Morgunblaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 32
IESIÐ
orjimlílaí*
DflGLEGn
fHorpMMöMb
nUGIVSinGHR
^n.22480
FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR 1974
Stöðugt flug
landa á milli
— þrátt fyrir verkfallið
Fyrirhugaðar skattalagabreytingar:
Ríkið hagnast um 4,7
milljarða króna
Nýtt „millilandaflugfélag“ hef-
ur risið upp í verkfalli verzlunar-
manna. Það er Flugstöðin hf. sem
hefur ekki undan að flytja fólk til
Glasgow, Færeyja og Kaup-
mannahafnar og þurfti jafnvel að
skjótast til Parísar til að sækja
varahluti í stóra vinnuvél. Þá hef-
ur einnig verið svo mikið að gera
f innanlandsflugi, að engin vél
Flugstöðvarinnar hefur stanzað
nema rétt til að taka eldsneyti og
svo auðvitað farþega og farangur.
I ferðinni til Parísar og í milli-
landafluginu yfirleitt notar Flug-
stöðin tveggja hreyfla, átta sæta
vél af gerðinm Piper Navajo.
Flugstjóri í Frakklandsferðinni
var Önundur Jóhannsson, en
aðstoðarflugmaður Bragi Helga-
son.
Þeir sögðu, að fyrst hefði verið
flogið til Glasgow með fimm
farþega og tók sú ferð um fjórar
klukkustundir. Þar var farþegun-
um hleypt frá borði og flogið
áfram til Parisar. Ætlunin var að
lenda á Orly, en þeir voru ekki
komnir þangað fyrr en fimm
mínútur yfir ellefu um kvöldið og
var þá sagt, þeim til mikillar
furðu, að alþjóðavöllurinn Iokaði
kl. 23. Í staðinn lentu þeir á Le
Bourget, eftir 2,40 klst. flug og
Ráðstefnu
SUS frestað
RÁÐSTEFNU þeirri, sem halda
átti um þessa helgi á vegum Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna,
hefur verið frestað þar tii laugar-
daginn 9. og 10. marz n.k. Ráð-
stefnan, sem fjalla mun um póli-
tíska stöðu SUS, verður nánar
auglýst síðar.
Feikilegur vatnselgur herjaði
á Þorlákshafnarbú a í gær og rann
vatn inn í kjallara nokkurra húsa.
Þá var símstöðin umflotin vatni
og urðu menn að fara þangað á
árahátum, en dýpt vatnsins var á
annan metra. í rigningunum að
undanförnu hefur mikið vatn
safnazt sarnan í hrauninu fyrir
ofan plássið, og þar sem fs er í
jörðu eftir umhleypi ngana að
undanförnu, flýtur vatnið ofan á í
stað þess að sfga niður í hraunið.
Úthlutunarnefnd listamanna-
launa boðaði fréttamenn á sinn
fund f gær f tilefni af úthlutun
listamannalauna fyrir árið 1974.
Að þessu sinni hljóta 119 lista-
menn laun, þar af 12 í heiðurs-
launaflokki, sem Alþingi veitir,
60 hljóta laun í efri flokki og 47 í
neðri flokki. Á fundinum kom
m.a. fram, að úthlutunarfé hefur
hækkað úr tæpum 7,5 milljónum
króna frá því í fyrra í 10 milljón-
ir, sem gerir það að verkum, að
sneru heim sömu leið daginn eft-
ir.
Auk Navajo-vélarinnar á Flug-
stöðin þrjár minni tveggja
hreyfla vélar, sem taka sex í sæti,
eína fjögurra sæta Cessnu, eins
hreyfils, og svo nokkrar litlar
kennsluvélar. Félagið hefur fest
kaup á annarri Navajo-vél og er
flugmaður frá því nú í Banda-
rfkjunum til að sækja hana.
Hin litlu flugfélögin hafa einnig
haft nóg að gera, þótt ekki stundi
þau milliiandaflug. Vængir, sem
eiga „stærstu litlu“ vélina,
tuttugu sæta Twin Otter, vilja
ekki setja hana í millilandaflug,
þar sem félagið yrði þá að van-
rækja hina ýmsu staði úti álandi,
sem það heldur uppi áætlunar-
flugi til.
SKATTATILFÆRSLUR þær,
sem verið er að framkvæma í
þjóðfélaginu hafa í raun ekki ver-
ið skýrðar fyrir almenningi og
hafa menn því ekki getað gert sér
Ijóst, hvað þær fela f sér.
Morgunblaðið tók þessar skatta-
tilfærslur saman í gær og kemur
þá í ljós, að aukning skattaáþján-
arinnar, sem verkalýðsfélögin
Bullar það þar af leiðandi niður í
plássið með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Vatnselgurinn drap i kyndingu
nokkurra húsa og í gær var
stöðugt dælt vatni úr kjallara sím-
stöðvarinnar til þess að sjálfvirka
stöðin þar yrðí ekki fyrir
skemmdum.
Síðdegis í gær átti að rjúfa
veginn til Þorlákshafnar til þess
að hleypa vatnsflaumnum fram
hjá plássinu.
listamannalaun í efri flokki
hækka úr90 þúsund krónum í 120
þúsund og úr 45 þús. í 60 þús.
krónur í neðri flokki. Þá hefur
listamönnum í efri flokki fjölgað
frá því í fyrra úr 55 í 60. Hinir
fimm nýju listamenn í efri flokki
eru rithöfundarnir Jakobína
Sigurðardóttir og Jón Óskar, list-
málararnir Hringur Jóhannesson
og Pétur Friðrik og Leifur Þór-
arinsson tónskáld.
