Morgunblaðið - 29.05.1974, Side 1
32 SIÐUR
86. tbl. 61. árg.
MIÐVIKUDAGUR 29. IVIAÍ 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Skæru-
verkföll í
i
Sumarið er komið. (Ljósm. Mbl.: Ól.K.Mag.)
Heímastjórn Faulkners féll
m i i or talinn mikill sipur fvrir
lekur London við stjornartaumunum:
Belfast, 28. maf AP-NTB
• BKEZKA ríkisstjórnin beió
alvarlegan pólitískan ósigur í
dag, er hinir sex fulltrúar mót-
mælentla f heimastjórn Noróur-Ir
lands sögóu sig úr henni. Geróist
þetta eftir aó Merl.vn Rees,
Irlandsmálaráóherra ríkisstjórn-
ar Harold Wilsons, hafói hafnaó
því aó koma á vióræóum vió leió-
toga verkalýóssambands mótmæl-
enda, Verkamannaráós Ulster
(UWC), sem komió hefur á alls-
herjarverkfalli á Noróur-Irlandi
meó háskalegum afleióingum,
þar sem verkamennirnir hafa
neitaó aó láta undan síga fyrir
brezka hernum.
Dýrir
friðar-
fundir
Jerúsalem 28. maí—NTB.
TILKAUNIK Henry Kissing-
ers, utanríkisráóherra Banda-
ríkjanna, til aó le.vsa deiluna
um aóskilnaó herja Israela og
Sýrlendinga í Golanha;óum
undanfarnar fjórar og hálfa
viku hafa kostaó bandarfska
rfkiskassann meir en 100.000
dollara, þ.e. aóeins eldsnevtis-
og hótelútgjöidin. Kissinger
hefur eins og kunnugt er verió
á sffelldu hlaupi milli Jerú-
salem og Damaskus, — og
raunar annarra höfuóborga
Arabaríkjanna —, í Boeing
707 þotu sinni. ()g föruneyti
utanrfkisráóherrans hefur aó
jafnaói fyllt 106 hótelherbergi
hverju sinni. Já, frióurinn
getur veriö dýrkeyptur.. .
„Viö viljum ekki sjá land okkar
lamaó og fólk okkar deyja," sagöi
mótmælandinn Brian Faulkner,
sem var forsætisráöherra heima-
stjórnarinnar eftir afsögnina.
„Slíkt gerist ef verkfalliö heldur
áfram.“ Fulltrúar kaþólskra f
stjórninni hafa ekki formlega
sagt af sér, en í vfirlýsingu frá
brezku stjórninni segir aö heima-
stjórnin sé óstarfhæf án mótmæl-
enda. Er taliö aö stjórnin eigi
engan annan kost en aó stjórna
Noröur-Irlandi frá London.
Stjórnmálaskýrendur telja, aö
Harold Wilson eigi um tvær leiðir
að velja. Annars vegar að fela
Rees írlandsmálaráðherra að
mynda nýja heimastjórn, en
Faulkner hafði mælt með því í
dag. Geri hann það, er við því
búizt að mótmælendur haldi alls-
herjarverkfallinu áfram. Hins
vegar getur hann komið á ný á því
formi, að landinu verði stjórnað
frá London, en líklegt er talið að
mótmælendur myndu þá láta af
verkföllum, þótt það þýddi um
leið rnikla andspyrnu kaþólikka.
Sem fyrr segir er siðari kosturinn
talinn líklegri.
Fall heimastjórnarinnar í dag
er talinn mikill sigur fyrir öfga-
fulla mótmælendur á Norður-Ir-
landi, sem með allsherjarverkfalli
sínu undanfarna 14 daga hafa
leítt iandið í því sem næst efna-
Framhald á bls. 18
Lissabon, London,
28. maí AP—NTB
J IBUAK Lissabon fóru í dag
til vinnu án þess aö komast meó
strætisvagni og án þess aö hafa
fengiö nýbakaó brauö meó morg-
unkaffinu. Starfsfólk bakaría
lagói niöur vinnu á miónætti og
bættist því í hóp 5000 strætis-
vagna- og sporvagnastjóra sem
enn eru í verkfalli. Verkfalla-
hrinan í Portúgal gerist a> út-
breiddari. og póstmenn og starfs-
menn nokkurra náma nálægt höf-
uóborginni hafa einnig lagt niöur
vinnu. Krefjast allir þessir hópar
hærri launa og stvttri vinnutfma.
Algjört umferöaröngþveiti varó í
Lissabon í dag vegna verkfall-
anna. en tala þeirra sem í þeim
eru mun komin upp í 18000.
J Mario Soares, utanríkisráö-
herra Portúgals, fór skyndilega
frá London í dag, þar sem hann
hefur setiö á samningafundum
meö fulltrúum frelsishrevfinga
Portúgölsku Guíneu, og hélt heim
til Lissahon. Kvaó hann ástæöuna
vera aókallandi mál í utanríkis-
ráöunevtinu. Taliö er þó Ijóst. aó
viöræóurnar í London um vopna-
hlé og framtíð nýlendunnar gangi
ekki allt of vel. Soares hyggst fara
til London aftur innan tveggja
daga.
