Morgunblaðið - 13.03.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.03.1974, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 Vill virkja Jökulsá til hliðar við Dettifoss ÉG held, að það sé misráðið að virkja Dettifoss, vegna þess að þar nýtist fallhæðin mjög illa. Ef jökulvatnið úr Jökulsá á Fjöllum væri virkjað annars staðar og ofar lega, yrði eftir falleg lindaá við Dettifoss, sem mundi gera þjóðgarðinn skemmti- legri. Jökulvatninu mætti veita áfram í norður með uppistöðulónum og virkja annars staðar, svo sem t.d. með aðalvirkjun undir Fjórð ungshóli. Þar fengist 370 m fall niður í frárennslisgöng í Brunná og síðan áfram til sjávar. Þar yrði álíka mikið vatn og reiknað er með við Búrfell, en þar er fallið ekki nema um 118 m, svo stöðin ætti að geta orðið þrefalt stærri. Eggert V. Briem Þessar nýstárlegu vangaveltur eru hafðar eftir Eggerti V Briem. Hann hefur lengst af ævinnar unnið að úrlausnum á flóknum vísindalegum viðfangsefnum f Bandaríkjunum, fann þar upp ýmsa nýtilega hluti, en er nú setztur í helgan stein og dvelur mikið á íslandi og er að velta fyrir sér flóknum vísindum á borð við Ijóshraðann. En i framhjáhlaupi hefur hann farið að velta fyrir sér virkjunum á Norðausturlandi og komizt að skemmtilegum niður- stöðum, sem hann sagði frá í fyrirlestri í Raunvísindastofnun Háskólans nýlega. Eggerti*ízt ekkert á að fara að tengja saman allar stóru Jökulsárnar og veita vatninu úr Jökulsá á Fjöllum austur i Fljótsdal. Telur heppilegra, að þarna séu tvær aðskildar virkjanir, önnur í Fljótsdal með vatnsgeymslu í Eyja- bakkalóni, en hins vegar yrðu Jökulsá á Fjöllum pg Kreppa teknar i neðan- verðri Krepputungu og veitt I Arnar- dalslón og vatnið siðan leitt ( norður eftir lægðum og dölum. Þarna þarf að velja á milli, að veita vatninu yfir í Fljótsdal eða i Arnardalslón, því að lónið liggur of lágt til þess að veita vatni þaðan til vírkjunar í Fljótsdal. En meira er um vert að fá þarna mikið og gott vatnsgeymslurými. — Arnardals- svæðíð, sem er rétt yfir 500 m hæð, hefur verið athugað af Orkustofnun- og fá þrefalda Búrfells- virkjun inni, segir Eggert. Þetta er gamalt jökullón með þykkum jökulleir, svo efni i stíflu væri nærtækt, ef það væri upp í 560 m hæð, gæti lónið geymt um 2000 Gl (gígalítri er eins metra djúpt vatn á ferkilómetra svæði eða milljón tonn af vatni). Þetta væri upp undir þriðjungur af þvi vatni, sem kemur undan jöklinum á ári, á svæðinu milli Trölladyngju og Snæfells, og mundi duga til sæmilegrar vatnsmiðl- unar. — í Arnardalslón mætti einnig veita Jökulsá á Brú með stiflu upp í 565 m hæð í neðanverðri Hafrahvammagljúfri og 1 3 km löngum jarðgöngum þaðan i Arnardalslón. Þessi göng mundu líka duga til þess að flytja vatn i lónið frá orkuveri, sem síðar er getið Þetta svæði hefur ekki verið athugað með tilliti til jarðgangna, en nokkru sunnar í sama fjallgarði hefur það verið gert og virðist bergið þar sæmilegt. — Æskilegt væri að fá meira geymslurúm, enda ástæðulaust að láta verða vatnsþurrð. Slíkt rúm mætti fá i Þríhyrningsdal, sem er rétt norðaustur af Arnardal. Þessi geymslustaður hefur ekki verið athugaður, en samkvæmt kortinu má fá þar að minnsta kosti 1200 Gl geymslu með stíflum upp í 630 m hæð. Tvær þeirra væru talsvert stórar, en sú þriðja lítil. Hún væri við norðurenda dalsins og varnaði vatninu að renna norður í Vopnafjörð. — Vatni yrði að veita í þríhyrnings- lónið Það mætti gera með því að njóta góðs af lóni, sem Orkustofnunin hefur athugað möguleika á — reyndar i öðrum tilgangi. Þetta lón væri í 680 m hæð, frá jökulröndinni norður i Gæsa- vötn, á fjallinu milli Kreppu og Jökulsár á Brú. í lónið er veitt Kreppu, Kverká og Kringilsá, til samans með um tvo þriðju af því vatni, sem til fellur á þessum slóðum. Þessu vatni mætti veita um 2 km langan skurð i lægð norður úr Gæsavötnum. Þá væri komið i Magagil, sem fellur i Þrihyrningsdal. — Talsverður hæðarmunur er á lón- unum, heldur Eggert áfram útskýr- ingum sinum. Gæsavatnalónið væri í 680 m hæð, Þrihyrningslónið