Morgunblaðið - 13.03.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.1974, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 60. tbl. 61. árg. MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Solzhenitsvn sækir um hæli í Sviss: fyrrahjónabandi og þremur bórn- um Solzhenitsyn-hjónanna, vega- bréfsáritanir. RáSuneytið sagði, að Solzhenitsyn hefði í hyggju að setjast að í Ziirich, en þar er hann með lítið íbúðarhús á leigu. Segir i tilkynningu dómsmála- ráðuneytisins, að endurfundir fjölskyldunnar muni eiga sér stað á bilinu 15. til 20. marz, en áreiðanlegar heimildir herma, að þetta verði morguninn 19. marz í Zlú'ich. Þessi ákvörðun Solzhenitsyns að sækja um pólitískt hæli í Sviss, — sem þeg- ar er vitað að verður veitt, — kemur nú eftir nokkurra vikna hik. Aður hafði rithöfundurinn velt fyrir sér að búa i einhverju Norðurlandanna, og þá helzt Noregi, en tungumálaerfiðleikar munu hafa fengið hann til að skipta um skoðun. Nú dvelst Solzhenitsyn í Zúrich og hefur m.a. keypt tals\'ert af húsgögnum. Svissnezk yfirvöld hafa einnig veitt öðrum nýreknum sovézkum rithöfundi, Vladimir Maksimov, og konu hans viku dvalarleyfi í landinu. Sovézka skoptímaritið ,d<rokodir‘ réðst i dag að Solzhenitsyn i háðkvæði eftir rit- höfundinn J. Barsjanski, en raun- ar er það eiginkona rithöfundar- ins, sem ávörpuð er i kvæðinu, sem nefnist ,,Frú Solzh'. Er skáldinu líkt við vændiskonu, sem selur land sitt fyrir erlendan gjaldeyri. Lokaorðin eru lögð Solzhenitsyn í munn: ,,Ég er, herrar minir, ekki vændiskona. Ég er andófsmaður." Óeining um síldarkvóta London, 12. marz — NTB. TALSVERT írafár varð í dag á fundi nefndarinnar uin fiskveið- ar í Norður-Atlantshafi í London og varð að gera fimm klukku- stunda hlé eftir að viðræðurnar höfðu siglt í strand. Ekkert af þátttökulöndunum fjórtán vildi minnka þá árlegu síldveiðikvóta, sem lagðir voru til í viðræðunum í gær, og því ákvað forsætisnefnd- in að gera hlé til að ræða við sendinefndir einstakra landa. Þessi óeining kom upp, þegar fulltrúar Danmerkur lögðu fram ósk um 180.000 tonna síldarkvóta á ári og að síld yrði 20 til 25% þess fiskjar, sem tekinn yrði til vinnslu í viðkomandi landi. Þess- ar kröfur Dana leiddu til þess, að fleiri lönd óskuðu eftir því, að hinir upprunalegu kvótar þeirra væru hækkaðir. Ekki náðist sam- staða milli Norðurlandanna mn sameiginlegar kröfur í þessum efnum. Segir i yfirlýsingunni, að sendi- herra Finna í Stokkhólmi hafi skýrt sænska utanríkisráðherran- um Sven Andersson frá þessu fyr- ir allt að mánuði síðan. Tjáði sendiherrann Andersson, að finnska stjórnin liti þessa njósna- starfsemi alvarlegum augum og gæti ekki þolað hana. Andersson hafði fullvissað finnsk stjórnvöld um það í febrúar sl .er hann var á ferð í Finnlandi. að IB-stofnunin hefði aldrei starfað i Finnlandi. ALEXANDER Solzhenitsyn, hinn brottrekni sovézki rithöfundur, á nú von á þvf, að fjölskyldan komi til móts við hann innan tíu daga, og mun hann sækja um hæli í Sviss sem pólitískur flóttamaður, að því er svissneska dómsmála- ráðuneytið tilk.vnnti f dag. Hefur sendiráð Sviss f Moskvu fengið