Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
Tugir sovézkra
Gy ðinga teknir
vegna andófs
Moskvu, 4. marz.NTB.
HÓPUR sovézkra Gyðinga segir,
að sovézk lögregla hafi handtekið
70 Gyðinga vfðs vegar i Sovétrfkj-
unum i sfðustu viku ti) þess að
koma f veg fyrir mótmæli gegn
stefnu stjórnvalda gagnvart fólki,
sem vill flytjast úr landi.
Fólk var handtekið í Moskvu,
Kiev, Minsk, Vilnuis og fleiri
borgum.
Jafnframt hafa tveir baráttu-
menn Gyðinga hætt við 15 og 9
daga hungurverkfall, sem þeir
hófu til þess að mótmæla því, að
þeim var neitað um leyfi til þess
að flytjast úr landi.
Vestrænir diplomatar segja, að
Gyðingum, sem flytjast úr landi,
hafi fækkað um 20% fyrstu mán-
uði ársins miðað við sama tímabil
í fyrra, 35.000 Gyðingar fluttust
frá Sovétríkjunum í fyrra.
Gyðingar segja, að margir, sem
voru handteknir, hafi ekki vitað
umfyrirhuguð mótmæli.
Vestrænir blaðamenn tóku eftir
Framhald á bls. 31
A þessari mynd má sjá, hvernig brakið af tyrknesku DC-10 flugvélinni, sem fórst við Parfs á sunnudag
dreifðist um Ermenonvillskóginn fyrir norðan borgina.
Danmörk:
Kosið til sveitar-
stjórna og fylkisþinga
Mynd þessi var tekin f gærkveldi, er Edward Heath leiðtogi brezka íhaldsflokksins kom út úr
forsætisráðherrabdstaðnum f Downing-stræti 10 f London og tók síðustu kveðju lögregluvarðar þar
áður en hann fór akandi til Buckinghamhallar að biðjast lausnar.
Kaupmannahöfn, 4. marz, NTB.
A MORGUN, þriðjudag, verða
haldnar sveitarstjórnakosningar f
Danmörku. Munu þá 3.4 milljónir
danskra kjósenda velja 3.680 full-
trúa í bæja- og sveitarstjórnir á
275 stöðum. Jafnframt verða
kosnir 270 menn á 14 fylkisþing
landsins.
Úrslita þessara kosninga er
beðið með mikilli eftirvæntingu,
því að gera má ráð fyrir, að þau
setji sfn spor á meðferð mála á
danska þjóðþinginu. Sérstaka at-
hygli munu vekja kosningarnar
til fylkisþinganna og borgar-
stjórnarkosningarnar í Kaup-
mannahöfn og á Frederiksbergi.
Síðasta skoðanakönnun Gallup-
stofnunarinnar bendir til þess, að
úrslitin muni í meginatriðum
fylgja sömu linum og úrslit síð-
ustu þingkosninga; þó má merkja
vísbendingu um, að Framfara-
Heath sagði af sér í gærkveldi:
London, 4. marz, AP—NTB.
• I KVÖLD fór Elizabet II Eng-
landsdrottning þess á leit við Har-
old Wilson Leiðtoga Verka-
mannaflokksins brezka, að hann
reyndi að mynda stjórn. Skömmu
áður hafði Edward Heath for-
sætisráðherra beðizt lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt eftir rúm-
lega þriggja sólarhringa tilraunir
til að mynda samsteypustjórn
með Frjálslynda flokknum eða
minnihlutastjórn með stuðningi
hans.
• Heath átti ekki annarra kosta
völ en segja af sér eftir að Jeremy
Thorpe leiðtogi Frjálslynda
flokksins hafnaði síðasta tilboði
Heaths um stjórnarsamvinnu, en
þar gerði hann m.a. ráð fyrir að
Thorpe fengi eitt af helztu ráð-
herraembættunum og fleiri menn
úr flokki frjálslyndra yrðu teknir
með í stjórnina. Eftir langan
fund 14 manna þingflokks frjáls-
lyndra, þar sem Jeremy Thorpe
var einróma og með miklum fögn-
uði endurkjörinn formaður, va,r
ákveðið að hafna boði Heaths og
leggja til þess f stað, að mynduð
yrði þjóðstjórn þriggja stærstu
flokkanna, er reyndi f samein-
ingu að leysa þau margháttuðu
vandamál, sem að landinu steðja.
