Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.03.1974, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974 Guðlaugur Gíslason: Ríkissjóður má ekki hagnast af eldgosinu ALLMIKLAR umræSur urSu í neðri deild í gær um frumvarp um breytingu á lögum um neyðar- ráðstafanir vegna jarðeldanna f Heimaey, sem felur í sér, að að- flutningsgjöld og söluskattur af Viðlagasjóðshúsunum skuli renna til Viðlagasjóðs, en eins og kunnugt er, hyggst ríkisstjórnin verja þessum tekjum til hafnar- gerðar í Þorlákshöfn og Grinda- vík. Svo virðist sem frumvarpið verði samþykkt, þar sem skilja mátti á ræðu sem Garðar Sigurðs- son (Ab) flutti, að hann myndi samþykkja frumvarpið. Yrði þá væntanlega 21 þingmaður f deild- inni með málinu (stjórnarand- staðan og Garðar) en 19 þing- menn stjórnarinnar á móti. Flutningsmenn þessa frum- varps eru Guðlaugur Gfslason (S), Gylfi Þ. Gíslason (A),Bjarni Guðnason (Ff) og Ingólfur Jóns- son (S). Greinargerðin með frumvarp- inu hljóðar svo: „Hin innfluttu hús á vegum Viðlagasjóðs eru keypt fyrir hið rausnarlega frámlag Norðurland- anna til endurreisnar byggð í Vestmannaeyjum, eftir að nátt- úruhamförunum þar er lokið. Fullvíst má telja, að enginn ráða- maður Norðurlandaþjóðanna, sem máli þessu lagði lið, hafi látið sér koma til hugar, að allveruleg- ur hluti af framlaginu yrði látinn renna sem tolltekjur eða sölu- skattur til almennra þarfa ríkis- sjóðs íslands, sem þá beinlínis hagnaðist fjárhagslega á eldgos- inu í Eyjum, þar sem hér er um óvæntar tekjur að ræða, sem áætl- að er, að nemi um 477 millj. kr.‘‘ Guðlaugur Gíslason mælti fyrir frumvarpinu og rakti nokkuð gang málsins fram að þessu. Þeg- ar málið hefði fyrst komið til kasta stjórnar Viðlagasjóðs, hefði hann sjálfur og fleiri ekki talið koma til greina að innheimta tolla og söluskatt af Viðlagasjóðshús- unum. Aðrir hefðu viljað, að þessi gjöld yrðu innheimt og látin renna í Viðlagasjóð. Þá hefði eng- um komið í hug, að gjöldin yrðu látin renna í ríkissjóð, sem þannig hagnaðist á eldgosinu í Vest- mannaeyjum. Slík áform ríkis- stjórnarinnar væru ekki sæm- andi. Það væri engan veginn hægt að segja, að hafnarbætur í Grindavík og Þorlákshöfn gætu eins og á stæði talizt aðstoð við Vestmannaeyjar, sem nú væri hæsta löndunarstöðin á loðnuver- tíðinni. Halldór E. Sigurðsson fjármála- ráðherra sagði, að nefnd hefði verið skipuð á siðasta vetri til að gera tillögur til úrbóta í hafnar- málum Vestmannaeyinga, en f þeim hefðu skapazt mikil vand- kvæði við eldgosið. Hefði nefndin bent á Þorlákshöfn og Grindavík og lagt til, að þar yrðu gerðar hafnarbætur. Á þessu nefndar- áliti hefði rikisstjórnin byggt er hún ákvað að taka lán hjá Al- þjóðabankanum til þessara hafn- arbóta. Mótframlag íslenzka ríkis- ins hefði þurft til að koma og hefði verið ákveðið að verja toll- tekjunum til að standa undir því. Ef nú yrði ákveðið að ráðstafa þessu fé f annað, myndi ekkert frekar verða úr þessum fram- kvæmdum í Grindavík og Þor- lákshöfn. Gylfi Þ. Gíslason benti á, að ríkisstjórnin hefði viljað fram- lengja 2% söluskattstig í Viðlaga- sjóð. Þessu hefði stjórnarand- stæðan og Bjarni Guðnason verið andvíg og þvf hefði orðið sam- komulag um að framlengja aðeins 1 stig, þar sem óvissa hefði verið um fjárþörf sjóðsins. Annað hvort hefði verið rangt hjá ríkisstjórn- inni, að sjóðurinn hefði þurft framlenginu á 2 stigum, eða sam- þykkja bæri þetta frumvarp. Tolla- og söluskattstekjurnar ættu að ganga til beinnar upp- byggingar í Vestmannaeyjum. Gylfi sagði, að Alþýðuflokkur inn styddi frumvarpið. Það gerðu einnig Sjálfstæðisflokkurinn og Bjarni Guðnason. Því væru örlög þess komin undir þvi, hvað ein- stakir stjórnarþingmenn gerðu í málinu. Einkum yrði fróðlegt að sjá hvað þingmenn stjórnarflokk- anna úr Suðurlandskjördæmi myndu gera — hvort tryggð þeirra væri meiri við Vestmann- eyinga eða villur fjármálaráð- herrans. Ingólfur Jónsson