Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAl 1974
iwn AFRÉTTIR1 uuesmis i
Ársþing KKÍ
ARSÞING Körfuknattleikssam-
bands Islands verður haldið að
Hótel Esju, ekki að Loftleiðum
eins og sagði 1 fundarboði, laugar-
daginn 15. júnf.
Víðavangshlaup
Kópavogs
VIÐAVANGSHLAUP Kópavogs
fer fram fimmtudaginn 30. maf
og hefst klukkan 20 við Fffu-
hvammsvöll. Hlaupaleiðin er
mjög fjölbreytileg, en aðeins
verður keppt í karlaflokki. Veitt
verða þrenn verðlaun.
EÓP-mótið
HIÐ árlega frjálsíþróttamót KR,
EÖP-mótið, fer fram á Laugar-
dalsvellinum 7. júnf n.k. Akveðið
hafði verið að halda mótið 30. maf
n.k., en þá hefði það þurft að fara
fram á Melaveliinum. Tóku KR-
ingar þann kostinn að fresta mót-
inu um viku til þess að geta verið
með það á Laugardalsvellinum,
þar sem keppnisaðstaða er til
muna betri. Keppnisgreinar
verða auglýstar síðar.
BRIDGESTONE
— CAMEL
BRIDGESTONE — Camel golf-
keppnin mun fara fram um næstu
helgi á Hólmsvelli í Leiru. Er þar
keppt með og án forgjafar, 36
holu keppni. Mót þetta gefur
punkta til landsliðsins. Sérstök
verðlaun verða veitt, takist ein-
hverjum að ná holu í höggi.
Væntanlegir þátttakendur í
keppninni eru beðnir að láta skrá
sig fyrir kl. 22.00 á fimmtudags-
kvöld í Golfskálanum í Leiru, en
síminn þar er 92-2908.
lslenzkir körfuknattleiksmenn fá ærin verkefni á
næstunni. Þarna er stórskyttan Þórir Magnússon
kominn í færi við körfuna.
Samdi um 30 landsleiki í
körfuknattleik meðan loft-
varnaflauturnar gullu
tSLENZKIR körfuknattleiks-
menn hafa ekki haft mikil sam-
skipti við eriendar þjóðir undan-
farin ár, en þó hefur það nokkuð
aukizt upp á sfðkastið. Nú er útlit
fyrir, að á næstu tvcimur árum
leiki fslenzka körfuknattleikslið-
ið 30 landsleiki. Bogi Þorsteins-
son, fyrrverandi formaður Körfu-
knattleikssambands Islands, er
nýkominn heim af fundi hjá
Evrópu- og Miðjarðarhafsdeild
Alþjóða Körf uknattleikssam-
bandsins, FIBA, og þar gerði
hann ýmsa samninga, sem lagðir
verða fyrir stjórn KKl f dag.
— Það er erfitt að komast inn í
alþjóðasamskipti, vegna þess hve
dýrt er að ferðast hingað, sagði
Bogi, er Morgunblaðið ræddi við
hann í gær. Þó sýndu ýmsar þjóð-
ir mikinn áhuga á að auka sam-
skiptin við ísland og skulu brezku
þjóðirnar nefndar fyrst í því sam-
bandi. — Keppnistímabil lands-
DR. Ingimar Jónsson var endur-
kjörinn formaður Blaksambands
tslands á ársþingi sambandsins,
sem haldið var nýlega. Hlaut dr.
Ingimar 11 atkvæði f formanns-
kjörinu, en Arni Arnason, sem f
framboði var á móti honum, hlaut
4 atkvæði. 15 fulltrúar höfðu at-
kvæðisrétt á þinginu.
Aðrir í stjórn Blaksambandsins
voru kjörnír: Albert Valdimars-
liðsmannanna hefst 20. ágúst í
sumar og verður þá leikið ytra við
England, Skotland og Wales. Eitt
þessara liða kemur hingað í októ-
ber og í Luxemburg verða 2 leikir
í nóvember. Fjórir leikir fara
fram í Danmörku f janúar, en
síðan kemur nokkurt hlé, eða þar
til kemur að Evrópukeppninni f
maí í V-Þýzkalandi. Afram mætti
halda að telja landsleiki upp, en
gerðir hafa verið samningar tvö
ár fram f tímann, fram í maímán-
uð 1976.