fyrirmæli um að veita eiginkonu rithöfundarins, Nataliu, móður hennar, einu barni hennar frá Blysfarar hylla meistara Þórberg í gærkvöldi í til- efni 85 ára aftnælis hans. Frú Margrét og Þórberg- ur standa á miðsvölunum á efstu hæð. Sjá frásögn á baksíðu. — Ljósm. Mbl. Sv. Þorm. Fjölskyldan kem- ur á næstu dögum Golda segir Sýrlendinga undirbúa meiri háttar árás Damaskus. Tel Aviv, Kairó, Washington, 12. marz AP— NTB. • SÝRLENZKAR og ísraelskar hersveitir áttu í dag í heiftarleg- um skotbardögum í einar fjórar klukkustundir í norðurhluta Gol- anhæða. Talsmaður hersins í Damaskus sagði, að ótiltekinn fjöldi ísraeiskra hermanna hefði beðið bana, ein þyrla hefði verið skotin niður og talsvert af her- gögnum og húsakosti hefði verið Myrtu írskan þingmann Dublin, 12. marz. NTB. AP. SÍÐLA þriðjudags fann írska lög- reglan Ifk þingmannsins Billy Fox, en honum hafði verið rænt á mánudagskvöld og stóðu fyrir því tólf grímuklæddir, vopnaðir menn. Billy Fox var þingmaður mótmælenda. Hann fannst skammt frá húsi því, sem hann dvaldi í, þegar honum var rænt, en það er rétt við landmæri Irska lýðveldisins og Norður-lrlands. Hafði hann verið skotinn f höfuðið. Mannræningjarnir kveiktu í húsinu og sömuleiðis hjólhýsi, sem stóð við húsið. Skömmu seinna heyrðu íbúar hússins skot hvell. Billy Fox var 36 ára gama!! og allatkvæðamikill á þingi. Hann var mjög andsnúinn framgöngu brezku örýggissveitanna á Norð- ur-lrlandi og alveg sérstaklega iðju þeirra f landamærahéruðun- um. Lögreglan grunar, að öfga- sinnaðir mótmælendur standi að baki morðinu og ástæðan hafi verið afstaða þingmannsins til mála á Norður-írlandi. Morð þetta er litið mjög alvar- legum augum og þykir hliðstæður atburður ekki hafa gerzt síðan Kevin O’Higgins varaforseti írska lýðveldisins var myrtur árið 1927. Mjög umfangsmikil leit stendur yfir að morðingjunum. eyðilagt. Þetta var ekki staðfest af ísraelum, og Sýrlendingar sögðu ekkert um eigin skaða. £ Goldu Meir forsætisráðherra ísraels bárust þessar fregnir, er hún var að flytja ræðu hjá verka- lýðsfélagi einu. Hætti hún ræð- unni og lýsti því yfir, að Sýrlend ingar hefðu átt upptokin og væru þeir nú að undirbúa meiri háttar árás á þessum vígstöðvum. Golda Meir bætti við, að viðræður þær, sem fara eiga fram í Washington með milligöngu Henry Kissingers utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, ættu vonandi eftir að leiða til beinna viðræðna Ísraels og Sýrlands um lausn á aðskilnaði herjanna. • í dag fóru hins vegar fram í Washington viðræður milli Huss- eins Jórdanfukonungs og Nixons forseta. A þeim fundi tjáði Nixon konunginum, að Bandaríkin hygðust þrýsta á deiluaðila til að ná samkomulagi þrátt fyrir óviss- una, sem nú er um, hvort Arabar aflétta olíubanninu á Bandarfkin, að því er Ronald Ziegler blaða- fulltrúi forsetans sagði eftir fundinn. „Við vonum, að banninu verði aflétt.en það eru engin bein tengsl milli tilrauna Bandarfkj- anna til að koma á friði og afnámi olíubannsins." Erindi Husseins til Washington er einkum það að fá ný og full- komin hergögn fyrir jórdanska herinn, svo og aukna