Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.03.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1974 Snúa ungir kjósendur baki við Willy Brandt? Hamborg, 4. marz, AP — NTB. ÍIRSLIT kosninganna, sem fram fóru f gær til fylkis- og borgar- þingsins f Hamborg, benda til minnkandi fylgis flokks sósial- demókrata undir forystu Willy Brandts kanslara. Flokkurinn missti meirihluta sinn á þinginu, hrapaði úr 55,3% atkvæða í sfð- ustu kosningum, árið 1970, f 44,9%. Ljóst er þó, að samsteypu- stjórn sósialdemókrata og frjálsra demókrata, fer áfram með völd í Hamborg, enda unnu hinir síðarnefndu á, úr 7.1% at- kvæða 1970 í 10.9% nú, — og höfðu auk þess lýst því yfir fyrir kosningarnar, að þeir hefðu ekki áhuga á samvinnu við kristilega demókrata. Kristiiegir unnu hins vegar mjög á, fengu 40.6% Útför Felix Jósafatssonar Mælifelli, 4. marz. Útför Felix Jósafatssonar kenn- ara frá Húsey var gerð frá Glaum- bæjarkirkju sl. laugardag að við- stöddu fjölmenni. Felix var 71 árs að aldri, Skagfirðingur í báðar ættir. Hann var kennari frá 1924 í Seiluhreppi, en sagði því starfi lausu fyrir fáum árum og kenndi eftir það í Grundarfirði, þar sem hann var m.a. skólastjóri einn vet- ur, en síðan á Sauðárkróki, bæði við skóla og heimakennslu. Felix var jafnframt bóndi í 24 ár, lengst í Húsey í Vallhólmi. Kona hans er Efemía Gísladóttir frá Halldórs- stöðum og varð þeim fimm barna auðið. Felix var frábærlega vin- sæll maður og virtur í starfi. Fréttaritari. Lýst eftir vitnum UM KL. 08 föstudagsmorguninn 2. febr. sl. varð maður fyrir bif- reið á Kleppsvegi, rétt við Dal- braut, og slasaðist allalvarlega. Umferðardeild rannsóknarlög- reglunnar í Reykjavík óskar nú að hafa tal af sjónarvottum að þessu slysi. Egyptar af- nema ferða- hömlur til USA Kairo, 4. marz AP. AFNUMÐAR hafa verið hömlur þær á ferðalögum fólks milli Bandaríkjanna og Egyptalands, sem settar voru af Egypta hálfu eftir sex daga striðið við ísrael í júní 1967. Verður nú numin brott úr vegabréfum Egypta setningin „Nema til Bandaríkjanna", sem þar hefur að jafnaði verið settinn frá því þessar hömlur gengu í gildi. Ákvörðun þessi fylgir í kjöl- far Þess að stjórnmálasamband hefur verið tekið upp að nýju landanna í milli. — Gyðinga handtökur Framhald af bls. 1 því, að nokkrir einkennis-og óein- kennisklæddir lögreglumenn voru við byggingu kommúnista- flokksins i Moskvu, þar sem mót- mælin áttu að fara fram á föstu- daginn. Þrír blaðamenn voru handteknir, er þeir neituðu að yfirgefa svæðið, en þeim var sleppt skömmu siðar. 16 kunnirGyðingar segja í opnu bréfi til vestrænna blaðamanna, að að minnsta kosti 500 lögreglu- menn hafi tekið þátt í aðgerð- unum til þess að koma í veg fyrir, að Gyðingar kæmust til aðal- stöðva flokksins. Vegfarendur voru handteknir ef þeir voru gyð- ingalegir í útliti og annaðhvort sendir á afvötnunarstöð lögregl- unnar eða næstu lögreglustöð, þar sem þeir voru i átta til tiu tíma. atkvæða, en höfðu 1970 fengið 32.8% atkvæða. Bórgarstjórinn í Hamborg, sósialdemókratinn Peter Schulz, sem er 43 ára að aldri, verður því áfram leiðtogi fylkisstjórnarinn- ar. Þetta voru fyrstu fylkiskosn- ingarnar í V-Þýzkalandi frá þvi sósialdemókratar