Morgunblaðið - 13.03.1974, Side 11

Morgunblaðið - 13.03.1974, Side 11
Fréttabréf úr Mikla- o holtshreppi Borg í Miklaholtshreppi, 4. marz 1974. Þegar þorri er nú rúmlega liðinn er ekki úr vegi að lita til baka og gefa honum fáein eft- irmæli. Segja má, að sá vetur, sem nú stendur yfir, sé einn sá harðasti, sem komið hefur um langt árabil. Fyrstu mánuðirn- ir voru kaldir og feikilega frostharðir, klaki fór þá mjög djúpt í jörðu og ofan á þennan mikla klaka hefur hlaðizt gaddur á gadd ofan. Tún hafa sums staðar verið svellgaddur yfir að líta, þar til nú í dag hefur verið þiða og nokkuð hefur þiðnað af þessum mikla og óhugnanlega gaddi, sem get- ur eflaust skilið eftir sig köl og köfnun á gróðri. Fyrri hlutann í febrúar eða aðfararnótt þ. 12. gerði hér aftaka veður og urðu þá miklar síma- og rafmagnsbilanir. All- ar sveitir hér sunnan fjalls á Snæffelsnesi og einnig Hraun- hreppur í Mýrarsýslu voru raf- magnslausar í 6 sólarhringa. Kom það sér víða afar illa, hús eru viða hituð upp með raf- magni, vatni er einnig dælt með rafmagni fyrir heimili og gripi, ekki má svo gleyma heimilistækjum og mjöltum, sem allt er háð þessari undra orku. Voru margir orðnir lang- eygðir eftir því að fá að sjá ljósin aftur. Félagslíf er nokkuð eins og venjulega, en rafmagnsleysið um daginn breytti þar áætlun á sumum sviðum. — Konur í kvenfélginu „Liljunni'* i Miklaholtshreppi voru farnar að undirbúa „þorrablót" áður en rafmagnstruflunin varð. En svo urðu þær að breyta sínu þorrablóti í góublót eða góu- fagnað. Sl. laugardag var svo þessi ágæti góufagnaður hald- inn á Brciðabliki. Var þar samankominn mikill fjöldi fólks úr fjórum hreppum, Kol- beinsstaðahreppi, Eyjahreppi, Miklaholtshreppi og Staðar- sveit. Miklar og rausnarlegar veitingar voru þar fram born- ar, sannarlegur þorramatur, sem samkomugestir neyttu með beztu lyst. Þá voru marg- vísleg skemmtiatriði, sem léttu skap samankomugesta með miklum hlátri, var svo stiginn dans af miklu fjöri. Var sam- koma þessi öllum þeim, sem að henni stóðu, til mikils sóma og sýnir vel, hvað hægt er að koma upp góðum gleðiskap, þegar allir leggja sig fram við að gleðja aðra og gjöra sér dagamun. — Frú Margrét Guðjónsdóttir i Dalsmynni í Eyjahreppi þakkaði gestgjöfum fyrir hönd sinna sveitunga á eftirfarandi hátt: 1. Húsráðendum hlýnaði um hjartarætur er boðið barst um góugleði glaðnaði yfirþeirra geði. 2. Rafmagnsskortur, húskuldi og harður vetur gleymist fljótt á gleðistundum gaman er á skemmtifundum. 3. Eyhreppingar hverfa heim með sól i sinni, saddir og í sæluvímu sigra þeir betur lífsin glímu. 4. Þökkum „LiIju“og ykkur öllum yndisstundir, allt verður eintómt glens og gaman ef getum við notið lífsins saman. Páll Pálsson. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 11 TRAUSTl bTlasala VITATORGI Höfum kaupendur að flestum gerðum nýlegra bíla. Ef þið viljið selja þá hafið samband við okkur. SÍMI — 12500 — 12600 Samband egg jaf ram leiÖenda Heildsöluverð á eggjum er kr. 250,00 kg. á hænsnakjöti 210.00 kg. á kjúklingum kr. 340.00 kg. Stjórnin. MÝKOMIÐ MIKIÐ ÚRVAL AF KVENSKÓM snosa LAUGAVEGI 60. SÍMI 21270 Hallt Halló Tæklfærlskaup Kvenkjólar stuttir og síðir frá kr. 500. Fermingarkjólarallskonarfrá kr. 500. Pilsfrá kr. 250. Mussurfrá kr. 500. Kvensíðbuxur á kr. 500 og 750. Síðir barnasamfestingar á kr. 500. Táningaúlpur alull á kr. 1 800 og mikið úrval af allskonar lítilsháttar gölluðum nærfatnaði. Lilla h.f., VíSimel 64. Simi 15146. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Aukatónleikar I Háskólabiói fimmtudaginn 1 4 marz kl. 20.30. Stjórnandi RICHARD KAPP Einsöngvarar NANCY DEERING og ROBERT MOSLEY Flutt verður: Cúbanskur forleikur eftir Gershwin, Naetur ! hitabeltinu eftir Gottschalk, Landnámið mikla eftir Virgil Thomson og þættir úr söngleiknum „Porgyog Bess" eftir Gershwin. Aðgöngumiðar seldir I bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustlg 2 og bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18. Áskriftarskirteini gilda ekki að þessum tónleikum. O Höfum opnaÓ útsölu á litiÖ gölluÖum vörum frá verksmiÖjum okkar aÖ SNORRABRAUT 56, Reykjavík. !_____________Selt verÖur:___________________ Prjónagarn, gluggatjaldaefni, áklæði, teryleneefni, tweedefni, ullarteppi, svefn- pokar, gallabuxur, peysur, úlpur, frakkar, herraskór, kvenskór, unglingaskór, inniskór, safariskór, knattspyrnuskór og margt fleira. EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL M KAUPA GÆÐAVðRU Á GJAFAVERÐI. Verksm iöjurnar GEFJUN — HEKLA — IÐUNN Akureyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.