efnahagsað- stoð, en Bandaríkin hafa löngum haft betra samband við Jórdaníu en önnur Arabalönd. Næsta skref- ið i tilraununum til að leysa vandamálið um aðskilnað herj- anna verður fundur milli Kissing- ers og Abba Ebans utanrfkisráð- herra ísraels á fimmtudaginn. Hins vegar hefst á morgun, mið- vikudag, fundur arabfskra olíu- málaráðherra í Trípólí, höfuðborg Lfbýu, um hvort aflétta beri olíu- banninu á Bandarikin eður ei. Talið er, að Egj'ptaland og Saudi- Arabía séu þvf fylgjandi, að bann- inu verði aflétt, en Sýrlendingar, Líbýumenn og Alsirbúar séu því hins vegar mótfallnir. Er þó sennilegt, að löndin muni reyna alvarlega að ná samstöðu um þetta atriði. Hið hálfopinbera Kairo-blað A1 Gomhourya sagði í dag, að Nixon forseti kæmi í heimsókn til Egj’ptalands fyrir 15. maí í vor til viðræðna við Sadat. Wilson dregur í land Lítið af rót- tæku kosninga- loforðunum í hásætisræðunni London, 12. marz, AP — NTB. HIN nýja ríkisstjórn Verka- mannaf lokksins undir forystu Harolds Wilsons sló af róttæk- ustu stefnumálum sfnum og kosn- ingaloforðum í dag, er Elísabet drottning las hina hefðbundnu hásætisræðu í lávarðadeild þings- ins, en ræðan er samin af ríkis- stjórninni. 1 ræðunni kom frain, að ríkisstjórnin hyggst einbeita sér að stöðvun verðbólgu og bót- um á félagslega sviðinu, til þess að tryggja sér fylgi á þingi og með þjóðinni, en hinar umdeildu þjóðnýtingaráætlanir Verka- mannaflokksins virðast hafa ver- ið settar til hliðar. Q 1 hásætisræöunni var aðeins minnzt á eitt slikt áform, þ.e. eignarnám þess lands, sem þarf til þróunar iðnaðarins, en „þjóð- nýting" sem slík er hvergi nefnd á nafn. Astæða þessarar varkárni er talin vera viðleitni til að lenda ekki strax f árekstruin við thalds- flokkinn og Frjálslynda flokkinn á þingi, svo og til að styggja ekki kjósendur ef þörf yrði á nýjuin kosningum f bráð. Að öðru leyti lofar ríkisstjórnin að standa við það loforö sitt að hefja nýjar samningaviðræður um aðild Bret- lands að Efnahagsbandalaginu. og eftir að drottningin hafði flutt ræðuna, sagði Wilson, að hann teldi líklegt, að þjóðaratkvæða- greiðsla yrði höfð um áframhald- andi aöild, og jafnvel yrði málið afgreitt með nýjum kosningum. Þá kom fram í hásætisræðunni, að ríkisstjórn Wilsons hyggst nema úr gildi hina óvinsælu vinnumálalöggjöf ihaldsstjórnar- innar og i staðinn kemur nýtt sátta- og gerðardómskerfi. Þá ætl- ar ríkisstjórnin að auka fátækra- styrk og ellilifeyri og ráðast til atlögu gegn verðbólgunni. Einnig lýsti hásætisræðan áframhaldandi tryggð Breta við Atlantshafsbandalagið og minnt- ist ekki einu orði á kosningalof- orðið um að skera hundruð millj- óna punda utan af útgjöldum til varnarmála. Stjórnmálaskýrendur í London telja litlar líkur á þvi, að þær tillögur, sem boðaðar eru í hásæt- isræðunni, muni veröa felldar í Framhald á bls. 18 IB var líka í Finnlandi Helsingfors, 12. marz — NTB. SÆNSKA njósnastofnunin Informationsbyrán (IB) rak einn- ig starfsemi í Finnlandi, auk Svíþjóðar, að því er fram kom í yfirlýsingu, sem finnska utan- ríkisráðuneytið gaf út f kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.