Morgunblaðið - 13.03.1974, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974
21
Jóhann Sigurðsson, A.S. Goldberg og Ásbjörn Magnússon.
Vísindaráðstefnur
á Loftleiðahótelinu
A næstu 12 til 18 mánuðum
verða haldnar á Loftleiðahótelinu
nokkrar vfsindaráðstefnur, sem
fjölmargar erlendir vfsindamenn
og tæknifræðingar sækja. Undir-
búning og skipulag þeirra annast
A.S. Goldberg, framkvæmdastjóri
„Powder Advisory Center" í
London, en sú stofnun er ráðgef-
andi og veitir upplýsingar um
allt, sem lýtur að hvers konar
efnum f formi dufts. Hún hefur
sambönd um alian heim og árlega
eru fjölmargar ráðstefnur haldn-
ar á hennar vegum.
Goldberg er hingað kominn
fyrir tilstilli Jóhanns Sigurðs-
sonar, forstjóra islenzku flugfé-
laganna í London, til að kynna sér
þá aðstöðu, sem fyrir hendi er til
ráðstefnuhalds. Hann skoðaði
Loftleiðahótelið undir leiðsögn
Asbjörns Magnússonar og var
mjög ánægður með aðstöðuna.
I stuttu samtali sagði Goldberg
Morgunblaðinu, að þegar hefði
verið tekin ákvörðun um, að
fyrstu tvær ráðstefnurnar yrðu
haldnar í október og nóvember á
þessu ári. Þær eru liður í ,,keðju“
alþjóðlegra ráðstefna í þessari
grein, sem verða haldnar á árinu
1974.
Hann sagði, að þetta yrði mjög
„samþjöppuð" vinnuráðstefna og
hafa þekktir sérfræðingar frá
Sex í barna-
tímaráðinu
Morgunblaðinu hefur borizt at-'
hugasemd, þar sem tekið er fram
eftirfarandi: „Varðandi niðursöð-
ur fundar 5. marz s.l. um kristni-
boðsstarf i Konsó, viljum við taka
fram, að við vorum sex, en ekki
þrjú, sem lögðum til, að umrædd-
um formála yrði breytt eða
sleppt.“ Undir þessa athugasemd
rita nöfn sín: Hermann Ragnar
Stefánsson, Kristín Pálsdóttir,
Sigmundur Örn Arngrímsson,
Sigriður M. Guðmundsdóttir,
Sigrún Júlíusdóttir og Þorunn
Sigurðardóttir.
ýmsum löndum tekið að sér að
flytja fyrirlestra. Alls myndu um
100 manns sækja hvora ráðstefnu
erlendis frá en ef islenzkir aðilar
óskuðu eftir þátttöku, væru þeir
velkomnir. Meðal „dufta“, sem
framleidd eru hér á landi, má
Gosefnanefnd, sem starfað hef
ur undanfarin tvö ár að rannsókn
um og söfnun tæknilegra upplýs-
inga um íslenzk gosefni, vikur,
perlustein, basaltog hraun, hefur
sent frá sér áfangaskýrslu, þar
sem gefið er yfirlit yfir störf
hennar undanfarin tvö ár og gerð-
ar tillögur um viðfangsefni þessa
árs, 1974.
Meginverkefni nefndarinnar á
undanförnum árum hefur verið
að safna saman öllum upplýsing-
um, sem hagnýtt gildi hafa, um
útbreiðslu gosefna á Islandi, svo
og efnis- og eðliseiginleika þeirra
og nýtingarmöguleika. Niðurstöð-
ur þessara athugana sýna, að hin
(slenzku hráefni gefa margvís-
lega möguleika, bæði f byggingar-
iðnaði og iðnaðarframleiðslu og
er fyllilega ástæða til áframhald-
andi, skipulegra rannsókna á
þessu sviði.
Gosefnanefnd leggur til, að auk
þess sem haldið verði áfram
undirstöðurannsóknum á út-
breiðslu og eiginleikum gosefn-
anna verði í vaxandi mæli gerðar
framleiðslutilraunir, markaðs-
rannsóknir og verkfræðilegar
hagkvæmniskannanirum ákveðna
framleiðslu. Er m.a. lagt til, að
keyptur verði tilraunaþenjari
fyrir perlustein, sem settur verði
upp hjá Sementsverksmiðju ríkis-
ins. Þá verði gerðar tilraunir með
mölun og sigtun á perlusteini og á
þeim grundvelli hagkvæmniáætl-
un um vinnslu hráperlusteins úr
Prestahnjúki.
