Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 32
ÞCIR RIIKR
umsKiPTin sEm
HUGLVSR i
|Wt>r03mí>Líii)ittt4
tir|5imnMít®iíí>
PnpnUt^ík
RIIGIVSinGRR
»22480
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1974
HÝMJOLK
2 llTMR
s 6E8IL8HIYD0
! NVMJÚLK
1 2 lhrar
VERÐFALL A FISKI
í USA — ÞORSK-
BLOKKIN LÆKKAR
VERÐFALL hefur orðið á fiski á
Bandaríkjam arkaði að undan-
förnu. Þannig hefur þorskblokk-
in farið niður í 78 cent, en hún
var komin upp í 82 cent, og ufsa-
blokkin er komin niður I 50 cent,
en var í 53 centum, þegar bezt lét.
í janúarmánuði fór fyrst að
bera á verðfalli á Bandaríkja-
markaði, en þá lækkaði steinbíts-
blokkin um 3 cent en karfa- og
ufsablokkin um 2 cent. Hins
vegar hélzt þorskblokkin stöðug
þar til hún fellur nú um 4 cent.
Þess ber að geta, að verð á þorsk-
blokkinni hefur aldrei komizt
hærra 'en í 82 cent og fulltrúar
sölusamtakanna hér heima hafa
óttazt um skeið, að hið háa verð
geti haft í för með sér kauptregðu
vestra.
Aðeins búið að frysta
um 15 þús.tonnloðnu
Þessi mynd sýnir dagskammt lftillar fjölskyldu. A myndinni eru þrfr lftrar af mjólk, ferna og hyrna, peii
af rjóma, 250 g smjör, skvr, súrmjólkurhyrna og oststykki. Fyrir helgi kostaði þessi dagskammtur 384,30
krónur en I gær þurfti aðgreiða fyrir hann 483,70 krónur. Mismunurinn er 99,40 krónur og þessi
dagskammtur hafði hækkað um 25,87% — Ljósm.: Öl. K. M.
LOÐNUFRYSTING er nú aðeins
helmingur þess, sem sölusamtök
frystihúsanna höfðu gert sér von-
ir um að geta selt til Japans á
þessari vertfð. Heita má, að loðn-
an sé nú orðin ófrystingarhæf,
alltént öll sú loðna, sem veiðist
vestan Eyja, og verður þvf að
Stórfelldar hækkanir
á búvöru
LANDBÚNAÐARVÖRUR
hækkuðu I gær, en þá auglýsti
Framleiðsluráð landbúnaðarins
hækkun á búvöru, sem nemur til
bænda 17,87%. Hækkunin til
neytenda er nokkuð misjöfn eftir
vörutegundum, minn'st á undan
rennu 17,65%, en mest á annars
flokks mjölkurbúasmjöri,
35,17%.
Meðaltalshækkun er um 23%.
Niðurgreiðslur hafa ekki breytzt
og veldur það þeim mismun í
prósentutölu, sem fram kemur.
Hver mjólkur!ítri f lausu máli
kostar nú 31 krónu, kostaði áður
23,80 krónur, og nemur hækkun-
in þar 30,25%. Mjólkuriftri f
hymum og plastpokum kostar nú
32,60 krónur og hefur hækkað um
28,85. Samkvæmt K-vísitÖlu,
159,16, mælist þessi hækkun bú-
vöru frá 5 til 5,4 stig og þegar öll
hækkunin er komin fram, þ.e.
þegar auglýst hefur verið verð
á unnum kjötvörum, nemur
hækkun vísitölunnar um 6,7 stig-
um. Samsvarandi stigahækkun
miðað við K-vfsitölu A.S.Í., 6,18,
og 3.35 til 3.62 og verður endan-
lega 4,49 stig. Hækkunin, sem
verður á framfærsluvfsitölunni,
er rúmlega4 %.
