Morgunblaðið - 29.05.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDACUR 29. MAÍ 1974 19
Guðrún Tómasdóttir:
Sannleikurinn
um altaristöfluna
frá Þingvöllum
um
frá
Tekíð skal fram, að grein
þessi barsl Morgunblaðinu f
byrjun prcntaraverkfalls og
hefur ekki birzt fyrr en nú sök-
um þrengsla.
Mér þykir leitt, að það skuli
þurfa að falla i minn hlut að
bæta við blaðaskrif vegna
altaristöflunnar gömlu frá
Þingvöllum. En samt get ég
ekki látið hjá líða að svara
grein Magnúsar Magnússonar
(Mbl. 27.2. ’74), þar eð I henni
er gefið í skyn, að grein Guðríð-
ar Magnúsdóttur (Mbl. 12.2
’74) sé ónákvæm óg dregið í efa
sannleiksgildi hennar.
í grein sinni taldi Guðriður,
að Frand Ponzi, listfræðingur,
hefði verið sá, sem uppruna-
lega kom af stað leitinni að
týndu altaristöflunni. Frásögn
hennar var i alla staði rétt,
nema hvað ártalið 1971 kom þar
i stað 1970. Magnús Magnússon,
sem ekki vissi betur svaraði og
benti réttilega i grein sinni á
þessa mótsögn, en gerði um leið
framburð Guðríðar tortryggi-
legan.
Búast hefði mátt við, að
þjóðminjavörður, sem uppruna-
lega bað Frank Ponzi að fara til
Þingvalla og þjóðgarðsvörður,
sem hafði nöfn viðkomanda í
gestabók sinni frá þeim tíma,
myndu koma fram og leiðrétta
þessa villu. Ef þeir mundu ekki
betur, gátu þeir spurt undir-
ritaða, eða málarann, sem vann
við kirkjuna einnig á þeim tíma
og var viðstaddur. En því miður
kusu þeir að láta ekki frá sér
heyra.
Þögn þeirra í þessu máli
hvetur til þessarar leiðrétting-
ar:
Síðsumars árið 1970 var ég
viðstödd, er presturinn á Þing-
völlum veitti, aðspurður, upp-
lýsingar um altaristöfluna.
Hann lét um leið i Ijós efasemd-
ir um, að möguleiki reyndist að
hafa upp á.töflunni eftir svo
mörg ár. Einnig varð ég vitni að
því, er Frank stafaði nafn
frú Disney Leith I
síma fyrir þjóðminjavörð
og hvatti hann til að „kosta
til einu frímerki” og
spyrjast fyrir um ættingja frú
Leith í Skotlandi. í sama sím-
tali lagði hann ennfremur til.
að ef, og þegar altaristaflan
fyndist, mætti segja ættingjun-
um frá endurnýjun Þingvalla-
kirkju og athuga líkur á, að
henni yrði skilað aftur á sinn
upprunalega slað. Frank
stakk einnig upp á, að
minningaskjöldur um frú
Disney Leith yrði sett-
ur upp á Þingvöllum og
eftirlfking af altaristöflunni
gefin í hennar stað. Ekki löngu
seinna hringdi þjóðminjavörð-
ur til að skýra Frank frá fundi
töflunnar og að von væri bráð-
lega á mynd af henni. Frank
var aldrei sýnd ljósmyndin og
aldrei siðar var minnst á hans
þátt í þessu máli.
Harma ber, að mál. sem
sprottið var af svo einlægum
velvilja skuli nú hafa snúist í
hvimleiðar rangfærslur. Sann-
leiksgildi þessarar frásagnar
þekkja þeir, sem hér hafa verið
nefndir. En það, sem meira
máli skiptir en staðreyndir,
lítilsigldur frami, eða
ónákvæmni í sjónvarpsþætti
BBC, er sú ágenga spurning,
hvers vegna það reyndist nauð-
synlegt að rangfæra sannleik-
ann.
Brennholti,
Mosfellssveit,
25. marz 1974.
