Morgunblaðið - 22.02.1974, Side 29
MORC.UNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1974
29
ROSE-
ANNA
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MAJ SJÖWALL OG
PER WAHLOO'
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
ÞÝDDI
38
— Bar nokkuð til tiðinda í
þeirri ferð.
— Ég man ekki til þess.
— Eruð þér vissir? Hugsið yður
vel um.
— Jú, það varð einhver vélar-
bilun, en það var áður en ég kom
um borð. Þess vegna seinkaði
bátnum og hefði svo ekki verið þá
hefði ég misst af honum.
— Þegar þér komuð til Gauta-
borgar, hvað gerðuð þér þá.
— Ég fór á hjólinu upp i lítið
þorp, sem heitir Hamburgsund.
Ég hafði pantað mér herbergi
þar.
— Og hvað dvölduð þér lengi
þar?
— í hálfan mánuð.
— Og hvað höfðuð þér fyrir
stafni þessa fjórtán daga?
— Ég var við veiðar, þegar ég
gat. Annars var veður óhagstætt.
Martin dró út skúffu og tók upp
þrjár myndir af Roseönnu
McGraw.
— Kannist þér við þessa konu?
Maðurinn skoðaði myndirnar
vandlega. Engin dráttur hreyfðist
í andliti hans.
— Mér finnst ég kannast við
andlitið, saði hann. — Hver er
hún?
— Hún var um borð i ,,Diönu“.
— Já, ég held ég hafi séð hana
áður, sagði maðurinn kæruleys-
islega.
Hann leit aftur á myndirnar.
— Þó er ég ekki alveg viss.
Hvað heitir hún?
— Roseanna McGraw. Hún er
bandarisk.
— Jú, jú, nú man ég eftir henni.
Það er alveg rétt. Ég talaði þó
nokkrum sínnum við hana. Svona
eftir því sem enskukunnátta mín
leyfði.
— Þér hafið ekki séð eða heyrt
nafn hennar síðan?
— Nei. Það er að segja ekki fyrr
en nú.
Martin horfðist í augu við
manninn. Augnarráð Bengtssons
var kuldalegt, rólegt og spyrjandi.
— Vitið þér ekki, að Roseanna
McGraw var myrt i þessari ferð?
Maðurinn hreyfði sigögn til.
— Nei, sagði hann svo, — nei,
það vissi ég reyndar ekki.
Hann hrukkaði ennið.
— Það er einkennilegt að þér
skulið ekki hafa heyrt um þetta
mál.
Satt að segja trúi ég því ekki.
Martin hafði á tilfinningunni.
að maðurinn hlustaði ekki lengur
á það, sem hann sagði.
— Auðvistað. Nú skil ég hvers
vegna þér hafið sent eftir mér.
— Heyrðuð þér ekki hvað ég
sagði? Mér finnst ótrúlegt að þér
hafið ekkert lesið af öllu því sem
hefur verið skrifað um þetta
morð. Ég trúi ekki að það hafi allt
farið fram hjá yður.
— Hefði ég haft hugboð um
þetta, hefði ég auðvitað gefið mig
fram.
— G efið yður fram?
— Já sem vitni.
— Hvers vegna?
— Til að segja að ég hefði hitt
hana. Hvar var hún drepin? Í
Gautaborg?
— Nei, um borð í bátnum. í
klefanum sínum. Meðan þér vor-
uð um borð.
— Þá er ótrúlegt.
— Hvers vegna?
— Einhver hlyti að hafa heyrt
— eða orðið einhvers var. Það var
búið i öllum klefunum.
— Enn ótrúlegra finnst mér að
þér skulið ekki hafa heyrt á þetta
minnst. Ég á erfitt með að festa
trúnað á það.
— Eg get sagt yður hvernig
stendur á því. Ég les aldrei blöð.
— Það hefur verið sagt frá
morðinu, bæði i sjónvarpi og út-
varpi og sýndar myndir. Mörgum
sinnum. Eigið þér ekki sjónvarp?
