Morgunblaðið - 13.03.1974, Síða 16

Morgunblaðið - 13.03.1974, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 16 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsmgar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 420,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 2 5,00 kr. eintakið. • • STOÐVAST FRYSTIHÚSIN? Astjórnarfundi í Sölu- miðstöð hraðfrystihús- anna í fyrradag var rætt um rekstrarerfiðleika hraðfrystihúsanna og kom þar fram, að ekki sé lengur rekstrargrundvöllur fyrir frystihúsin, þannig að við- búið er, að þau muni stöðv- ast innan skamms, annað- hvort öll í einu, vegna sam- eiginlegrar ákvörðunar um rekstrarstöðvun, eða þá eitt af öðru eftir því sem fjármagn þrýtur. Ástæðan til þessara miklu erfiðleika eftir sæmilega afkomu frystiiðn- aðarins að undanförnu er að sjálfsögðu hin geigvæn- lega verðbólguþróun inn- anlands, sem kynnt er und- ir af ríkisvaldinu með sí- felldri þensluaukningu og fjármálaráðstöfun ríkis- valdsins. En hins vegar eiga erfiðleikarnir rætur sínar að rekja til lækkandi verðs á útfluttum frystiaf- urðum. Frystihúsaeigend- ur krefjast þess nú, að ríkisvaldið geri ráðstafanir til að treysta grundvöll þessa mikilvægasta at- vinnurekstrar, og hljóta stjórnvöld að taka þessar aðvaranir alvarlega, enda blasti við hreint hrun fs- lenzks efnahags, ef um stöðvun frystihúsanna yrði að ræða. Á undangengnum árum hefur verið stöðug og gífurlega mikil hækkun á frystum fiski á erlendum mörkuðum. Hefur verðlag- ið yfirleitt mótazt af verði á frystri fiskblokk á frjálsum markaði í Bandaríkjunum, en það hefur stigið jafnt og þétt og komst í 82 Banda- ríkjacent, en var á erfið- leikaárunum 1967 og 1968 komið allt iður í nálægt 20 centum. Fjórföldun fisk- verðs á fáum árum gerði það að verkum, að unnt var að reka útgerð og fiskiðnað af þrótti, þrátt fyrir miklar innlendar hækkanir. Ljóst var þó, að á hverjum tíma var boginn spenntur til hins ítrasta og ekkert mátti út af bregða. Nú hafa þau illu tíðindi hins vegar spurzt, að fiskblokkin fari fremur lækkandi en hækk- andi. Að vísu er ekki enn um að ræða verulega lækk- un, en á hitt er að líta, að þetta er sá árstími, þegar fiskverð fer yfirleitt frem- ur hækkandi á Bandarfkja- markaði vegna mikillar fiskneyzlu á föstunni, en dreifingaraðilar byrgja sig gjarnan upp fyrstu mánuði ársins, og eftirspurn er þá mikil. Hætt er því við, að lækkun fiskverðsins nú boði varanlega lækkun, þótt vonandi verði hún ekki meiri en þegar er orð- ið. Fregnirnar af erfiðleik- um frystiiðnaðarins eru ennþá alvarlegri fyrir þær sakir, að framundan er augljóslega meiri og hrað- ari verðbólga en áður hef- ur hér þekkzt. Þeir erfið- leikar, sem við er að etja í dag, eru því barnaleikur hjá því, sem framundan er, ef ekkert verður að gert. Vinstri stjórnin hefur setið við völd í einstæðu góðæri, og má raunar segja, að heppilegt hafi verið að stunda þessa tilraunastarf- semi einmitt í mesta góð- ærinu, því að ella hefði þrengt heldur harkalega að fólki, vegna hinnar fá- víslegu stjórnarstefnu. En hætt er við, að nú sé komið að skuldadögunum, og lengur geta stjórnvöld ekki skotið sér undan þvf að gera einhverjar ráðstafan- ir til að tryggja hag út- flutningsframleiðslunnar. Ummæli blaðafulltrúans Aalmennum borgarafundi um öryggismál Islands s.l. sunnudag gerði Hannes Jónsson, blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar, sér lítið fyrir í ræðu og varði, þótt með óbeinum hætti væri, innrás Rússa í Tékkóslóvakíu. Blaðafulltrúinn vék að