Heath hafnaði þeirri tillögu og
talið var óllklegt, að Wilson yrði
henni hlynntur. Þá höfðu 11 þing-
menn sambandssinna á N-Irlandi
tilkynnt Heath, að þeir ætluðu áð
starfa sem óháður hópur í neðri
málstof u brezka þingsins.
Klukkan hálfsjö að íslenzkum
tíma — ef tir 40 mínútna fund, þar
sem allir aðilar stjórnar Heaths
voru saman komnir, kom hann út
úr forsætisráðherrabústaðnum að
Downing-stræti 10, þar sem safn-
azt hafði saman hópur manna, er
kallaði „Út með Heath“.
Heath sté inn í bifreið, er flutti
hann til Buckinghamhallar, þar
sem Elizabet drottning beið og
tók við lausnarbeiðni hans. Sam-
kvæmt brezkri hefð fór hann ekki
aftur í Downing-stræti 10. Tæpri
klukkustund síðar kom Wilson
Framhald á bls. 31
flokkur Mogens Glistrups og Mið-
demókrataflokkur Erhards
Jakobsens séu heldur á undan-
haldi. I síðustu bæjarstjórna- og
fylkisþingakosningum í Dan-
mörku fengu gömlu flokkarnir
Iangflesta fulltrúa, en með til-
komu nýju flokkanna eru úrsiitin
ekki eins vís og oftast áður.
Kjörstaðir opna kl. 9 f. hádegi
að staðartima og verða opnir til
kl. 21.00 annað kvöld.
Wilson falin stiórnarmyndun
Nixon
sekur?
New York, 4. marz, AP —
NTB.
RANNSÖKN ARKVIÐDÓM-
UR, sem haft hefurmeð hönd-
um könnun Watergatemáls-
ins, hefur afhent dómaranum
John Sirica leynilega skýrslu,
þar sem komizt er að þeirri
niðurstöðu, að Richard Nixon
forseti Bandaríkjanna hafi
átt hlut að þvf að reyna að
koma f veg fyrir eðlilega
rannsókn Watergateinnbrots-
ins, að því er dagblaðið „The
New York Times “ sagði frá í
gær.
Hefur kviðdómurinn farið
þess á leit, að skýrslan verði
Framhald á bls. 31
Mesta flugslys sögunnar:
Skæruliðar grunaðir
París,4. marz.NTB. AP.
TYRKNESKA flugfélagið, er átti
flugvélina af gerðinni DC-10, sem
fórst rúmlega 35 km norður af
Parfs í gær með 346 mönnum,
hefur fengið upplýsingar um, að
fimm farþeganna hafi verið
skæruliðar, sem fóru um borð f
flugvélina á Orly-flugvelli. Þrfr
þeirra voru Japanir og tveir
Arabar.
Orsök flugslyssins getur hafa
verið sprenging frá mörgum
sprengjum, sem þessir hryðju-
verkamenn höfðu meðferðis.
Skemmdarverk er heldur ekki
útilokað, þar sem lik og brak úr
vélinni fundust allt að 15 km frá
slysstaðnum.
Blaðið France-Soir hermir, að
tvivegis hafi verið hringt í blaðið
og tilkynnt, að árás hefði verið
gerð á flugvélina að yfirlögðu
ráði. Sami maðurinn virtist
hringja í bæði skiptin, en ekkert
nafn var látið uppi. Maðurinn
kvaðst vera félagi í erlendri
„frelsisfylkingu“.
Samkvæmt góðum heimildum
ætluðu hugsanlegir hryðjuverka-
menn að láta til skarar skríða
gegn tveimur flugvélum British
Airways, en ferðum þeirra var
aflýst vegna verkfal'ls á Heat-
hrow-flugvelli. Um 200 brezkir
farþegar ætluðu til London með
British Airways, en fóru með
tyrknesku flugvélinni, sem kom
frá Istanbul vegna verkfallsins.
Fyrirhuguð árás gegn flugvél-
um British Airways er einnig sett
í samband við rán VC-10 þotu
félagsins er hún var á leið frá
Framhald á bls. 31