Morgunblaðið - 13.03.1974, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1974
31
Bjarni Gunnar skorar I leik IS og IR
ÍR o g KR sigruðu
Bjarni Gannar
skoraði 44 stig
FYRSTU umferð Bikarkeppni
K.K.Í. er lokið. I fyrrakvöld fóru
fram tveir leikir, KR sigraði
Fram með 69 stigum gegn 46, og
ÍR vann óvæntan stórsigur yfir
ÍS, skoraði 108 stig gegn 87. Það
voru því lið ÍR, KR, UIWFN og
UMFG sem komust gegnum þessa
umferð, en Valur, Armann, HSK
og UMFS sátu yfir og koma nú
inn í 8 liða úrslit.
KR-ingar tefldu fram hálfgerðu
varaliði gegn Fram. Af þeirra
aðalleikmönnum léku aðeins þeir
Birgir og Stefán. Það tók KR líka
13 mín. að ná upp forustu i leikn-
um, mótspyrna Fram kom þeim
greinilega á óvart í byrjun.
Framarar börðust vel, og voru
yfir t.d. 10:6 á 6. min. og 12:8
stuttu siðar. En undir lok hálf-
leiksins sigu KR-ingar fram úr og
höfðu yfir í leikhléi, 38:24. Þessu
héldu þeir síðan í síðari hálfleikn-
um og unnu leikinn eins og áður
sagði með 69:48.
Ólafur Finsen skoraði mest
fyrir KR, 20 stig, og átti ágætan
leik.
Hið unga Framlið er greinilega
á réttri braut, og verður gaman að
fylgjast með því næstu árin. Leik-
menn eins og Jónas Ketilsson
Reynir Jónasson og Rúnar
Óskarsson eru mjög efnilegir.
Jónas skoraði þeirra mest í þess-
um leik 13 stig, Jónas 10.
Síðan léku ÍR og ÍS, og var
búist við skemmtilegri viðureign
qkki sist vegna sigurs ÍS yfir KR á
dögunum. Þetta fór þó nokkuð á
annan veg, ÍR-ingarnir voru mun
sterkari og unnu stórsigur. Þeir
höfðu 10 stig yfir í hálfleik 45:35,
og i síðari hálfleik juku þeir for-
skotið enn meira og unnu með
108:87. Liðið lék vel, og var annar
bragur yfir því en í leiknum gegn
HSK á dögunum. Bjarni Gunnar
var sá eini af leikmönnum sem
var góður. Bjarni var i miklu
stuði og skoraði 44 stig, mörg
þeirra á afar fallegan hátt. Eru
greinilegar framfarir hjá honum
þessa dagana, sérstaklega i
sóknarleiknum. Kolbeinn
Kristinsson skoraði mest fyrir ÍR,
25 stig, Agnar 22 og Kristinn 20.
Þá var ungur piltur sem kom inn
á undir lokin, Sigurbergur
Bjarnason, mjög góður, skoraði 8
stig og var með 100% nýtingu.
Búast má við að róðurinn verði
þyngri hjá ÍR í næsta leik keppn-
innar, en þá leika þeir gegn Val.
KR leikur gegn HSK, UMFN gegn
UMFS, og Armann gegn UMFG.
gk.
FH-stúlka bætti Islands-
metið í hástökki stúlkna
TVÖ ungmenni úr Hafnarfirði.
Lárus H. Bjarnason og Lára
Halldórsdóttir, unnu beztu afrek-
in á drengja- og stúlknameistara-
móti Íslands í frjálsum íþróttum
innanhúss, en það fór frám í
Njarðvíkunum um helgina. Lára
vakti mesta athygli með afreki
slnu í hástökki, stökk hún 1,58
metra og bætti bæði telpna- og
meyjametið í þessari grein. Átti
Lára mjög góðar tilraunir við 1,60
metra, og ætti að stökkva þá hæð
áður en langt um líður. Lárus H.
Bjarnason hlaut þrjá meistara-
titla í keppninni, sigraði f öllum
atrennulausu stökkunum. Þar er
á ferðinni piltur sem mikils má af
vænta í framtíðinni.
Segja má reyndar að ágæt afrek
hafi verið unnin i öllum keppnis-
greinunum. Þannig er 1,85 metr-
ar í hástökki hjá Jóni S. Þdrðar-
syni, ÍR, gott afrek, svo og 14,52
metrar í kúluvarpi hjá Þráni
Hafsteinssyni og 2,56 metrar f
langstökki án atrennu hjá Guð-
rúnu Agústsdóttur.
