fyrir íslenzkan landbúnað,
að kjötframleiðslan svari sem
bezt margvíslegum kröfum neyt-
enda, innlendra sem erlendra. 1
því sambandi er minnt á mikið
átak, sem gert hefur verið til þess
að kynbæta íslenzk búfjárkyn
m.a. með tilliti til bættra kjöt-
eiginleika, og innflutning nýrra
búfjárkynja. Til þess að styðja
Framhald á bls. 18
Forsíða The UNESCO Courier.
Febrúarhefti timarits Menn-
ingarmálastofnunar Samein-
uðu þjóðanna, Unesco Courier,
sem gefið er út á 15 tungumái-
um, er komið út og er nærri
eingöngu helgað Islandi I til-
efni af þjóðhátíðarárinu 1974,
að því er segir I fréttatilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Ritið er gefið út á ensku,
frönsku, spönsku, rússnesku,
þýzku, arabísku, japönsku,
ítölsku, Hindúamáli, tamil,
hebresku, persnesku, hol-
lenzku, portúgölsku og tyrk-
nesku. I fréttatilkynningu
ráðuneytisins segir:
Útgáfa þessa sérstaka ís-
landsheftis er án efa einhver
útbreiddasta kynning á Islandi,
sem um getur, enda kemur rit
þetta út á 15 tungumálum og er
heildarupplag þess hátt á
fjórðu milljón eintaka.
Efni ritsins er í meginatrið-
um sem hér segir:
Dr. Jónas Kristjánsson próf-
essor og forstöðumaður Stofn-
unar Árna Magnússonar ritar 2
greinar í heftið. Fjallar önnur
þeirra um landnám Íslands, en
hin um islenzkar fornbók-
menntir og handritin gömlu.
Dr. Sigurður Þórarinsson próf-
essor ritar grein um eldgos og
eldfjöll áíslandi og nefnist hún
á ensku „Living on a Volcano“.
Sveinn S. Einarsson verkfræð-
ingur skrifar um hagnýtingu
jarðhita. Þá á Hjálmar R. Bárð-
arson siglingamálastjóri 2
greinar i ritinu. Fjallar önnur
um Geysi, „forföður" allra gos-
hvera, og hin um jökla á is-
landi. Loks ritar dr. Unnsteinn
Stefánsson haffræðingur grein,
er ber heitið: „islendingar og
hafið“. Með öllum þessum
greinum er fjöldi ljósmynda,
sem eru ýmist teknar af höf-
undunum sjálfum eða öðrum.
Inni í miðju heftinu eru svo
nokkrar litmyndir, aðallega frá
eldgosinu í Vestmannaeyjum.
Auk höfunda greinanna, sem
áður er getið, vann sendiráð
islands í París og íslenzka
Unesco-nefndin að undirbún-
ingi útgáfunnar, ásamt utan-
ríkisráðuneytinu, en starfs-
menn Uneseo Courier sáu um
myndaval og uppsetningu rits-
ins.