Morgunblaðið - 13.03.1974, Page 19

Morgunblaðið - 13.03.1974, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974 19 Ellert B. Schram o. fl.: íþróttaiðkend ur njóti réttar til slysabóta Fram er komið á Alþingi frum- varp um breytingu á lögum um almannatryggingar, þar sem lagt er til, að íþróttaiðkendur, sem fyrir slysum verða við iðkun íþróttanna, njóti ákvæða laganna um slysabætur, en eins og kunn- ugt er hefur lengi verið mikill áhugi á þessu innan íþróttahreyf- ingarinnar. Fyrsti flutningsmaður þessa frumvarps er Ellert B. Schram (S), en auk hans standa að flutn- ingi frumvarpsins Stefán Gunn- laugsson (A), Jónas Arnason (Ab), Karvel Pálmason (SFV), Bjarni Guðnason (Ff) og Jón Skaftason (F). Greinargerðin með frumvarp- inu er svohljóðandi: Frumvörp um þetta sama efni hafa oft áður verið flutt á Alþingi, en þrátt fyrir góðar undirtektir þingnefnda og áskoranir íþrótta- samtakanna eigi náð fram að ganga, og hefur því barátta fyrir þessum sjálfsögðu réttindum íþróttafólks staðið í marga ára- tugi. Þau rök, sem mæla með sam- þykkt frumvarpsins, eru þessi: Eins og flestum, er til þekkja, er kunnugt, koma oft fyrir slys við íþróttaæfingar og íþrótta- keppni, án þess að um verði kennt óaðgætni eða slæmum útbúnaði íþróttatækja. Þeir, sem íþróttir stunda, eru oftast ungt fólk og í flestum tilfellum félítið. Augljóst er, að erfitt er fyrir þetta fólk að mæta skakkaföllum, sem það verður fyrir, þegar það verður lengri eða skemmri tíma frá verki vegna slysa við íþrótta- iðkanir. Þennan vanda hefur íþrótta- hreyfingin sjálf reynt að leysa með myndun eigin slysatrygg- ingasjóða, sem því miður, eftir meira en áratugar starfsemi, hafa eigi getað fullnægt nema hluta af tryggingaþörfinni. Um raunhæfa lausn á þessu máli er því ekki að ræða aðra en þá, að íþróttaiðkendur njóti ákvæða almannatryggingalag- anna um slysabætur. Um sanngirni slíks máls má leiða fram mörg rök, en hér verður aðeins bent á þýðingu íþróttanna fyrir uppeldi og hreysti æskunnar og reyndar allra þeirra, eldri sem yngri, er iðka íþróttir, og því fráleitt, að íþróttafélag njóti eigi ákvæða al- mannatrygginga um slysabætur við íþróttaiðkanir. Eins og fyrr segir, hafa Iþrótta- samband íslands og íþrótta- bandalag Reykjavikur rekið sjálf- stæða slysatryggingasjóði, sem þó hafa ekki haft bolmagn til greiðslu fullnægjandi slysa- og kostnaðarbóta og hafa verið fjár- Halldór Blöndal: HALDIN VERÐI SUMARNÁMSKEIÐ FYRIR RÉTTINDA- LAUSA KENNARA hagslegur baggi fyrir iþrótta- hreyfinguna. Hafa þessir sjóðir þó ekki staðið undir örorku- eða dánarbótum, og verður að telja það mikilvægasta nýmæli frum- varpsins, að gert er ráð fyrir greiðslu slíkra bóta vegna slysa íþróttafólks, sem leiða til örorku eða dauða. Það er með öllu ósæmandi, að íþróttafólk á íslandi skuli ekki búa við þær slysatryggingar, sem i lögum um almannatryggingar felst. Verður að telja eðlilegt, að sá fjárhagsvandi verði í fyrstu leystur sameiginlega af rikissjóði og iþróttahreyfingunni, en ágreiningur um iðgjaldagreiðslur hefur torveldað framgang þessa réttlætismáls. í því sambandi er hugsanlegt, að íþróttahreyfingin leggi fram höfuðstóla þeirra slysatrygginga- sjóða, sem hún nú rekur, enda verði þeir skoðaðir sem iðgjalda- greiðslur af hálfu íþrótta- hreyfingarinnar næstu árin. Með því ætti að létta á kostnaði ríkis- sjóðs vegna þessarar lagabreyt- ingar. Gert er ráð fyrir, að um þessi atriði verði nánar kveðið á I reglu- gerð. HALLDÖR Blöndal (S) mælti fyrir þingsályktunartillögu, sem hann flytur ásamt Sveríi Hermannssyni (S) um starfsrétt- indi kennara, á fundi sameinaðs þings í fyrri viku. Samkvæmt til- lögu þessari er lagt til, að Alþingi álykti að skora á ríkisstjörnina að hlutast til um, að yfirvöld haldi námskeið fyrir starfandi kennara á barna- og gagnfræðaskólastigi, sem ekki hafi kennararéttindi. Skuli við það miðað, að þeir hafi verið settir um óákveðinn tíma eða gegnt