Morgunblaðið - 12.03.1974, Page 1

Morgunblaðið - 12.03.1974, Page 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 59. tbl. 61. árg. ÞRIÐJUDAGUR 12. IVIARZ 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pompidou á fund Rússa París, 11. marz. NTB. GEORGES Pompidou forseti fer flugleiðis til Svartahafsbæjarins Pitsunda á morgun til viðræðna við sovézka kommúnistaleiðtog- ann Leonid Brezhnev. Þetta er þriðji, óformlegi fund- ur leiðtoganna á einu ári. Þeir munu aðallega ræða friðsamlega sambúð, Miðausturlönd og horfur áauknum viðskiptum, samkvæmt heimiidum í París. Agreiningur Frakka og Banda- ríkjamanna getur haft áhrif á fundinn. Síðan Frakkar nánast eyðilögðu orkuráðstefnuna í Washington í febrúar hefur Bandaríkjamönnum gramizt, að Frökkum hefur tekizt að fá EBE Sovézkur höfundur gagnrýnir löndin til að ræða við olíulönd Araba án þátttöku Bandarikja- manna. Michel Jobert utanrikis- ráðherra, sem er með í förinni, hefur jafnvel gefið i skyn, að Frakkar heti lagzt gegn áfram- haldandi dvöl bandaríska herliðs- ins í Evrópu. Frakkar segja, að samskiptin við Rússa aukist, þrátt fyrir ágreining i nokkrum málum, sem snerta öryggi Evrópu. Pompidou er ekki sammála Brezhnev um^að öryggisráðstefnunni eigi að ljúka með fundi æðstu manna. Heimildirnar i Paris segja, að viðhorf Frakka og Rússa til deilu- málanna i Miðausturlöndum séu náskyld. Pompidou fær skýrslu frá Andrei Gromyko utanríkisráð- herra um ferð hans nýlega til Kaíró og Damaskus. Fjölskylda ferst 1 eldi Dublin ll.mars-NTB. TÍU börn og foreldrar þeirra fórust í dag er þau reyndu að komast út úr brennandi húsi sínu með því að brjóta tvöfalt gler í glugga. Eldurinn kom upp í morgun í húsi Howard- fjölskyldunnar í Dublin, og er fólkið reyndi þessa útgöngu- leið, varð sprenging svo að all- ir gluggar sundruðust. Móðir- in, sem var 37 ára að aldri, gekk með sitt 14. barn er hún lézt ásamt eigimnanni og tíu börnum sínum. 19 ára gömul dóttir hjónanna komst lifs af ásamt tveimur ungum bræðr- um sfnuin, en þau voru öll þrjú illa haldin af brunasárum á sjúkrahúsi. Fjölskyldan bjó í einu af úthverfum Dubiin, Dalkey. Börnin, sem létust. voru á aldrinum eins til átján ára. Er talið, að tvöfalda glerið hafi komið í veg fyrir, að fólk- inu tækist að koinast út um glugga. Nú hefur fyrrverandi handarískur ráðherra, John Mitchell, komið fyrir rétt f Washington. Hann og sex aðrir sakborningar, sem eru ákærðir fyrir að hindra rannsókn Watergate-innbrotsins, neituðu öllum sakargiftum. Sjá frétt á bls. 15. Golan-viðræður á næstu vikum Washington, 11. marz. AP. NTB. ÞÓTT olíuráðherrafundi Araba hafi verið frestað, gerir handa- ríska utanríkisráðuneytið ráð fyrir því, að viðræður um aðskiln- að herjanna í Golanhæðum hefjist f Washington á næstu tveimur vikum. Fyrsta skrefið verður fundur utanríkisráðherranna Henry Kissingers og Abba Eban á morg- un. Þeir ræða meðal annars hver eigi að verða formaður fsraelsku nefndarinnar, sem á að semja við Sýrlendinga með milligöngu Kissingers. Líklegt er, að það verði Moshe Dayan landvarna- ráðherra. Joseph J. Sisco aðstoðarutan- ríkisráðherra tjáði utanríkis- nefnd öldungadeildarinnar í dag, að ísraelsku fulltrúarnir mundu koma til Washington innan hálfs mánaðar. Hussein Jórdaníukonungur ræðir jafnframt við Nixon forseta á morgun og mun líklega fara fram á aukna hernaðaraðstoð. Hann vill einnig halda áfram við- ræðum, sem hann hefur átt við Kissinger um stórfelldan brott- flutning Israelsmanna i Jórdan- dal, en sagt er, að það verði að bíða þess, að lausn finnist á deil- unni um Golanhæðir. Frestun olíufundarins, sem Egyptar boðuðu til í því skyni að ræða afnám oliubannsins á