Þeir 55 listamenn, sem voru í
hafa svo mikið rætt um, nemur á
ársgrundvelli 4,1 milljarði króna
og hefur þá verið tekið tillit til
tekjuskattslækkunar, sem nemur
2,5 milljörðum króna. Eru þá
ekki taldar 603 milljónir í launa-
skatt, svo að í raun má segja, að
skattpfningin aukist ágrundvelli
um 4,7 milljarða.
Þessar niðurstöður skulu nú
skýrðar nokkru nánar. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Mbl.
fékk í fjármálaráðuneytinu í gær,
lætur nærri að núvirði hvers sölu-
skattsstigs nemi á ársgrundvelli
728 milljónum króna. Ríkisstjórn-
in hefur í huga að hækka sölu-
skatt um 5 stig, í 18%, og nemur
því þessi söluskattshækkun á árs-
grundvelli 3.640 milljónum
króna. Eitt söluskattsstig af
tveimur, sem áður rann í Viðlaga-
sjóð, en verður nú látið renna í
rikissjóð, þar sem myndaður verð-
ur sérstakur olíusjóður, eykur
tekjur ríkissjóðs á ársgrundvelli
og miðað við núvirði um 728
milljónir króna. Vegna þessara
breytinga mun því aukning tekna
ríkissjóðs nema á ársgrundvelli
4.368 milljónum króna. Af þeim
tekjuauka á þó að verja 500
milljónum til þess að bæta þeim
upp söluskattshækkunina, sem
efri flokki í fyrra, eru þar allir
nú, enda hefð, að þeir, sem einu
sinni eru komnir í þann flokk,
haldi sæti sínu þar. Hins vegar
hefur listamönnum í neðri flokki
fækkað úr 56 í 47 og aðeins 26 af
þeim, sem voru á listanum í fyrra,
eru þar nú í ár. Af þeim 21 lista-
manni, sem ekki var á lista i
fyrra, eru 10, sem aldrei hafa
hlotið listamannalaun fyrr, en
þeir eru Arnar Jónsson leikari,
Birgir Sigurðsson rithöfundur,
ekki greiddu tekjuskatt áður.
Vísitala neyzluvöruverðs hækk-
aði á árinu 1973 um 34,3%, en
SAMNINGAFUNDIR stóðu enn,
er Morgunblaðið fór í prentun í
gærkvöldi og semjist ekki fyrir
miðnætti í nótt, má búast við því
að allsherjarverkfall skelli þá á.
Samninganefnd ríkisfyrirtækj-
anna reifaði tilboð sitt í gær við
samninganefnd ASl, en það fékk
mjög slæmar undirtektir. Var til-
hoðið svipað því, sem samdist við
BSRB, en óljóst að þvf leyti, að
ekkert var fram tekið um lengd
samningstfmans.
Tilboð ríkisfyrirtækjanna, sem
reifað var í 30 manna nefnd ASÍ í
gær, var um kauphækkun í þrem-
ur áföngum, 7%, 3% og 3%.
Felur það í sér samanlagða
prósentu, sem er 9,3%, en BSRB-
samningarnir þýddu rúmlega
Gunnar Örn Gunnarsson list-
málari, Haraldur Guðbergsson
teiknari, Indriði Ulfsson rit-
höfundur, Ragnar Páll Einarsson
listmálari, tónlistarfólkið Róbert
A. Ottósson, Rut Ingólfsdóttir og
Sigurveig Hjaltested og Unnur
Eiriksdóttir rithöfundur.
I heiðurslaunaflokki, sem nem-
ur 250 þúsund krónum og veitt er
af Alþingi, eru Ásmundur Sveins-
son, Brynjólfur Jóhannesson,
Framhald á bls. 18
þéssi vísitala, sem miðuð er bein-
línis við verðlag, er bezti mæli-
kvarði á söluskattshækkun vegna
verðlagsbreytinga. Um áramót
hefur því verðbólgan ein aukið
tekjur rikissjóðs vegna þessara 6
söluskattsstiga um rétt tæplega
1.500 milljónir króna. Samanlögð
Framhald á bls. 18
10%. I þessu tilboði frá í gær, sem
var óformlegt, fylgdi einnig 700
kr. uppbót á mánaðarlaun.
Siðasta tilboð vinnuveitenda
áður en sérkröfur voru teknar til
umræðu á samningafundunum
var 5%, 3% og 3% og að auki
1500 kr. mánaðarleg launauppbót.
Siðasta tilboð ASÍ eða krafa var
um 28% kauphækkun á laun, allt
að 30300 kr., en síðan átti sama
krónutala að koma á hærri laun
og 30300 krónurnar hækkuðu um.
Sést af þessu, að enn ber mikið í
Framhaid á bls. 18
Sameiginlegt
skólahúsnæði
í Eyjum
MENNTAMÁLARAÐUNEYTIÐ
og forsvarsmenn skólamála í
Vestmannaeyjum eru nú að
kanna möguleika á sameiginlegu
húsnæði fyrir Stýrimannaskólann
í Eyjum, Iðnskólann og Vélskól-
ann. Húsnæði Iðnskólans er nýtt
og er nú verið að kanna mögu-
leika á að kaupa áhaldahús bæjar-
ins, sem er við hlið Iðnskólans, og
innrétta þar húsnæði fyrir Vél-
skólann og Stýrimannaskólann.
Að sögn Birgis Thorlaciusar ráðu-
neytisstjóra hjá menntamálaráðu-
neytingu eru þessi mál í frumat-
hugun, en gert ráð fyrir, að hús-
næðið fyrir skólana þrjá verði til-
búið næsta haust..
Fóru á árabát
í símstöðina
r
Uthlutun listamannalauna:
Fimm nýir listameim í efriflokk
Alkherjarverkfall
á miðnætti?