sagði, að eng- inn ágreiningur væri um, að hald- ið yrði áfram með hafnarfram- kvæmdir í Grindavík og Þorláks- höfn. Spurningin stæði um, hvort þessar framkvæmdir ætti að fjár- magna af gospeningunum eða ekki. Þingmenn þyrftu að snúa ráðherra frá þeirri villu að ætla að nota fé Vestmannaeyinga til þessara hafna. Það væri varla í alvöru sagt hjá ráðherra, að hætta ætti við þessar hafnarframkvæmdir ef ekki feng- ist fé til þeirra frá Vestmannaey- ingum. Gæti hann ekki boðið þingmönnum upp á, að ríkis- stjórnin gæti ekki útgegað 100 milljónir í innlendum peningum til þeirra. Kvaðst þingmaðurinn hafa heyrt frá mætum mönnum í Grindavik, að þeir vildu ekki þetta fé frá Vestmannaeyingum til hafnarinnar hjá sér. Það yrði eftir því tekið hjá vin- um okkar á Norðurlöndum, hvort við tækjum tolla og söluskatt af húsunum í ríkissjóð, því í ríkis- sjóð færi féð, þó að það gengi til hafnarbygginga. Garðar Sigurðsson kvað ráð- herra hafa sagt, að framkvæmdir uppi á landi byggðust á því, að tolltekjurnar rynnu til þeirra. Hvað hefði hann gert, ef stjórn Viðlagasjóðs vantaði tekjur og sama væri, að Viðlagasjóð vantaði tekjur og sama væri, hvaðan þær kæmu, hvort það yrði tolltekjur af húsunum eða eitt söluskattstig. Ef féð ætti ekki að koma með þessum tolltekjum, yrði ríkis- stjórnin að lýsa yfir, hvaðan það ætti að koma. Jón Skaftason (F) taldi for- sendur frumvarpsins rangar. Ekki ætti að skerða framlög Norð- urlanda. Tolltekjur, þegar ætti að selja húsin hér innanlands, væri allt annar hlutur. Guðlaugur Gíslason sagði framlag Norðurlanda hafa numið um 1530 milljónum. Af þeirri fjárhæð hefðu verið notaðar um 1000 milljónir til að kaupa húsin. Eftir voru þá um 500 milljónir, sem væri sú upphæð, sem inn- heimta ætti af Viðlagasjóði í tolla og söluskatt. Það mætti ekki henda, að ríkissjóður hagnaðist á eldgosinu. Um þetta deildu þeir lítillega í viðbót Jón og Guðlaugur, en síðan var umræðu Iýst lokið, atkvæða- greiðslu frestað og málið tekið út af dagskrá. Þingfréttir í stuttu máli I gær komu til fyrstu umræðu í neðri deild frumvörpin um skattalega meðferð verðbréfa og ríkisreikninginn 1971. Hafa bæði þessi frumvörp verið afgreidd frá efri deild og mælti Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra fyr- ir þeim í gær. Var þeim visað til 2. umræðu. Þá var frumvarp um breytingu á lögum um veiðar í landhelgi afgreitt í gegnum 2. og 3. umræðu i neðri deild með afbrigðum. Var það síðan tekið til fyrstu umræðu í efri deild og afgreitt til 2. um- ræðu. í efri deild var frumvarp um breytingu á lögum um orlof til 1. umræðu og tóku Helgi F. Seijan (Ab) og Björn Jónsson félags- málaráðherra til máls. Er frum- varp þetta komið frá neðri deild. Frumvarp til jarðalaga var til framhalds 2. umræðu í deildinni og mælti Steinþór Gestsson (S) fyrir nefndaráliti minnihlutans, en hann skipa fulltrúar Sjálfstæð- isfiokksins og Alþýðuflokksins í nefndinni. Verður sagt nánar frá ræðu Steinþórs í blaðinu síðar. Einnig kom til framhalds 2. um- ræðu stjórnarfrumvarp um breyt- ingu á lögum um kosningar til Alþingis.Tók Einar Ágústsson til máls. MÞinCI Stjórnarfrumvarp: Lántökuheimildír erlendis Ragnhildur Helgadóttir og fleiri: Byggt verði íþrótta- hús fyrir nema M.H. Til meðferðar er nú á Alþingi stjórnarfrumvarp til laga um lán- tökuheimildir erlendis. Gerir það ráð fyrir að fjármálaráðherra sé heimilt að taka erlent lán fyrir hönd ríkissjóðs að jafnvirði alit að 494 millj. kr. sem verja skal sem hér segir: a) Tii fram- kvæmda í raforkumálum 149 millj. kr. b) til orkurannsókna 127 millj. kr. e) til flutningslfnu raforku um Suður- Vestur og Norðurland 100 millj. kr. d) til Laxárvirkjunar 100 millj. kr. e) til landshafna 18 millj. kr. Þá segir í annarri grein frum- varpsins, að heimilt sé að ábyrgj- ast tækjakaupalán vegna Raf- magnsveitna rikisins að jafnvirði allt að 90 millj. kr. vegna kaupa á þrýstivatnspípu og vélbunaði til Mjólkárvirkjunar. I greinargerð með frumvarpinu segir m.a.: „Með fjárlögum fyrir árið 1974 var hætt að lögfesta sérstaka framkvæmda- og fjáröflunaráætl- un ríkisstjórnarinnar, svo sem gert hafði verið árlega allt frá árinu 1963, og var framkvæmda- hluti þessarar áætlunar nú sam- einaður fjárlögunum. Hið sama gildir um innlendan hluta fjáröfl- unarinnar, en talið hefur verið eðlilegra, að heimild til lántaka erlendis styðjist við sérstök lög, enda vafasamt, að heimild í fjár- lögum sé nægilega tryggur grund- völlur til slikra aðgerða." 