—- Jú, en ég horfi aðeins á
myndir um náttúruverndarmál og
svo bíómyndirnar.
Martin sat þögull og horfði á
manninn. Svo sagði hann:
— Hvers vegna lesið þér ekki
blöðin?
— Það er ekkert sérstakt í
þeim, sem ég hef áhuga á. Bara
stjórnmál og svona mál eins og
þér eruð að tala um, morð eða slys
og annað skelfilegt.
— Lesið þér aldrei neitt?
— Jú, ég les ýmis timarit. Um
íþróttir og veiðar og stunum af-
þreyingarblöð.
— Hvernig blöð lesið þér.
— Eg kaupi nú alltaf fþrótta-
blaðið. Svo les ég RekordAIagasin-
et og ýmis erlend blöð um sport-
veiðar.
— Ræðið þér aldrei atburði líð-
andi stundar við starfsfélaga yð-
ar?
— Nei, þeir þekkja mig og vita
að ég hef ekki áhuga á sliku. Þeir
ræða auðvitað um slikt sin á milli,
en ég legg sjaldan við hlustir. Það
er reyndar alveg satt.
MartinBeck sagði ekkert.
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 1 0.30 — 1 1 30, frá mánudegi
til föstudags.
% Hinn þögli
meirihluti
Þorkell Hjaltason skrifar:
,,Eins og ég hef áður drepið
lítillega á í spjalli mínu til Vel-
vakanda, kemur nú æ skýrar í ljós
staðfesting á þvi áliti mínu, að
þögli meirihlutinn fylkir sér nú
eindregið undir kjörorðið „Varið
land“. Skylt er og sjálfsagt að
þakka hinum ágætu forystumönn-
um „Varins lands“ fyrir framsýni
þeirra og dugnað við að hleypa
þessari undirskriftasöf nun af
stokkunum og útvega húsnæði og
starfsfólk, eins og þörf krefur til
þessara hluta.
Fólk er mjög ánægt yfir þvi að
fá þarna ágætt tækifæri til að tjá
vilja sinn um varnir iandsins til
nokkurs mótvægis við komm-
únista, sem eftir sínu austræna
innræti vilja að sjálfsögðu opið og
óvarið land. Þeir telja þetta sjón-
armið sitt hið æðsta boðorð til að
berjast fyrir, og þannig hyggjast
þeir þjóna föðurlandi sínu bezt.
Eins og áður getur gleðst fólk
mjög yfir því að geta stutt gott og
áríðandi málefni með þvi að rita
nafn sitt og heimilisfang á lista
„Varins lands“.
Eins og vænta mátti urðu við-
brögð kommúnista mjög neikvæð
við undirskriftarsöfnuninni og
þurfti reyndar engan að undra,
sem þekkir þeirra þankagang í
þeim málum. En nú hafa kommar
fengið sína ráðningu, því að þjóð-
arviljinn sýndi allt aðra útkomu
en þeir höfðu viljað vera láta.
Mikill meirihluti þjóðarinnar vill
hafa traustar og góðar varnir eins
og verið hefur á undanförnum
árum og gefizt hefur vel í alla
staði.
íslendingar, sem rita nöfn sín á
lista „Varins lands“, krefjast þess
eindregið, að íslenzk stjórnvöld
sýni nú þá einurð og manndóm
gagnvart kommúhistum að óskir
þeirra um varnarleysi landsins
komi ekki til framkvæmda heldur
verði varnir hér á landi enn um
sinn, eða meðan þurfa þykir,
öryggis landsins vegna.
Og það er trúa mín að „huldar
landsins verndar vættir" styðji
þær kröfur okkar um varnir
landsins dyggilega.
Þorkell Hjaltason."
0 Geðstirðir
ökumenn
D. S.skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um umferðarmál í fjölmiðlum
okkar, en þvi miður hefur það
ekki borið árangur sem skyldi.
Þær góðu setningar umferðar-
ráðs og lögreglu, „brosið í umferð
inni, varuð til hægri, sýnið tillits-
semi í umferðinni", hafa horfið
að mestu fyrir þumbarahætti og
kæruleysi þeirra, sem aka bifreið-
um.
