Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1974 Sendinefndin á fundi með fréttamönnum f gær. KYNNA SJÓNARMIÐ ARABA SENDINEFND á vegum Alþjöða- samhands stúdenta er stödd hér á landi um þessar mundir I þeim tilgangi að kynna sjónarmið Palestínu-Araba í deilunni við Israeia. Mun nefndin dvelja hér í tvo daga og kynna sjónarmið sín f fjölmiðlum og á almennum fundi, sem haldinn verður í stúd- entaheimilinu f kvöld, auk þess sem fulltrúar nefndarinnar munu ræða við alþingismenn, þ.á m. formann utanrfkisnefndar Alþingis. A fundi með fréttamönnum í gær kom í ljós, að fulltrúar nefndarinnar eru ekki sammála skæruli&im Palestínu-Araba hvað varðar baráttuaðferðir, enda fordæmdu þeir ofbeldisaðgerðir, Og hryðjuverk þau, sem skæru- liðar hafa gert sig seka um á undanförnum árum. Töldu þeir, að slíkar aðgerðir væru aðeins til þess að veikja málstað Araba í baráttu þeirra fyrir réttlátri lausn í deilunni um Palestinu. í dag munu fulltrúar sendi- nefndarinnar sækja Alþingi heim og kynna sjónarmið sín fyrir alþingismönnum og formanni utannkisnefndar Alþingis, en í kvöld kl. 20.00 munu þeir efna til almenns fundar í stúdentaheim- ilinu við Hringbraut. Á fundinum verða sýndar kvikmyndir til stuðnings málstað Araba í deil- unum fyrir botni Miðjarðarhafs, fulltrúar sendinefndarinnar munu skýra sjónarmið sín og á eftir verða almennar umræður um málið. Fundað um takmarkanir á síldveiði í Norðursió UM næstu helgi fara fulltrúar I sjávarútvegsins hér utan til að sitja fund NAtlantshafsnefndar- innar, sem að þessu sinni snýst mestmegnis um sildveiðar f Norð- ursjó og veiðar á írsku sfldinni. Allir aðilar, sem þarna eiga hags- muna að gæta, eru sammála um, að nauðsyn sé á takmörkunum á þessum veiðum en styr mun standa um, hvernig magnskipt- ingin á að verða milli landa og eins milli hlutfalls stórsíldar og smásfldar f aflanum. Formaður íslenzku nefndarinn-- ar verður Þórður Ásgeirsson skrifstofustjóri i sjávarútvegs- ráðuneytinu og sagði hann í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að ekki væri hægt að segja, að við Islendingar stæðum vel að vigi, þegar kæmi til þess að ákveða afla-skiptinguna á þessum slóð- um. Þórður kvað það ríkjandi stefnu bæði innan NA- og NV- Atlantshafsnefndarinnar að taka mið af því, að þjóðir hefðu a.m.k. stundað veiðar á tilteknum mið- um síðustu 10 ár og þannig öðlazt hefðréttindi. Islendingar hefðu hins vegar ekki hafið Norðursjá- varveiðar fyrr en 1968, en hlut- deild okkar í heildarveiðinni hefði farið vaxandi með hverju árinu. I fyrra veiddu islenzk skip þarna um 43 þúsund tonn síldar. Þórður sagði, að þess vegna myndu íslenzku nefndarmennirn- ir á þessum fundi leggja áherzlu á, að hlutur Islandsyrði ekki fyrir borð borinn, þegar kæmi til þess að ákveða takmarkanir milli þjóða. Hins vegar kvað hann þeirra sjónarmiða gæta innan nefndarinnar hjá fulltrúum sumra landa, að ekki bæri að taka neitt tillit til veiðanna hin siðari ár, þvi að þá hefði einmitt verið ofveiði á þessum miðum og ekki bæri að verðlauna þær þjóðir, sem að þeim stóðu. Hann kvaðst þó vonast til þess, að skilningur væri innan nefndar- innar á sérstökum hagsmunum Is- lands I þessu tilliti. Við hefðum líka að einu leyti góða vígstöðu I þessu sambandi — íslenzku síld- veiðiskipin stunduðu