Þá er iagt til, að gerð verði
áætlun um vinnslu gosullar úr
nefna sement og áburð en stofnun
sú, sem Goldberg veitir forstöðu,
fjallar sem fyrr segir um hvers
konar efni i duftformi, hvort sem
það er ætlað til að byggja með hús
eða fegra andlit.
Hún rekur umfangsmikla útgáfu-
starfsemi og stendur að ráðstefn-
um, sýningum og fyrirlestrum.
Goldberg kvaðst hafa góðar vonir
um að þessar tvær fyrirhuguðu
ráðstefnur tækjust vel og að þær
yrðu undanfari fleiri slíkra á
komandi árum.
íslenzku basalti með aðstoð raf-
orku. Er þetta gert með tilliti til
fyrirsjáanlegra hækkana á
einangrunarefnum, sem fram-
leidd eru úr olíuefnum eða með
koksi sem orkugjafa.
Loks er lagt til að haldið verði
áfram tilraunum með notkun gos-
efna í ýmsum tegundum bygg-
inga- og framleiðsluiðnaðar svo
sem léttsteypugerð, trefjafram-
leiðslu, plötugerð o.fl. Gert er ráð
fyrir erlendri tækniaðstoð og
samböndum á vegum UNIDO og á
vegum NORDFORSK.
Kostnaður við tilraunir og rann-
sóknir á árinu 1974 er áætlaður
12,2 millj. kr. Af því eru 6 millj.
kr. veittar á fjárlögum, en vonazt
er eftir framlögum fyrirtækja og
sjóða til sérverkefna, er nemi mis-
muninum.
Athugasemd
í minningargrein um
Kristínu Sveinsdóttur er
birtist i Mbl. sl. sunnudag
féll niður nafn á systur
hinnar látnu, er talin voru
upp nöfn eftirlifandi systk-
ina hennar, en það er frú
Guðríður Sveinsdóttir.
Gosefnatilraunir
fyrir 12,2 ntillj.
Arni Jónasson klæðskera-
meistari og póstur sjötugur
EINN af merkari borgurum
Siglufjarðar, Árni Jónasson,
póstur, er sjötugur i dag, 13. marz.
Árni er fæddur að Akurbakka,
Grítubakkahreppi í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Foreldrar hans voru
frú Guðrún Jónsdóttir og Jónas
Einarsson. Þau hjón eignuðust
átta börn: stúlku, sem lézt á fyrsta
ári, og sjö syni, sem flestir komu
síðar við sögu Siglufjarðar á
blómaskeiði hans.
Synir þeirra hjóna, auk Arna,
voru:
Björn, f. 1886, kvæntur Guð-
rúnu Jónasdóttur, bjuggu í Siglu-
firði.
Einar, f. 1888, kv. Kristínu
Kristjánsdóttur, bjuggu á Hjalt-
eyri.
Njáll, f. 1893, kv. Olöfu Þorkels-
dóttur, bjuggu i Siglufirði.
Hómkell, f. 1893, kv. Jósefínu
Björnsdóttur, bjuggu í Siglufirði.
Jónas, f. 1895, kv. Oddfriði
Skúladóttur, bjuggu á Húsavík.
Garðar, f. 1898, kv. Guðrúnu
Ástvaldsdóttur, bjuggu í Siglu-
firði.
Árni, yngsti sonurinn, fluttist
til Siglufjarðar árið 1914, með for-
eldrum sinum og bræðrum, sem
þá settust að á jörðinni Hóli, við
rætur Hólshyrnu; fjallsins, sem í
hugum Siglfirðinga er nokkurs
konar tákn byggðar þeirra.
Hann er 10 ára, er hann kemur
að Hóli. Hann vex því úr barni i
fullþroska mann á sömu árum og
byggðin á Þormóðseyri vex úr
þorpi í kaupstað.