— Unglíngalandslið pilta
fæddra eftir 1. janúar 1958 tekur
þátt í Evrópumeistaramóti, sefn
fram fer í Grikklandi sumarið
1975 og verður íslenzka liðið eitt
af 27 þátttökuliðum. Kvenna-
landslið hefur ekki leikið marga
landsleiki, en ég reikna með, að á
næstu árum verði verkefni kven-
fólksins aukin verulega og þá
einkum leikið við brezku liðin.
son, Jónas Traustason, Guðmund-
ur Oddsson og Gunnar Árnason.
Komu þeir Guðmundur og Gunn-
ar í stað þeirra Más Thuliniusar
og Ingvars Þóroddssonar.
Fá meiri háttar mál komu til
umræðu á þinginu, en helzta mál-
ið, sem sambandið vinnur nú að,
er að kanna möguleika á að senda
íslenzka landsliðið til þátttöku i
Norðurlandamótinu í blaki.
Auk þess sem Bogi Þorsteins-
son gerði þessa landsleikjasamn-
inga fyrir KKÍ sat hann alla fundi
þessa þings. Þar var meðal annars
flutt kveðja frá Kínverjum, þar
sem þeir lýstu því yfir, að þeir
myndu á næstunni sækja um inn-
töku í FIBA. Þó aðeins með því
skilyrði, að Taiwan yrði ekki leng-
ur aðili að alþjóðasamtökunum.
Var kveðju Kínverjanna tekið
með lófataki og má því búast við
þvf, að innan skamms muni 80
milljón kínverskir körfuknatt-
leiksmenn verða fullgildir aðilar í
FIBA.
Það gekk ekki snurðulaust fyrir
Boga að komast til Líbanon því er
hann kom til Rómar á leið sinni
þangað var ailt flug stöðvað til
Beirut vegna loftárása Israels-
manna á flugvöllinn. — Á leið
minni inn f borgina frá flugvell-
inum ók ég framhjá flóttamanna-
búðum, sem gerð var árás á dag-
inn áður. 68 létu lífið og aðkoman
var hryllileg, sagði Bogi. —
Meðan ég dvaldi í Beirut gerðu
Israelsmennirnir ekki árásir á
borgina, en flugu oft yfir á hinum
hraðfleygu þotum sínum. Þeir
rufu hljóðmúrinn oftar en einu
sinni og virtust aðeins vera að
hræða fólkið. Þeir réðust á ýmis
þorp og lögðu þau í rúst meðan ég
dvaldi í Líbanon og loftvarna-
flauturnar gullu oftar en einu
sinni á degi hverjum, sagði Bogi
að lokum.
Dr. Ingimar endurkjörinn
FRÍ hefur gert sitt
ÖRN Eiðsson, formaður Frjáls-
iþróttasambands Islands, hafði
samband við Morgunblaðið í gær,
og óskaði eftir að gera athuga-
semd við frétt, sem birtist í blað-
inu i fyrradag, þar sem fjallað var
um aðstöðuleysi þeirra frjáls-
íþróttamanna, sem æfa köst.
— Ég tel, sagði Örn, að við
höfum gert allt, sem í okkar valdi
hefur staðið, til þess að fá bætt úr
þessum málum, m.a. með því að
ræða ítrekað við vallaryfirvöldin,
og einnig höfum við rætt við þá,
er fara með íþróttamálefni
Reykjavíkurborgar. Einn þeirra
möguleika, sem við höfum farið
fram á að kannaður verði, er sá,
hvort frjálsíþróttamenn gætu
ekki fengið afnot af hinum nýja
grasvelli, sem er fyrir norðan
Laugardalsvöllinn, meðan verið
er að vinna að kastvellinum i
Laugardalnum, en aðstaða kastar-
anna mun breytast mjög til batn-
aðar, þegar hann verður tekinn í
notkun, sagði örn.
Vanlöse bikar-
meistari
VANLÖSE, lið úr 2. deild, varð
danskur bikarmeistari í knatt-
spyrnu í ár. Til úrslita lék liðið
við OB, sem einnig er i 2. deild,
og sigraði með fimm mörkum
gegn tveimur, eftir að staðan
hafði verið 1—1 í hálfleik. Fór
leikurinn fram á Idrætsparken
í Kaupmannahöfn að viðstödd-
um 21 þúsund áhorfendum.
Þetta er f fyrsta sinn, sem
Vanlöse vinnur bikarinn.
—O—
Malmö bikar-
meistari
MALMÖ IF varð sænskur bik-
armeistari í knattspyrnu f ár.
Sigraði liðið Öster IF í úrslita-
leik, sem fram fór f Halmstad
með tveimur mörkum gegn
engu og voru bæði mörkin
skoruð í seinni hálfleik. Þetta
er f áttunda sinn, sem Malmö
vinnur sænsku bikarkeppnina.
