Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974 5 Sinfóníutónleikar Stjórnandi: Páll P. Pálsson. Einleikari: Laszlo Simon. Há ndel — Vatnasvítan Bartok — Píanókonsert nr. 3. Páll Pálsson — Diologe. Strauss — Till Eulen- spiegel. Efnisskrá þessara tónleika er eins og sögulegt yfirlit þróunar í tónsmfði, en þó stiklað á stóru. Um 1750, eða skömmu fyrir dauða HSndels, koma fram nýjar hug- myndir á hljóðfæraskipan hljóm- sveitarinnar, sem olli straum- hvörfum í tónsmíði og varð þess valdandi að eldri tónverk voru ekki lengur talin hæf eða hentug verkefni. Að hæfilegum tima liðnum er farið að huga að eldri tónsmíðum og með miklum krafti er hver stórsnillingurinn upp- götvaður og verk þeirra flutt, eftir að uppfinningamennirnir höfðu endurritað verkin til sam- ræmis ríkjandi smekk. Og enn líður tíminn. Þá kemur i ljós að í mörgum tilfellum hafa tónverk þessara vesalings tónskálda verið svo hart leikin, að upp risu menn sem fundu hjá sér hvöt til að flytja verkin í upprunalegri gerð. I dag eru raftöflumeistarar Takmarkanir á sölu getn- aðarverja ARGENTÍNSKA stjórnin hefur kunngert, að hún hafi hert á eftirliti með sölu á hvers konar getnaðar- verjum. Juan Peron forseti hefur hvað eftir annað lýst því yfir, að hann sé mjög óánægður með fólksfæðina i landinu — miðað við stærð þess. Argentína er á stærð við Vestur-Evrópu, en þar eru aðeins 25 milljónir íbúa. Vill Peron auka þessa tölu að miklum mun fyrir árið 2000. Fram að þessu hefur sala á getnaðarverjum, þar á meðal pillunni, verið frjáls, en nú verður að leggja fram læknisvottorð í hvorki meira né minna en þremur ein- tökum til að fá aðgang að getnaðarverjum. með svokallaða „múg sintisæsera“ að rafsjóða niður þessi verk, væntanlega til yndis róbottum framtíðarinnar og hinir og aðrir da-ba-da-ba-dabb kórar og popparar þykjast lifa fyrir þá hugsjón að endurskapa verk þessara varnarlausu fórnarlamba, til samræmis ríkjandi smekk. Hvað skal gera? Eigum við að æpa Halelújakórinn, svo villimaður- inn í okkur fá'i útrás, magna upp sveifluna í Vatnasvítunni, af því að það eru svo hollt að svitna, skella þessu öllu saman í einn æðisgenginn mengunarballett og sprengja svo allt í loft upp? Ja, það væri réttast. Þrátt fyrir allar breytingar á smekk er það inni- hald verkanna, sem gefur þeim gildi og þá vaknar sú spurning hvort smiðir slíkra hugverka séu réttindalausar skepnur og hver sem er hafi full yfirráð verka þeirra, sjálfum sér til frægðar og ábata. Má vera að sir Hamilton Harty hafi unnið glæsilegt afrek e- hann raddsetti verk Handels, en erum við þá að hlusta á Hándel eða Harty? Að vísu verður ekki hægt að færa okkur til í tfma, en má ekki láta þessi vesalings tón skáld njóta sannmælis og flytja verk þeirra eins nærri uppruna- legri gerð og kostur er? Fróðlegt væri að heyra frumgerð Handels af Vatnasvítunni, sem hann samdi fyrir blásara. Flutningur hljómsveitarinnar á Vatnasvítunni var