Árið 1923 fer hann til Akur-
eyrar og nemur þar klæðskeraiðn
hjá Sæmuncfi Pálssyni klæðskera-
meistara. Þar kynnist hann konu
sinni, frú Soffíu Jóhannesdóttur,
ættaðri úr Þingeyjarsýslu. For-
eldrar Soffíu voru Helga
Jóhannsdóttir og Jóhannes Páls-
son, sem áttu heima á Húsavik.
Soffía ólst upp hjá Friðriki Jóns-
syni pósti og konu hans Guðrúnu
Þorgrímsdóttur að Helgastöðum i
Reykjadal. Þau Soffía og Arni
giftust árið 1928.
Soffiu og Árna varð þriggja
barna auðið, en þau eru:
Haraldur, sparisjóðsgjaldkeri,
Siglufirði, kvæntur Helgu Guð-
mundsdóttur, Sigríður Lára, gift
Þorsteini Júliussyni frá Hrísev,
búsett i Mj’vatnssveit. Baldur,
viðskiptafræðingur, kvæntur
Kristinu Friðbertsdóttur, búsett i
Reykjavík. Börn þeirra hjóna eru
öll vel gerð og vel metin, svo sem
þau eiga kvn til.
Arið 1936 flytja þau hjón aftur
til Siglufjarðar, þar sem þau hafa
búið æ siðan. Þar setti húsbónd-
inn á fót saumastofu, sem hann
rak af miklum mvndarbrag um
langt árabil. Er Arni hætti rekstri
saumastofu sinnar var hann um
skeið starfsmaður Vatnsveitu
Siglufjarðar, en bæjarpóstur
hefur hann verið í Siglufirði frá
árinu 1963.
Arni Jónasson er hógvær
maðúr og hlédrægur. en vandaðri
maður og trúrri í smáu og stóru er
vandfundinn. Segja má að hann
eigi vin í hverjum sínum sam-
borgara, en óvin engan. Hann er
og örugglega gæfumaður í einka-
lifi og hefur átt heimilis- og
barnaláni að fagna. Hann kann
skil á þeirri list, sem ekki er öll-
um gefið. að leggja rétt verð-
mætamat á þau fyrirbrigði, sem
lifið hefur úpp á að bjóða.
Arni hefur tekið nokkurn þátt i
félagslifi bæjarins. A þeim vett-
vangi verður ekki komist hjá að
nefna störf hans í stúkunni Fram-
sókn. en innan vébanda hennar
hefur hann af heilindum starfað
frá árinu 1922, er hann gekk regl-
unni á hönd.
Siglfirðingar allir óska Arna
Jónassvni og fjölskyldu hans
heilla og farsældar í tilefni sjö-
tugsafmælisins.
Sigluf.. 8/3. 1974.
S.F.
íbúð óskast
Höfum fjársterkan kaupanda að góðri íbúð í Laugarnes-
hverfi í Laugarás. Æskileg stærð 5 til 6 herb. þar af 4
svefnherb.
ÍBÚÐA-
SALAN
INGÓLFSSTRÆTI
GEGNT
GAMLA BfÓl
SÍMI 12180.
ATVIKKA AI VIVXA ATVIKKA AI VIVXA
Háseta
vantar á netabát, sem rær frá
Grindavík.
Þórir h/f,
sími 18566 og 10362.
Stúlka óskast
til að hugsa um heimili út á landi.
Má hafa með sér barn. Uppl. í sfma
92—2825 á kvöldin.
Stúlka óskast
á skrifstofu strax. Vélritunar- og
enskukunnátta æskileg. Upplýsing-
ar sendist Mbl. merkt: „7557“.
Upptökuheimili
Starfsfólk vantar strax að Upptökuheimilinu i Kópa-
vogi. Starfið gæti orðið undirbúningur að frekara
námi á sviði félags- og unglingamála.
Skrifstofustarf á sama stað, ennfremur laust nú þegar,
hluta úr degi.
Upplýsingar í símum 41725 og 42900.
Umsóknareyðublöð fást á Upptökuheimilinu, Kópa-
vogsbraut 17, Kópavogi.
Skrifstofustörf
Viljum ráða stúlku til skrifstofu-
starfa, einkum við færslur í bók-
haldsvélum. Verzlunarmenntun eða
starfsreynsla æskileg. Upplýsingar
gefnar á skrifstofu okkar að Sætúni
8.
O. Johnson & Kaaber h.f.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu