Morgunblaðið - 13.03.1974, Page 14

Morgunblaðið - 13.03.1974, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 Steinþó Gestss: Komið verði í veg fyrir fóðurvöntun af völdum kals STEINÞÓR Gestsson (S) mælti fyrir tillögu til þingsályktunar sem hann flytur ásamt Pálma Jónssyni (S) um ráðstafanir tii að tryggja landinu varaforða sáð- korns til nota í kalárum. Gerir tiiiagan ráð fyrir að ríkisstjórnin geri þegar ráðstafanir til að inn- kaupastofnanir ríkisins, í samráði við sáðvöruinnflytj- endur, flytji inn og hafi á boð- stólum I vor umtalsvert magn af sáðkorni umfram venjuleg ársnot sem grfpa mætti til fyrirvaralaust til grænfóðurræktar, ef í gróand- anum kæmi fram kal f túnum, sem hugsaniega gæti orðið eftir óvenjulangan svellavetur og leitt til fóðurvöntunar, ef ekki væri að gert. Við ákvörðun magns og teg- unda sáðvaranna skuli innflytj- andi hafa samráð við Búnaðar- félag tslands og Rannsókna- stofnun landbúnaðarins. í framsöguræðu sinni sagði Steinþór Gestsson m.a.: Bændur eru uggandi um gras- brest á komandi vori, þar sem þeir óttast, að hin óvenjumiklu svellalög f byggðum landsins geti leitt af sér kal i túnum og ræktar- jörð. Það er öllum vitanlegt, að allt frá byrjun nóvember hefur hitastig verið óvenjulegt og hefur það haft þau sýnilegu áhrif að hleypa jörðinni í gagn og jafna frerann á öllu flatlendi, þ.e.a.s. það hefur skapast hættuástand um fóðuröflun bænda f sumar. Bændur eru ekki einir um að meta horfurnar viðsjárverðar. Sérfræðingar telja, að af völdum köfnunarkals séu tiðir kalskaðar hérlendis og að þessu megi vænta, að svell liggi á túnum lengi fram eftir. Sérfræðingar eru og sam- mála um að sú leiðin, sem tiltæki- legust sé til að koma i veg fyrir fóðurskort af völdum kal- skemmda, sé ræktun grænfóðurs, því að í flestum árum fá einærar grænfóðurjurtir nægan vaxtar- tíma til góðrar uppskeru, ef sáð- korn er fyrir hendi, þegar fullséð er, hvort um kalskemmdir er að ræða eftir veturinn. Ekki þarf að óttast það, að grænfóðurræktun fari í handaskolum. Bændur eru orðnir þaulvanir þeirri ræktun og nota hana mjög árlega til þess að auka á fjölbreytni fóðursins um leið og hún er liður í varanlegri ræktun landsins." Friðjón Þórðarson: Nauðsvn að efla svslusjóði FRIÐJÓN Þörðarson (S) mælti í síðustu viku fyrir tillögu til þingsályktunar, sem hann flytur ásamt Birni Fr. Björnssyni (F) um aukna tekjustofna sýslu- félaga. Gerir tillagan ráð fyrir, að Alþingi skori á rfkisstjórnina að gera nú þegar ráðstafanir til að auka tekjur sýslufélaga, svo að þeim verði gert kleift að sinna lögboðnu hlutverki og aðkallandi viðfangsefnum. Að lokinni fram- söguræðu var umræðu um málið frestað, og því vísað til Alls- herjarnefndar. Friðjón Þórðarson sagði, að samkvæmt sveitarstjórnarlögum væri starfsvið sýslufélaga mjög margháttað, og rakti þingmaður- inn upp helstu málaflokkana, sem sýslufélögum er skylt samkvæmt lögum þessum að sinna. Margvís- legur kostnaður fylgdi að sjálf- sögðu þessum skyldum, en sá væri gallinn á, að samkvæmt sveitarstjórnarlögunum væri að- eins talað um að það, sem á vant- aði að tekjur sýslunnar hrykkju fyrir útgjöldum, skyldi jafna niður á hreppana eftir vissum reglum, sem þar væru nánar tald- ar. Orðalag greinarinnar virtist þó augljóslega benda til þess, að sýslusjóðir ættu að hafa aðgang að öðrum tekjustofnum, en