undirskriftasöfnun ,,Var- ins lands“ og gat þess f leiðinni, að hann hefði ver- ið í Sovétríkjunum um það leyti, sem innrás var gerð í Tékkóslóvakíu. Sagðist hann hafa fylgzt mjög rækilega með fréttum rússneskra fjölmiðla af þeim aðgerðum og hefðu þeir skýrt ítarlega frá því, að aðgerðir Varsjárbanda- lagsríkjanna hefði byggzt á því, að vinir þeirra í Tékkóslóvakíu hefðu ákall- að þá, sent áskorunarskjöl, og beðið þá að koma sér til hjálpar. Þegar blaðafulltrúinn hafði þetta mælt, klöppuðu nokkrir kommúnistar ákaf- lega og glöddust yfir því, að hafa í þjónustu sinni slíkan blaðafulltrúa, sem glottandi lagði að jöfnu undirskriftir meirihluta þess fólks, sem að jafnaði tekur þátt í kosninguin á Islandi og stórlygar rússneskra fjölmiðla um það, að tékkneska þjóðin hefði beðið Rússa um vernd, og innrásin hefði verið gerð að þeirra ósk. Rétt er að þetta framferði gleymist ekki. Baldur Hermannsson: PER OLOF SUNDMAN & YNGVE BAUM Manniskor vid haf 113 bls, 50 myndir, A Bonniers förlag StOckhoIm, 1966. □ i Loftferð Andrésar, bókinni um hinn misheppnaða heim- skautaleiðangur Andrées, segir Per Olof Sundman frá sviplegum aldurtila Snabbs nokkurs timburmanns. Snabb var þá staddur á Spitzbergen með leið- angri Nordenskiölds. Eínn frostkaldan vetrardag yf- irgaf Snabb skyndilega bækí- stöðvar leíðangursins. Hann kast- aði ekki kveðju á neinn, en hraðaði sér í norðurátt. Þetta gerðist í Ijósaskiptunum. Félagar hans kölluðu á eftir honum, skutu af rifflum, en alltkom fyrir ekki. Snabb sinnti því engu, heldur stikaði einbeittur í norður. Nordenskiöld sendi menn eftir honum, en rökkrið hafði gleypt hann. Daginn eftir fylgdu þeir slóð hans nokkrar klukkustundir, þangað til skammvinn skæðadrífa máði út sporin. Timburmaðurinn hafði gengið í norður og sneri aldrei aftur. Þetta gerðist árið 1872. Sagan fjallar fremur um höfuðáttina norður en Snabb timburmann. Sundman getur þessa ei.nkennilega atviks sem dæmis um híð kyniega seið- magn norðursins. Sjálfur gaf Sundman sig ungur seiðnum á vald. Hann fluttist frá fæðingarborg sinni, Stokkhólmi, til Norður-Svíþjóðar og rak þar hótel í hálfan annan áratug, áður en hann gerðist þingmaður og lár- viðarskáld. Sundman þekkir til hlítar hin harðbýlu lönd norðursins, frost- greipar vetursins, svalar, bjartar surnarnætur, dalalæðu og fótspor f morgundögg. Fólkið, sem býr Tvær bækur eftir Sundman þar, lífir, stritar og deyr á sérstak- an sess í hjarta hans. Hann fylgist stöðugt með hrær- ingum mannlífsins á norðurslóð- um. Einn daginn slægir hann þorsk um borð í norskum dalli. Svo skýtur hann upp kolli hress og kátur á heiðnu blóti á Drag- hálsi vestur. Ekkert norrænt er honum óviðkomandi. Mánniskor vid hav fjallar um fiskveiðar í Norður-Noregi. Sund- man tekur sér nokkurra vikna orlof frá þingstörfum veturinn 1966 og siglir með strandferða- skipi frá Ósló til Lofoten. Hann hreiðrar um sig í afskekktu sjávarplássi, Henningsvær. Febrúar er í versta ham, veðrið hryssingslegt, götur og sund litla þorpsins á kafi í krapi. Skáldið er stíflað af illkynjuðu kvefi, en ber sig vel. Hann öslar krapið, tekur menn tali, skrifar hjá sér samræður og upplýs- ingar. Hann rífur sig upp í morgunsárið og fer í róð- ur með fiskimönnunum. Hann sækir þá heim, drekkur með þeim rótsterkt kaffi og brennivín. Blóðugt þilfar og þröngur, skít- ugur lúkar er veröld að Sundmans. Fisknnennirnir eru hraustir, fáorðir strákar oggefa skáldínu í nefið. Neftóbakið og sjávarloftið kála í samvinnu kvef- sýklunum. Sundman spyr embættismenn