og Willy Brandt unnu hinn mikla kosningasigur sinn 1972 og þær þykja gefa all- glögga vísbendingu um stöðu stjórnr Brandts í landinu. Skoðanakönnun, sem gerð var í dag, bendir til þess, að sósial- demókratar hafi sérstaklega farið halloka meðal ungra kjósenda, og það þykir býsna alvarlegt fyrir flokkinn, því að Brandt átti yfir- burðarsigur sinn í síðustu al- mennu kosningum ekki hvað sízt að þakka ungum kiósendum. — Norðursjávar- veiðar Framhald af bls. 3 borð í skipunum. Danir hins veg- ar og fleiri þjóðir mokuðu upp smásíld, sem færi til bræðslu. Kvað Þórður íslenzku nefndar- mennina mundu halda þvf á loft, að tekið yrði nú fyrir. smásfldar- veiðar, en í þess stað aðeins leyfð veiði á stórsíld, sem færi til mann- eldis. Þórður Ásgeirsson sagði, að ekki væri endanlega frá því geng- ið, hverjir mundu sækja þennan fund af Islands hálfu, en að öllum lfkindum yrðu það sömu menn og síðast: Auk hans sjálfs þeir Már Elísson, Þorsteinn Gíslason, Jakob Jakobsson, Kristján Ragnarsson, Sigurður Egilsson og Páll Guðmundsson. — Nixon Framhald af bls. 1 einnig send fulltrúadeild bandariska þingsins, þar sem nú er verið að rannsaka, hvort ástæða er til þess og grund- völlur, lögum samkvæmt, að stefna forsetanum fyrir ríkis- rétt. Rannsóknarkviðdómurinn, sem skipaður er 23 mönnum, hefur varið 20 mánuðum til rannsóknar málsins. I skýrsl- unni er, að sögn, einnig kom- izt að þeirri niðurstöðu, að sjö fyrrverandi aðstoðarmenn forsetans hafi líka átt hlut- deild að því að tefja fyrir rannsókninni. — England Framhald af bls. 1 akandi til Buckingham-hallar. Hann hafði áður tilkynnt, að ráð- herralisti sinn væri senn tilbúinn og er búizt við, að hann verði birtur í kvöld eða á morgun, en eftir sem áður á Wilson eftir að tryggja sér stuðning annarra flokka í neðri málstofunni, því að flokkur hans hefur ekki nema 301 þingsæti, en þarf að hafa stuðn- ing 318 þingmanna a.m.k. til að fá komið málumfram á þinginu. Talið að Heath ríki Heath, sem verið hefur í stjórnarforystu f 44 mánuði, fer frá með svipuðum hætti og Wilson árið 1970 eftir að hafa eins og hann orðið undir í glim- unni við vaxandi verðbólgu og misreiknað hug kjósenda, ma. vegna skoðanakannanna, sem bentu til þess, að flokkur hans stæði betur en Verkamanna- flokkurinn alveg eins cg kannanir bentu til þess 1970, að Verka- mannaf lokkurinn stæði betur en íhaldsflokkurinn. Talið er að Heath, sem nú er 57 ára að aldri, muni halda áfram um hríð sem leiðtogi Ihalds- flokksins, en stjórnmálafrétta- ritarar eru margir þeirrar skoð- unar, að hann neyðist til að láta einhverjum öðrum forystuna í hendur áður en langt um liður. • Eftir að urslit kosninganna lágu fyrir, var þegar talað um William Whitelaw sem hugsanlegan eftir- mann hans; Whitelaw hefur unnið sig mjög í álit innan flokks- ins með málamiðlunarstarfi sínu á N-lrlandi og er talinn líklegur til að halda einingu innan flokks- ins, þar sem hann er ekki eins afdráttarlaus og ósveigjanlegur og Heath., Forsendur Frjálslyndra Helztu forsendur Frjálslynda flokksins fyrir því að vilja mynda samsteypustjórn þriggja flokka voru annars vegar, að klofningur þjóðarinnar yrði litlu minni þó svo frjálslyndir tækju þátt