Upphlutur tuttugustu aldar.
Nýr upphlutur á
þjóðhátíðarári
tslenzkir þjóðbúningar I heitir
bæklingur, sem nýlega kom út á
vegum samstarfsnefndar
Heimilisiðnaðarfélags Islands,
Kvenfélagasambands íslands og
Þjóðdansafélags Reykjavíkur.
Nefndin var sett á laggirnar til að
gera tillögur um samræmingu I
gerð íslenzkra þjóðbúninga með
hliðsjón af eldri gerðum, koma á
framfæri leiðbeiningum um gerð
búninga og reyna að tryggja, að á
boðstólum séu efni, sem hæfa í
búningana. I þessum bæklingi
eru ábendingar um upphlut og
fylgja snið að upphlutsbol, skyrtu
og pilsi. Gerð þessara munstur-
blaða og vinnulýsinga er einn
þáttur I starfi nefndarinnar, en
væntanlega koma snið og lýsingar
á fleiri búningagerðum síðar.
Snið og vinnulýsingu gerði
Svanhvít Friðriksdóttir handa-
vinnukennari. en yfirlit um bún-
ingahluti o.fl. gerði Elsa E.
Guðjónsson safnvörður. Ljós-
myndir tóku ljósmyndastofan
ímynd og Gísli Gestsson safn-
vörður, en teikningar eru eftir
Jenný Erlu Guðmundsdóttur. í
samstarfsnefndinni, sem stendur
að útgáfu bæklingsins, eiga sæti
þær Gerður Hjörleifsdóttir, Elsa
E. Guðjónsson, Dóra Jónsdóttir og
Sigríður Thorlacius. Bæklingur-
inn verður til sölu í verzlununum
Vogue, Baldursbrá, skrautgripa-
verzl. Jóns Dalmannssonar,
islenzkum heimilisiðnaði og hjá
Kvenfélagasambandi islands,
sem jafnframt annast dreifingu
út á land.
Nú geta íslenzkar konur því
saumað sér sjálfar upphlut og má
segja, að það hæfi vel á þjóð-
hátiðarári. Að vísu verður það
nokkuð dýrt, en bara silfrið, sem
reyndar er það lang dýrasta,
kostar varla minna en 30 þús.
krónur. Þess má þó geta, að ekki
þarf að kaupa það allt í einu og
hér er um að ræða búning, sem
hægt er að nota jafnvel kynslóð
fram af kynslóð.
Tveir nýir
ræðismenn
GUNNARI Ásgeirssyni stórkaup-
manni í Reykjavík hefur verið
veitt viðurkenning til að vera
kjörræðismaður með aðalræðis-
mannsstigi fyrir Perú.
Þá hefur Gísli M. Gíslasyni ver-
ið veitt viðurkenning til að vera
kjörræðismaður með vararæðis-
mannsstigi fyrir Sambandslýð-
veldið Þýzkaland í Vestmannaeyj-
um.
Rækjuafli fyrir vestan
svipaður og í fyrra
RÆKJUVERTÍÐ S Vestfjörðum
lauk f lok aprflmánaðar, þegar
Bfldudalsbátar hættu veiðum.
Steingrímsfirðingar hættu veið-
um f lok marz, en ísfirðingar f
byrjun apríl. Þegar vertíðinni
lauk, höfðu borizt á land 2,192
lestir. Er það 4 lestum meira en á
vorvertíð 1973, og upp á tonn
sami afli og barst á land á vorver-
tfð 1972. Aflinn á þessum þremur
vertfðum skiptist þannig eftir
svæðum:
lestir. en haustið gaf 241 lest. Er
vertíðaraflinn þvf 611 lestir, en
var 600 lestir í f.vrra. Aflahæstu
bátarnir voru: Vísir með 47,7
lestir, Svanur 35,5 lestir, Jódis
34.7 lestir.' Þröstur 34.7 lestir og
Helgi Magnússon 34,2 lestir.