og fiskkaupmenn spjörunum úr, safnar tölfræðilegum upplýsing- um um atvinnuvegi og framtíðar- horfur héraðsins. í Henningsvær ráða aflabrögð- in örlögum fólksins. Samt eru bát- arnir gamlir og i vondu ásigkomu- lagi. bryggjurnar fúnar. Margra ára aflabrestur hefur orðið Henningsvær þungur í skauti. Greinarhöfundur ræðirmálin við Per Olof Sund- man kosninganóttina 16. september síðastliðinn. Ljósm. Il.jG. Það örlar á feigðarmörkum og bölsýnín hefur undirtökin. PER OLOF SUNDMAN Lofoten sommar 177 bls, Ijósmyndir, P. A. Norstedt & Söners l'orlag Stockholm, 197.'1. Sumarið 1970 heimsækir Sund- man Henningsvær á nýjaleik, nú í samfylgd verndara síns, Önnu Karinar. Enn sem fyrr sprangar skáldið niður þeSsa einu götu þorpsins, sem heitið getur, og nú er hýrri háin. Rokfiskirí undan- farinna ára hefur stappað stálinu í þorpsbúa og þeir leika við hvern sinn fingur. Sól skín í heiði Anna Karin blóm í sveig. Gamlir kunningjar Sundmans bjóða þeim heim, og nú er uppi á þeim tippið. Kaffið er alltaf jafnsterkt, og hvanna- rótarbrennivínið islenzka lífgar sálaryl. Lofoten sommar er skemmti- legri aflestrar en Mánniskor vid hav. Frásögnin er gædd meiri lífs- gleði, bjartsýni og þrótti. Ljós- •myndarinn Y. Baum mynd- skreytti fyrri bókina, en Sundman sjálfur þá seinni. Mynd- ir Baums eru fallegar og listræn- ar eins og vera ber, en heimilda- gildi þeirra er hverfandi. Ég býst við, að myndir Sundmanns séu lakari, séð frá bæjardyrum ljósmyndalistarinnar, en þær hafa lífrænna samband við efr.i bókarinnar og veita betri upplýs- ingar. Sundman leggur áherzlu á hinn sameiginlega lífsstíl fólksins á norðurslóðum. ísland og Færeyjar koma litillega við sögu í Lofoten sommar. Þar segir m.a. frá samræðum við skáldið á Gljúfrasteini. Eitthvað virðist hafa hellzt illa upp á könnuna hjá Nóbelsskáldinu þann morguninn. Sundman segir Halldóri frá för sinni að Heklu, sem þá spjó eldi og eimyrju yfir landsbyggðina. „Ég hef ekki séð þetta nýja gos,“ segir Halldór. „Ég vil ekki sjá það. Önnur þjóðarógæfa ís- lands eru allar þessar rollur. A islandi eru fjórar rollur á hvert mannsbarn. Einu sinni uxu bjarkarskógar á íslandi. Nú eru þeir horfnir. Bannsettar rollurn- ar hafa nagað þá i tætlur." Sundman er öllu vanur og ekki af baki dottinn. Hann heldur áfram og segir nú Halldóri frá ferð sinni norður í land. Hann hælir Dettifossi á hvert reipi og lýsir með fjálgum orðum fegurð náttúrunnar þar um slóðir. „Ég hef komið þangað tvisvar,“ segir Nóbelsskáldið. „Þangað fer ég aidrei aftur. Það er einhver ófreskjubragur á Dettifossi. Ég bíð rrieð óþreyju þess dags, er við höfum efni á að virkja fossinn. Við verðum að forða kynslóðum framtíðarinnar frá Dettifossi.“ Sundman gerir sér sjaldan far um að kafa í sálardjúp þeirra, sem gegna hlutverkum í bókum hans. Hann lýsir andliti þeirra, svipbrigðum, augnaráði, brosi, vaxtarlagi, göngulagi, orðræðum þeirra og athöfnum. Hann hafnar þeim skáldasið að leggjast á skráargatið og Ijúga i eyðurnar. Þrátt fyrir óvenju hlutræna frá- sögn af, kjörum fölks á úlkjálka Skandinavíu tekst Sundman að skapa trausta heildarmynd, sem ólgar af lífi. Bækurnar eru troðfullar af töl- fræðilegum upplýsingum, en Sundman kann á því tökin að blása lífi í fróðleikinn. 1 höndum hans verður tölfræðileg skýrsla um fólksflutninga, aflabrögð og skreiðarútflutning hreinasti skemmtilestur. 1 þessum tveim bókum vottar hvergi fyrir stjórnmálalegum vangaveltum. Fyrirætlun Sundmans hefur Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.