í stjórnarsamvinnu við Ihalds- flokkinn og hins vegar, að þjóðin væri í brýnni þörf fyrir þjóð- stjórn nú, þar sem ástandið í efna- hagsmálunum væri svo alvarlegt, að um lausn þess yrði að ríkja eining helztu hlutaðeigandi aðila. Wilson beið sigurviss Að sögn fréttamanna var Wilson býsna sigurviss í gær, er hann kom tilLondon frá landsetri sinu „Great Missenden" vestan við London. Eitt af brezku blöðunum likti honum við Charles de Gaulle fyrrum forseta Frakklands, er hann beið eftir því að vera kvaddur til að taka við stjórnartaumum þar og kallaði landsetur Wilsons í því sambandi „Missenden Les Deux Eglises" Viðbrögð dagblaða voru og talin ýta undir vissu Wilsons um, að honum yrði falin stjórnarmynd- un, því að jafnvel Sunday Times sem sem hafði stutt áframhald- andi íhaldsstjórn, mælti með því, að Heath segði af sér, úr því sem komið væri. Öháða blaðið OBSERVER og stuðningsblöð íhaldsflokksins The Express og Daily Telegraph sögðu hins veg- ar, að Heath gerði rétt í því að reyna tilþrautar að sitja áfram. Wilson slyngur að halda jafnvægi Ljóst er, að Wilson mun þurfa á allri sinni kænsku að halda eigi honum að takast að gera stjórn sína starfhæfa, en bent er á, að hann þykir með slyngustu línu- dönsurum í brezkum stjórnmál- um. Er þess nú minnzt, er hann myndaði stjórn árið 1964 með aðeins 5 atkvæða meirihluta í neðri málstofunni og hélt henni gangandi i hálft annað ár áður en hann efndi til kosninga aftur og náði tryggum meirihluta. Hann hefur mikla reynslu i efnahags- málum, hlaut menntun sína í hag- fræði í Oxford og reynslu í þeim efnum í ýmsum ráðuneytum á árunum 1945—’47. Helztu við- fangsefni hans framundan eru ólgan innan iðnaðarins, almennt alvarlegt ástand í efnahagslíf inu og aðild Bretland að Efnahags- bandalagi Evrópu. Að því er segir í NTB-frétt í kvöld er talin ástæða til að ætla, að stjórn Wilsons muni fá stuðning frjálslyndra til að leysa verkfall kolanámaverka- manna og jafnvel til ýmissa al- mennra ráðstafana í efnahagslif- inu, en líklegt talið að hún muni mæta meiri erfiðleikum, þegar kemur að afstöðu Breta til EBE, hyggi hún á róttækar ráðstafanir i þeim efnum. — Flugslysið Framhald af bls. 1 Beirút til London. Ræningjar hennar kveiktu í henni áflugvell- inum í Amsterdam, en höfjðu áður leyft öllum farþegum að fara frá borði. Frönsk blöð gefa í skyn í dag, að um skemmdarverk hafi verið að ræða og tyrkneski samgöngumála- ráðherrann FerdaGuley, útilokar ekki þann möguleika. Hins vegar kvaðst hann engar upplýsingar hafa er bentu tilþess að skærulið- ar hefðu verið um borð. Tyrkneska flugvélin hafnaði í skóglendi og myndaði eins kiló metra langa braut í Ermville- skógi áður en hún nam staðar. Slysið varð 15 mínútum eftir flug- tak. I flugturninum á Orly þóttust menn heyra í vekjaraklukku í flugvélinni, samræður á tyrkn esku og hróp um borð skömmu áður en samband við hana rofn- aði. Flugritinn fannst, en er mikið skemmdur. Farþegarnir voru flestir brezk- ir, en meðal þeirra voru einnig Frakkar, Japanir og Tyrkir. Tólf manna áhöfn var í flugvélinni. Nákvæm rannsókn lögreglu- manna, slökkviliðsmanna og emb- ættismanna á slysstaðnum getur tekið eina viku. í Tyrklandi fluttu útvarp og sjónvarp aðeins sigilda tónlist, þegar fréttist um slysið, og skemmtistöðum var lokað. Þetta er mesta flugslys sög- unnar. Næstum því helmingi f leiri fórust en í þeim flugslysum, sem næst koma. Síðasta meiri- háttar flugslysið var, þegar Boeing 707 fórst með 176 mönn- um í Nígeríu 22. janúar 1973 og þriðja mesta flugslysið á síðari árum var þegar Iljushin 62 fórst við Moskvu 14. október 1972. 