Morgunblaðið - 12.03.1974, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.03.1974, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974 . ■>»•; f VS • . ' -v^'4^ «2á i J><’' '/*«ý%8f::í»SÍÉ!^í^2 . "• 'fjh Önnur myndin sýnir brúarstæðið, eftir að brúin fór. Hin sýnir brúna á grynningunum skammt frá bænum Hálsum. Brúin fór alveg EINS OG fram kom í Morgun blaðinu á sunnudag, brotnaði brúin á Andakflsá við Skorra- dalsvatn 7. febrúar síðast- liðinn. Á laugardagsmorgun fór brúin alveg úr stæði sínu óg barst niður með ánni og hafnaði á grynningum skammt frá bænum Hálsum, sem er 4 til 5 km fyrir neðan brúarstæðið. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. hefur fengið frá Davíð Péturssyni bo'nda á Grund og hreppsstjóra í Skorra- dalshreppi, eru íbúar hreppsins mjög óánægðir með frammi- stöðu Vegagerðar rikisins. 28. janúar hafði syðri brúarstólp- inn byrjað að gefa sig og var þá strax haft samband við Vega- gerðina í Borgarnesi. Frá henni komu menn, sem negldu fyrir brúna, en að svo búnu fóru vegagerðarmennirnir á brott. Þegar ekkert frekar gerðist hringdi Davíð aftur f Borgarnes og spurðist fyrir um framvindu mála. Var honum þá sagt, að málið hefði verið falið verk- fræðingi hjá Vegagerðinni og væri beðið fyrirmæla hans. Enn gerðist ekkert og bilaði brúar- stólpinn hélt enn áfram að skemmast og loks hinn 7. febrúar fór hann alveg og brúin brotnaði eins og myndirnar á sunnudaginn sýndu. Á laugardag fór brúin alveg af brúarstæðinu og barst niður með ánni. Davíð hringdi þá til vegamálastjóra, sem sagði, að „sennilega hefði aldrei kviknað á perunni hjá verkfræðingi Vegagerðarinnar“. Þá mótmæl- ir Davíð því eindregið, að ekki hafi verið unnt að gera við brúna, þegar syðri brúar- stöpullinn var að byrja að skemmast. Vatnavextir voru ekki þá svo miklir, að ekki hefði verið unnt að gera við brúna á einum degi. Síðar jukust vatnavextir og fór þá brúin alveg. 28 togaraskipstjórar mótmæla togveiðibanm TUTTUGU og átta togaraskip- stjórar hafa sent frá sér skeyti, þar sem þeir áfellast vinnubrögð sjávarútvegsráðuneytisins I frið- unarmáium og er tilefnið friðun á svæði úti af Víkurál. í fyrsta lagi mótmæla skipstjórarnir friðunar- svæðinu í Víkurálnum, í öðru lagi hvernig friðun þess bar að og í þriðja lagi, að lokað sé hefð- bundnum veiðisvæðum og þá einkum þar sem beztur fiskur er á þessu svæði á þessum tfma. Morgunblaðið ræddi í gær við Ingólf Stefánsson, formann Far- manna- og fiskimannasambands- ins, og sagði hann, að skipstjór- arnir hefðu sent ráðuneytinu nokkur skeyti áður, sem hann hefði borið i milli, og hefði hvorki hann né þeir haft erindi sem erfiði, en skipstjórarnir álíta, að eigi að gera ráðstafanir sem þess- ar, þá verði að ræða þær við þáeða samtök þeirra, svo að unnt sé að kynna það, sem til stendur, og þeir fái að gera sinar athugasemd- ir fyrirfram. Sagði Ingólfur, að 14 ÞJOÐIR ÞINGA UM SÍLDVEIÐAR TILRAUNIR eru nú gerðar á fundi Norðausturatlantshafsfisk- veiðinefndarinnar f London til þess að ná samkomulagi um tak- mörkun eða friðun síldarstofn- anna í Norðursjó. Þórður Ásgeirs- son, skrifstofustjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu er formaður sendinefndar tslands á fundinum og ræddi Mbl. við hann í gær og spurðist fyrir um fundinn. Þórð- ur