Vfsitölufjölskyldan er sem næst
því að vera hjón með 2 börn. Þessi
fjölskylda hefur eytt til kaupa á
landbúnaðarafurðum rúmlega
100 þúsund krónum á ári. Þær
hækkanir, sem þessi fjöl-
skylda verður að bera vegna
hækkana búvörunnar, eru um 23
þúsund krónur eða tæplega
2.0000 krónur á mánuði. Sé gert
ráð fyrir því, að fjölskyldan hafi í
mánaðarlaun 35 þúsund krónur,
nemur hækkun landbúnaðarvar-
anna 5,5% af mánaðartekjum
fjölskyldunnar.
í fréttatilkynningu frá Fram-
leiðsluráði, sem Mbl. fékk í gær,
segir, að Hagstofa íslands kanni
ársfjórðungslega breytingu á
verði rekstrarvara landbúnaðar-
ins. Samkvæmt þeirri könnun
hafi t.d. fóður-bætir hækkað um
9,18% frá því í nóvember og
kostnaður við vélar um 14,14%.
Fíkniefnamálin þrjú
eru að mestu upplýst
EINS og frá hefur verið skýrt í
Mbh, hefur dómstóllinn f ávana-
og ffkniefnamálum að undan-
förnu unnið að rannsókn á þrem-
ur aðskildum málum, sem sner-
ust um ólöglegan innflutning og
dreifingu á talsverðu magni
ffkniefna. Rannsókn. er nánast
lokið f einu málinu og langt kom-
in í hinum tveimur, að sögn As-
geirs Friðjónssonar dómara, í við-
tali við Mbl. f gær.
I einu málinu miðaði lengi vel
B-inflúensa herjar á
íbúa höfuðborgarinnar
PESTIR hafa angrað borgarbúa
töluvert undanfarnar vikur.
Kvefsótt er þar mest áberandi
og þannig gáfu heimilislæknar
skýrslur um 232 tilfelii vikuna
10.—16. febrúar sl., sem var
fjölgun um 100 tilfelli frá því
vikuna áður. Einnig var þá tal-
ið, að um inflúensu væri að
ræða í um 50 tilfellum.
Skúli Johnsen aðstoðar-
borgarlæknir sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að vitað
væri, að inflúensa væri að
stinga sér hér niður og léki
grunur á, að sú flensa væri af
B-stofni. Flensu af þessum
stofni hefur ekkí orðið vart á
íslandi i mörg ár.
Skúli sagði um þessa B-stofns
inflúensu, að hún væri yfirleitt
talin fremur væg og stæði yfir-
leitt ekki lengi, kannski 2—3
daga. Eins væri það eitt ein-
kenni B-stofns inflúensunnar
að leggjast fremur á börn en
unglinga og fullorðna.
lítið áfram, en nú er upplýst, að
tveir íslendingar fluttu inn tæpt
kíló af kannabis-efnum síðari
hluta janúarmánaðar og dreifðu
efninu í ágóðaskyni. Aðeins lítið
af þvi magni hefur náðst. Annar
þessara manna sat í gæzluvarð-
haldi í 24 daga venga rannsóknar
málsins og til marks um umfang
málsins nefndi Asgeir, að á þeim
tima, meðan lítið miðaði í yfir-
heyrslum mannsins, náði dóm-
stóllinn inn f jölmörgum skýrslum
og gögnum varðandi málið, alls
um 60 talsins.
í öðru máli, sem fyrst var upp-
lýst, reyndust tveir útlendingar
hafa flutt inn i landið tæpt kíló af
kannabis-efnum og 50—60
skammta af LSD. íslendingur tók
að sér að fela megnið af efnunum
fyrir þá, er lögreglan var farin að
rannsaka mál þeirra, og gróf hann
efnin í jörð. Vegna snjóalaga hef-
ur ekki tekizt að finna aftur stað-
inn, sem efnin voru falin, en hass-
hundurinn Prins hefur verið not-
aður við leitina. Að sögn Ásgeirs
verður leitað aftur innan tiðar,
þegar aðstæður hafa batnað.
1 þriðja málinu liggur fyrir, að
tveir Islendingar dreifðu tals-
verðu magni af LSD, en enn er
ekki að fullu upplýst með hvaða
hætti efnið barst til landsins.
Hækkunin á rekstrarvörum og
samningsbundin áfangahækkun
vegna leiðréttingar á fjármagns-
kostnaði valda samtals um 3,6%
hækkun á verðlagsgrundvellin-
um.
