Morgunblaðið - 13.03.1974, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974
25
fclk f
fréttum
Utvarp Reykjavík
MIÐVIKUDAGUR
13. mar/.
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dag-
bl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund hamanna kl. 8.45: Þor-
leifur Hauksson les framhald sögunnar
„Elsku Míó minn“ e. Astrid Lindgren
(11).
Morgunleikfimi kl. 9.20. Tilkynningar
kl.9.30.
Þingfréttir kL 9.45. Létt lög á mi lli
atriða.
Úr játningum Ágústínusar kirkjuföð-
ur kl. 10.25: Séra Bolli. Gústafsson i
Laufási les þýðingu Sigurbjöms Ein-
arssonar biskups (11).
Kirkjutónlist kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00: Fílharmón-
íuoktetjjnn i Berlin leikur Oktett í F-
dúrop. 166 eftir Schubert.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 F'réttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Meðsínu lagi
Svavar Gests kynnir lög af hljómplöt-
um.
14.30 Síðdegissagan: „Föstuhald rabbí-
ans“ efti rllarry Kame Iman
Séra Rögnvaldur Finnbogason les (5).
15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist eftir
Jean Sibelius
Ruggiero Ricci og Sinfóníuhljómsveit
Lundúna leika Fiðlukonsert í d-moll
op. 47; Öivin Fjeldstad stj.
Sinfóniuhljömsveit Lundúna leikur
Sinfóniu nr. 5 í Es-dúr op. 82; Anthony
Collins stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.25 Popphornið
17.10 Útvarpssaga harnanna: „Óli og
Maggi með gullleitarmönnum" Höf-
undurinn, Armann Kr. Einarsson, les
(3).
17.30 Framburðarkennsla I spænsku
17.40 Tónleikar.
Á skjánum
MIÐVIKUDAGÚR
13. mars.
18.00 Skippl
Ástralskur myndaflokkur fyrirbörn og
unglinga.
Þýðand i Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.25 Gluggar
Breskur fræðslumyndaflokkur fyrir
börn og unglinga.
Þýðandiog þulurGylfi Gröndal.
18.45 Gítarskólinn
Gítarkennsla fyrir byrjendur.
6. þáttur.
Kennari Eyþór Þorláksson.
1905 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Konan mfn f næsta húsi
18.00 Húsnæðiv og byggingarmál
Ólafur Jensson sér um þáttinn.
18.15 Tónleikar.Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Beinlina
Fulltrúar bænda og neytenda i 6
manna nefndinni, Gunnar Guðbjarts-
son form. stéttarsamb. )>ænda og Torfi
Asgeirsson hagfræðingur, svara spurn-
ingum hlustenda um verðlagningu
landbúnaða rvöru.
Umsjónarmenn: Arni Gunnarsson og
Einar Karl Haraldsson.
20.00 K'öldvaka
a. Finsöngur
Ólafur Þ. Jónsson syngur lög eftir
Markús Kristjánsson.
Árni Kristjánsson leikur á pianó.
b. Hjá Austur-Skaftfellingum
Þórður Tómasson safnvörður í Skógum
flytur fjórða og siðasta hluta ferðaþátt-
arsins.
c. Liðins tíma lýsigulI
Elin Guðjónsdóttir flytur upphaf hug-
leiðingar Bjartmars Guðmundssonar
frá Sandi um þingeyskar stökur og
höfunda þeirra.
d. Æviminningar Firfks Guðlaugsson-
ar
Baldur Pálmason Ies þriðja hluta frá-
sögu húnvetnskserfiðismanns.
e. Haldið til haga
Grimur M. Helgason forstöðumaður
handritadeildar landsbókasafnsins tal-
ar.
f. Kórsöngur
Söngfélagið Harpa syngur íslenzk lög;
dr. Róbert A. Ottósson stj.
21.30 Útvarpssagan: Gfsla saga Súrsson-
ar
Silja Aðalsteiasdóttir les (4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusálma
(27).