Undraverður „árangur" hefur
náðst hjá íslendingum I fjölda
árekstra og stórtjónum á mönnum
og tækjum, enda fer maður varla í
bæinn öðruvísi en að sjá umferð-
arhnúta einhvers staðar og lög-
reglubíla, sjúkrabíla, og oft
kranabíla til að hirða „hræin",
komna á staðinn.
0 Vinsæl
kappakstursgata
Ég bý við Laugarásveg, en sú
gata virðiSt vera orðin ein af vin
sælustu kappakstursgötum borg-
arinnar, og það allan sólarhring-
inn. Lögregla hefur tekið fjölda
ökufanta þarna, en sjálfsagt
ræður hún ekki alls kostar við
þetta ástand vegna tækja- og
mannaskorts. Gatan er eftir sem
áður vinsæl kappakstursgata,
íbúum þar til hrellingar.
Mig undrar stórlega, hvað gang-
andi fólk og börn hafa þó sloppið
við að lenda fyrir þessum kapp-
akstursbilum. Auðsjáanlega gera
þessir ökumenn sér ekki ljósar
hætturnar, sem leynast í lang-
bogadreginni götunni. Þessu til
sönnunar má benda á alla götu-
-ljósastólpana, sem keyrðir hafa
verið niður þarna en þeir standa í
steinsteyptri gangstéttinni utan
við götuna. Einnig er á götunni
mikill hæðarhryggur sem tekur
við af krappri beygju. Algengt er
að sjá ,,panik-kennda“ bifreiða-
stjórn hjá þessum litlu hetjum á
þessum stað.
# Helgarösin
Ekki bætir úr skák, að þegar
líða tekur á föstudagana og fyrir
hádegi á laugardögum, fyllist
Laugarásvegurinn frá Sundlauga-
vegi á löngum kafla af bílum, sem
lagt er mjög illa og kæruleysis-
lega beggja vegna götunnar,
þannig að aðeins kemst einföld
bílaröð leiðar sinnar eftir göt-
unni. Strætisvagnar og vörubílar
lenda þarna oft í sjálfheldu og
komast hvorki aftur á bak né
áfram, og öngþveiti myndast.
Gatnamálastjórn og lögregla
verða að taka höndum saman til
að leysa þetta vandamál hið
fyrsta. Það er krafa okkar, sem
búum við Laugarásveginn, og
þeirra, sem um götuna þurfa að
fara.
# Lýsing við
Kjarvalsstaði
Að lokum, kæri Velvakandi, þú
ert svo góður að taka á móti kvört-
unum okkar, létta af okkur
áhyggjum og koma þeim til réttra
aðila til úrlausnar.
Ég hef farið i Kjarvalsstaði
nokkrum sinnum í vetur og haft
mikla ánægju af, — þökk sé þeim,
sem sýndu það framtak að byggja
þann stað og minnisvarða. Eitt
langar mig þö til að minnast á,
sem betur má fara.
Þegar komið er inn á lóð Kjar-
valsstaöa er maður umvafinn kol-
svörtu myrkri, þannig að erfitt er
að átta sig á því, hvar aðalinn-
gangur hússins er.
Ég hef víða farið út um heim
séð söfn og opinberar byggingar
af ýmsu tagi, en ávallt hefur verið
lögð megin áherzla á að flóðlýsa
fordyri og framhluta húsanna, en
ekki bakhliðar þeirra, þar sem
engin eða lítil umferð er, en þetta
hefur verið gert á Kjarválsstöð
um. Það er ömurleg sjón að sjá
fólk á fjórum fótum fyrir framan
opinberar byggingar vegna skorts
á lýsingu.
Með þökk fyrir birtinguna
D. S.‘
Velvakandi tekur undir or?
bréfritara um lýsinguna framan
við Kjarvalsstaði. Þó munu flestir
geta fallizt á það, að flóðlýsing
þeirrar hliðar hússins, sem snýr
að Miklatúni sé tiimikillar prýði
Hins vegar þarf að hafa betri lýs-
ingu við innganginn og á bifreiða-
stæðunum.