Vonandi leggur þetta unga
íþróttafólk sem þarna kom fram
rækt við íþrótt sína, því þá er ekki
að efa að árangurinn verður góð-
ur.
Helztu úrslit i keppninni fara
hér á eftir:
Kúluvarp metr.
Þráinn Hafsteinsson, HSK 14,52
Helgi Helgason, ÍR 13,21
Asgrímur Kristóferss. HSK 13,16
Hástökk með atrennu metr.
Jón Sævar Þörðarson, ÍR 1,85
Þráinn Hafsteinss. HSK 1,80
Lárus H. Bjarnason, FH 1,65
Langstökk án atrennu metr.
Lárus H. Bjarnason, FH 3,03
Guðmundur Sigurjónss.
USVS 2,96
FH-INGAR
AÐALFUNDUR körfuknattleiks-
deildar FH verður haldiun i fé-
lagsheimilinu að Hvaleyrarholti í
Hafnarfirði laugardaginn 16.
marz kl. 14.00. Félagsmenn eru
hvattir til að fjölmenna.
Ásgrímur Kristóferss. HSK 2,83
Hástökk stúlkna inetr.
Kára Halldórsdóttir, FH 1,58
Ingibjörg Aradóttir, ÚIA 1,45
Anna Haraldsdóttir, FH 1,40
Guðrún Ágústsd. HSK 1,40
Hástökk án atrennu metr.
Lárus H. Bjarnas. FH 1,45
Þráinn Hafsteinss. HSK 1,40
Olafur Óskarsson, Á 1,25
Langstökk stúlkna án atrennu
metr.
Guðrún Ágústsd. HSK 2,56
Sigriður Jónsdóttir, HSK 2,53
Ása Halldórsdóttir, Á 2,45
Þrfstökk án atrennu metr.
Lárus H. Bjarnason, FH 9,17
Þorvaldur V. Þórss. UMSS 8,73
Jón Sævar Þorðars. IR 8,66
Víðavangshlaup
Islands
VlÐAVANGSHLAUP Íslands fer
fram sunnudaginn 24. marz.
Keppt verður í karla-, kvenna-,
sveina-, drengja-, og piltaflokk-
um. Skriflegar þátttökutilkynn-
ingar verða að hafa borizt til
skrifstofu FRl, eða í pósthólf
1099, i síðasta lagi mánudaginn
18. marz.
Keppnisnúmer verða siðan af-
hent laugardaginn 23. marz kl.
10—12 á skrifstofu FRl í Iþrótta-
miðstöðinni í Laugardal. Þátt-
tökugjald á mann er kr. 50.00.
Blakað 1 Voga-
skóla í kvöld
í KVÖLD fer fram einn leikur í
Íslandsmótinu f blaki. Eigast þar
við UMFB (Ungmennafélag
Biskupstungna) og Víkingur. Fer
leikurinn fram í iþróttahúsi
Vogaskóla og hefst kl. 19.00. Bú-
ast má við harðri og skemmtilegri
viðureign þessara liða, sem hæði
eiga góða möguleika á islands-
meistaratitlinum i ár, einkum
þó Biskupstungnamenn sem eru f
forystu í islandsmótinu.
GETRAUNA- TAFLA NÚMER 29 ■♦o •H 40 £Ö f—1 Æ 1 u o s Tíminn Vísir 40 •H 40 cö 1—f & 3 40 1—i < •H 'O Ö •H 40 *H -P CÖ •P- w <1) C U 3 40 2 CO Sunday Mirror Sunday Express Sunday People News of the World Sunday Telepqraph SAMTALS
1 X 2
BirminKham - Han, Utd. 1 1 1 1 í 1 X X 2 X 6 5 1
Burnle.y - Everton 1 X X 1 X X X 2 X X 2 7 1
Chelsea - Newcastle X X X X X 2 1 I 1 2 5 5 2
Ipswich - Arsensl X 1 1 í 2 2 1 X 1 2 5 2 5
Leicester - Berby X 1 1 í 1 1 X 1 X X 6 4 0
Liverpool - Leeds X 1 X X X 1 X X 1 2 5 6 1
Man. City - Gheff. Utd. í 1 1 ' í 1 1 X 1 2 1 8 1 1
QPR - Wolves 1 1 1 1 1 2 1 1 1 1 9 0 1
Stoke - Southanroton í 1 1 í 1 1 1 1 1 1 lo 0 0
Tottenham - Norwich 1 2 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 1
West Ham - Coventry X 1 1 1 X 1 1 X X 1 6 4 0
Luton - Orient 1 X 1 í 2 1 X X X X 4 -5- 1
1 bikarkeppninni