þar væru taldir. í raun væri það þö svo, að sýslusjóðsgjaldið, sem um væri rætt í fyrrnefndri grein sveitarstjórnarlaganna, væri eini tekjustofn sýslufélaganna. Halldór Blöndal: Nauðsyn að kaupa jarð- bor til borana við Kröflu HALLDÓR Blöndal (S) mælti í fyrri viku fyrir þingsályktunartil- lögu sem hann flytur ásamt Lár- usi Jónssyni um kaup á jarðbor, sem geti borað í allt að tveggja kílómetra dýpi, enda henti hann til borunar við Kröflu. í framsöguræðu sinni sagði Halldór Blöndal m.a.: „Ástæðan fyrir því að þessi til- laga er borin fram er sú, að hér á landi er aðeins einn jarðbor, oft nefndur gufubor, sem er nægi- lega stór til þess að hægt sé að nota hann við þær boranir, sem nauðsynlégar eru við Kröflu og fram eiga að fara á næsta sumri, sumarið 1975 og sumarið 1976, að þvi er mér hefur verið tjáð. Gufu- borinn, þessi eini nægilega stóri bor hér á landi, mun verða alger- lega upptekínn allt næsta ár við verkefni hér á Suð-Vesturlandi vegna hitaveituframkvæmda og borana fyrir Reykjavíkursvæðið. Það verður því ekki hægt að nota þann bor nyðra á sumrinu 1975. Á hinn bóginn er orkuskorturinn á Norðurlandi svo mikill, að það þolir enga bið að reisa gufuvirkj- un á háhitasvæðinu við Kröflu. Mér er ekki kunnugt um, að af opinberri hálfu hafi verið haft neitt frumkvæði að þvi, að kaupa hentugan jarðbor til landsins, þó að fyrirsjáanlegt sé að nú nálg- umst við kúf af verkefnum næstu 3—4 árin vegna orkuskorts í heiminum. Það er rétt að bor af þessu tagi er nokkuð dýr, hann kostar kannski 150 eða 200 millj. kr. Það er þó ekki meira en svo sem einn skuttogari. Þeir eru nú farnir að skipta tugum hér á landi, þó af- raksturinn af hverjum þeirra fyr- ir sig verði ekki sambærilegur við þennan bor ef vel tekst til. Ég álít að það sé kominn tími til þess að taka skarið af um þetta. Mér hef- ur fundist að sá sofandaháttur sem verið hefur um rannsóknirn- ar i Kröflu á undanförnum árum og eins nú við afgreiðslu fjárlaga, beri það með sér, að það sé ekki raunverulegur áhugi fyrir hendi hjá yfirvöldum til þess að þessar boranir fari fram, og ég óttast það mjög, að því verði borið við á næsta ári að af tæknilegum ástæð- um verði ekki hægt að gera þær boranir í Kröflu sem lofað hefur verið. Ég fæ ekki skilið að tóm- læti iðnaðarráðherra í þessum efnum geti átt sér aðrar orsakir." Ennfremur sagði Friðjón? „Það er svo með þetta sýslu- sjóðsgjald, að því er fyrst og fremst jafnað niður á íbúa við- komandi byggðarlags, þannig að þarna getur orðið um tilfinnanleg útgjöld að ræða, einkum þar sem eiga í hlut fámennir og fátækir hreppar, en yfirleitt eru sveitar- félögin á íslandi þannig stödd, að þau hafa nóg að gera með sína tekjustofna. Og það vill nú verða svo, að bæði ríki og sveitarfélög eru síleitandi að auknum tekju- stofnum til margháttaðra út- gjalda. Það gengur stundum verr að finna slíka tekjustofna. Og það fer ekki hjá því, að okkur flutn- ingsmönnum er það full ljóst, að það getur verið erfitt að finna þarna tekjustofn, sem kæmi til greina til að styrkja hag sýslu- félaganna. 1 niðurlagi greinar- gerðarinnar nefnum við sem dæmi, að til greina geti komið t.d. ei'nhver hluti af söluskatti. Einnig nefnum við Byggðasjóð, en við vitum allir, að hlutverk hans er að stuðla að jafnvægi í byggð lands- ins. Fleira mætti sjálfsagt nefna. Við vitum, að þessi tekjustofna- mál, bæði ríkis og sveitarfélaga, hafa lengi og árum saman verið til umræðu bæði hér á Alþingi og á mörgum öðrum stöðum og eru enn. Það hefur verið bætt úr fyrir þessum aðilum að ýmsu leyti, en ég tel, að hvað tekjustofna snert- ir, þá hafi alþingismenn algerlega sparað sér ómakið að hugleiða tekjustofna sýslufélaga og sýslu- félög hafa að þessu leyti orðið eftirbátur bæði ríkis og sveitar- félaga. Þá má því vera fullljóst af þessu, sem ég nú hef nefnt, að það ber hina brýnustu nauðsyn til þess að efla sýslusjóðina og auka tekjustofna þeirra“. F yrirspurnartími 1 GÆR voru á dagskrá samein- aðs þings fjórar fyrirspurnir. Fer hér á eftir stutt frásögn af fyrirspurnunum og svörum ráð- herra. Bundnar innstæður Karvel Pálmason (SFV) spurði viðskiptaráðherra: Hversu hárri fjárhæð námu bundnar innstæður banka, sparisjóða og innlánsdeilda hjá Seðlabanka Islands um sl. ára- mót? Kvernig skiptist fé þetta eftir kjördæmum? Lúðvík Jósepsson sagði, að bundnar innstæður hefðu um sl. áramót numið 6.797 milljón- um kr. Ef tekið væri mið af, hvernig innlán hefðu skipzt á afgreiðslustaði í lok sept. sl. hefðu hinar bundnu innstæður skipzt þannig á kjördæmi: Reykjavík 3.929 milljónir, Reykjanes 564 millj., Vestur- land 340 millj., Vestfirðir 265 millj., Norðurland vestra 258 millj., Norðurland eystra 598 millj., Austurland 265 millj. og Suðurland 578 millj. kr. Landshluta- áætíun N-Þing. Jónas Jónsson (F) spurði for- sætisráðherra: 1. Hvað líður gerð landshluta- áætlunar fyrir Norður-Þing eyjarsýslu? 2. Til hvaða þátta atvinnulífs og þjónustu er ætlað, að áætlunin nái? Ólafur Jóhannesson sagði, að verkfræðistofa Guðmundar Óskarssonar hefði haft áætlun- ina með höndum. Leggja hefði átt fram frumskýrslu til við- ræðna við forstöðumenn frá áætlanadeild Framkvæmda- stofnunarinnar fyrir miðjan febrúar, en því verið frestað til loka febrúar. Sagði ráðherra, að sér hefði ekki tekizt að ná I hlutaðeigandi til að fá upplýs- ingar um, hvort nú væri búið að leggja fram þessa frumskýrslu. 2. tl. fyrirspurnarinnar svar- aði ráðherra þannig, að engin grein atvinnulífsins hefði fyrir- fram verið útilokuð i áætlun- inni, en fyrirsjáanlegt væri, að hún myndi fyrst og fremst taka til þéttbýlisstaða á þessu svæði. Jónas Jónsson þakkaði svörin og taldi eðlilegt, að áætlunin beindist fyrst og fremst að þétt- býlisstöðunum. Halldór Blöndal (S) harmaði seinaganginn í áætlunargerð- inni. Hefði verið gert ráð fyrir, að unnt yrði að byrja á að vinna eftir henni áður en hún lægi fyrir í endanlegum búningi. Væru heimamenn orðnir óþolinmóðir og vildi hann því spyrja ráðherra, hve miklu fjár magni væri fyrirhugað að verja til framkvæmdanna á þessu ári. Ólafur Jóhannesson sagðist ekki hafa tiltækar upplýsingar um það. Halldór Blöndal kvað nauðsynlegt, að hið opinbera gerði upp við sig, hvort halda ætti þessu landsvæði í byggð. Kvaðst hann vænta þess, að ráð- herra gerði hvað hann gæti til að reka á eftir málinu. Ingvar Gfslason (F) sagði, að ekki væri eðlilegt að búast við, að áætluninni væri lokið, þar sem stutt væri síðan Fram- kvæmdastofnunin tók til starfa. Þá væri á þessu stigi útilokað að ákvarða fjármagn til fram- kvæmda. Endurskoðun tryggingakerfis Björn Pálsson (F) spurði tryggingaráðherra: Hvað hefur rfkisstjórnin gert viðvíkjandi endurskoðun á