‘toíftl PINtJ? & HEf ALWEl OtffiB GERT WVÐ UW
v® m vivðRr haun m w mmi m hagaw
Batnandi
færð um
allt land
FÆRÐ á vegum landsins hefur
’arið óðum batnandi síðustu daga
og er nú fært uin alla helztu þjóð-
vegi landsins. Ruðningstæki
Vegagerðar ríkisins hafa verið að
störfum allt frá þvf um næst síð-
ustu helgi og eru þau enn mörg
að störfum.
Áskell Einarsson vegaeftirlits-
maður sagði í samtali við Morgun-
ólaðið í gær, að nú væri fært frá
Reykjavík vestur i Dali og á þeirri
leið væri aðeins Brattabrekka
ófær. Þá er fært i Reykhólasveit,
og fært er úr Vatnsfirði til Pat-
reksfjarðar. Á norðanverðum
Vestfjörðum er viða snjóþungt,
en fært er út frá Þingeyri í ná-
grannasveitirnar og slarkfært er í
Önundarfirði og Mýrárhreppi. Þá
er fært frá Isafirði til Súðavfkur
og Bolungarvíkur.
Holtavörðuheiði er fær öllum
bílum og fært er til Hólmavfkur.
Flestir vegir á Norðurlandi eru
færir, eins og til Siglufjarðar, en
nokkuð þungfært er í Öxnadal.
Vegurinn frá Akureyri um
Dalsmynni til Húsavíkur er orð-
inn fær aftur, en I Dalsmynni til
Húsavfkur er orðinn fær aftur, en
í Dalsmynni féll snjó-
flóð um helgina og tók þar af brú,
en vegagerðarmenn hafa nú sett
þar upp bráðabirgðabrú. Frá
Húsavik er svo fært i.Mývatns-
sveit og til Þórshafnar.
Á Austurlandi er ástandið
þannig, að fært er um Vopna-
fjörð. Frá Egilsstöðum er fært til
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar og
suður með fjörðum, en Oddsskarð
og Fjarðarheiði eru lokuð. Fært
er á jeppum og stærri bílum yfir
Lónsheiði og eins yfir Breiða-
merkursand og Mýrdalssand.
Landsþing
ökukennara
FYRSTA landsþing Ökukennara-
félags Islands verður haldið í ráð-
stefnusal Hótel Loftleiða dagana
22.—24. febrúar n.k. A þinginu
verða haldin ntörg erindi og kvik-
myndir um umferðarfræðslu
sýndar.
Við setningu þingsins mun for-
maður Norræna ökukennarasam-
bandsins, Bertil Flodén, flytja
ávarp.
Af þeim málum, sem koma til
með að vekja mesta athvgli, eru
sennilega erindi Péturs Svein-
bjarnarsonar, framkvæmdastjóra
umferðarráðs, um framtíðarvið-
horf f ökukennslu og menntun
ökukennara, og erindi Guðna
Karlssonar, forstöðumanns Bif-
'-reiðaeftirlitsins, um fyrirhugaða
breytingu á ökuprófum. Á vori
komanda er fyrirhugað að breyta
bóklegu prófi undir bilpróf,
þannig að það verði krossapróf,
en fram til þessa hafa verið
munnleg próf.
Stöðvunar-
skylda
BORGARRÁÐ hefur fallizt á til-
lögur Umferðarnefndar Reykja-
víkur um stöðvunarskyldu við eft-
irfarandi gatnamót:
A Hagamel
við Hofsvallagötu.
A Bústaðavegi
við Reykjanesbraut.
Á Álfabakka
við Reykjanesbraut.
A Skeiðarvogi
við Langholtsveg.
Þess skal getið lil skýringar, að
sú Reykjanesbraut, sem að ofan
er nefnd, er brautin, sem liggur
frá Miklubraut I framhaldi af
Elliðavogi upp í Breiðholt og hef-
ur oft einnig verið nefnd Breið-
holtsbraut.