þokkalegur, en helzt til bragðdaufur. Það er eins og hljómsveitin sé oft ekki á verði, hvað snertir tóngæði og blæbrigði. Andstæður og söngrænar linur verksins voru ekki nógu skýrt mótaðar og meðferð öll frekar linkuleg. Laszlo Simon er góður píanisti enda lék hann sér að þriðja píanókonsert Bela Bart- oks. Bartok telst til þeirra tón- skálda, sem brjótast undan oki rómantískrar tónlistar. Tónmál hans er mótað af nýjum hug- myndum varðandi samhljóm an, tóntegundaleg tengsl tónanna og lag-oghryngerðBalk anskra þjóðlaga. Þriðja verk- ið á efnisskránni var Diologe eftir stjórnandann. Verkið er gamansamt og fjallar um and- stæður eins og stríð og frið, sorg og gleði. Samleikurinn hefst í vin- semd, en síðan taka hljóðfærin að rífast, þar til slagverksmaður sussar á þá. Rifrildið og hróp hljóðfæraleikaranna voru ekki nægilega vel útfærð. Slíkur flutn- ingsmáti, sem hér um ræðir, er fremur fátíður á tónleikuin sin- Tönlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON fóníuhljómsveita og þess vegna skíljanlegt að hljóðfæraleikararn- ir væru fremur vandræðalegir í þessu nýja hlutverki sínu. í heild er verkið þægilegt, einfalt í formi og gamansamt. Tónmál Páls P. Pálssonar er mál þeirrar kynslóð- ar, sem útrýmt hefur hefðbundn- um tengslum tóna, hljóðfalls og hljóma og býr í óbundnum en jafn raunverulegum hljóð- heimi nýstárleikans. Einn þeirra manna er reyndi að breikka túlk- unarsvið tónlistar, var Richard Strauss. Framlag hans var þó frekar fólgið í hljóðfæratæknileg- um nýjungum en endursköpun tónmálsins. Sem hljómsveitarút- setjari var hann ókrýndur kon- ungur tónskálda aldamótanna. Till Eulenspigel er mjög erfitt verk, en hljómsveit og stjórnandi stóðu sig með prýði og var flutn- ingur verksins mjög ánægjulegur. Víða vantaði þó aðeins herzlu- muninn hljóðfallslega stundvísi og öruggt tóntak. Má vera að hljómsveitin gjaldi fyrir það, hve vel þekkt þetta verk er í glæsi- uppfærslum erlendra stórhljóm- sveita, en þrátt fyrir það, var verkinu vel tekið og stjórnanda og hljómsveit fagnað innilega. FERÐA- FREISTINGAR wm m m úrvalsferöir til 1974MaDorca Þægilegt þotuflug með þotu frá Flugfélagi íslands,beint til Palma. í ferðum þessum eru á boðstólnum hótel og íbúðir auk venjulegra ferða um eyjuna t.d. Drekahellana, Valdemosa, Næturklúbbaferð og Grísaveizla. Hotel Bahamas Mjög gott 1 stjörnu hótel, austast Arenal a Arenal (ca. 12 km. frá Palma. Öll herbergi eru með sturtu og svölum. Sundlaug er við hótelið. — Fullt fæði. Hotel Aya 3 stjörnu hótel (10 km. fyrir aust- Arenal an Palma). Hótelið er viðurkennt sem gott 3 stjörnu hótel. Dansað er þrisvar i viku á hótelinu. Öll herbergi hafa bað og svalir. Sund- laug er við hótelið. — Fullt fæði. Hotel Playa Marina llletas 3 stjörnu hótel (5 km. fyrir vestan Palma). Hótelið er staðsett í hinu mjög svo rómaða þorpi llletas. sem þekkt er fyrir fegurð og kyrrð. Gestir hótelsins dvelja aðallega á veröndum