Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 1974
31
I ÍI'ltliTWKÍiril! MOIiClBIELMISiniS
Aðstaðan okkur í óhag
Rúmenar í 6 vikna æfingabúðum
Skotar á launum í keppninni
Finnar léku 17 æfingalandsleiki
Rnmán i gládjerns skadades
Starht Island
föll med 0—1
RONNEBY (SSD)
Det blev áler en nervig mateli pá Brunnsvallen
i Europamasterskapen i fotboll för juniorer, dá
Rumanien mötte turneringens överraskning
Island. Den rumiinska segern stannade aven
denna gáng vid knappa 1—0. Málet inspelat i
första halvlekens" 35:e minut av mittfáltaren
Gbeorgbe Hurloi (6). Málet följdes av en sádan
gládje alt en spelare skadades sá illa att han fick
fraktas till lasarettet, dá det antalgigen blev elt
skadat nyekelben.
Sænsku blöðin skrifuðu mikið um íslenzka liðið og voru almennt mjög undrandi á
frammistöðu þess. Meðf.vlgjandi m.vnd er úr hlaðanu „Sydöstran" og það er Olafur
Magnússon, sem bjargar á siðustu stundu f sókn Rúmena, Guðjón Hilmarsson f.vlgist
með. 1 fyrirsögninni segir, að Rúmeni hafi meiðzt f sigurgleði og sfðan að sterkt
fslenzkt lið hafi failið 0:1.
Islenzka ungiingalandsliðið
kom heim í fyrrakvöld frá Sví-
þjóð eftir þátttöku í úrslitum
Evrópumeistarakeppninnar í
knattspvrnu. Eins og kunnugt er
varð íslenzka liðið í neðsta sæti í
sínum riðli, hlaut aðeins eitt stig,
gerði jafntefli við Skota í fyrsta
leiknum. Liðið tapaði 0:1 fyrir
Rúmenum og með sömu marka-
tölu fyrir Finnum í sfðasta leikn-
um. Morgunblaðið ræddi við Ai-
bert Eymundsson þjálfara ungl-
ingalandsliðsins f gær og um leik-
inn við Finna hafði Albert þetta
að segja:
— Ég er svo sannarlega búinn
að kynnast því hve innilega
ánægður er hægt að verða og
sömuleiðis hve gífurlega vonsvik-
inn. Eftir leikinn við Ira hér á
Melavellinum í haust, þar sem
íslenzka liðið sigraði og tryggði
sér réttinn til að leika í úrslitum
EM, ætluðum við aðstandendur
liðsins að rifna af ánægju. Eftir
leikinn við Finna á sunnudaginn
gátum við hins vegar ekki á heil-
um okkur tekið. íslenzka liðið var
mun betri aðilinn á vellinum og
t.d. í síðari hálfleiknum komst
finnska liðið tæpast fram fyrir
miðju, nema þá eftir útspörk
markvarðarins. Eigi að síður
töpuðum við leiknum 0:1 og það
var ekki til að bæta skapið, að
dómarinn tók af íslenzka liðinu
tvö mörk í fyrri hálfleiknum.
— Hvar standa íslenzku ungl-
ingalandsiiðspiltarnir samanbor-
ið við leikmenn þeirra þjóða, sem
leikið var við í Svfþjóð?
— A ýmsum sviðum standa is-
lenzku leikmennirnir framar en
leikmenn hinna þjóðanna og ein-
stakir letkmenn okkar væru
gjaldgengir í hvaða lið sem væri
af þeim, sem við mættum. En
aðstöðumunurinn er svo gífurleg-
ur, að hinar mannmörgu og ríku
þjóðir hljóta að hafa vinninginn.
Tökum sem dæmi liðin, sem voru
með okkur í riðlinum. Finnar
léku 17 landleiki til undirbúnings
keppninni, Rúmenar dvöldust 6
vikur í æfingabúðum fram að
keppninni og Skotarnir fengu all-
ir góð laun fyrir þátttöku sína í
keppninni. Leikmenn þessara
þjóða þurfa ekki einu sinni að
hugsa. — Tii gamans má geta
þess, að einn skozku leikmann-
anna þótti standa sig það vel í
keppninni í Sviþjóð, að enska
félagið Tottenham bauð 150 þús-
und pund í hann.
— En bitnar það ekki á félags-
liðunum, að unglingaiandsliðið
skuli taka svo mikinn tíma frá
þeim sem raunin var síðastliðinn
vetur?
— Nokkur félaganna voru að
vísu óánægð með það, að ungl-
ingalandsliðið skyldi æfa svoa
stíft, en eigi að siður tel ég þetta
rétta stefnu. Til að ná árangri
verður að halda hópnum vel
saman og vitanlega tekur það
tíma frá félögunum, en ég tel
íslandsmeistararnir í blaki, lið
iþróttakennaranemanna á
Laugarvatni, sem í vetur lék und-
ir nafni UMFL, munu næsta vet-
ur flestir dveljast í Reykjavík.