sagði, að enn sem komið væri væru þátttakendur, sem eru 14 þjóðir, að kynna skoðanir sínar á málinu og enn hefði í raun ekkert fréttnæmt gerzt. Þörður sagði, að. mikið bæri á milli aðila. í raun væru um tvenns konar öfgar að ræða á fundinum. Þórður, sagði, að Is- lendingar héldu einkum á loft þeirri skoðun, að þeir veiddu nær eingöngu til manneldis og væru þeír tilbúnir til þess að skrifa undir samning, sem bannaði veið- ar á síld til bræðslu. Jafnframt benda íslendíngarnir á, að ef þeir hefðu einnig veitt bræðslufisk, hefði kvóti þeirra í heildarveið- inni orðið mun stærri en hann er í raun í dag og því yrði að taka tillit til þess, ef veiðar yrðu tak- markaðar. Þá vill ákveðinn hópur þjóða leggja til grundvallar við takmörkun veiða veiðar þjóðanna síðustu 10 til 15 ár, en svo langur tími er ekki frá því að íslendingat' hófu veiðar i Norðursjó. sér fyndist eðlilegt, að skipstjór- arnir yrðu spurðir að því, hvað ætti að friða og hvar loka svæðum fyrir veiðum f stað þess að láta einhverja þingmenn ráða þvf, sem kannski gætu verið jafnmis- vitrir og aðrir landsmenn í þess- um málum. Skeyti hinna 28 skipstjóra hljóðar svo: „Við undirritaðir togaraskip- stjórar mótmælum harðlega lok- un hefðbundinna togveiðisvæða svo sem línu- og netasvæði því, sem lokað er í Víkurál, en enginn línu- eða netabátur notar það svæði. Þar er nú mikil fiskigengd í veiðanlegu ástandi og krefjumst við, að svæðið verði opnað tafar- laust.Einnig mótmælum við harð- lega þeim vinnubrögðum, sem viðhöfð eru, þegar svæðum er lok- að fyrirvaralaust og án tilefnis með einni útvarpsauglýsingu og menn verða sjálfir að afla sér upplýsinga um staðsetningu og dagsetningu slíkra svæða. Af- biðjum við slík vinnubrögð fram- vegis.“ Guðmundur RE aflahæstur á loðnu SAMKVÆMT skýrslu Fiskifélags íslands var vitað um, að 136 skip höfðu fengið einhvern afla s.l. laugardagskvöld og nam vikuafl- inn samtals 18.877 lestum. Heild- araflinn frá vertíðarbyrjun var þá samtals 358.883 lestir, en var á sama tíma í fyrra 282.621 lest en þá hafði 91 skip fengið afla. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að fá uppgefinn afla frá Breiðdalsvík, Rifi og Patreks- firði, en nokkru magni mun hafa verið landað þar. Aflahæsta skipið er Guðmund- ur RE, skipstjórinn nú er Páll Guðmundsson. No. 1 Guðmundur RE 10.978 1 No. 2 Börkur NK 10.366 1 No. 3 Eldborg GK 8.3611 No. 4 Gísli Árni RE 8.2961 Á laugardagskvöld höfðu 98 skip fengið 1000 lestir eða meira (sjá mf. skýrslu) og loðnu verið landað á 26 höfnum og birtist hér listi yfir þær. Lísti yfir Iöndunarhafnir: 1. Vopnafjörður 16.207 2. Seyðisfjörður 34.063 3. Neskaupstaður 30.486 4. Eskifjörður 18.941 5. Reyðarfjörður 12.167 6. Fáskrúðsfjörður 8.668 7. Stöðvarfjörður 9.256 8. Breiðdalsvík 4.681 9. Djúpivogur 8.081 10. Höfn, Hornafirði 15.713 11. Vestmannaeyjar 62.568 12. Þorlákshöfn 15.376 13. Grindavík 21.075 14. Sandgerði 10.954 15. Keflavík 14.344 16. Hafnarfjörður 8.476 17. Reykjavík 24.928 18. Akranes 19.063 Framhald á bls. 31 Vigri verður frá veið- um fram í ágústmánuð KOMIÐ hefur í Ijós alvarleg bil- un í (iðrum af tveimur nýsmfðuð- um skuttogurum Ögurvfkur h.f. Gir togarans Vigra bilaði fyrir rúmum mánuði og er togarinn farinn til Þýzkalands, þar sem gírinn verður endursmíðaður en Pólverjar, sem