fullu starfi f a.m.k. fimm ár, enda mæli viðkomandi skólastjóri og fræðsluráð eða skólanefnd með því. Námskeið þetta skuli vera eitt sumar og haldið tvívegis aan.k. sumrin 1974 og 1975. Að þvf loknu skulu viðkomandi kennarar hafa full starfsréttindi á því stigi, sem þeir kenna við. í framsöguræðu sinni sagði Halldór Blöndal m.a.: „Ástæðan til þess að þessi til- laga er fram borin er sú, að eins og ástandið hefur verið í skóla- málum, hefur mikið skort á það, að kennarar með full starfsrétt- indi hafi fengist til þess að kenna við hina ýmsu skóla víðs vegar um landið. Þannig er nú talið t.d., að um 100 skólakennarar á barna- skólastigi hafi ekki full kennara réttindi, og er sömu sögu að segja úr gagnfræðaskólunum, að það er Qddur Olafsson: Sveitarfélögin fái Viðlagasjóðshúsin - m.a. til nota fyrir aldraða og öryrkja áhuga, því að enda þótt milli 80—90% af okkar fjölskyldum í þessu landi búi i eigin húsnæði, þá er það þó svo, að af ýmsum ástæðum eru vissir hópar þjóð- félagsins, sem jafnan þurfa að treysta á aðstoð og hjálp sveitar- félaganna til þess að geta búið í viðunandi húsnæði. Ég hef þá einkum í huga aldraða, öryrkja, ungt fólk, sem er að byrja búskap, j fólk, sem ekki hefur efni á þvi að kaupa sér íbúðir á gangverði og 1 þarf að búa i leiguhúsnæði i 5—10 ár, uns fjárhagurinn leyfir flutning i eigið húsnæði. Og svo enn fremur sérfrótt fólk, sem kemur til starfa úti í sveitar- félögunum í stuttan tíma, vill ógjarnan kaupa sér húsnæði á stöðunum eða byggja, en þarf á húsnæði að halda og er nauðsyn- legt fyrir sveitarfélögin að geta útvegað slíku fólki leiguhúsnæði, annaðhvort á eigin vegum eða a.m.k. sjá til þess, að það sé hægt að fá leiguhúsnæði innan sveitar- félagsins. Að öðrum kosti er lík- legt t.d., að unga fólkið drífi sig burtu til staða, þar sem lausn þessa aðalframfærsluvandamáls er auðveldari og enn fremur, að verr en ella gangi að fá kennara, heilbrigðisstarfsfólk og fleiri sér- fróða aðila til starfa. Varðandi aldraða hafa erfið- leikar þeirra hvað eftir annað verið ræddir hér á Alþingi. Öllum er ljóst, að húsnæði vantar fyrir aldrað fólk. Þótt þörfin sé e.t.v. mest fyrir hjúkrunarþurfandi aldraða, þá er þó allmikill fjöldi þeirra, bæði inni á stofnunum og i heimahúsum, sem gæti mjög auð- veldlega búið í húsum h'kum þeim, sem hér er um að ræða, búið við skilyrði þar sem þeim Framhald á bls. 18 Lárus Jónsson: ODDUR Ólafsson (S) mælti i síð- ustu viku fyrir tillögu sinni til þingsályktunar um ráðstöfun Við- lagasjóðshúsa. Gerir tillagan ráð fyrir, að ríkisstjórnin stuðli að þvf, að sveitarfélögum verði gef- inn kostur á að kaupa innan- sveitarviðlagasjóðshús á kostn- aðarverði, er þau verða auglýst til sölu nú á næstunni. Ennfremur, að 80% söluverðsins verði lánað sveitarfélögunum með hagkvæm- um kjörum, enda verði húsin nýtt sem elliheimili, sem íbúðir fyrir aldraða og öryrkja eða verði leigð þeim íbúum viðkomandi sveitar- félags, er ekki hafa efni á að koma sér upp eigin húsnæði. í framsöguræðu sinni fyrir til- lögunni sagði Oddur Ólafsson m.a.: „Þarfir sveitarfélaganna fyrir leiguhúsnæði eru viðurkenndar. Það hefur verið nefnt hér á Alþingi, að bygging leiguhús- næðis á vegum sveitarfélaga væri þjóðþrifamál. Það er vitað, að fjöldi sveitarstjórnarmanna hefur sýnt þessu máli mikinn Dieselrafstöðva þörf til að sporna við öngþveiti LARUS Jónsson (S) mælti fyrir tillögu til þingsályktunar, sem hann flytur ásamt Halldóri Blöndal (S) á fundi sameinaðs þings f fyrri viku. Tillagan er svohljóðandi: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að fela Raf- magnsveitum ríkisins að reisa vararaforkustöðvar á Ólafsfirði, Dalvfk, Greinivfk og Kópaskcri, og cndurbæta vélbúnað í stöðinni á Raufarhöfn:. 