Morgunblaðið - 13.03.1974, Síða 24
2:4
MORGUN^LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974
Jeane Dixon
Spáin er fyrir daginn f dag
Hrúturinn
21. marz — 19. apríl
I dag ættir þú að reyna að hvflast vel.
Kvöldið verður sérlega ánægjulegt f
skauti fjölskyldunnar. og ættirðu að
reyna að sjá til þess, að aðkomufólk raski
ekki húsfriðnum. Astamálin liggja f lág-
inni, en þú getur búizt við þvf, að bráð-
legadragi til tfðinda.
Nautið
20. apríl — 20. maí
Þú skalt hlusta vandlega á það, sem aðrir
vilja tjá sig um f dag. Þú hjálpar þeim
bezt með þvf, að láta þá hafa frumkvæðið
sjálfa. Allavega skaltu ekki blanda þér
að fyrra bragði f neitt, sem snertir
sjálfa(n) þig ekki beint.
Tvíburarnir
21. maí — 20. júní
Þú þarft að hafa fyrra fallið á f dag og
leysa skyldustörf þín innan fjölskyld-
unnar af hendi möglunarlausL Sérhlffni
þfn og tilætlunarsemi undanfarið veldur
þvf, að samkomulagið á heimilinu er
ekki einsgott og æskilegt væri.
Krabbinn
21.júní — 22. júli
Þér berast upplýsingar, sem geta orðið
þér að gagni, ef rétt er á málum haldið.
Heimskulegt stolt þitt gæti spillt alvar-
lega fyrir þér, og þess vegna er árfðandi
að þú reynir að færa þér f nyt þau
tækífæri, sem bjóðast, án óþarfa vanga-
veltna.
Ljónið
23. júli — 22. ágúst
Revndu að vera öðrum fyrirmynd, án
þess að hafa þig mikið f frammi. Umfram
allt skaltu varast að vera með umvönd
unarsemi. Þeir. sem skilja ekki afstöðu
þfna, án þess að þú vekir sérstaklega
athygli á henní, verða sennilega að reka
sig á sjálfir.
Mærin
23. ágúst — 22. s
sept.
Safnaðu saman vinum þfnum og reyndu
að komast til botns í vandamáli, sem
tefur sameiginlega hagsmuni ykkar.
Málefni krefjast úrlausnar, og er Ifklegt
að þau séu vfðtækari en virðist við fyrstu
sýn. Beittu þeirri samningalipurð, sem
þú átt til.
£
Wn
'Fi| Vogin
r 23. sept. — 22. okí.
xA
Njóttu þess sem lífið hefur að bjóða þér,
og vertu ekki sffelit að hugsa um hvernig
hlutirnir gætu verið ef allt væri öðruvfsi
en raun er á. Láttu liðna atburði ekki
ergja þig endalaust — þú hefur ekki
ástæðu til annars en bjartsýni þótt sumt
hafi farið öðruvfsi en ætlað var.
Drekinn
23. okt. — 21. nóv.
Nú er rétti tfminn til að leiðrétta mls
skilning og tala út um mál, sem orði
hafa að liggja f þagnargildi of lengi
Láttu álit þitt koma skýrt fram, og gætti
þess, að láta ekki kveða þig í kútinn, e
þú telur þig hafa á réttu að standa.
Bogmaðurinn
22. nóv. — 21. des.
Þér ætti að gefast nægur tfmi til rólegrar
fhugunar og hugleiðslu f dag. Hafðu bara
hugfast, að góður og einiægur vilji til að
leysa vandamál, er ekki nóg — einnig
verður að láta verða af framkvæmdum.
Hættu að leggja allt upp í hendurnar á
þfnum nánustu.
m
Steingeitin
22. des. — 19. jan.
Málefni, sem snerta hjónaband eða ásta-
samband, koma mjög við sögu f dag, og
verður hugur þinn að mestu bundinn við
þau mál. Þú skalt ekki láta hugfallast,
þvf að þú átt einhvers staðar hauk f horni
þótt leynt fari. Oft má satt kyrrt liggja.
i
Vatnsberinn
20. jan. — 18. feb.
Farðu snemma á fætur, og hafðu frum-
kvæði í því, sem fjölskyldan tekur sér
fyrir hendur f dag. Þú ættir að hafa
samhand við vini og skyldmenni, sem þú
hefur vanrækt að undanförnu. Þú munt
sjá liðinn atburð í nýju Ijósi staðreynda,
sem koma óvænt fram í dagsljósið.
Fiskarnir
19. feb. — 20. mar/
1 dag skaltu bregða út af venju, og gera
dálftið, sem þig hefur lengi langað til að
gera, en ekki haft tækifæri til áður.
Láttu úrtöiur annarra ekki hafa áhrif á
þig. Gerðu þér far um að komast að
sannleikanum f dularfullu máli, sem
e.t.v. hefur verið reynt að halda leyndu
fyrir þér.
X-9
LJÓSKA j
' iT'5 r'
imkmeem \
H0LPIN6THE ,
WINP50CK!y
' <-o ( m•••> \
«1
CíL i 3TT s ..
/
Það er kjánalegt að standa og
halda á vindsokknum!
KÖTTURINN FELIX