tryggingakerfinu, en tillögu til þingsályktunar um það efni var vísað til ríkisstjórnarinnar 14. apríl 1973? Sagði Björn í framsögu sinni, að hann hefði á 2 síðustu þing- um flutt þingsályktunartillögur um endurskoðun trygginga- kerfisins, sem miðuðu að því að gera kerfið einfaldara, ódýrara og réttlátara. Magnús Kjartansson sagðist vera sammála þingmanninum um, að endurskoðun væri nauð- synleg. I tilefni af tillögu Björns frá í fyrra hefði verið leitað eftir áliti frá Guðjóni Hanssyni tryggingafræðingi um endurskoðun á lífeyris- sjóðakerfinu. Hefði hann ekki talið mögulegt að sameina alla núverandi lífeyrissjóði í einn lífeyrissjóð, sem næði til allra landsmanna. Hefði hann bent á 3 leiðir f málinu. Sagði ráð- herra, að þingmönnum yrði innan skamms afhent eintök af skýrslu tryggingafræðingsins. Björn Pálsson sagði, að ráð- herra þyrfti ekki neina nefnd til að fjalla um málið, en í ræðu ráðherrans hafði komið fram, að nefnd væri í tryggingamál- unum. Taka mætti tillit til kerfa, sem notuð væru í Noregi og Svíþjóð, og þar sem ráðherra væri vel læs á þessi tungumál þyrfti hann engar nefndir til að semja fyrir sig einhver vit- leysisfrumvörp. Björn nefndi lögin um lífeyrissjóð bænda sem dæmi um vitleysuna í þess- um málum. Helzti kosturinn við þau væri sá, að þau væru svo vitlaus, að enginn færi eftir þeim. Að lokum lýsti þingmaðurinn því yfir, að hann væri til í að eyða tveimur kvöldstundum með ráðherra til að semja til- lögur í þessum málum og kvaðst hann ekki myndu taka neitt fyrir það. Öryggisráðstafanir fyrir farþegaflug Benedikt Gröndal (A) spurði dómsmálaráðherra: 1. 'Hvaða öryggisráðstafanir eru gerðar á íslenzkum flug- völlum til verndar farþegaflug- vélum gegn hættu á flugvéla- ráni, ferðum hermdarverka- manna og annars slíks? 2. Geta fslenzk yfirvöld annazt sprengjuleit í farþegaflugvél- um, ef tilefni gefst til? Einar Ágústsson utanríkis- ráðherra svaraði fyrirspurn- inni að ósk dómsmálaráðherra, en Einar fer með málefni Keflavíkurflugvallar. Ríkið hefði fest kaup á málm- leitartæki 1972 til að leita á farþegum og farangri í því Framhald á bls. 18 Nefndarálit: — Seltjarn- arnes verði kaupstaður FRAM er komið á Alþingi nefndarálit félagsmálanefndar neðri deildar um frumvarp til laga um kaupstaðarréttindi til handa Seltjarnarneshreppi. Legg- ur nefndin einróma til, að Seltjarnarneshreppur hljóti kaupstaðarréttindi, þó svo að dómsmálast jörn, lögreglustjórn, tollstjórn o.fl. heyri undir við- komandi embætti í Reykjavík. Fjarverandi afgreiðslu málsins í nefndinni voru þingmennirnir Stefán Valgeirsson (F) og Gylfi Þ. Gfslason (A). Nefndin leggur til að megin- greinar frumvarpsins hljóði svo: 1.1. gr. orðist svo: Seltjarnarneshreppur skal vera kaupstaður. Nær umdæmið yfir allan núverandi Seltjarnarnes- hrepp og heitir Seltjarnarnes- kaupstaður. Heyrir umdæmið til Reykjaneskjördæmi. 2. 2. gr. orðist svo: Dómsmálameðferð, lögreglu- stjórn, tollstjórn og önnur sú með- ferð málefna af hálfu ríkisvalds- ins í umdæminu, sem um ræðir í lögum um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o.fl., sbr. nú lög nr. 74 1972, heyrir undir þau embætti í Reykjavík, sem í þeim lögum greinir, sbr. nú 1.—6. gr. laga nr. 7.4 1972. Seltjarnarneskaupstaður og Reykjavík eiga saman dómþing- há.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.