smfðuðu togarann, smíðuðu einnig gírinn með leyfi vestur-þýzks fyrirtækis, sem hannað hefur hann og aðsetur hefur í Augsburg. Gísli Jón Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Ögurvíkur h.f., sagði, að búizt væri við því, að viðgerð lyki i ágústmánuði næst- komandi, en þegar er hafin smíði á tannhjólunum, sem eru f gírn- um(í Augsburg. Sagðist Gísli Jón vonast til þess, að verksmiðjan færi eitthvað fram úr áætlun með endursmfð gírkassans, svo að tog- arinn kæmist á veiðar fyrr en ætlað er. Augsburg-verksmiðjan hefur lofað togaranum til baka 15. ágúst. Til þess að togarinn kæmist ut- an, varð að taka öll tannhjól úr honum hér heima, nema tvö og eru það drifhjólin á skrúfuna. I gírkassanum eru samtals 9 hjól og er hið stærsta 2,7 tonn að þyngd. r Utvarpsdagskrá um Þórberg í KVÖLD verður útvarpsdagskrá um Þórberg Þórðarson 85 ára. Þar verða: Viðtöl við Þórberg, þar sem hann segir frá ýmsu um ævi sína og lífsviðhorf, Steinþór bróður hans og stundum er tveggja manna tal milli bræðranna. Margrét talar um fyrstu kynni þeirra hjónanna og ýmislegt fleira. Leikarar flytja samlestur úr bókum Þdrbergs í umsjá Baldvins Halldörssonar. Sverrir Kristjánsson sagnfræð- ingur mun einnig flytja f þættin- um erindi um Þórberg og ritferil hans. Enn ekki vitað um dánar- orsök mannsins, sem fannst látinn við Hafravatn ENN hefur rannsókn ekki leitt f Ijós dánarorsök 46 ára gamals manns, sem fannst látinn síðdegis á laugardag við sumarbústað við Hafravatn. Maðurinn hér Oli Anton Þórarinsson, til heimilis að Rauðarárstfg 20 í Reykjavík. Hann var einhleypur ogöryrki. Lík Óla fannst vegna ábending- Undanfarið hafa verið hér í heimsókn hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna 10 japanskir framleiðendur og seljendur loðnu. Þeir hafa skoðað hraðfrystihús og átt viðræður við forráðamenn S.H. Myndin var tekin við það tækifæri. Japanirnir heita Minoru Nishihira, Toshio Yamada, Kazuyoshi Yamauchi, Shozo Hanada, Hirokazu Sasahara, Nobuo Honda, Kiyohito Toyoda, Hisayuki, Ichikawa, Yusuke Itoh, og K. Nemura. ar tveggja bræðra í Mosfellssveit, sem átt höfðu leið um veginn við Hafravatn. Höfðu þeir á ferð sinni á laugardagsmorguninn séð þar jakka og úlpu, en ekki skeytt því neitt frekar og haldið áfram sína leið. Er þeir komu til baka á fjórða tímanum síðdegis, sáu þeir úlpuna og jakkann enn á sama stað. Tóku þeir flfkurnar og fóru með til lögreglunnar, sem lét þá hefja leit á svæðinu. Fannst lfk Óla Antons um kl. 16:45. Síðast var vitað um ferðir hans kl. 21:30 á föstudagskvöldið, er hann fór frá heimili systur sinnar og kvaðst ætla niður í bæ. Öli Anton var bæklaður eftir tvö alvarleg slys, sem hann hafði lent f fyrr á árum, bílslys og slys á sjó. Er því talið ólíklegt, að hann hafi farið að ganga upp að Hafravatni, en hins vegar hefur ekki hafzt upp á neinum þeim, sem hefur ekið honum þangað uppeftir eða eitthvað áleiðis. Ekki voru á líkinu áverkar, sem bentu til þess, að hann hefði orðið fyrir árás. I vösum yfirhafna hans voru skilrfki og tvær bankabæk- ur, önnur innstæðulaus, en hin með 745 þús. kr. innstæðu. Eins og fyrr sagði hefur rann- sókn ekki leitt í ljós dánarorsök Óla Antons, en i gær stóð til, að líkið yrði krufið fyrir hádegi i dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.