Morgunblaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1974 SUNNUD4GUR 24. febrúar 1974 17.00 Endurtekið efni Staldrað við framfarir Fræðslumynd um ljósmynd- un úr lofti og kortlagningu óbyggðra svæða með nýtt landnám fyrir augum. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. Áður á dagskrá 23. janúar síðastl. 17.50 Höllin í Oplontis Bresk fræðslumynd um upp- gröft fornleifa skammt frá Pompei á Suður-ítalíu. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 18.00 Stundin okkar Öskudagsskemmtun. Meðal efnis eru söngvar og dansar um bolludag, sprengi- dag og öskudag. Leikið er sexhent á píanó, og töframaður fer á stjá með stafinn sinn. Soffía frænka og ræningjarnir í Kardi- Þetta litla danspar keinur fram í „Stundinni okkar“ á sunnudag- inn. mommubæ láta til sin heyra, og lítil börn sýna dansa. Einnig er í þættinum teikni- mynd um Jóhann, og loks verður sýnt þýskt ævintýri, sem nefnist Brimaborgara- söngvararnir. Umsjónarmenn Sigriður Márgrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefánsson. 18.55 Gítarskólinn Gitarkennsla fyrir byrjend- ur. 3. þáttur endurtekinn. Kennari Eyþór Þorláksson. 19.20 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Það eru komnir gestir Ömar Valdimarsson tekur á móti Guðrúnu Ásmundsdótt- ur, Herði Torfasyni og Kristínu Ólafsdóttur I sjón- varpssal. 21.05 Torgið Breskt sjónvarpsleikrit eftir Jonathan Raban. Leikstjóri J. Cellan Jones. Aðalhlutverk Edward Fox, Elaine Taylor, Hermione Baddeley og Liam Redmond. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. Aðalpersónurnar eru ung hjón, sem taka ibúð á leigu af öðrum hjónum, eldri og af annari þjóðfélagsstétt, og lýs- ir leikurinn samskiptum þeirra. í HVAÐ EB AÐ SJA? A SUNNUDAGSKVÖLD kl. 20.25 verður Ömar Valdimars- son á ferðinni ásamt gestum i þættinum ÞAÐ ERU KOMNIR GESTIR. Svo ví 11 til, að allir gestir þáttarins að þessu sinni eru leikarar, en þó kvað Ömar þau svo til ekkert ræða um leiklist eða leíkhús. Gestirnir eru Kristín Ölafsdóttir, sem auk „leikaraskapar" er kunn þjóð- lagasöngkona og nú síðast út- varpsþulur líka, Guðrún Ás- mundsdóttir, ein fremsta leik- kona okkar um árabíl, sem um þessar mundir leikur Nóru í „Brúðuheimi li“ Ibsens, og Hörður Torfason leikari, söngvari og lagasmiður. Hjartaknúsarinn Henry Darr- ow og Maria Gomt'z í hlutverk- um sínum i „Tíðindalaust i Tueson" úr flokknuin „Að Heiðargarði" á föstudag. „Við ræðum einna mest um trúmál," sagði Ömar, þegar við töluðum við hann, „um sann- færingu manna í ýmsum efn- um, en Guðrún er t.d. mikil trúmanneskja." Þá ber söng eitthvað á góma, og öll taka þau lagið I þættinum. Kristín syng- ur ásamt nokkrum undirleikur- um, — félögum sínum, sem fram komu í einni af Síðdegis- stundunum í Iðnó í vetur, Guð- rún syngur söng gleðikonunnar úr „Þjófar, lík og falar konur" og Hörður flytur lag og texta eftir sjálfan sig, sem að líkind- um kemur út á nýrri plötu með vorinu. A SUNNUDAGSKVÖLD kl. 21.50 sýnir sjónvarpið tvær myndir um eitt af geigvænleg- ustu vandamálum nútímans, — eiturlyf og eiturlyfjaneyzlu. Þessar fræðslumyndir, sem gerðar eru á vegum Sameinuðu þjóðanna, eru í flokki mynda um þetta mál. en nefnist The Narcotics File“ eða EITUR- LYFJASKÝRSLAN. Fyrr í vetur