1 SlÐUSTU viku var lögð fram á Alþingi þingsályktunartillaga um íþróttahús Menntaskólans við Hamrahlíð, sem Ragnhildur Helgadóttir (S) er fyrsti flutn- ingsmaður að. Er tillagan svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á menntamálaráðherra að láta nú þegar hefja undirbúning að byggingu íþróttahúss fyrir Menntaskólann við Hamrahlíð." Auk Ragnhildar standa að til- lögu þessari Þórarinn Þórarins- son (F), Jón Snorri Þorleifsson (Ab), Bjarni Guðnason (Ff), Halldór S. Magnússon (SFV) og Benedikt Gröndal (A). Greinargerðin með tillögunni er svohljóðandi: „Við Menntaskólann við Hamrahlíð stunda um 1200 nem- endur nám. Þessi stóri hópur hef- ur enga aðstöðu til íþróttaiðkana við skóla sinn. Er þetta eini menntaskólinn í borginni, sem hefur engan leikfimisal fyrir nemendur sína. Ljóst er, að þessi stóri hópur fer af þessum sökum á mis við þá heilsuvernd og hress- ingu, sem hóflegar íþróttir veita. Vorið 1972 var samþykkt á Al- þingi þingsályktun um sameigin- legt íþróttahús fyrir Menntaskól- ann við Hamrahlíð og Hlíðaskóla. Eftir athugun þess máls þótti yfir- völdum menntamála slík tilhögun ekki henta vegna stærðar skól- anna. Á þeim tima, sem síðan er liðinn, hefur þörfin fyrir íþrótta- aðstöðu síst minnkað, en ekkert verið aðhafst að hálfu ríkisvalds til lausnar þessum vanda. Þar sem menntaskólarnir eru rikisskólar, verður ekkert skref stigið í þessu máli ánatbeina ráð- herra og síðar fjárveitingarvalds ríkisins. Því er þessi tillaga flutt. Það er von flutningsmanna, að undirbuningur þessarar bygging- ar komist á þann rekspöl fyrir næsta haust, að unnt verði að gera ráð fyrir nauðsynlegum fjárveit- ingum til að héfja framk væmdir á næsta ári.“ Veiða Bretarnir á friðaða svæðinu? 1 GÆR urðu nokkrar umræður í neðri deild um friðaða línu’veiði- svæðið f Vfkurál fyrir Vestfjörð- um. Gerði Sverrir Hermannsson (S) fyrirspurnir til sjávarútvegs- ráðherra um, hvað hefði ráðið því, að svæði þetta var friðað og hvort rétt væri, að friðuninni væri ekki sinnt af brezkum togur- um. Sverrir sagði því vera haldið fram þar vestra, að þessi friðun svæðisins fyrir línuveiðar kæmi bara Bretunum til góða, þar sem íslenzku togararnir virtu friðun- ina en ekki þeir brezku. Spurði hann einnig, hvort einhverjar ráðstafanir væru fyrirhugaðar til að bæta úr þessu ástandi. Lúðvfk Jósepsson sjávarútvegs- ráðherra sagði, að greinilegur ágreiningur væri kominn upp á Vestfjörðum um þessa friðun. Togaramennirnig væru óánægðir með friðunina. Ástæðurnar fyrir þessari friðun hefðu verið itrekuð tilmæli frá útgerðarmönnum og sjómönnum á sunnanverðum Vestfjörðum, þar sem þeir hefðu orðið fyrir ágangi frá innlendum og erlendum togurum. Gat ráð- herra um, að nú 15. þ.m. myndi friðunartíminn renna út. Það væri vandasamt að setja regiur þannig, að allir yrði ánægðir. Það yrði bið á því, að aftur yrði friðað fyrir Vestfjörðum fyrst að heima- menn gætu ekki komíð sér saman. Ráðherra sagði það rangt, að útlendir togarar fengju að veiða á svæðinu óáreittir. Þeir hefðu ver- ið reknir út fyrir af landhelgis- gæzlunni. Olafur Jóhannesson dómsmála- ráðherra kvað ekki hafa enn kom- ið neinar kærur til dómsmála- ráðuneytisins vegna veiða Bret- anna. Umræður þessar urðu við 2. umræðu um frumvarp um breyt- ingu á nýsettum lögum um veiðar í landhelgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.