i 585 — 625 m hæð og Arnardalslónsyfir- borðið i 520 — til 555 m. Fallið milli lónanna mætti bezt nýta i dálitið sér- kennilegri stöð Vatnið í gæsavatns- lóninu væri svo að segja ótemprað og yrði að notast jafnóðum og það gæfist, þegar mikið bærist að, þyrfti margar túrbínur til þess að nýta fall þess niður i Þríhyrningslón. Þær væru í neðan- jarðarstöð, þaðan sem vatnið væri leitt um niðurfall og frá stöðinni færi það um jarðgöng til Þrihyrningslóns. Þegar vatnið frá jöklinum rénaði, mætti láta eina túrbínu i senn skipta um hlutverk með annarri stillingu á lokum i að- og frárennslisrásunum, þannig að nú tæki túrbinan inn vatn frá Þríhyrningslóni og virkjaði það niður í göngin frá Hafrahvammastíflunni til Arnardals- lóns og þar með færi vatnið í Arnar- dalslón. Á þennan hátt mundu túrbínu- samstæðurnar nýtast mest allt árið. — Ýmsar leiðir hafa verið athugaðar fyrir vatnið norður frá Arnardalslóni, en ekki sú, sem hér er stungið upp á. Sú lægi um Víðidal, þar sem væri gert 12—15 km lón. Úr þvi rynni vatn til neðanjarðarstöðvar nálægt gömlu Grímsstöðum, sem virkjaði 90 m niður í rás norður Hólssand. austan við Grímsstaði og vestan við Grundarhól. Sú rás hefur verið athuguð hjá Orku- stofnuninni, en athugun er ekki lokið um hvar heppilegast væri að setja orkustöð. Bergið sunnan Tunguheiðar er svo sprungið, að þar þykir ekki mögulegt að gera frárennslisgöng, en vonir standa til að það mætti takast norðar. — Til gamans get ég mér til, að vatninu verði veitt norður með Lauf- skálafjallgarði og vestur Sauðafells- múla að Fjórðungshóli og aðalvirkjunin yrði þá undir Fjórðungsholi. Þar fæst 370 m fall, sem gæfi möguleika á mjög stórri virkjun. Til samanburðar má geta þess, að fallið við Búrfell er 100 m, en vatnsmagnið þarna mundi vera álika og þar. Eftir það mundi vatnið leitt í frárennsliskurði i Brunná og þaðan rynni það til sjávar. Með þessu móti yrði ekki virkjað við Dettifoss, sem Eggert telur óæskilegt. — Ráðgert er að taka ána úr far- veginum ofan við Selfoss og veita henni vestan fossanna að virkjun, sem á að nýta um 150 m fall niður í gljúfrið, segir hann. En það væri sorg- legt ef úr yrði, þvf neðan hennar færi viðlíka mikíl fallhæð til ónýtis vegna örðugrar aðstöðu, þar sem bergið er mjög sprungið og búast má við mót mælum náttúruverndarmanna gegn hvers konar mannvirkjum á þessum stað. Ef bráðliggur á að virkja eitt- hvað, virðist tilvalið að virkja Jökulsá á Dal, segir hann ennfremur. Þar er 600 m fallhæð i einu, svo að á móti sömu orku, sem fengist með virkjun Dettis- foss, þyrfti fjórðung vatns, er þarna fengist. Þetta væri meðfærilegra og þarna væri heldurengin hætta á hlaupi ef vatnsgeymi væri komið upp á Eyja- bökkum. Komið hefur til tals að veita Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá á Brú austur i Fljótsdal til virkjunar. En þó að virkjun á Jökulsá á Dal sé i alla stáði æskileg, þarf ekki hið sama að gilda um hinar jökulsárnar. Ef virkja á Jökulsá á Fjöllum og á Brú austur í Fljótsdal. verður að velja á milli þess að leggja 70.000.000 kúbikmetra í stíflur og 20 km i jarðgöng eða 40.000.000 kúbikmetra i stiflur og 24 í jarðgöng og tapa 20% af vatninu. Hvorugur kosturinn er góður og full ástæða til að leita annarra virkjunar- möguleika, segir Eggert. En af hverju er hann að þessum vangaveltum? — Ég er að þvi að gamni mínu, svarar hann kíminn. Ég er gamall uppgjafarmaður og er að leika mér að þessu milli annarra „spekula- sjóna '. Ég vil líka gjarnan koma af stað umræðum um þetta. Fólkið þarf að fræðast um það Það ræður fjárveit- ingum og ef það ekki veit og veltir hlutunum fyrir sér, þá er hætt við vitleysum Þá geta stjórnmálamenn sagt eitthvað fallega og fólkið trúir þvi og feilst á að kosta vitleysuna. — E. Pá. ÞESSI UPPDRÁTTUR SÝNIR HUGMYND EGGERTS UM, HVERNIG VIRKJA MEGI JÖKULSÁ, ÁN ÞESS AÐ VIRKJA VIÐ DETTIFOSS. VATNIÐ ER LEITT EFTIR ÖÐRUM LEIÐUM OG GERÐ UPPISTÖÐULÓNA OG AÐALVIRKJUN VIÐ FJÓRÐUNGSHÓL.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.