Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1974 Maqnús Guðmundsson Hnífsdal — Minning Góður vinur, félagi og sam- ferðamaður um langa ævi, hefir nú lagt upp í hina óþekktu ferð, sem öllum er fyrirhuguð fyrr eða seinna álifsleiðinni. Ég vil í fám orðum minnast að nokkru góðs borgara í Hnífsdal, sem lengi vann við sama fyrirtæki og ég, enda báðir hluthafar i því. Magnús Guðmundsson lézt á fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði 20. febrúar sl. eftir skamma legu. Magnús Guðmundsson var fæddur að Fossum í Skutulsfirði 3. des. árið 1900. Foreldrar hans voru myndarhjónin Elisabet Sturludóttir, ættuð frá Aðalvík og Guðmundur Jónsson frá Kirkju- bóli í Skutulsfirði, sonur Jóns Hallórssonar bónda og hrepp- stjóraþar. Foreldrar Magnúsar eignuðust 6 börn, en misstu fyrsta barnið í æsku, hin komust öll til fullorðis- ára og urðu ágætir borgarar í Hnifsdal. Öll eru þau nú dáin nema yngri dóttirin frú Sigríður, sem heima á i Hnífsdal og er gift Ingimar Finnbjörnssyni útgerðar- manni. Magnús fluttist með for- eldrum sinum til Hnífsdals 9 ára gamall og átti heima þar til ævi- loka. Strax og hann óx úr grasi, reyndi hann að verða foreldrum sinum sú stoð, er þroski hans og kraftar leyfðu. Hann byrjaði snemma að sækja sjó, fyrst á ára- bátum en síðar á mótorbátum og togurum. Á þeirri tíð var fárra annarra kosta völ með atvinnu fyrir unga menn á þessum hjara, sem ábata- von var í, það var því ekki nema að vonum, að sjórinn freistaði táp- mikilla ungra ungra manna. Magnús tók skipstjórapróf hið minna og öðlaðist réttindi til að stjórna mótorbátum í heimabyggð sinni. Ekki leið á löngu þar til hann gjörðist formaður á mótor- bátum í Hnífsdal og var það um nokkurt árabil og farnaðist það ágætlega í alla staði og giftusam- lega, því að hann henti aldrei slys á mönnum eða skipi, enda mjög gætinn og athugull formaður. MagnúsGuðmundsson kvæntist 29. júnf 1929 eftirlifandi konu t SIGRÍÐUR VALDÍS ELÍSDÓTTIR frá Neðri-Bakka I Nauteyrarhreppi, andaðistá Reykjalundi 1. þ m. Fyrir hönd föður hennar Guðjón Guðmundsson. sinni frú Margréti Halldórsdótt- ur, velgefinni myndarkonu, sem bjó honum indælt heimili. Mar- grét var dóttir merkishjónanna Guðríðar Mósesdóttur og Halldórs Pálssonar, en þau hjón voru mjög þekkt á sinni tíð í héraðinu. Hali- dór Pálsson, sem lengi hafði verið formaður og útvegsmaður í Hnifs- dal fórst með bát sínum og allri skipshöfn í marzmánuði 1933 í aftaka veðri. Við svo váleg tiðindi var lengi skarð fyrir skildi f heimabyggð hinna horfnu manna og ekki sizt formannsins, sem hafði verið ötull og dugandi for- maður um langa ævi og af lamaður svo af bar. Magnús Guðmundsson tók mik- inn þátt i íþróttum á yngri árum sínum f ungmennafélaginu Þrótti, sem um þær mundir starfaði með miklum blóma að hvers konar fé- t Okkar hjartkæra móðir DAGBJÖRT BERGMANN, Stóragerði 18, andaðistað Borgarspítalanum 3. þ.m. Systkinin. Eiginmaður minn og faðir ^ h VILHJÁLMUR KRISTJÁNSSON, Háteigsvegi 25. andaðist í Borgarspitalanum sunnudaginn 3. marz. Sigriður Sigurjónsdóttir, Anna Vilhjálmsdóttir. Maðurinn minn og faðir okkar SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ ÞORSTEINSSON, bifvélavirki, Bogahllð 1 2 Móðir okkar. t MARGRÉT JÓNASDÓTTIR, frá Syðri-Brekkum, i Skagafirði, lézt í Landakotsspítala, laugardaginn 2. marz. Pálína Guðvarðardóttir, Ingunn Guðvarðardóttir, Kristín Guðvarðardóttir. andaðist aðfararnótt laugardagsins 2 marz. Guðlaug Kristjánsdóttir og börn. Móðir min ANNE MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, andaðist að Hrafnistu að morgni 4. marz Karla Nielsen. Maðurinn minn og faðir okkar GUOMAR JÓN KRISTINSSON, rafvirki, Hrfsey, sem andaðist 26. febrúar verður jarðsunginn í Hrísey, fimmtudaginn 7. marz kl 2 e h. Ólöf Friðriksdóttir, Sæbjörg Jónsdóttir, Kristfn Jónsdóttir. t Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, EINAR ÖGMUNDSSON, vélstjóri, Þórustfg 20, Ytri-Njarðvik, lést í Borgarspítalanum, 3. marz 1 974. Sigriður Hafliðadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ... t Hjartkær eiginmaður minn og faðir, SIGURÐUR E. STEINDÓRSSON, Látraströnd 11, Seltjarnarnesi, lést að morgni 4 marz. Petrfna Jónsdóttir og börn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGVALDI SIGURBERGUR SVEINBJÖRNSSON, fyrrverandi skipstjóri, Brekkugötu 1 2, Hafnarfirði, andaðist 2. marz i Borgarspítalanum. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, fris S. Sigvaldadóttir, Olgeir Friðgeirsson, Þorsteinn S. Sigvaldason, Guðleif Jóhannesdóttir, Árni S. Sigvaldason. Sigríður Tómasdóttir og barnabörn. Maðurinn minn JÓN ARASON JÓNSSON, málarameistari, Akureyri, sem lézt 2 6. febrúar verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, fimmtu- daginn 7 marzkl. 1.30. Hjördis Stefánsdóttir. t Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu ÓLAFlU G. HAFLIOADÓTTUR, Stórholti 43, fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 6. marz kl. 1 3.30. Sigrfður Ólafsdóttir, Björn Óskarsson, Margrét Sigbjörnsdóttir, Guðmundur Óli Ólafsson og barnabörn. t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma STEFANÍA BJARNARSON, Hraunbæ 54. Revkiavfk verður jarðsungin miðvikudaginn 6. marz frá Fossvogskirkju kl. 3 e h Stefán Bjarnarson Pétur Bjarnarson Guðrún Helgadóttir Sigurður Bjarnarson Jóna Þorláksdóttir Anna Bjarnarson Björn Bjarnarson Jón Bjarnarson og barnabörn. Páll Björnsson Sigrfður Stefánssdóttir Hulda Daníelsdóttir lags- og menningarmálum. Magnús var mörgum íþróttum bú- inn, góður leikfimismaður og glímumaður svo að eftirtekt vakti. Hann hafði góða skemmtun af þessu tómstundastarfi sinu. Að eðlisfari var Magnús hlédrægur og fáskiptinn um annarra hagi, en traustur og vinur vina sinna. Á tímabili stundaði hann fisk- veiðar á togurum syðra og reynd- ist þar mjög hlutgengur sem dug- mikill starfsmaður og ágætur fé- lagi. Um árabil var hann í kirkju- kór Hnífsdalssóknar og vann þar ágætt starf og lét sig sjaldan vanta. Magnús Guðmundsson kom fljótt við sögu Hraðfrystihússins h/f, þvi hann vann að byggingu þess, ásamt öðrum og gerðist fyrsti vélstjóri fyrirtækisins, er það hóf starfsemi sína 1942. í því starfi var hann, þar til hann gerð- ist verksmiðjustjóri fiskimjöls- verksmiðju fyrirtækisins, sem var reist sumarið 1955, og gegndi því starfi til ársins 1970, er bréyting varð á þeim þætti fyrirtækisins. — Þó hélt hann áfram störfum hjá Hraðfrystihúsinu h/f allt til hins síðasta. Þau hjón Margrét og Magnús eignuðust einn son barna, Hall- dór, sem að sjálfsögðu var þeim mjög kær. Fyrir löngu siðan hef- ur Halldór gifst ágætri og dug- mikilli konu, sem alið hefir hon- um myndarleg börn, sem lengi hafa verið augasteinar afa síns og ömmu. Magnús Guðmundsson lét sér mjög annt um heimili sitt og léf einskis ófreistað til þess að hlúa að því. Heimilislífið var með þeim brag, að ekki varð á betra kosið. Þau höfðu gaman af gestakomu, enda stundum margir vinir og kunningjar í heimsókn, sem og ættingjarþeirra. Þegar Magnús Guðmundsson er nú horfinn yfir móðuna miklu, vil ég leyfa mér í nafni eigenda og stjórnar Hraðfrystihússins h/f, sem hann lengi átti setu I, að þakka honum löng og farsæl störf í þágu fyrirtækisins fyrr og siðar. — Þá leyfi ég mér og að færa honum kærar kveðjur frá vinnu- félögum og öðrum samferða- mönnum fyrir margar ánægju- stundir. Eftirlifandi ekkju Mangúsar, frú Margréti, færi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur, sem og Halldóri syni þeirra og fjölskyldu hans, og bið þeim blessunar Guðs um alla framtíð. Magnúsi Guð- mundssyni, hinum horfna sam- ferðamanni og vini, bið ég Guðs blessunar. Einar Steindórsson. t Bróðir okkar, HÁKON JÓNSSON, Hringbraut 82, verður jarðsunginn frá Fossvogs- krikju, fimmtudaginn 7 marz kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Jónsdóttir, Gislína Gfsladóttir. S. Helgason hf. STEINIDJA tlnholtl 4 Sltnar 74677 og 142S4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.