Morgunblaðið - 22.02.1974, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR 1974
25
félk í
fréttum
00 9 ‘ *i a**tj <.
□ PABBINN
HRESS,
EN SYNIRNIR
SlÐUR
Clifford Irving, bandaríski
„skáldmæringurinn", sem var
dæmdur í tveggja ára fangelsi
fyrir að falsa ævisögu um millj-
ónamæringinn og sérvitringinn
Howard Hughes og svíkja út úr
útgáfufyrirtæki fé út á söguna,
var látinn laus á dögunum.
Fangelsisdómurinn hafði
reyndar ekki verið afplánaður
að fullu, en vegna góðrar hegð-
unar (lengstum) var Clifford
sleppt eftir 16 mánuði, en
brjóti hann af sér á ný innan
ákveðins tíma, fer hann beint í
fangelsið aftur til að ljúka af-
plánun dómsins.
Kona hans, Edith, situr enn
inni I fangelsi I Sviss fyrir sinn
þátt I fölsuninni og fjársvikun-
um. Synir þeirra hjóna, Barna-
by, fjögurra ára, og Nedsky, sex
ára, voru í umsjá fjölskylduvin-
ar á meðan foreldrar þeirra af-
plánuðu refsingu sína, en er
pabbinn hafði verið látinn laus
í Bandaríkjunum, voru þeir
sendir með flugvél til að hitta
hann og þessi mynd var tekin
af þeim feðgunum á Kennedy-
flugvelli í New York. Clifford
svaraði þar nokkrum spurning-
um blaðamanna og var í ljóm-
andi góðu skapi, en synirnir
voru ekki eins hýrir á brá.
E.t.v. hálfskömmuðust þeir sín
fyrir að eiga svona ,,agalegan“
pabba, eða kannski voru þeir
bara svona feimnir.
□ NYJASTA
MEGRUNAR-
AÐFERÐIN
Þetta er frú John Horn,
húsmóðir í borginni Gibralt-
ar i Michigan-ríki í Banda-
ríkjunum. Hún segist vera
fyrsta manneskjan í Banda-
rikjunum, sem hafi látið
binda kjálka sína saman
með vir í þvi skyni að léttast.
Hún hefur létzt um rúm 15
kíló á sex vikum. Hún var
tæp 104 kiló að þyngd, er
hún fékk tannlækni til að
koma fyrir virum á tann-
görðum sínum og binda þá
saman, og hún vonast til að
halda þetta út i 90 daga og
léttast á þeim tíma um 3814
kíló. Ef henni tekst það ekki,
ætlar hún að halda áfram í
þessari sérstæðu megrun
þar til markinu, liðlega 65
kílóa þyngd, er náð, svo
fremi að heilsa hennar leyfi
lengingu megrunarskeiðs-
ins. Frúin er 23 ára að aldri.
□ HVAÐERí
TÖSKUNNI?
Frú Charmain Brent,
eiginkona Ronald Biggs,
Iestarræningjans fræga,
sést hér sýna öryggis-
verði á Kennedy-flugvelli
í NoW York ofan í veskið
sitt, áður en hún fór út í
flugvélina, sem flutti
hana til Rio de Janeiro,
en þar situr maður henn-
ar í fangelsi og bíður á-
kvörðunar um það, hvort
brasilísk yfirvöld ætli að
framselja hann brezkum
yfirvöldum eða ekki.
W
Utvarp Reykjavík #
FÖSTUDAGUR
22. febrúar
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kL 7.20. Fréttir kL
7.30,8.15<og forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kL 7.55
Morgunstund barnanna kL 8.45: Vil-
borg Dagbjartsdóttir heldur áfram sög-
unni „Börn eru bezta fólk" eftir Stefán
Jónsson (16).
Morgunleikfimi kL 9.20. Tilkynningar
kL 9.30.
Þingfréttir kl 9.45. Létt lög á milli
at riða
Spjallað við bændur kL 10.05
Morgunpopp kL 10.25: Hljómsveitin
Santana syngur og leikur.
Tónlist eftir Mozart kl 11.00: Elaine
Shaffer, Marilyn Costello og hljóm-
sveitin Philharmonia leika Konsert í
C-dúr (K 229) fyrir flautu, hörpu og
hljómsveit / Fílharmóniusveitin í
Berlín leikur Sinfóniu nr. 38 í D-dúr
(K 504) „Prag“-sinfóniuna.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Sfðdegissagan: „Platero og ég“
eftir Juan Ramón Jimenéz
Olga Guðrún Ámadóttir og Erlingur
Gislason lesa (3).
15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir
Jean Sibelius
Hljómsveitin Finlandia leikur Andante
Festivo; Eric Fougstedt stj. Birgit
Nilson syngur nokkurlögvið undirleik
Óperuhljómsveitarinnar í Vín; Bertil
Bokstedt stj. Aaron Rosand og sin-
fóníuhljómsveit undir stjórn Tibors
A skjánum
Föstudagur
22. febrúar 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og aug lýsingar
20.30 Að Heiðargarði
Bandariskur kúrekamyndaflokkur.
Vandanum vaxinn
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.25 Landshom
Fréttaskýringaþáttur um innlend mál-
efni.
Umsjónarmaður Svala Thorlacius.
22.05 Everiste Galois
Leikin, frönsk mynd um ævilok
franska stærðf raeðingsins Galois
(1811—1832), sem talinn hefur verið
ejnn af snjöllustu stærðfræðingum sög-
unnar og gerði meðal annars merkar
uppgötvanir á sviði algebru og mengja-
fræði. Þýðandi Dóra Hafsteinsdót tir.