var sýnd fyrsta myndin í þessum flokki, og hét hún „The Source" eða „Upp- tökin". Þar var fjallað um rækt- un þeirra plantna, sem eiturlyf- in eru unnin úr, og þá, sem stunda ræktunina, en þeir eru sjálfir margir hverjir forfallnir eiturlyfjaneytendur. Myndirn- ar, sem sýndar verða á sunnu- dag, heita „Tlie Connections" eða „Samböndin" og „The Victims" eða „Fórnarlömbin". Eins og sjá má af nöfnum myndanna, leiða viðfangsefni þeirra hvert af öðru. Sú fyrri fjallar um smygl, dreifingu og sölu eiturlyfja f Asíu, Evrópu og Bandaríkjunum og baráttu ýmissa aðila gegn henni, t.d. með þvi að reyna að fá bændur til að rækta eitthvað annað, en viðkomandi jurtir. Hin siðari tekur hins vegar fyrir lif eitur- lyfjaneytenda, fyrirbuggjandi ráðstafanir og tilraunir til að lækna þá, sem þegar eru sokkn- ir í fenið. En það reynist erfitt eins og menn vita. A MIÐVIKUDAGSKVÖLI) verða kvikmyndaunnendur því miður af miðvikudagsmynd- inni. Þess í stað fá þeir, sem eru með varnarmálin á heilanum, sitthvað fyrir sinn snúð, þvi að þetta ,mál málanna" í dag, „mál, sem hefur algeran for- gang", og „þjóðþrifamál" verð- ur rætt i einhvers konar mara- þonumræðum á miðvikudags- kvöldið. Þessi varnarmálaþáttur mun standa i hálfan annan tíma og er ætlunin, að málíð verði reif- að frá sem flestum sjónarmið- um og fjöldi þátttakenda því mikill. Þegarþetta erskrifaðer þó ekki búið að ákveða hverjir þátttakendurnir verða, en stjórnandi umræðnanna verður Magnús Bjarnfreðsson. Er ekki að efa, að hann verður að hafa sig allan við til að hafa hemil á mönnum í þessu hitamáli, en þátturinn verður sendur út í beinni útsendingu og því aldrei að vita hvað kemur út úr öllu saman. Er skemmst að minnast líf- legs karps í útvarpinu á sunnu- dagskvöldið, þar sem Hjörtur Pálsson stjórnaði beinni út- sendingu á deilum mætra manna um þetta mál. Áður höfðu sömu menn fjallað um sina afstöðu til varnarmálanna í stuttum erindum i síðustu viku. Þannig verður ekki annað sagt en ríkisútvarpið veiti mál- inu ríflegan skammt af dag- skrártíma sinum. Aðeins verð- ur að vona, að þetta verði ekki gert enn eitt eilifðarmálið sem menn verða svo leiðir á, að hvaða lausn sem er verði viðun- andi, — bara til að losna við þrasið. A LAUGARDAGSKVÖLD kl. 20.50 verður þriðji þátturinn af hinni endurnærðu UGLA SAT A KVISTI. í þetta sinn taka þeir félagar Jónas R. Jónsson og Egill Eðvarðsson fyrir Bítla- timabilið svonefnda með öllum þess kostum og kynjum — tíma bil, sem kannski hefur haft hvað byltingarkenndustu og mest mótandi áhrif á lífsstíl manna í dag. „Við fórum í filmusafnið hjá okkur," sagði Jónas f stuttu spjalli „til þess að athuga, hvað til væri af efni frá þessum tíma, því að okkur fannst ekki vit í að fá þessar grúppur saman aftur. Þannig fær fólk að sjá þær eins og þær voru þá, en ekki eins og þær yrðu í dag.“ Meðal þeirra hljómsveita, sem við fáum að sjá aftur á laugardaginn, verða Hljómar, Flowers, Dúmbó, Öðmenn, Náttúra, og Ævintýri. Af er- lendum hljómsveituin mæta Bítlarnir (t.d. úr„AHard Day’s Night" og ,,Help“), Rolling Stones, upptaka frá því er þeir voru nýbyrjaðir) Gerry and the Paeemakers, Beach Boys og fleiri. Jónas sagði, að ekki yrði skotið inn i viðtölum eins og verið hefði í tveimur fyrstu þáttunuin, heldur væru þessi tónlistaratriði tengd sam'an og sagt frá helztu einkennum tímabilsins. Kvað Jónas þá félaga hafa viljað forðast að líkja um of eftir uppbyggíngu rokkþáttarins. „Við ætlum að- eins að reyna að gefa fólki tæki- færi til að rifja þetta upp sjálft.