162 fórust, þegar japönsk Boeing 727 rakst á þotu yfir Japan í júlí 1971, 156 fórust með austur-þýzkri Iljushin við Austur- Berlín f ágúst 1972 og 155 fórust, þegar Convair 990 Coronada spænska flugfélagsins Spantax fórst í flugtaki í Santa Cruz i desember 1972. — Tungulax Framhald af bls. 3 sleppt beint úr húsinu út i læk í von um endurheimtu, en sá fiskur, sem til baka kemur, er fyrst og fremst notaður sem klakfiskur. I Eldvatn hafa nú verið sett nær 100 þús. gönguseiði, og er ræktunin þar byrjuð að bera árangur. 1971 veiddust þar 40 laxar, 1972 60 og á sl. ári 100.“ I Öxnalækjarstöðinni eru 88 eldisker og I húsinu er full- komnasti búnaður, sem völ er á. Verður í næsta mánuði sett upp mjög fullkomið sjálfvirkt fóð- urkerfi, þannig að lítinn mann- af la þarf við stöðina og er gert ráð fyrir, að tvær manneskjur annist daglega umsjón hennar, en framkvæmdastjóri félagsins er Guðmundur Hjaltason. Nú eru I stöðinni um 90 þús- und bleikjuseiði af Þingvalla- vatnsstofninum og auk þess um 20 þúsund laxaseiði. Guð mundur Hjaltason sagði, að þeir vonuðust til að geta sett fyrstu fiskana á markaðinn siðla á þessu ári. Er talið lík- legt, að verðið verði um 300 kr. á kg. Fyrirtækið hefur reist fóð- urframleiðslustöð á staðnum, þar sem framleitt er fóður, sem dr. Jónas Bjarnason gerði upp- skrift að og reynzt hefur mjög vel. Sér verksmiðja þessi flest- um eldisstöðvum landsins fyrir fóðri. Meðal gesta-við opnunina var Þór Guðjónsson veiðimála- stjóri, sem sagði í stuttu samtali við Mbl. um stöðina. „Hér er um að ræða þáttaskil í sögu fiskeldis á íslandi, sem ég fagna innilega. Hér er um stór- glæsilega stöð að ræða, sem ekkert gefur eftir þvi, sem bezt gerist á þessu sviði i heiminum. Við væntum mjög mikils af þessari stöð og vonum, að hún verði til að auka trú og áhuga manna á hinum miklu fiskeldis- og fiskræktarmöguleikum á Is- landi, sem ýmsir hafa verið vantrúaðir á. Éfe vil óska for- ráðamönnum Tungulax inni- lega til hamingju með þennan merka og glæsilega áfanga.“ Halldór Sigurðsson land- búnaðarráðherra flutti örstutt ávarp, þar sem hann lýsti ánægju sinni með opnun stöðv- arinnar og kvaðst vona, að hún yrði til að hvetja menn til frek- ari dáða á þessu sviði landbun- aðar. Aðstæður til fiskibúskapar að Öxnalæk eru hinar ákjósanleg- ustu og þá fyrst og fremst vatn- ið, sem er 12 gráða heitt lindar- vatn, sem raunar má hita meira með iblöndun heitara vatns. Segja má, að hér sé um að ræða fyrstu tilraunina á Islandi til eiginlegs fiskibúskapar og er vonandi, að sú tilraun beri góð- an árangur. -ihj. 31 —Er að rofa til? Framhald af bls. 30 Ung, en alvarleg rödd læknisins suðrí Keflavík hljómar enn fyrir eyrum mér sem englamúsík — mér finnst sem orð hans gætu verið fyrirboði þess að útskúfun islenzka drykkjumannsins