22.25 Kvöldsagan: „Vögguvísa“ eftir
ElíasMar
Höfundur les (8).
22.45 Djassþáttur
Jón Múli Árnason kynnir
23.30 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.
Breskur gamanmyndaflokkur.
Vinirí raun
Þýðand i Jón Thor Haraldsson.
20.55 Nýjasta tækni og vfsindi
Umsjcnarmaður örnólfur Thorlacius.
21.25 Hryllingur
Ungversk bíómynd, byggð á sam-
nefndri sögu eftir LasáoNémeth.
Leikstjcri Georg Hintsch.
Þýðandi Hjalti Kristgeirsson.
Myndinge risti' afskekktu byggða rlagi i
Ungverjalandi á árunum milli heim-
styrjaldanna
Ung stúlka leiðist út í hjóiaband með
manni, sem henni er ekki meir en svo
geðfelldur, en það hjónaband fær s\ip
legan endl
23.20 Dagskrárlok
fclkí
fjclmiélum M. J
60 milljón
króna ritstjóri
Reg Murphy ritstjóra banda-
ríska dagblaðsins Atlanta
Constitution var rænt frá
heimili sínu fyrir nokkru, eins
og skýrt var frá í fréttum, en
siðan var hann látinn laus úr
ræningjahöndum eftir að út-
gáfufyrirtækið, sem gefur út
dagblað hans, greiddi fyrir
hann 700 þús. dollara lausnar-
gjald — eða um 60 milljónir ísl.
króna samkvæmt núgildandi
gengi. Var Murphy I haldi hjá
ræningjunum i tvo daga. Lög-
reglan handtók skömmu síðar
hjón, sem grunuð voru um
mannránið, og Murphy sagði, er
hann sá manninn, að ekki léki
nokkur vafi á því, að þetta væri
maðurinn, sem hefði rænt hon-
um. — Á annarri myndinni sjá-
um við Reg Murphy, ásamt
tveimur dætrum sínum og
eiginkonu, skömmu eftir að
honum var sleppt úr haldi. Var
myndin tekin fyrir utan heimili
hans, er hann svaraði spurn-
ingum fréttamanna. — Á hinni
myndinni sjást starfsmenn lög-
reglunnar telja hluta af þeim
peningum, sem náðust eftir
handtöku hjónanna, en mest-
allt lausnargjaldið komst til
skila.
Málverki af
Nixon stolið
í réttarsal lagadeildar Duke-
háskóla í Norður-Carolina-riki í
Bandaríkjunum hafði um
margra ára skeið hangið uppi
málverk af einum kunnasta lög-
fræðingnum, sem deildin hafði
útskrifað: Richard M. Nixon.
Hafði málverkið hangið á mest
áberandi stað i salnum, fyrir
ofan dómarastólinn. Málverkið
var metið á 12.500 dollara —
eða um 1.075.000 ísl. krónur.
Um hádegið 4. marz sl. sáu
menn allt í einu, sér til mikillar
skelfingar, að málverkið var
horfið af veggnum — því hafði
verið stolið! Upphófst nú mikil
leit og gengu lögreglumenn
skólans vasklega fram í því
verki og fundu að lokum mál-
verkið, rúmum sólarhring
síðar, ofan á „fölsku" lofti ann-
ars staðar í húsi lagadeildarinn
ar. Hafði einhver troðið mál-
verkinu á milli „falska" lofts-
ins, þ.e. loftklæðningarinnar,
og hins raunverulega lofts i við-
komandi herbergi — en ekki er
vitað, hver var þar að verki eða
hvers vegna þetta var gert. Nú
er búið að hengja málverkið að
nýju upp á sinum gamla stað.
Kannski einhverjum hafi
þött orðin skömm að því að hafa
hangandi uppi málverk af
Richard M. Nixon?
Skúli Sigurðsson.
