Morgunblaðið - 12.03.1974, Síða 32

Morgunblaðið - 12.03.1974, Síða 32
flUKR °£R UIÐSKIPTin SERl rt RUCLVSR í jl ifloruimblíitiiftu |Wír@imí>íaí>il> nUGLVSinCRR ^-«22480 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1974 Borgarafundurinn: Ráðherrarnir svöruðu ekki fyrir- spurnum Geirs Hallgrímssonar A aimennum borgarafundi um varnarmáiin, sem stúdentar efndu til að Ilótel Sögu á sunnu- dag, lagði Geir Hallgrímsson fimm spurningar fyrir ráðherr- ana Einar Ágústsson og Magnús Kjartansson í þeim tilgangi að fá upplýsta stöðu þessara mála inn- an ríkisstjórnarinnar í dag, eftir að tillögur utanríkisráðherra um umræðugrundvöll við Banda- ríkjastjórn hafa verið til umræðu innan ríkisst jórnarinnar um skeið. Það vakti athygli, að báðir ráðherrarnir skoruðust undan því að gefa svör við þessum spurning- um, og ekkert kom fram í ræðum ráðherranna, sem nýtt gæti tal izt. Spurningar þær, sem Geir Hall- grímsson lagði fyrir ráðherrana, voru svohljóðandi: 1. Er það rétt, að Alþýðubanda- lagið sé búið að framlengja dvöl varnarliðs heilt ár fram yfir nú- verandi kjörtímabil? 2. Hvað felst í þessu undarlega orðalagi „hreyfanlegar flugsveit- ir“? Eru þetta flugsveitir, sem eiga að hafa hér fast aðsetur með búsetu flugliða um 5 mánaða skeið í senn, hverfa síðan á braut, en þá komi nýjar sv.eitir í staðinn og svo koll af kolli. Hversu fjöl- mennar eiga þessar sveitir að vera? 3. Hafa Alþýðubandalagsráð- herrarnir framlengt dvöl banda- rískra flugsveita hér á landi um óákveðinn tíma fram yfir 1976, sex mánuði í senn? 4. Verða tillögur utanríkisráð- herra lagðar fram i viðræðum við Bandaríkjamenn sem fyrstu hug- myndir og umræðugrundvöllur af hálfu íslenzku ríkisstjórnarinnar, eða síðustu tillögur og úrslitakost- ir? 5. Eru ráðherrarnir ekki sam- mála því, að ítreka fyrri yfirlýs- ingar sínar um, að hver svo sem niðurstaðan verður í varnarmál- unum innan ríkisstjórnarinnar eða í viðræðum við Bandaríkin, verði málið lagt fyrir Alþingi til endanlegrar afgreiðslu? leikar hraðfrystihúsa EINAR Sigurðsson, útgerðarmað- ur, sem um árabil hefur ritað þáttinn „Verið“ fyrir Morgun- blaðið, segir í þætti sínum síðast- liðinn sunnudag, að afkomuhorf- ur frystihúsanna séu nú svo bág- ar, vegna hækkandi reksturs- kostnaðar og ískyggilegrar þróun- ar blokkarverðs á Bandaríkja- markaði, að til greina geti komið, að frystihúsum landsins verði lokað, ef ekki með samtökum, þá af sjálfu sér. I gær var haldinn stjórnarfundur í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, þar sem af- komuhorfur voru m.a. ræddar. Morgunblaðið sneri sér í gær til Guðmundar H. Garðarssonar, blaðafulltrúa S.H. og spurði hann hvernig staða hraðfrystiiðnaðar- ins væri m.a. með tilliti til þess, að loðnufrysting væri mun minni en áætlað var, nýir kjarasamningar hefðu verið gerðir og ískyggileg þróun virtist vera að hefjast á Bandaríkjamarkaði. Guðmundur sagði, að stjórn S.H. hefði verið á fundi í gær, þar sem fjallað hefði verið um þessi mál. Eru hrað- frvstihúsamenn mjög áhyggju- fullir vegna þróunar mála og við óbreyttar aðstæður kvað Guð- Framhald á bls. 30. Blysför til Þórbergs í TILEFNI af 85 ára afmæli Þórbergs Þórðarsonar hafa nokkur félög, þ.á.m. skólafélög og verkalýðsfélög, ákveðið að efna til blysfarar að heimili skáldsins, Hringbraut 45. Lagt verður af stað í Vonarstræti kl. 6.30. síðdegis í dag. Lúðrasveit verkalýðsins fer fyrir göngunni og þegar heim til Þorbergs kemur, verður hann ávarpaður af fulltrúa blysfara. Afmælis Þórbergs er minnzt á 12. bls. i blaðinu í dag. DR. ROBERT A. OTTÓSSON LÁTINN Við komu Engeyjar RE 1 til Reykjavíkur á sunnudag. — Einar Sig- urðsson útgerðarmaður ásamt konu sinni Svövu Ágústsdóttur og dóttur- inni Auði, sem skýrði skipið — sjá bls. 3. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.) FALLINN er í valinn einn mikil- hæfasti forystumaður fslenzkra tónlistarmála, dr. Röbert A. Ottósson, söngmálastjóri þjóð- kirkjunnar, 61 árs að aldri. Hann lézt aðfararnótt sunnudagsins 10. marz sl. eftir stutta sjúkrahúss- legu í Lundi í Svfþjóð, en þar var “nÍSTTag: Verður fallizt á kröfu kommúnista um úrslitakosti? hann á fyrirlestraferð. Banamein hans var hjartaslag. Tónlistarstörf Dr. Róberts A. Ottóssonar á Islandi voru fjöl- breytt og umfangsmikil allt frá því hann fluttist til landsins 23ja ára að aldri. Hann stundaði jöfn- um höndum píanóleik, kennslu í ýmsum greinum tónlistar, kór- og hljómsveitarstjórn, hélt fyrir- lestra hér heima og erlendis, stundaði ritstörf og annaðist út- gáfur kirkjulegra tónbókmennta. Árviss flutningur hans á ein- hverju af stórverkum tónbók- menntanna ásamt Söngsveitinni Filharmoníu, sem hann stjórnaði frá stofnun, — og Sinfóníuhljóm- sveit Islands, hefur um langt skeið verið með stærstu viðburð- um hvers árs í íslenzku menningarlifi. Eftirlifandi eigin- kona dr. Róberts er Guðríður Magnúsdóttir, kennari við Austurbæjarskólann í Reykjavík. Þau áttu einn uppkominn son. Dr. Róbert A. Ottósson var fæddur í Berlín 17. mai árið 1912. Framhald á bls. 30. Verða tillögur Einars Agústs- sonar f varnarmálunum — óbreyttar eða breyttar skv. kröf- um Alþýðubandalagsins — lagðar fram sem fyrstu tillögur og um- ræðugrundvöllur af hálfu Islend- inga eða sem úrslitakostir á næsta viðræðufundi með Bandarfkja- mönnum? Þessi spurning er kjarni þeirra umræðna og þess ágreinings, sem nú eru uppi inn- an ríkisstjórnarinnar um næsta skrefið f varnarmálunum. Að undanförnu hafa farið fram við- ræður milli ráðherranna um varnarmálin, og miða þær að þvf að kanna til þrautar, hvort sam- staða getur náðst milli stjórnar- flokkanna f málinu. Morgunblað- inu er kunnugt um, að á þriðju- dag í síðustu viku ræddu forsætis- ráðherra og utanrfkisráðherra við ráðherra Alþýðubandalagsins um málið og á miðvikudag ræddi for- sætisráðherra við ráðherra SFV. Ætlunin var að halda ríkisstjórn- arfund sl. föstudag en af því gat ekki orðið og má vænta þess, að varnarmálin verði til umræðu á ráðherrafundi fyrir hádegi í dag. Miklir reksturserfið- Tillögur Einars og breytingartillög- ur kommúnista Til grundvallar þessum umræð- um innan ríkisstjórnarinnar liggja tillögur Einars Agústssonar um drög að umræðugrundvelli við Bandaríkjamenn og breyting- artillögur ráðherra Alþýðubanda- lagsins. Meginágreiningurinn er þessi: □ Ráðherrar Framsóknarflokks- ins og SFV vilja, að tillögur utanríkisráðherra verði lagðar fram á viðræðufundi með Bandaríkjamönnum, sem fyrstu tillögur og umræðu- grundvöllur af hálfu fslenzku ríkisstjórnarinnar. Utanrikis- ráðherra lýsti þvi yfir á al- mennum borgarafundi í fyrra- dag, að kæmu fram gagntillög- ur frá Bandarfkjamönnum, yrðu þær skoðaðar. □ Ráðherrar Alþýðubandalags- ins krefjast þess hins vegar, að tillögur utanríkisráðherra Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.