Við ísafjarðardjúp bárust á
land 1.219 lestir, en haustið gaf
1.290 lestir. Er vertíðaraflinn því
2.509 lestir, en var 1.903 lestir í
f.vrra.
Bíldudalur
ísafjarðardjúp
Steingrímsfjörður
1972
297 lestir
1.374 lestir
521 lestir
1973
391 lestir
1.188 lestir
609 lestir
1974
370 lestir
1.219 lestir
603 lestir
Leiðrétting
I MORGUNBLAÐINU, þriðjudag-
inn 28. maí, sl.. eru umsagnir
forustumanna Sjálfstæðisflokks-
ins i kaupstöðum og kauptúnum
landsins um úrslit kosninganna. 1
umsögn Sigurðar Helgasonar.
ef.sta manns á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Kópavogi, varð nokkur
brenglun og er svar Sigurðar rétt
þannig:
„Við erum ánægðir yfir að hafa
aukið fylgi okkar hér um 5.2%. en
ég get ekki neitað því, að ég
vonaðist til, að samstarfsflokkar
okkar, Framsóknarflokkurinn og
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna, sem nú stóðu að framboði
saman. mundu koma betur út úr
kosningunum en raun ber vitni
um, þar sem ég tel. að framfarir í
Kópavogi séu f.vrst og fremst
þessum aðilum að þakka”. os.frv.
Samtals
2.192 lestir 2.188 lestir 2.192 lestir
Heildaraflinn á haustinu var
2.006 lestir á móti 1.241 lest árið
áður. Er vertiðaraflinn frá hausti
til vors þvi 4.288 lestir, en var
3.429 lestir vfir sama tímabil í
fyrra.
á Bíldudal bárust á land 370
SAMKVÆMT bráðabirgðaskrán-
ingu Umferðaráðs á umferðar-
slysum þá fjóra mánuði, sem af
eru þessu ári, hafa alls orðið 2308
umferðaróhöpp. í 266 tilvikum
urðu meiðsli á mönnum, alls 355,
sem slösuðust, og 4, sem létust.
Sömu mánuði ársins 1973 voru
2424 umferðaróhöpp skráð, þar af
254 með meiðslum. Samanburðar-
tala um fjölda slasaðra liggur
ekki fyrir, en fyrstu fjóra mánuði
A Hólmavík og Drangsnesi
komu á land 603 lestir, en haustið
gaf 565 lestir. Vertíðaraflinn er
því 1.168 lestir. en var 926 lestir í
fvrra. Aflahæstu bátarnir voru
allir með um 50 lestir frá ára-
mótum.
þessa árs létust 9 manns í um-
ferðarslysum. . .
Af þeim 355 vegfarendum, sem
slösuðust það sem af er þessu ári,
voru 110 ökumenn, 117 farþegar,
111 gangandi vegfarendur og 17
hjólreiðamenn. 86 hinna slösuðu
voru 14 ára og yngri, 55 voru
15—17 ára, 44 voru 18—20 ára, 32
voru 21—24 ára, 122 voru 25—64
ára og 16 voru 65 ára og eldri.
Jeppinn
lagðist
saman
Akureyri, 27. maí.
MJÖG harður bifreiðaárekstur
varð I Öxnadal skammt sunnan
við Engimýri. sem er fremsti
byggður bær I dalnum. skömmu
eftir hádegi sl. laugardag. Þar
rákust saman Blazer-jeppi frá
bílaleigu, sem var á suðurleið. og
flutningabíll úr Reykjavík á
norðurleið. Flutningabillinn fór
út af veginum og valt á hliðina, en
jeppinn snerist og lagðist að
miklu leyti saman við áreksturinn
og er hann talinn ónýtur. Tveir
menn voru f vörubílnum og
sakaði ekki, en 4 piltar í jeppan-
urn og sluppu lítt meiddir nema
ökumaður, sem kjálkabrotnaði
illa og hlaut fleiri meiðsl og
liggur I sjúkrahúsi.
Sv.P.
Fjögur banaslys
í umferðinni