kunni að vera að syngja sitt síðasta. Ég hefi þá trú, að ef íslenzkir frammámenn í félags- eða heil- brigðismálum fást til að taka máli verandi og verðandi ofdrykkju- manna, þá muni ekki lengi standa á aðgerðum yfirvalda til að bæta úr þeirri hörmung, sem sýndar- mennska okkar i ofdrykkju- varnarmálum Ieiðir yfir einstakl- inga, fjölskyldur og þjóðina f heild. Er réttlætanlegt að setja fótinn fyrir menn, þótt þeir af vangá eða rataskap hafi orðið menningarmenguninni að bráð? Er réttlætanlegt að sálarmyrða heilu unglingahópana með því að ætla þeim að skilja, að mann- vonzka eigi að vera uppistaðan í afstöðu þjóðarinnar til ástvina þeirra sem eiga bágt? Það er ekki verið að biðja um aleiguna þína, íslenzka þjóð, — Það er bara verið að biðja um eina afvötnunarstöð með 5—10 rúmum, nokkrum sturtuböðum, einni kerlaug og kjötsúpu og etv. svolitlum kæliskáp með ávaxta- safa einhversstaðar úti í horni. Afvötnunardvöl tekur þrjá til fimm daga (3-^5 daga). Ein af- vötnun með tilheyrandi félagsað- gerðum getur dugað mörgum manninum ævilangt. Spörkum ekki i fleiri. Steinar Guðmundsson. — Hækkanir Framhald af bls. 32 eða ópakkað, kostar nú 73 krónur hvert kg, en kostaði 61,30 krónur, hækkun er 19,08%. Fyrsta flokks mjólkurbúasmjör kostar nú 464 krónur hvert kg, kostaði 356 krón- ur, hækkun er 30,34%. Annars flokks mjólkurbúasmjör kostar nú 392 krónur, kostaði 290 krónur, hækkunin er 35,17%. 45% ostur kostar nú 376 krónur hvert kg, kostaði 262 krónur, hækkunin er 23,27 %. I sambandi við ofangreind verð má geta þess, að ríkissjóður niður- greiSr á hvern lítra mjólkur í hyrnum, fernum og plastumbuð- um 16,19 krónur, en það er 49,7% af smásöluverði mjólkurlitrans. Niðurgreiðsla á hvern rjómalítra er 41,07 krónur, en það er aðeins 15,6% af smásöluverði rjóma- litrans. Niðurgreiðsla á smjöri úr rikissjóði er á hvert kg 224,70 krónur og er það 48,4% af verði 1. flokks smjörs, en 57,3% af verði 2. flokks smjörs. Fyrsti verðflokkur kindakjöts hækkar yfirleitt um 22 eða 23%. Siípukjöt, frampartar og síður kosta nú 290 krónur hvert kg, en kostuðu 236 krónur, hækkunin er 22,89%. Súpukjöt —læri, hryggir og frampartar kosta nú 315 krónur, kostaði 256 krónur, hækkunin er 23,04%. Heil læri eða niðursöguð kosta nú 326 krónur hvert kg, en kostuðu 265 krónur, hækkunin er 23,02%. Hryggir, heilir og niðursagaðir, kosta nú 334 krónur, kostuðu 271 krónu, hækkunin er 23,24%. Kótelettur kosta nú 367 krónur hvert kg, kostuðu 298 krónur, hækkunin er 23,15%. Læri- sneiðar úr miðlæri kosta nú 406 krónur, kostuðu 329 krónur, hækkunin er 23,40%. Hangikjöts- læri kostar nú 425 krónur hvert kg, kostaði 348 krónur, hækkunin er 22,13 %. Framreiðsluráðið auglýsir ekki smásöluverð á nautakjöti, en heildsöluverð á 1. verðflokki (UNI H úrval) hefur hækkað allt að 18% og er verð hvers kg af kjöti af afturparti 400 krónur, en var 339 krónur áður. Smásöluverð á kartöflum f 5 kg pokum er nú 182 krónur pokinn, en hann kostaði áður 148 krónur. Er hér miðað við fyrsta verðflokk og er hækkunin þar 22,97%. I öðrum verðflokki er verðið nú 148 krónur, en var áður 119,50 krónur. Nemur hækkunin þar 23,84%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.