Bandaríkin, er tekið með jafnaðargeði í Washington. Tals- maður utanrikisráðuneytisins Framhald á bls. 31 Viðbúnaður í Portúgal Lissabon, 11. marz. AP. NTB. VIÐBÚNAÐUR hefur verið fyrir- skipaður f heraflanum í Portúgal vegna agaerfiðleika og öll leyfi hermanna hafa verið afturkölluð að því er opinber talsmaður skýrði frá í dag. Hermönnum hefur veriðskipað að vera í búðum sínum síðan á laugardag og viðbúnaöurinn inun standa út vikuna samkvæmt góð- um heimildum. I Portúgal eru 45.000 hermenn, sjóliðar og flug- liðar. Ókyrrðin á rætur f óánægju með laun og hugsanlegar aðgerðir gegn vinsælum herforingja, An- tonio de Spinola, fyrrverandi landstjóra í Portúgölsku Guineu, að því er heimildirnar herma. Spinola er höfundur bókarinn- Framhald á bls. 31 Moskvu, 11. marz. NTB. SOVÉZKI rithöfundurinn Viktor Nekrasov gagnrýndi harðlega stefnuna í sovézkum menningar- málum í dag og kvað afleiðingu hennar þá, að beztu listamenn og rithöfundar landsins væru flæmdir í útlegð. Ilann telur, að sovézka öryggis- lögreglan hafi mótað stefnuna í inenningarmálunum. Nekrasov er 62ja ára gamall og hlaut Stal- ínsverðlaunin 1947. Svíum mótmælt Róm, 11. marz. AP. UM 50 íranskir stúdentar efndu til mótmælaaðgerða fyrir framan sænska sendiráðið i Róm f dag vegna þess, að íranskir stúdentar hafa verið handteknir í Stokk- hólmi. Þess var krafizt, að stúdentarn- ir yrðu látnir lausir. Stúdentarnir báru spjöld með formælingum í garð írönsku stjórnarinnar og sænsku lögreglunnar. Wilson reynir að fá baráttumál samþykkt Barber verður ekki í „skuggaráðuneytinu” London, 11. marz. AP EDWARD Ileath fyrrverandi for- sætisráðherra myndaði í dag „skuggaráðuneyti“ sitt, en nokkr- ir kunnir forystumenn fá þar eng- in sérstök verkefni. Þeirra á meðal eru Anthony Baiber fv. fjármálaráðherra, Hailsham lávarður fv. forseti lá- varðadeildarinnar og Sir Keith Joseph fv. félagsmálaráðherra. Orðrómuí er uppi um klofning í forystu Ihaldsflokksins. Barber baðst lausnar „af persónulegum ástæðum". Hann kvaðst lengi hafa haft i hyggju að draga sig i hlé. Framhald á bls. 31 London, 11. marz. NTB: AP. FIMM daga vinnuvika hófst aftur í Bretlandi f dag og Harold Wil- son lagði síðustu hönd á hásætis- ræðuna, sem Elísabet drottning flytur þegar nýkjörið þing kemur saman á morgun. Wilson mun leggja höfuðkapp á að fá sem flest baráttumál Verkamannaflokksins samþykkt án þess að stjórnin verði strax felld í Neðri máistofunni. Hann mun heita því að semja aftur um skilyrðin fyrir aðild Bretlands að Efnahagsbandalag- inu og afnema umdeild vinnu- málalög síðustu stjórnar, sem vöktu reiði verkalýðshreyfingar- innar og áttu þátt í falli stjórnar Edwards Heaths. Wilson leggur einnig áherzlu á matarpeninga, eftirlaunahækkan- ir, verðlagseftirlit og baráttu gegn húsnæðisbraski, enda er gert ráð fyrir því, að nýjar kosn- ingar verði ef til vill haldnar siðar á þessu ári. Stjórnmálasérfræðingar búast einnig við að Wilson muni heita Skotlandi og Wales aukinni sjálf- stjórn til þess að fá stuðning þjóð- ernissinna i Neðri málstofunni. Aftur á móti mun Wilson ekki leggja rika áherzlu á þjóðnýtingu mikilvægra greina iðnaðarins eins og vinstri armurinn í flokki hans krefst. Hann mun reyna hvort tveggja í senn, forð- ast ósigur í Neðri málstofunni og vinslit við vinstra arminn. Fulltrúi Frjálslynda flókksins, John Pardoe, sagði í gær að stjórn Wilsons yrði felld ef hún legði fram frumvörp um stórfellra þjóðnýtingu. Sennilegt er talið að margar vikur líði þar til kolafrantleiðslan komist i eðlilegt horf. Enn verður þriggja daga vika i sumum grein- um bílaiðnaðarins vegna skorts á vissum hlutum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.