Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGÚR 29, MAl 1974
29
s <uggamync í f inrskn FRAMHALDSSAGA EFTIR |^>ll MARIU LANG, ÞÝÐANDI: JÓHANNA KRISTJONSDÓTTIR.
20
ekki sérlega upplögð til sam-
ræðna. Samt reyndi ég í fáum
orðum að segja honum, hver
Staffan Arnold væri, því að þeir
höfðu ekki hitzt og hvernig mál-
um væri háttað með ritgerð hans.
Við gengum upp teppalagðan stig-
ann og síðan komurn við upp á
aðra hæð. Ég fór með honum og
sýndi honum það helzta og svo
stefndum við til „söguherbergis-
ins" aftur.
Ég velti því að sjálfsögðu fyrir
mér, hvernig þau hin tækju komu
hans. Christer Wijk var ekki bein-
línis sannfærandi sem feiminn
stúdent, væri að koma I fyrstu
heimsókn sína í Hug-B. En allt
gekk þó ágætlega.
Ég tautaði nafn hans og sagði:
— Þetta er bezti vinur okkar
Einars. Hann annast mig þangað
til Einar kemur heim. Ég deplaði
augunum til Jans og hann virtist
skilja hvað fyrir mér vakti, því að
hann kinkaði kolli til Christers og
hélt áfram þeim samræðum, sem
höfðu rofnað, þegar við komum
inn.
Þú varst að segja, Karl Gustaf,
dálítið, sem ég er hræddur um að
ég skilji ekki til fullnustu...
Karl Gustaf hafði tekið fæturna
niður af borðinu og sett upp gler-
augu. Kannski hélt hann að hann
væri virðulegri með þau.
— Eg meinti aðeins að þessi
skoðun er hættuleg og röng og
hún hvetur beinlínis til að glæpur
sé framinn. Ef maður heldur að
lifið sé ekki annað en flöktandi
skuggi, eitthvað EKKERT, sem
engu mái skiptir, þá sé ég heldur
ekkert því til fyrirstöðu að við
aðhöfumst eitthvað sem slekkur
LlFIÐ? Skilurðu? Li'ttu bara á
Macbeth. . .
— Nei, þarna skjátlast þér!
Rödd Jans var áköf eins og alltaf,
þegar hann steypti sér út í rök-
ræður. — Macbeth myrðir ekki,
VEGNA ÞESS að hann héfur
þetta lífsviðhorf, heldur notar
hann það, þegar hann vill sefa
sína slæmu samvizku, eftir að
hafa framið morðin. Eg held alls
ekki...
Staffan Arnold tók nú þátt í
samræðunum og baðaði ákaft út
höndum.
— Eg stend með Jan. Ef Karl
Gustaf fengi vilja sinum fram-
gengt þá mundi hann sjálfsagt
verða fær um að sanna að hugsjón
Platons — að lífið sé draumur —
sé gróðarstía fyrir nútíma vald-
beitingu. Það er bezt að við stöðv-
um hann i tæka tið.
— Ó, gvöð. . . hvað þið eruð há-
fleygir! Getið þið ekki talað um
eitthvað sem maður skilur?
Lillemor tókst meira að segja að
geispa á kvenlegan máta. Hún
teygði þokkafull úr sér, lokaði
augunum og opnaði munninn, svo
að allar hvítu og reglulegu tenn-
urnar hennar blöstu við sjónum.
Svo opnaði hún gulbrún augun og
horfði seiðandí augnaráði á
Christer.
Christer hafði komið sér fyrir i
gluggakistunni við hliðina á Jan,
var greinilega búinn að fylgjast
með öllum hreyfingum hennar.
En Staffan ýtti stólnum framar og
andvarpaði:
— Eitthvað skiljanlegra! Þú
meinar sem sagt að við eigum að
snúa okkur enn að þvi sem er þin
sérgrein og eina áhugamál um
þessar mundir — litla huggulega
morðinu þinu. . .
— Morðinu mínu! Lillemor
gretti sig tilgerðarlega. — Tja,
það gæti svo sem alveg eins verið
ÞITT morð. . .
Ég þekki engan, sem hefur slíkt
lag og Liliemor að segja sakleysis-
legustu hluti á svo ógeðslegan
hátt að það liggur við að manni
finnist það hljóma trúlega. Að
minnsta kosti tókst henni að egna
Staffan svo til reiði, að hann þaut
upp af stólnum, svo að hann féll
um koll. Hann gekk til hennar og
hvíslaði engilblitt en með saman-
bitnum vörum:
— Heyrðu mig nú litla vina —
viltu vera svo elskuleg að segja
mér hvað þú áttir við með þessari
siðustu unaðslegu athugasemd.
Ef ekki, þá skal ég lofa þér að þú
skalt fara sömu leið og Eva... En
vertu snör. . .
— Kannski ungfrú Olin hafi á
réttu að standa.
Djúp rödd Christers var enn
dýpri en venjulega. Allir stöðu á
þennan háa ókunna mann, sem
hélt áfram, eins og ekkert hefði í
skorizt.
