Morgunblaðið - 05.07.1974, Page 27

Morgunblaðið - 05.07.1974, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JULI 1974 27 Glæsilegt skóúrval nýkomiö frá Englahdi ° og Spáni. ' Bölir og buxur i stórkostlegu úrvali. Opið til kl. 10 í kvöld og til hádegis á morgun Bergstaðastraeti simi 14-350 Kíff * V ''m' 'X jyr ■ / . sJk jrr A X / / V Pf\ / W ( ;) V XllD Sv Jfr\ \ wlgV :nJá hbb Ólafur Sigurvinsson f harðri baráttu við færeyskan ieikmann Beztu menn liðsins að þessu sinni voru þeir Matthías Hallgrímsson, Asgeir Elíasson og Marteinn Geirsson. Auk þess áttu Jóhannes Edvaldsson og Magnús Þorvaldsson þokkalegan leik. Aðrir leikmenn léku undir getu, hvað sem því veldur. Færeyingar léku mun betur en ég hef séð þá áður gera og voru óþekkjanlegir frá því í leiknum í Klakksvík í fyrravor. Beztu menn þeirra voru Ragnar Hansen, Hermann Midjord, Sverre Jacopsen og markvörður- inn Regin Árting. Hdan. Markvörður Færeyinga átti gooan leiK, ner hirðir hann knöttinn áður en Martein og Óskar ber að. Það fór því vel á því, að Matthías skyldi skora fyrsta markið í þessum leik, en það gerði hann á 17. mín., og eins og svo oft áður lék hann á nokkra varnar- menn og skoraði síðan óverjandi netið. Sverre Jacopsen skaut að markinu af 30 m færi og yfir Þorstein, sem var kominn of framarlega, þannig að hann hafði ekki tök á að verja. Við markið efldust Færeyingar mjög og voru Úrslitaleikir í 2. og 3. deild FJÖGUR af beztu liðum 2. deild- ar verða I sviðsljósinu I kvöld. Breiðablik mætir FH f Kópavogi og Þróttur leikur gegn Haukum f Hafnarfirði. 1 3. deild mætast Stjarnan og Fylkir f Garðahreppi og á Háskólavelli mætast Leiknir og IR. Allir þessir leikir hefjast klukkan 20.30. Ekki er að efa, að hart verður barizt f flestum þessara leikja. Til dæmis hafa hvorki FH né Breiðablik efni á að missa stig f hinni erfiðu baráttu f 2. deild og tap f Ieiknum í kvöld þýddi raun- verulega búið spil f 2. deildinni fyrir Breiðablik. Þróttur kemst örugglega f krappan dans gegn Haukum f kvöld, Hafnarfjarðar- liðið hefur staðið sig mjög vel það sem af er mótinu. Leikur Fylkis og Stjörnunnar er úrslitaleikur f riðlinum um sæti f úrslitunum. Fyrri leik lið- anna á heimavelli Fylkis lauk með jafntefli, en bæði lið ætla sér sigur í kvöld. Færeyingar sýna framfarir en landsliðsnéfnd má athuga sinn gang fyrir næsta leik ATTUNDI landsleikur Islands og Færeyja fór fram f Gundadali f Þórshöfn á miðvikudaginn f bezta veðri að viðstöddum 2500 áhorf- endum. I fslenzka liðinu að þessu sinni léku fimm sinn fyrsta landsleik, þeir Magnús Þorvaldsson, Vfkingi, Jón Pétursson, Fram, Óskar Tómasson Vfkingi, Kristinn Björnsson, Val og Hörð- ur Hilmarsson, Val, en hann kom inná f sfðari hálfleik f stað Ólafs Sigurvinssonar. Þá lék Matthfas sinn 25. landsleik og hlýtur hann þvf „gullúrið“. fyrir hinn ágæta markvörð Fær- eyinga, Regin Arting. Ásgeir Elíasson bætti öðru marki við á 32.' mín. með föstu skoti frá vítateig, en knötturinn barst til hans frá markverðinum, sem hélt ekki föstu skoti frá Matthíasi. íslendingar höfðu talsverða yfirburði í fyrri hálfleik og hefðu átt að getað skorað fleiri mörk, en um marktækifæri af hálfu Færeyinga var ekki að ræða. Það var vart liðin mínúta af síðari hálfleik, þegar Þorsteinn Ólafsson mátti sækja knöttinn í nú mun ákveðnari en áður, e'n tókst samt sem áður ekki að skapa sér tækifæri. Kristinn Björnsson skoraði 3. mark Islendinga á 64. mín. er hann fékk knöttinn rúlj- andi á móti sér frá markverðin- um. Kristinn var óheppinn að skora ekki fleiri mörk, þvf að hann átti gott skot í stöng og tvisvar var bjargað á línu, er hann skaut að markinu. Á 70. mín. bætti Sverre Jacopsen við öðru marki Færeyinga með fremur slöku skoti, sem Þorsteinn hefði átt að ráða við. Fleiri urðu mörkin ekki og lauk leiknum því með 3—2 fyrir Is- lendinga. Það fer ekki á milli mála, að Islendingar léku þennan leik illa, sérstaklega þó síðari hálfleik, þar sem engu líkara var á löngum köflum en að þeir væru heillum horfnir. Það er því greinilegt, að lands- liðsnefndin verður að endurskoða val sitt á landsliðinu í veigamikl- um atriðum, en til þess hefur hún nægan tfma, því að næsti leikur er ekki fyrr en 19. ágúst, gegn Finnum í Reykjavík. Heimslið Þeir blaðamenn, sem fylgjast með heimsmeistarakeppninni f knattspyrnu, keppast nú við að velja „heimslið“ og birta f blöð- um sfnum. Eftir keppnina munu þcir svo koma saman á fundi og velja lið og þykir mjög eftirsóknarvert að komast f það. Eftir síðustu leiki HM valdi þýzka blaðið „Bild“ eftirtalda leikmenn í heimslið sitt: Hellström (Svíþj.) Vogts (V- Þýzkal.), Pereira (Brasilíu), Beckenbauer (V-Þýzkal.), Bo Larsson (Svfþjóð), Kasperczak (Póllandi), Deyna (Póllandi), Neskees (Hollandi), Gadocha (Póllandi)/ Cruyff (Hollandi) og Sandberg (Svíþjóð). Blaðamenn „France Foot- ball“ völdu eftirtalda leikmenn í sitt lið: Hellström (Svíþjóð), Vogts (V-Þýzkal.), Beckenbauer (V- Þýzkalandi), Pereira (Brasi- líu), Miranda (Brasilíu) Bremner (Skotlandi), Deyna (Póllandi) Oblac (Júgóslavíu), Rep (Hollandi), Cruyff (Hol- landi) og Housemann (Argentínu). Þau blöð sem valið hafa „heimlið“ sitt, eru yfirleitt sam- mála um fjóra menn: Hellström frá Svíþjóð í markinu, Þjóð- verjana Vogts og Beckenbauer og Hollendinginn Cruyff.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.