—O—
Waregem vann
bikarinn
WAREGEM varð belgískur
bikarmeistari í knattspyrnu í
ár. í úrslitum lék liðið við 2.
deildar liðió Tongres og sigraði
með f jórum mörkum gegn einu.
—O—
Tom sterkur
TOM B. Hansen, danski milli-
vegalengdahlauparinn, náði
nýlega mjög athyglisverðum
árangri í 10.000 metra hlaupi á
móti f Árósum. Hljóp hann
vegalengdina á 29:33,2 mín.,
sem er þriðji bezti árangur
dansks hlaupara f þessari grein
frá upphafi.
—O—
Bruch kastaði
67,08 metra
SÆNSKI kringlukastarinn
Ricky Bruch náði bezta kringlu-
kastsafrekinu í heiminum í ár,
er hann kastaði 67,08 metra á
móti, sem fram fór á ítalíu um
helgina. Heimsmetið í kringlu-
kasti á Jay Silvester og er það
68,40 metra, en bæði Silvester
og Bruch hafa náð lengri köst-
um við aðstæður, sem ekki hafa
verið metnar löglegar.
—O—
Kannenberg
setti heimsmet
VESTUR-Þjóðverjinn Bernd
Kannenberg setti á sunnudag-
inn nýtt heimsmet í 20 km
göngu á móti, sem fram fór f
heimalandi hans. Gekk hann
vegalengdina á 1:4,45,0 klst.,
en gamla heimsmetið, sem þeir
Peter Frenkels og Hans-George
Reinmanns, báðir frá AÞýzka-
landi, áttu, var 1:25,14,4 klst.
Kannenberg, sem nú er 31 árs,
sagði eftir að hafa sett heims-
metið, að hann væri ákveðinn
að sigra f þessari grein á
Olympfuleikunum f Montreal
1976.
—O—
Danska knatt-
spyrnan
EFTIR 9 umferðir í dönsku 1.
deildar keppninni í knatt-
spyrnu er staðan þessi:
KB 9 6 1 2 17— 12 13
B 1903 9 5 2 2 17— 10 12
Næstved 9 4 2 3 19— 15 10
Randers 9 2 6 1 13— •9 10
Slagelse 9 4 2 3 14— 11 10
Frem 9 4 2 3 14— •14 10
Köge 9 2 5 2 12- -12 9
Vejle 9 3 2 4 16— -18 8
B 1901 9 2 4 3 11 — ■14 8
Holbæk 9 2 3 4 8— -11 7
Hvidovre 9 2 2 5 9— -20 6
AaB 9 1 3 5 14— -18 5
—O—
KÍNVERJAR
VIÐUR
KENNDIR
Æ FLEIRI sambönd innan
alþjóðlegu fþróttahreyfingar-
innar viðurkenna nú Kfna sem
fullgildan aðila innan samtaka
sinna. Nýlega ákvað alþjóðlega
glfmusambandið að taka Kfna
inn, og vfsa þar með Formósu
úr samtökunum. Þar með varð
Kfna aðili að sjöttu alþjóðlegu
samtökunum, en sem kunnugt
er gerir alþjóðlega Olympfu-
nefndin það að kröfu sinni
fyrir þátttökurétti þjóðar f
Olympíuleikunum, að hún sé
aðili að a.m.k. fimm alþjóða-
samtökum.
Kfnverska íþróttasambandið
vinnur nú að þvf að fá viður-
kenningu alþjóðlegu Olympfu-
nefndarinnar, en helzta ljónið,
sem á veginum hefur verið til
þessa, er það, að nefndin hefur
ekki viljað vfsa Formósu frá
leikunum, heldur gefið báðum
þjóðunum kost á að keppa á
leikunum. Þessu vilja hvorki
Kfna né Formósa hlíta á þessu
stigi málsins.
—O—
Bajevic ekki með
DUSAN Bajevic, einn bezti
knattspyrnumaður Júgóslavíu,
mun ekki fá að leika með lands-
liði sínu gegn Brasilíumönnum,
er liðin mætast í úrslitaátök-
unum í heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu 13. júní í
Frankfurt.
Bajevic ar dæmdur í tveggja
leikja keppnisbann af FIFA
eftir leik Júgóslavíu og Grikk-
lands í desember s.l. og náði
hann ekki að sitja af sér nema
annan leikinn, sem var gegn
Spáni í undankeppninni. Talið
er, að fjarvera Bjaevic komi til
með að veikja lið Júgóslavíu
verulega.