Kaupgjaldsliðurinn í verðlags-
grundvellinum var hækkaður um
26,91% og var það gert sam-
kvæmt upplýsingum Kjara-
rannsóknanefndar um hækkun á
kaupi iðnaðar- og verkafólks í
Reykjavík eftir síðustu kjara-
samninga, að viðbættri kaup-
gjaldsvísitölu 1. marz. Hækkun
kaupgjalds veldur um 14,2%
hækkun á verðlagsgrundvellin-
um. Vinnslu- og dreifingar-
kostnaður mjólkur og mjólkur-
vara hækkaði um sömu prósentu-
tölu og verð til bænda og krónu-
tala smásöluálagningar nokkru
meira.
Hér skulu tilfærð nokkur dæmi
um hækkun landbúnaðarvara.
Mjólk í heilhyrnum og plastpok-
um kostar nú 32,60 krónur,
kostaði áður 25,60 krónur,
hækkun er 28,85%. Mjólk i
tveggja lítra fernum kostar nú
66,50 krónur, kostaði 51,90 krón-
ur, hækkun er 28,13%. Ein pela-
hyrna af rjóma kostar nú 66,70
krónur, kostaði 55 krónur,
hækkun er 21,27%. Skyr, pakkað
Framhald á bls. 31
koma til ný ganga loðnu ef frysta
á áfram að ráði.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið af laði sér í gær, eru
frystihús á vegum Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna nú búin að
frysta um 10.400 tonn, frystihús
SÍS eru búin að frysta um 3.100
tonn og frystihús á vegum ís-
lenzku umboðssölunnar eru búin
að frysta um 1200 tonn. Á vegum
SH eru þegar þrjú skip komin og
farin með loðnu til Japans, sam-
tals um 7 þúsund tonn, en hið
fjórða er á leiðinni. Loðnufryst-
ingin nú er mun minni en menn
höfðu almennt gert sér vonir um,
og má þar fyrst og fremst kenna
um óhagstæðu tíðarfari.
Rafmagnslaust
RAFMAGN fór af öllu orkuveitu-
svæði Landsvirkjunar í gær
vegna skammhlaups á annarri
Búrfellslínunni. Rafmagnslaust
varð þó aðeins í tæpa klukku-
stund. Talið er, að slegið hafi sam-
an linum í bráðabirgðamastri i
Grafningi, en mikið hvassviðri
var á þeim slóðum í gær.
Tekinn í landhelgi
VARÐSKIPIÐ Týr stóð á sunnu-
dagsmorgun vb. Leó VE-400 að
meintum ólöglegum veiðum um
eina sjómílu undan Hjörleifs-
höfða. Varðskipið fór með bátinn
til Vestmannaeyja og var mál
skipstjórans tekið fyrir hjá bæjar-
fógetanum þar.
Þokast í sjómannadeilunni
Mikil fundahöld um helgina
FULLTRÚAR útgerðarmanna og
bátasjómanna sátu á fundi með
sáttasemjara 1 gærkvöldi um það
leyti, sem Morgunblaðið fór í
prentun. Langir fundir voru
haldnir yfir helgina — fundur
hófst kl. 14 á laugardag og stóð
þar til kl. 5 aðfararnótt sunnu-
dagsins, en var síðan fram haldið
kl. 14 á sunnudag og stóð þá alit
til kl. 1 f fyrrinótt.
Kristján Ragnarsson formaður
Landssambands ísl. útvegsmanna
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að á þessum fundum hefði
miðað í samkomuiagsátt og kvaðst
hann gera sér vonir um, að aðilar
næðu saman á næstunni.
Jón Sigurðsson formaður Sjó-
mannasambandsins kvað samn-
ingana hafa gengið hægt og ýmis-
legt ætti eftir að athuga áður en
samningar næðust. „Það má
segja, að aðeins hafi þokazt, en
lítið þó,“ sagði hann: „Aðilar eru
alltaf að nálgast lítið eitt, en hve-
nær þeir ná saman treysti ég mér
ekki til að segja um.“