“ Jónas sagði ennfremur, að ,,Uglan“ yrði áfram með svip- uðu formi út vetrardagskrána, þótt ekki væri unnt að segja, hvaða tímabil yrðu tekín fyrir. Væru þar ýmsar hugmyndir á lofti, — sumar væri raunar erf- itt að framkvæma, — en senni- lega yrði að lokum reynt að gefa yfirlit yfir stöðuna í dæg- urtónlistarmálunum, eins og hún er í dag. Þóra Friðriksdóttir og Lilja Þórisdóttir f „Postulln" eftir Odd Björnsson,sem verður endursýnt á inánudaginn. 21.55 Heimsböl Samböndin og Fórnarlömbin Tvær samstæðar fræðslu- myndir frá Sameinuðu þjóð- unum um eiturlyf og vand- ann, sem af þeim stafar. I fyrri mjndinni er fjallað um seljendur eiturlyfja og dreifi- kerfi þeirra, en í þeirri síðari er hugað að fórnarlömbum eiturlyfjasalanna. Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörnsson. 22.45 Frá Reykjavíkurskák- mótinu Ingi R. Jóhannsson segir frá mótinu og skýrir skák Magnúsar Sólmundssonar og Tringovs. 23.15 Aðkvöldidags Séra Þórir Stephensen flytur hugvekju. 23.25 Dagskrárlok AIMUD4GUR 25. febrúar 1974 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Dýratemjarinn Stutt, sovésk teiknimynd í gamansömum tón. 20.40 Postulfn Sjónvarps- og útvarpsdag- skráin er á bls. 25. Sjónvarpsleikrit eftir Odd Björnsson. Leikstjóri Gísli Alfreðsson. Leikendur Þóra Friðriksdótt- ir, Lilja Þórisdóttir, Erlingur Gislason, Nína Sveinsdóttir, Sigurður Skúlason, Gunnar Eyjólfsson, Jens Einarsson, Rúrik Haraldsson og Öskar Gislason. Sviðsmynd Snorri Sveinn Friðriksson. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. Áður á dagskrá 30. maí 1971. 21.55 Baráttan við krabba- meinið Bandarísk fræðslumynd um orsakir krabbameins og nýjustu aðferðir við barátt- una gegn því. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 23.00 Dagskrárlok ÞRIÐJUDKGUR 26. febrúar 1974 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.30 Skák Stuttur, bandarískur skák- þáttur. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 20.40 Valdatafl Bresk framhaldsmynd. 3. þáttur. Akvarðanir Efni 2. þáttar: Caswell Bligh hefur verið valinn forseti útflutnings- ráðsins, og í tilefni þess býð- ur hann nokkrum háttsettum kunningjum sinum til veislu. Það vekur athygli, að Wilder er ekki í þeim hópi. Susan Weldon er aftur á móti í veislunni og þar kemst hún í kynni við aðlaðandi fulltrúa úr fjármálaráðuneytinu. Þau ákveða að hittast aftur, og samband ungfrúarinnar við Wilder fer stöðugt kólnandi. Kenneth Bligh léggur fyrir Wilder áætlun um stórfelld- ar framkvæmdir í nýfrjálsu Afríkuríki, en þegar hann hyggst afla sér frekari upp- lýsinga, kemur í ljós, að sendiherra landsins hefur haldið til síns heima, og nauðsynlegt reynist að fresta frekari aðgerðum. 21.30 Heimshorn Fréttaskýringaþ áttur um er- lend málefni. Umsjónarmaður Sonja Diego. I hverra þágu? Sænsk fræðslumynd um frið- samlega nýtingu kjarnorku og tilraunir manna til að leysa vanda þann, sem skap-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.