— Það ER kannski Staffan Arn-
old sem er hinn dularfulli morð-
ingi... Hann. .. eða einhver við-
stadda. Hafið þið ekki leitt hug-
ann að einu atriði í sambandi við
morðið. Eva Claeson lá i baðkari
Pucks, þegar einhver kom inn til
hennar, tók fingrunum um háls
henni og þrýsti henni undir vatns-
flötinn. Það var létt verk og löður-
mannlegt og viðkomandi þarf
ekki að hafa revnt á sig, þvi að
Eva hefur áreiðanlega misst með-
vitundina fljótlega. En — er ekki
eitthvað, sem þið komið auga á í
þessu sambandi?
Ég sá bliki bregða fvrir i augum
Karls Gustafs.
— Jú, svei mér þá! Hún hlýtur
sjálf að hafa hleypt morðingjan-
um inn — áður en hún sté upp í
baðkarið. . . og.. . maður verður
vist að segja, að það sé dálitið
einkennileg gestrisni að fara i bað
meðan gestír eru.
Christer kinkaði kolli til sam-
þykkis.
— Það er einmitt þetta, sem ég
hef sagt við sjálfan mig. Og ætli
þetta segi okkur ekki talsvert um
morðingjann? Hann leit spyrj-
andi á mig. — Segðu mér Puck. I
nærveru hverra gæturðu hugsað
þér að hegða þér eins og Eva
Claeson gerði.
— Eg veit það ekki almenni-
lega, sagði ég seinlega. — Nema
þvi aðeins að ég hefði þegar látið
renna í baðið, þegar hringdi á
bjöllunm myndi ég sjálfsagt
halda mínu striki og fara i baðið,
ef gesturinn væri vinur eða vin-
kona... sem ég gæti talað við...
eða mjög góður VINUR...
— Og hefði nú umræddur gest-
ur verið hjá þér allan sunnudag-
inn?
— Ja, ef við hefðum þekkzt svo
vel, að við hefðum getað fengizt
við okkar verkefni án þess að
þurfa að taka alltof mikið tillit til
hins þá hefði ég sjálfsagt farið í
bað, hefði mig langað til þess. En
ég verð þó að segja, að ég vil nú
SIGGA V/öGA g 1ILVEÍWW
jazzBaLLetCskóLi bópu
ömur athugiöÍQ
I >4
3
líkdm/rcekl
Sturtur — sauna
tæki — matarkúr.
Hinir vinsælu 3ja
vikna sumarkúrar
hefjast mánudaginn
4. júní.
Líkamsrækt og megr-
unaræ fin gar fyrir
dömur á öllum aldri.
Tímar fjórum eða
tvisvar sinnum í viku.
Morgun- dag- og
kvöldtímar.
N
N
0
5
JaZZBDLLettSkÓLj BÓPU
Seljum í dag
Saab 99 EA 2 árg. 1 973.
Saab 99 árg. 1971.
Saab 99 árg. 1 970.
Saab 96 árg. 1972.
Saab 96 árg. 1971.
Saab 96 árg. 1 967 V4.
Saab 96 árg. 1 966, 2T
Saab 96 árg. 1 963.
Saab 95 árg. 1971.
Saab 95 árg. 1 968 V4.
VW. 1303 árg. 1 973.
Toyota Corolla árg. 1968.
Taunus 1 2 m, árg. 1968.
f BDÖRNSSON *co- S“'“NS
Stangveiðimenn
— stangveiðifélög
Tungufljót í Vestur-Skaftafellssýslu er til leigu,
ef viðunnandi tilboð fæst.
Ain er dragá, vatnsmikil með óviðjafnanlegum
veiðistöðum í fögru umhverfi. Veiði er sjó-
genginn urriði og lax.
Tilboðum sé skilað fyrir 1 . júlí til Vals Odd-
steinssonar, Úthlíð eða Sigvalda Jóhannes-
sonar, Hemru, er veita einnig frekari upplýsing-
ar.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Til sölu
Á ísafirði eru til sölu eftirtaldar eignir.
1. Húsið Fjarðarstræti 47 ásamt eignarlóð og
stórum bílskúr.
2. Vélsmiðjan að Fjarðarstræti 18a. Starfs-
aðstaða er fyrir 2 — 3 menn, sem gætu hafið
starf með mjög stuttum fyrirvara, einnig kemur
til greina að selja einstök áhöld vélsmiðjunnar
svo sem góðan og vel með farinn Mondale
rennibekk 1,5 metra, rafsuðutæki, logsuðu-
tæki, eldsmiðju með tilheyrandi og fleira.
3. Bifreiðin I-376 sem er 4ra manna Austin
bifreið ásamt nokkru af nýjum varahlutum.
Upplýsingar um eignir þessar gefur Sigurður
Baldvinsson í síma 96-1 1 928 kl. 20 — 22.
Fréttabréf
frá Djúpi
Bæjum 24. maí 1974.