Hin nýja ríkisstjórn Chiracs í Frakklandi:
Embættismenn með tvö
mikilvægustu ráðuneytin
Pai ís 28. maí—AP
• Jacques Chirac, hinn nýi for-
sætisráðherra Frakklands (sjá
grein á bls. 15), tilkvnnti í dag
um ráðuneyti sitt. Er Jean
Sauvagnargues, sein er 59 ára aó
aldri, utanrfkisráöherra. Hann er
þrautþjálfaóur diplómat, og hef-
ur verió sendiherra Frakklands í
Bonn frá árinu 1970. Þá útnefndi
Chirac tvo stjórnmálaleiótoga,
sem andsnúnir voru stjórn Gaull-
ista. ráöherra sfna, þ.e. Jean
Lecanuet sem dómsmálaráðherra
Góðir möguleik-
ar á samningum
Damaskus, 28. maí AP—NTB
I FJÓRTANDA sinn á 31 degi
kom llenr.v Kissinger, utanríkis-
ráóherra Bandaríkjanna, í dag til
Damaskus, höfuöhorgar Sýrlands,
til þess aó gera lokatilraun, — f
hili —, til aó koma á sættum milli
Sýrlendinga og tsraela um aö-
skilnaó herja þeirra f Gólanhæó-
um. Háttsettur bandarfskur emb-
a'ttismaöur sagói í dag, aö Kiss-
inger ætti „mjög góöa mögu-
leika" á aö ná samkomulagi, en
hann ætlar aó ræóa viö Assad
Sýrlandsforseta, og einnig Andrei
Grom.vko, utanríkisráöherra
Sovétríkjanna, sem nú er í
Damaskus. A meöan ræöa ísra-
elskir leiötogar sföustu sáttatil-
lögurnar í Jerúsalem, en munu
ekki taka endanlega ákvöróun um
hvort þeir ganga aö þeim fvrr en
á morgun.
Ferð Kissingers til Damaskus
var svo óvænt að yfirvöld i Israel
og Sýrlandi höfðu ekki tima til að
gera hinar hefðbundnu öryggis-
Framhald á bls. 18
og Jean-Jaeques Servan-
Sehreiber sem ráöherra með mál-
efni umbóta á stjórnunarsviöinu.
Servan-Schreiber er ekki sízt
kunnur sem útgefandi fréttatíma-
ritsins L'Express, en hefur líka
verió í forsetakjöri.
• Ríkisstjórn Chiracs er — eins
og hann hafói lofaö —, fámenn. 1
henni eru aðeins 15 ráðherrar,
jafnmargir og í fyrrverandi
stjórn Pierre Messmer. Af öörum
embættum má nefna, aö innan-
ríkisráöherra veröur Michel
Poniatowski, hægri hönd Valerv
Giscard d’Estaings forseta, en
stjórnmálalega óþekktur iöju-
höldur, Jacques Soufflet hreppir
varnarmálaráðunevtió. Jean-
Pierre Ouracade, sem lengi var
satnstarfsmaóur Giscards í fjár-
málaráðune.vtinu, verður fjár-
málaráðherra.
Síðar er það ætlun Chiracs að
bæta við nokkrum aðstoðarráð-
herrum. Við skipunina i ráðherra-
embættin hélt Chirac eftir aðeins
þremur ráðherrum úr síðustu
stjórn Messmers. Robert Galle.v,
fyrrum varnarmálaráðherra verð-
ur ráðherra með málefni upp-
byggingar og skipulags innan-
lands, Christian Bonnet, fyrrum
aðstoðarutanríkisráðherra verður
landbúnaðarráðherra, en Michel
Poniatowski var áður heilbrigðis-
málaráðherra. Ein kona á sæti f
ráðuneytingu. Það er frú Simone
Veil, 46 ára lögfræðingur sem áð-
ur vann í dómsmálaráðuneytinu.
og verður nú heilbrigðismálaráð-
herra. Nýtt ráðuneyti. .lífsgæða-
ráðune.vtið", verður falið Andre
Jarrot, þingmanni sem var fræg-
ur mótorhjólakappi fyrir stríð.
Með önnur ráðuneyti fara:
Rene Haby menntamálaráðherra.
Pierre Abelin ráðherra með mál-
efni samvinnu við þróunarlöndin.
Michel Durafor. atvinnumálaráð-
herra, Michel D'Ornano iönaðar-
ráðherra og Vineent Ansquer við-
skiptaráðherra.
Skipun utanríkisráðherraemb-
ættisins kom einna mest á óvart
við birtingu ráðherralistans. Er
talið liklegt að með þvf að skipa i
það býzkalandssérfræðing, sé það
ætlun Chiracs að reyna að veita
nýju lífi inn í hugmvndina um
sameinaða Evrópu með nánu sam-
starfi Frakklands og Þýzkalands.
Einnig er talið. að sú staðre.vnd að
tvö mikilvæg ráðherraembætti. —
utanrikis- og fjármála, — eru fal-
in mönnum sem ekki eru stjórn-
málamenn, gefi til kynna. að
Giscard d'Estaing muni sjálfur
láta mikið að sér kveða í þessum
tveimur málaflokkum. Er það
skoðun ýmissa stjórnmálaskýr-
enda að með þe^sum ráðherralista
hafi allar hefðir Gaullista i þess-
um efnum verið brotnar.
Portúgal