22.35 Dagskrárlok
Laugardagur
23. febrúar 1974
17.00 Iþróttir
Meðal efnis í þættinum er mynd frá
heimsmeistaramótinu á skiðum og
mynd úr ensku knattspyrnunni.
Umsjónarmaður Ömar Ragnarsson.
19.15 Þingvikan
Þáttur um störf Alþingis.
Björn Olafsson
leikur með Sinfóníu-
hljómsveitinni
í kvöld ki. 20 verður útvarpað
frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands i Háskólabíói í
gærkvöldi, en einleikari með
hljömsveitinni er að þessu
sinni Björn Ölafsson. Óþarfi er
að kynna Björn Ólafsson is-
lenzkum tónlistarunnendum
með mörgum orðum, svo veiga-
mikill, sem þáttur hans hefur
verið i tónlistarlífinu um ára-
tuga skeið. Björn var konsert-
meistari hljómsveitarinnar allt
Szökes leika „Sex glettur" fyrir fiðlu
og hljómsveit op. 87 b og op. 89.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphornið
17.10 Ut varpssaga barnanna: „Jói f
ævintýraleit" eftir Kristján Jónsson
Höfundur les (4).
17.30 Framburðarkennsla í dönsku
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Fréttaspegill
19.40 Þingsjá
Ævar Kjartansson sér um þáttinn.
20.00 Tónleikar Sinfónfuhljómsveitar Is-
lands
í Háskólabiói kvöldið áður.
Hl jómsveitarstjóri: Karsten Andersen
Einleikari: Björn ólafsson
a. Fiðlukonsert í Ddúr op. 61 eftir
Ludwigvan Beethoven.
b. Sinfónfa i d-moll eftir César Franck.
-Jón Múli Arnason k>nnir tónleikana -
21.30 Utvarpssagan: „Trfstan og Isól“
eftir Joseph Bédier
Einar ól. Sveinsson prófessor ís-
lenzkaði. Kristín Anna Þórarinsdóttir
leikkona les (8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Lestur Passfusálma (11).
22.25 Ummyndanir
Sex goðsögur í búningi rómverska
skáldsins Övids með tónlist eftir Benja-
min Britten. 1 fyrsta þætti flytur
Kristján Amason inngangserindi og
Erlingur Gíslason les þýðingu hans á
sögunni um Pan og Syrinx. Kristján Þ.
Stephensen leikur á óbó.
23.00 Draumvfsur
Sveinn Árnason og Sveinn Magnússon
kynna lög úr ýmsum áttum.
23.55 Fréttirí stuttu máll Dagskrárlok.
*
Umsjónarmenn Björn Teitsson og
Bjöm Þorsteinsson.
19.45 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Söngelska f jölsky Idan
Bandariskur söngva- og gamanmynda-
flokkur.
Þýðandi Heba Júlíusdóttir.
20.50 Vaka
Dagskrá um bókmenntirog listir.
21.30 Eftirsótt fbúð
(The Apartment)
Bandarísk biómynd frá árinu 1960.
Leikstjóri Billy Wilder.
Aðalhlutverk Jack Lemmon, Shirley
MacLaine og Fred MacMurray.
Þýðandi Öskar Ingimarsson.
Aðalpersóna myndarinnar er pipar-
sveinn nokkur, Baxter að nafni. Hann
vinnur hjá stóru og mannmörgu fyrir-
tækiog kemur sér þar vel við yfirmenn
sína, enda gerir hann þeim gjaman
smágreöa, þegar svo ber -undir. Hjá
fyrirtækinu vinnur einnig bráðfalleg
lyftustúlka, sem Baxterverður ástfang-
inn af. En svo illa vill til, að forstjór-
anum er ágæti stúlkunnar ljóst, ekki
siður en honum.
Þess má geta, að myndin fékk Óskars-
verðlaun sem besta mynd ársins 1960.
23.30 Dagskrárlok
frá því að föst starfsemi hennar
hófst árið 1950, Hann hefur nú
nýlega látið af þessu starfi, en
kennir áfram við Tónlistarskól-
ann eins og hann hefur gert allt
frá árinu 1939.
Tvö verk eru á efnisskránni,
fiðlukonsert i d-dúr op. 61 eftir
Ludwig van Beethoven og sin-
fónía í d-moll eftir César
Franck. Hljómsveitarstjóri er
Karsten Andersen.
LANDSHORN
Aðalefni Landshorns i kvöld
verður um verkföll og samn-
inga, enda eru þessi mál nú efst
á baugi hér innan lands. Munu
þær Svala Thorlacius umsjón-
armaður þáttarins og Vilborg
Harðardóttir fjalla um þau.
Þá hefur Valdimar Jóhannes-
son brugðið sér bæjarleið,
þ.e.a.s. norður í land, þar sem
snjóalög eru nú mikil og mikið
öngþveiti, sem hlotizt hefur af
þeim sökum, m.a. i sambandi
við rafmagn og sima.
Steinnunn Sigurðardóttir
fjallar um Keflavikursjónvarp-
ið og þá meðal annai's fyrirhug-
að litasjónvarp.
Loks talar Elías S. Jónsson
um misferli það, sem loðnu-
löndunarnefnd telur, að átt
hafi sér stað i sambandi við
löndun til frystihúsa og fiski-
mjölsverksmiðja.
I( lk f
fjclmiélum