umhverfis sundlaug hótelsins. Dansað er á hótelinu þrisvar i viku. Svalir og bað með hverju herbergi. í hótelinu eru mjög skemmtilegar setustofur. Úrvalsfarþegar hafa dvalið á hótelinu frá opnun þess 1971. — Fullt fæði. Las Palomas Nýtt stórt ibúðahús, staðsett fyrir Palrna Nova miðju hinnar vinsælu strandar Palma Nova (16 km. fyrir vestan Palma). Litlar ibúðir með eldhúsi, baði auk sameiginlegs svefn- herbergis með setukrók (20 fm ). Svalir visa allar út að ströndinni. Sundlaug og veitingastaður eru við húsið. Niður að ströndinni eru aðeins 50 metrar. — Án f æðis. Maria Elena I & II Magaluf Hús þessi eru bæði staðsett rétt við ströndina i Magaluf (18 km. fyrir vestan Paima). fbúðirnar eru mjög vistlegar. Þær hafa tvö svefnherbergi. setustofu, eldhús, bað og svalir. Sundlaug fyrir gesti er við húsin. Án fæðis. 5/4—15—4 11 dagar 15/4— 3/5 19 — 3/5—17/5 15 — 17/5— 7/6 22 — 7/6—21/615 — 21/6—12/722 — 12/7— 2/8 22 — 26/7— 9/815 — 2/8—16/815 — 9/8—30/8 22dagar 16/8— 6/9 22 — 30/8—13/9 15 — 6/9—20/9 15 — 13/9—4/1022 — 20/9—11/1022 — 4/10—18/1015 — 11/10—31/10 21 — VERÐLISTI FYRIR MALLORCA 1974 5/4 — 15/4 1 5/4—3/5 3/5—17/5 1 7/5—7/6 7/6 — 21/6 21/6—12/7 26/7— 9/8 9/8—30/8 1 /10—31 4/10—18/10 20/9 — 1 1/10 12/7— 2/8 2/8—6/8 16/8— 6 9 30/8 — 13/9 13/9_4/10 6/9 — 20/9 1 1 dagar 1 9 dagar 1 5 dagar 22 dagar 1 5 dagar 22 dagar 15 dagar 22 dagar 21 dagur HOTEL BAHAMAS 22.500,— 23.500,— 23.100,— 29.380,— 24.560,— 30 680 — 26.860.— 31 680— 24 950,— HOTEL AYA 26.050,— 28.200,— 26.700,— 37.550,— 30 600 — 39.050,— 33.400,— 40 250 — 31 500— HOTEL PLAYA MARINA 29.050,— 32.980,— 30.450,— 43 280 — 34.450,— 44 880 — 37 200 — 46 100 — 36 800 — ÍBUÐ LAS PALOMAS 24.150,— 23.000,— 25.000 — 29.400,— 25.200,— 32.200,— 30 360 — 35 300 — 25 800 — ÍBÚÐ 24.150,— 23.000,— 25.000,— 29.400,— 25.200,— 32 200,— 30 360 — 35 300 — 25 800 — MARIA ELENAipn* 24 100,— 21.100,— 22.000,— 27.100,— 23 950 — 29 550 — 28 550 — 32.750 — 23 950 — Leitið upplýsinga á skrifstofunni um sérstakan barnaafslátt i ibúðum. Öll verð eru háð gengisbreytingum og hækkun eða lækkun oliuverðs. 5/4 —15/4 11 dagar verðfrá kr. 22.500,—, (Páskar) 15/4 — 3/5 19 dagar verðfrá kr. 20.100,— 3/5 —17/5 1 5 dagar verð frá kr. 20.700,— 17/5 — 7/6 22 dagar verð frá kr. 27.100,-— 7/6 —21/6 1 5 dagar verð frá kr. 23.950,— 21 /6 —12/7 22 dagar verð frá kr. 29.550,— 12/7 — 2/8 22 dagar verð frá kr. 29.550,— 26/7 — 9/8 15 dagar verð frá kr. 28.550,— 2/8 —16/8 1 5 dagar verð frá kr. 28.550,— 9/8 —30/8 16/8 — 6/9 30/8 —13/9 6/9 — 20/9 13/9 — 4/10 20/9 —11/10 4/10—18/10 11/10—31/10 22 dagar 22 dagar 1 5 dagar 15 dagar 22 dagar 22 dagar 1 5 dagar 21 dagur verð frá kr. 32.750, verð frá kr. 32.750. verð frá kr. 28.550. verð frá kr. 28.550, verð frá kr. 32.750, verð frá kr. 27.100, verð frá kr. 20.700, verð frá kr. 23.950, FERDASKRIFSTOFAN URVALÆJjP Eimskipafélagshúsinu.simi 26900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.