1 framsöguræðu sinni sagði Lárus Jónsson m.a.: „Það kom nýlega áþreifanlega í ljós, þegar mikið óveður geisaði á Norðurlandi, að nokkrir þéttbýlis- staðir þar á Norðurlandi. eystra eru illa settir með vararaforku. Hér er fyrst og fremst um að ræða Ölafsfjörð, Dalvík og Grenivík, en einnig væri þörf á að reisa vara- stöð á Kópaskeri fyrir sveitirnar í kring og hyggja að endurbótum á vélum vararaforkustöðvar á Raufarhöfn. Á þessum stöðum, sem ég nefndi hér og fram koma í tillögu- greininni, voru milljónatugaverð- mæti í hættu vegna rafmagns- skorts svo að sólarhringum skipti eftir að línur frá Laxárvirkjun og Skeiðfossvirkjun biluðu i um- ræddu óveðri. Hér var bæði um að ræða heimili fólks, sem beint og óbeint þarfnast raforku á þessum stöðum til upphitunar og einnig hvers konar atvinnurekstur og hraðfrystihús, en þar eru milljónaverðmæti i hættu, ef raf- orku nýtur ekki við auk þess tjóns, sem verður á starfrækslu þessara fyrirtækja.“ Þá vék Lárus að því, að iðnaðar- ráðherra hefði staðfest það á Al- þingi að Norðlendingar fengju ekki örugga orku frá Landsvirkj- un fyrr en sumarið 1976, jafnvel þótt háspennulína um byggðireða öræfi risi fyrr. ýmsir kunnáttu- menn bæru þó brigður á, að þessi áætlun mundi standast, en jafn- vel þótt hún gerði það, væri þörf á stórfelldri raforku frá dieselraf- stöðvum á Norðurlandi næstu ár, ef ekki ætti að verða þar algjört öngþveiti og stöðnun vegna orku- skorts. verulegur hópur kennara starf- andi þar, sem ekki hefur lokið tilskildum prófum. Réttarstaða þessara kennara er mjög óörugg og nánast þannig í mörgum tilfell- um, að kennararnir eru ráðnir frá ári til árs, en verða síðan að vikja, ef um stöðu þeirra sækir maður með full réttindi, jafnvel þótt þannig standi á, að nokkurn veg- inn megi segja með fullri vissu, að viðkomandi kennari muni ekki dveljast til langframa á þeim stað, sem um ræðir. Margir þessara réttindalausu kennara hafa rækt störf sín með mikilli prýði um árabil og beinlínis bjargað því að unnt hefur verið að halda uppi skólastarfi. Þetta fólk hefur lagt mikið á sig í sjálfsnámi og að auki öðlast gegnum langt starf mikla reynslu og þekkingu, sem er áreiðanlega virði þó nokkurrar skólagöngu. Á hinn bóginn hlýtur það að vera skylda rikisvaldsins að kosta nokkru til þess, að þeir menn, sem við kennslu fást, hafi nauð- synlega undirbúningskunnáttu og fræðslu, og það sýnist sanngjarnt, bæði gagnvart nemendum og eins gagnvart þessum kennurum, að Alþingi taki af skarið um það, að þetta starfsfólk njóti þess, sem það hefur vel gert á liðnum árum og efnt verði til sumarnámskeiðs fyrir það. Hér er um fullorðið fólk að ræða, sem mundi nota slík námskeið mjög vel og hafa mikið gagn af því. Þetta fölk mundi leggja sig fram um að geta notið alls þess, sem þar fer fram og áreiðanlegt er, að það yrði auðvelt fræðsluyfirvöldum að leiðbeina þessu fólki um það, hvernig það gæti undirbúið sig, áður en nám- skeiðin hæfust, þannig að fólkið væri vel með á nótunum um það, sem þar færi fram. Að mínu áliti er það ekki sæm- andi af ríkisvaldinu að nota starfs krafta þessa fólks á meðan ríkis- valdið þarf á því að halda, en síðar meir, þegar fólkið er farið að reskjast, þá eigi kannski að kasta því út á kaldan klakann og láta það taka upp aðra atvinnu, sem það hefur ekki gegnt. Þá er það einnig alvarleg hlið á þessu máli, og það er sú reynsla, sem orðið hefur af Kennaraháskólan- um síðan hann tók til starfa, við- hafa 7 ára nám að loknu lands- prófi. Eins og Kennaraskólinn var áður útskrifuðust þaðan urn 200 kennaraefni á hverju ári og nægði þó ekki til þess að full- nægja eftirspurninni. Nú eru horfur á því, að fulllærðir kennar- ar verði 12 og upp i 20 á næstu árum og það þarf ekki mörgum orðum að fara um það, hvert stefnir í þessum efnum, að við erum síður en svo þannig á vegi stödd og það hefu ekki verið stað- ið þannig að, að við getum búist við fullmenntuðum kennurum í öll þau störf, sem losna, hvað þá að taka við störfum af þeirn kenn- urum, sem vel hafa reynst á und- anförnum árum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.