Undanfarið hafa meistararnir
athugað hvaða félag í Reykjavík
væri fúst til að taka á móti þeim
og stofna blakdeild. Hafa þrjú
félög sýnt þeim mikinn áhuga, ÍR,
æskilegt, að strákarnir fái tæki-
færi tii að komast i keppni eins og
úrslitakeppnina í Sviþjóð á
dögunum. Þar fá þeir að sjá til
beztu jafnaldra sinna og geta lært
mikið, en til að komast i svona
keppni þarf líka að æfa vel.
— Hvað er framundan hjá ungl-
ingalandsliðinu?
— Ég held það sé óráðið hvað
gert verður i sumar en sjálfur fer
ég heim til Hornafjarðar þar sem
ég mun þjálfa og leika með
Sindra i þriðju deildinni, sagði
Albert að lokum.
Þróttur og Fram, en ekki er
ákveðið i hvaða félag méistararn-
ir ganga, en það hiýtur að vera
fengur fyrir félagið sem fyrir val-
inu verður að fá öflugt lið íþrótta-
kennara í sinn hóp. Eins og kunn-
ugt er gengu íslandsmeistararnir
1972, Hvöt, sem skipað var Laug-
vetningum i Víking og hefur i
kringum þá risið öflug blakdeild.
Heimsmet
Sovétstúlkan Faina Melnik setti
enn eitt heimsmet í kringlukasti á
mánudaginn er hún kastaði
kringlunni 69.90 metra. Metið
setti hún i Prag i árlegri Reppni
milli Prag og Moskvu.
Víkingarnir
efstir í Noregi
Staðan i 1. deildinni í Noregi er
nú þessi:
Viking 6 4 2 0 6:0 10
Strömg. 6 3 2 1 10:3 8
Rosenborg 6 3 2 1 10:3 8
Brann 6 3 2 1 8:4 8
Molde 6 3 1 2 10:5 7
Start 6 2 3 I 6:4 7
Skeid 6 3 1 2 6:6 7
Sarpsborg 6 2 1 3 8:12 5
HamKam 6 1 2 3 5:7 4
Mjöndalen 6 2 0 4 4:10 4
Valerengen 6 1 1 4 4:9 3
Raufoss 6 0 1 5 12:1 1
±
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
M/S Baldur
fer frá Reykjavík mið-
vikudaginn 29. þ.m.
til Breiðafjarðarhafna.
Vörumóttaka: þriðju-
dag og miðvikudag.
Þakka hjartanlega alla
vinsemd mér veitta á
áttræðisafmæli mínu,
1 1 . þ.m.
Blessun Guðs ég bið
að streymi, blítt og
létt um ykkar sál.
Lára Sigríður
Sigurjónsdóttir,
Giljum, Hvolhrpp.
UIA ræður fram-
kvæmdastjóra
Undanfarin ár hefur íþrótta-
og félagsstarfsemi á vegum
Ungmenna- og íþróttasambands
Austurlands aukizt mjög. Sam-
bandssvæðið er mjög stórt og
mörg ungmenna- og íþrótta-
félög starfanda á dreifðu svæði,
þar sem samgöngur eru erfiðar.
Reynsla síðustu ára hefur sýnt,
að full þörf er á, að sambandið
hafi framkvæmdastjóra til þess
að annast daglegan rekstur
sambandsins og sinna öllum
þeim verkefnum, sem liggja
fyrir á hverju ári. Síðastliðið ár
reyndi sambandið að ráða fram-
kvæmdastjóra, en það bar ekki
árangur, þó að víða væri leitað.
Stjórn UÍA hefur nú hins vegar
tekizt að ráða mann til þessa
starfa og hefur Jón B. Stefáns-
son íþróttakennari á Eskifirði
tekið starfið að sér. Jón er frá
Selfossi, en fluttist með fjöl-
skyldu sinni til Eskifjarðar
síðastliðið sumar. Væntir UlA
mikils af starfi Jóns meðal aust-
firzkrar iþróttaæsku.
(Fréttatilkynning frá UÍA).
Verksmiðjusala
Urval af dömupeysum hnepptum og óhneppt-
um, herrapeysum og vestum. Verksmiðjuverð.
Prjónastofa Kristínar, Nýlendugötu 10.
Orðsending frá
B.S.A.B.
Höfum lausar nokkrar 3ja — 4ra herb. íbúðir í
fjölbýlishúsi í smíðum, í Breiðholti II. Einnig
raðhús á sama stað.
Teikningar og allar upplýsingar á skrifstofu
B.S.A.B., Síðumúla 34, sími 33699.
Stjórn B.S.A.B.
Læknastofa mín
verður opin frá 1 . júní, sem hér segir:
Mánudaga—fimmtudaga kl. 10—12.
Föstudaga kl. 16—18.
Símaviðtalstími:
Mánudaga — föstudaga kl. 8.30—10.
Vitjanabeiðnum veitt móttaka kl. 10—13.
Guðmundur Eilíasson
Domus Medica.
Sími 20622.
Laugavegur
Til sölu skrifstofu og verzlunarhús við
Laugaveginn. Grunnflötur 202 fm ásamt
eignarlóð.
Húsið er 3 hæðir og kjallari, auk þess risíbúð.
Húsið selst í einu lagi.
Lögfræði og endurskoðunarskrifstofa,
Ragnars Ó/afssonar, Laugavegi 78.
Bitist um blakmeistara