Kl. 18 verður útvarpað þætti
um húsnæðis- og byggingamál.
Þátturinn er i umsjá Ólafs
Jenssonar, og ræddum við lítil-
lega við hann um þáttinn. Ólaf-
ur sagðist mundu eiga viðtal við
Skúla Sigurðsson skrifstofu-
stjóra Húsnæðismálastofnunar
ríkisins um þá fyrirgreiðslu,
sem stofnunin veitir húsbyggj-
endum. Skúli mun útskýra þá
möguleika, sem fyrir hendi eru
í þessum efnum, og jafnframt
hvernig menn skuli haga sér í
samskiptum við stofnunina, en
sú þjóðsaga hefur gengið, að
helzt þurfi að hafa lögfræðing
við höndina, þegar útfylla á
lánaumsóknir.
Konan
í næsta húsi
Að loknum sjónvarpsfréttum
og veðurfregnum verður sýnd-
ur annar þáttur um brezku
hjónin, sem gerðu heiðarlega
tilraun til að losna hvort frá
öðru, en tókst það ekki. Fyrsti
þáttur lofaði góðu um fram-
haldið, enda þótt mörgum finn-
ist e.t.v. vitleysan ganga einum
of langt. En þátturinn var fjör-
ugur og sprenghlægilegur í
bland, og þar með er tilgang-
inum náð.
Það er annars merkilegt út af
fyrir sig, hvað hægt er að gera
þokkalegt sjónvarpsefni úr
litilfjörlegu efni, og ætti það að
verða til eftirbreytni fyrir þá,
sem gefa sig að gerð sjónvarps-
þátta.
Ali f Beirut
Muhammad Ali (fyrrverandi Cassius Clay), fyrrverandi heims-
meistari í hnefaleikum þungavigtar (og tilvonandi heimsmeistari,
segja sumir), fór á dögunum I heimsókn til landanna fyrir botni
Miðjarðarhafs til að kynna sér ástandið hjá trúbræðrum sínum, en
hann er Múhammeðstrúarmaður, sem kunnugt er, og skipti einmitt
um nafn vegna trúar sinnar. Myndin var tekin, er hann heimsótti
Ain Helwe-flóttamannabúðirnar í Suður-Líbanon, og fylgja honum
vel vopnaðir Palestínu-skæruliðar. Ali dvaldist í búðunum I tæpa
hálfa aðra klukkustund, skoðaði búðirnar og neytti matar með
fjölskyldum í þeim. Hann gaf einnig eiginhandaráritanir og hlýddi
á vélbyssugelt, er skæruliðarnir dældu úr vopnum sínum upp f
loftið, honum til heiðurs.
Skriffinnskan
við lánaumsóknir
Hér er um að ræða mál, sem
snerta allan almenning, og
verður það því að teljast furðu-
leg ráðstöfun að þættinum
skuli vera ætlaður timi, þegar
fæstir eru við útvarpstækin.
A.m.k. verður að ætla, að fæstir
húsbyggjendur hafi tækifæri
til að hlusta á útvarpstæki kl.
18.
En ekki verður á allt kosið —
síðan fréttatíminn breyttist aft-
ur, hefur bezti hlustunartíminn
stytzt til muna. Þess vegna hlýt-
ur vandinn nú að vera sá að
meta, hvaða efni eigi að út-
varpa á tímanum milli 19.25 og
20.
Komu snemma
á kjörstað
Það var metþátttaka í brezku þingkosningunum á dögunum,
enda voru þær ákaflega þýðingarmiklar og úrslitin tvísýn. Nunn-
ur létu ekki sitt eftir liggja frekar en flestir aðrir og þessi mynd
var tekin við einn kjörstaðinn árla morguns, er nokkrar nunnur
komu til að greiða atkvæði sfn. — Það er heillandi spurning,
hverjum þær hafi greitt atkvæði sín — eða kannski þær hafi
skilað auðu?