fyrst og fremst veiðar á stórsidl til mann- eldis, sem væri isuð I kassa um Framhald á bls. 31 Hvatarbingó á Borginni HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna, efnir til bingókvölds að Hótel Borg í kvöld, þriðjudag, og hefst það kl. 20.30. Bingókvöldin hafa verið fastur þáttur í starfsemi félagsins nú um nokkurra ára skeið, og hafa þau jafnan verið fjölsótt. Hvatarkonur hafa lagt ríka áherzlu á það að hafa góða vinn- inga, og hefur aðalvinningurinn jafnan verið utanlandsferð. Svo er einnig að þessu sinni og er vinningurinn Mallorkaferð. Fjöldi annarra glæsilegra vinn- inga er í boði, og vænta Hvatar- konur þess, að fjölmennt verði á bingókvöldinu.. Kabarett-bingó annað kvöld KVENNADEILD Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra gengst fyrir bingókvöldi, miðvikudaginn 6. marz, i Súlnasal Hótel Sögu kl. 20.30. Bingó þetta verður með svipuðu sniði og verið hefur á undanförn- um árum þ.e.a.s. „kabarett- bingó“, þar sem skemmtiatriði fara fram á milli hverra fjögurra umferða. Meðal skemmtikrafta er Ömar Ragnarsson, en stjórnandi bingós- ins verður SvavarGests. Verðmæti vinninganna er að upphæð 200 þúsund krónur, þar á meðal Kaupmannahafnarferð og ferð til Hornaf jarðar. Enginn vinningur er undir 6 þúsund krónur að verðmæti. Agóði af bingókvöldinu rennur til sjúkraþjálfunar í Æfingastöð- inni við Háaleitisbraut og starf- seminnar í Reykjadal. Laszlo Simin. Páll P. Pálsson. Ungverskur einleikari með Sinfóníuhljómsveitinni ELLEFTU reglulegu tónleikar Sinfónfuhljómsveitar Islands verða haldnir í Háskólabfói næst- komandi fimmtudag og hefjast kl. 20.30. Stjórnandi verður Páll P. Pálsson, en einleikari er ung- verski píanóleikarinn Laszlo Simin. Flutt verður Vatnasvíta eftir Handel/Harty, píanókonsert nr. 3 eftir Béla Bartok, Till Eulen- spiegel eftir Richard Strauss og Dialoge eftirPál stjórnanda. Einleikarinn Simin er 26 ára að aldri og stundaði nám við Béla Bartok-tónlistarskólann á árunum 1962—66 og síðan við tónlistar- skóla IStokkhólmi og í Hannover, þar sem aðalkennari hans var Hans Leygraf. Lokapróf tók hann hjá Ilonu Kabos. A undanförnum árum hefur hann komið fram á tónleikum víða um lönd og alls staðar hlotið mjög lofsamlega dóma, einkum þó fyrir frábæra túlkun á verkum Bartoks. Páll Pálsson hefur á undanförn- um árum verið aðstoðarstjórn- andi Sinfóníuhljómsveitarinnar en hann hefur auk þess fengizt talsvert við tónsmíðar og á þess- um tónleikum mun hann frum- flytja hljómsveitarverk, sem hann hefur nýlokið við að semja. VEDLAGASJÖÐUR hefur nú aug- lýst eftir tilboðum í um 49 Vest- mannaeyjahús, sem standa á 11 stöðum á landinu, flest á Suður- nesjum, en einnig á Akranesi, fyrir austan Fjall og á Hornafirði. Ástæðan fyrir því, að þessi hús eru nú boðin til sölu er sú, að fólkið, sem I þeim bjó, er nú snúið heim til Vestmannaeyja. Sjóðurinn keypti alls og reisti 544 hús, sem sett voru niður á 20 stöðum á landinu samkvæmt ósk- Þriðja kvöld kirkjuvikunnar í Lágafellskirkju Kirkjuvikan í Lágafellskirkju, sem nú er árlegur liður í starfi hennar, hófst um helgina og voru samkomur i kirkjunni á sunnu- dagskvöld svo og í gærkvöldi. Á sunnudagskvöldið flutti Gísli Kristjánsson ritstjóri erindi, Ólöf um fólksins, er sótt hafði um bú- setu í þessum húsum. Aðeins voru keypt hingað til landsins vönduð og sterkbyggð hús, sem ætlað er að standa til langframa. Þau eru flest kringum 120 fermetrar, en sumum fylgja bifreiðaskýli og geymslur. Húsin kostuðu hingað komin og uppsett milli 4 og 4,5 milljónir króna, en þá er ekki reiknað með vöxtum. Hins vegar er tollur af hverju húsi um 1 milljón króna. Að sögn forráðamanna Viðlaga- Harðardóttir söng einsöng við undirleik Jóns Stefánssonar. Þá söng söng- og leikflokkurinn Trióla nokkur lög. 1 kvöld flytja erindi Hrefna Tynes og séra Bragi Benediktsson, en skóla- lúðrasveit Mosfellssveitar leikur undir stjórn Birgis D. Sveins- sonar. Þá verður fluttur víxllest- ur spurningabarna og sóknar- prests og lesið úr Davíðssálmum, svo og almennur söngur eins og á sunnudagskvöld og mánudags- kvöld. I kvöld hefst dagskráin kl. 21. sjóðs var strax í gær ljóst, að töluverð eftirspurn er eftir þess- um húsum. Þau hafa yfirleitt Iíkað vel og sumir íbúanna, sem nú eru farnir heim til Eyja, hafa látið þau orð falla, að það eina, sem þeir sjái eftir hér á megin- landinu, sé húsið. Hins vegar er vitað um, að gallar hafa komið fram í nokkrum húsanna. Þau eru þó í ársábyrgð og gallarnir verða lagfærðir á kostnað seljenda. ÖIl húsin, sem nú eru auglýst til sölu, eru af vönduðustu gerð Að- eins voru keypt til landsins um 60 bráðabirgðahús, sem öll voru reist i Hveragerði, en nú er í undirbúningi að flytja þau til Eyja til að leysa úr húsnæðisekl- unni, sem þar rikir. Er kennarastofa MA orðin miðstöð her- stöðvaandstœðinga? ER kennarastofan I Mennta- skólanum á Akureyri orðin miðstöð fyrir starfsemi her- stöðvaandstæðinga á Akureyri? Svo virðist vera samkvæmt frétt f Akureyrarblaðinu Degi, sem nýlega er komið út. I frétt þessari segir, að þriðjudags- kvöldið 12. febrúar hafi „nokkrir tugir herstöðvaand- stæðinga komið saman á Hótel Varðborg Tilgangurinn var að stofna starfshópa, er hefðu það markmið að gera stefnumálum samtakanna skil“. Sfðan er sagt frá þvf, að stofnaðir hafi verið fjórir starfshópar og skyldi sá fyrsti þeirra fjalla um „ásælni Bandarfkjanna og stórvelda- pólitfk". I framhaldi af þessu segir f frétt Dags, sem er raun- ar fréttatilkynning frá Akur- eyrardeild herstöðvaandstæð- inga: „Ætlunin er að halda þessum hópum opnum, svo að ef fólk vill starfa innan þeirra er þvf bent á að hafa samband við eftirtalda: Hópur I. Andreu Jóhannsdóttur f sfma 1-12-48 fram til kl. 5..Samkvæmt sfmaskránni er þetta sfminn á kennarastofu MA. Fokker fyr- ir óhappi FOKKER-vél Flugfélags Is- lands varð fyrir óhappi í gær- dag, er hún var á leið frá Akureyri til Reykjavfkur í áætlunarflugi. Var það laust eftir hádegi, er vélin var kom- in suður að Miðfelli, að hún lenti í mjög snörpum misvindi og varð fyrir töluverðu hnjaski. I sama mund stöðvað- ist annar hreyfill vélarinnar, en flugmönnum tókst að ræsa hann aftur og ná vélinni út úr sviptivindinum eftir töluvert stfmabrak. Flugvélin lenti heilu og höldnu í Reykjavík, og var þá þegar hafizt handa um að skipta um hreyfil og grandskoða vélina. Ekki er fullvíst, að samband sé milli veðurhamsins og bilunar- innar í hreyflinum, en verið er að kanna það mál. Flug- stjóri f þessari ferð var Geir Gfslason. Viðlagasjóður selur Eyjahús

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.