MIKIL er dýrð vorsíns þegar sólin
baðar hlíðar. hálsa og dali. og
samfelld góðviðrisblíða hefur ríkt
hér síðan i mars i vetur, eftir
samfellt og stórkostlegt harðinda-
tímabil frá því í byrjaðan nóv
ember í haust. Iðjagræn tún og
grænir hagar blasa nú við búpen-
ingi bænda, og muna skepnur
ekki annan eins kjarngróður um
þennan tima. og tæplega nema
elstu bændur. Ærnar háma í sig
gróskumikinn nýgræðinginn. og
lömbin hoppa með kátínu og ærsl-
um út um hóla og tún. Sauðburð-
ur stendur nú sem hæst. og ánum
sleppt jafnóðum og þær bera út á
guðsgræna jörðina. Það er tnunur
eða undanfarin vor.
Um miðjan maí kom flóabátur-
inn Baldur hér inn í Djúp með
áburð til bænda beint frá Gufu-
nesi. Var þó nokkuð af farmi hans
skipað upp á Isafirði. og einnig
þangað áður komið nokkurt magn
áburðar. sem i Djúpið átti að fara.
en það þvkir nokkur handabaks-
vinna, að handlanga þangað upp
áburð, sem i Djúpið á að fara. til
þess eftir nokkra daga að yfir-
skipa því aftur í annan bát. og
gengur jafnvel ekki of vel að fá til
þess mannskap.
Aðflutt mjólk til Mjólkursam-
lags ísfirðinga á s.l. ári var 74.204
lítrar, 28.380 lítrar af súrmjólk,
17.729 lítrar af rjóma og 13.724
kíló af skyri. Innmæld mjólk frá
framleiðendum á samlagssvæðinu
var 1.333.432 litrar á s.l. ári. og á
því sést að mikið vantar á að
hægst sé að fullnægja markaðn-
um af heimaframleiddri mjólk. og
mjólkurvörum. enda oft þurft að
grípa til skömmtunar á þessunt
vörum. Um 5 kr. á lítra kostar aó
flvtja mjólkina frá Reykjavfk á
flugvöllinn á ísafirði.
A s.l. hausti var siátrað hjá
Kaupfélagi tsfirðinga 8.575 fjár.
þar af f Vatnsfírði 2.950 fjár. Með
alfailþungi dilka reyndist vera
15,9 kg af því sem slátrað var.á
Isaf.. en 17,0 kg sem slátrað var í
Vatnsfirði. en meðaltal beggja
húsanna var 16.3 kg, sem má tel'j-
ast góð vigt. Þyngsta dilka áttu:
Kristín Aðalsteinsdóttir. Skjald-
fönn. 26.6 kg: Eiías Þorbergsson.
Hattardal. 25,3 kg og Halldór Haf-
liðason Ögri 24.9. Mestu meðal-
þvngd höfðu Aðalsteinn Jóhanns-
son. Skjaldfönn 19.14 kg; Jón
Ebenezerson, Fremri Bakka,
18,66 kg og Kristín Aðalsteins-
dóttir, Skjaldfönn 18,34 kg.
Mikill hugur er i bændum um
framkvæmd hinnar margnefndu
Inn-Djúpsáætlunar. og má þar
nefna að áformað er f sumar að
ræktaðir verði um 120 hektarar
og bvggð 12 fjárhús með tilheyr-
andi hlöðum. Byrjað er á jarð-
ræktarvinnu með jarðýtu Rækt-
unarsambands Nauteyrar- og Snæ
fjallahreppa. Önnur ýta sam-
bandsins hefur verið í vegalag-
færingum, en er nú senn að byrja
á vinnu við Blæfardalsárstíflu.
Aformað er að Ijúlta því verki í
sumar og vonast til að úr rætist
með fjármuni til þeirra fram-
kvæmda, og má segja að á raf-
magni og ræktun hvili öll tilvera
fólksins hér til varanlegrar bú-
setu.
Vegir eru orðnir eins og venju-
lega á sumrin. og Þorskafjarðar-
heiði er orðin þurr og umferðar-
fær sem venjulega yfir sumarið.
Akveðið er að Vegagerðin byrji
framkvæmdir við Djúpveginn
upp úr hvítasunnu, og keyrt hef-
ur verið á jeppa ft á Isafirði kring-
um Djúpið nú i vor.
Þeim mörgu, sem sent hafa mér
góðar kveðjur og bréf. með þakk-
læti fvrir fréttir úr Djúpi. flyt ég
hér með bestu þakkir og kveðjur.
Sumarið í sælum skrúða.
svifur vfir landið prúða.
Og það sem mestri hlýju veldur.
er hugans innsti manndómseldur.
og nú verði bjart til fanga.
og veginn breiða megi ganga.
hver til sinnar gæfu hallar.
svo sem lifið.flesta kallar.
og öiíum megi blessun veitast,
til hvers þess, er þráir hettast.
Jens í Kaldalóni.