Morgunblaðið - 06.07.1974, Síða 32
ÞRR ER EITTHVRÐ
FVRIR RLLR
JttorgunWaMfc
JHoT0unbInt>i& =^j
mnRCFBLDPR
mÖGULEIKR VÐRR
LAUGARDAGUR 6. JULl 1974
Nauðsyn að afla gagna
ogræða við marga aðila
scgir Geir Hallgrímsson, sem nú hefur verið
falið að kanna möguleika á stjórnarmyndun
FORSETI Islands fól f gærdag Geir Hallgrfmssyni formanni Sjálf-
stæðisflokksins, aó kanna möguleika á myndun rfkisstjórnar undir
forystu Sjálfstæðisflokksins, sem nyti stuðnings meirihluta Alþingis.
Geir Hallgrfmsson sagði f samtali við Morgunblaðið sfðdegis í gær, að
þessi könnun gæti tekið nokkurn tíma, þvf að nauðsynlegt væri að
ræða við marga aðila og afla mikilla gagna um efnahagsástandið.
Hann sagði, að upplýsingar um eðli efnahagsvandans hlytu að verða
grundvöllur málefnasamstöðu þeirra stjórnmálaflokka, sem mynd-
uðu nýja rfkisstjórn.
Geir Hallgrfmsson sagði í þessu
sambandi: „Ég hef tekið að mér að
Banaslys á
Hornafirði
BANASLYS varð á Nesjavegi rótt
innan við Höfn f Hornafirði í gær,
þegar fólksbfll, sem var að taka
fram úr vörubifreið, lenti framan
á annarri vörubifreið. Liðlega 50
ára gamall ökumaður beið bana,
en 7 ára gömul stúlka, sem var
með honum í bílnum slasaðist
alvarlega og liggur nú á gjör-
gæzludeild Borgarspftalans.
Ekki er hægt að birta nöfn að
sinni, vegna þess að ekki er búið
að hafa samband við alla aðstand-
endur.
30 punda lax
í Laxá í Þing.
Patreksfirði 5. júlí
KABL Jónasson á Patreksfirði
veiddi 30 punda lax 29. júní s.l. í
Laxá í Þingeyjarsýslu. Laxinn
veiddi hann um hádegisbil, en þá
var dumbungsveður og Karl að
veiða með maðk á Breiðunni. Það
tók hann eina og hálfa klukku-
stund að ná laxinum inn, en til
þess varð hann að fara um borð í
bát og nota sporðaklemmu.
Karl var fjóra daga við veiðar
og veiddi vel, því að auk 30
pundarans fékk hann einn 20
punda, 18, 17, 16, 15, 12, 9 og 4
punda lax.
kanna möguleika á myndun nýrr-
ar ríkisstjórnar. Könnunin er
Geir Hallgrímsson.
1 GÆRMORGUN kl. 9 kom mið-
stjórn og þingflokkur Sjálfstæðis-
f lokksins saman til fundar og stóð
fundurinn fram undir hádegi.
Þar var rætt um stjórnmálavið-
horfið og stjórnarmyndun og
skiptust menn á skoðunum þar
um.
Að loknum sameiginlegum
fundi miðstjórnar og þingflokks
var haldinn stuttur fundur í
hinum nýja þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins. Á þeim fundi
voru sömu menn og áður kjörnir
til að veita þingflokknum for-
stöðu. Gunnar Thoroddsen var
þess eðlis, að nauðsynlegt verður
að ræða við marga aðila og afla
margs konar gagna. Þessi könnun
mun því óhjákvæmilega taka
nokkurn tíma. Talsverð gagna-
söfnun er nauðsynleg til þess að
ganga úr skugga um, hvers eðlis
efnahagsvandinn er og hvaða úr-
ræði koma til greina við lausn
hans. Upplýsingar um eðli efna-
hagsvandans hljóta að verða
grundvöllur málefnasamstöðu
þeirra stjórnmálaflokka, sem
mynda nýja ríkisstjórn." Að öðru
leyti sagðist Geir Hallgrímsson
ekki geta gert frekari grein fyrir
þeim viðræðum, sem framundan
væru.
Síðdegis í gær sendi skrifstofa
forseta Islands frá sér svohljóð-
andi fréttatilkynningu: „Síðdegis
í dag kvaddi forseti Islands for-
mann Sjálfstæðisflokksins Geir
Hallgrímsson á sinn fund og ósk-
aði þess, að hann kannaði, hverjir
möguleikar væru á, að mynduð
yrði undir forustu Sjálfstæðis-
flokksins rfkisstjórn, sem nyti
meirihluta á Alþingi.
Aður en forseti tók þessa
ákvörðun, hafði hann átt viðræð-
endurkjörinn formaður þing-
flokks, Geir Hallgrímsson var
endurkjörinn varaformaður þing-
fiokks og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson ritari þingflokks.
DOMARAR og dómarafulltrúar
komu ekki til vinnu f gær. Með
þessu voru dómarar og dómara-
fuiltrúar um land allt að mót-
ur við formenn stjórnmálaflokk-
anna og auk þess þá formenn
þingflokka, sem ekki eru jafn-
framt formenn stjórnmála-
flokka."
mæla pólitfskum embættisveit-
ingum. Dómarafélag tslands
stendur ekki að baki þessara mót-
mæla, heldur eru þetta samtök
Oskuhreinsun
í Eyjum
Ungt fólk í Eyjum vinnur nú
af fullum krafti við að hreinsa
öskuna á Heimakletti og er
henni mokað f plastrennur,
sem liggja niður allan Klettinn
fram á bjargbrún, þannig að
askan fellur f sjóinn. Y'erkið
er'Lunnið á vegum Náttúru-
verntjaráðs og Viðlagasjóðs. A
efri myndinni sést hluti unga
fólksins, en á þeirri neðri sést
þar sem verið er að moka að
rennunni. Ljósm. Mbl. Sigur-
geir í Eyjum.
dómaranna og hver og einn dóm-
ari ábyrgur fyrir þessari ákvörð-
un. Krafa dómaranna er, að kom-
ið verði á fót nefnd, sem kanni
hæfni umsækjenda um dómara-
störf og verði hún a.m.k. ráðgef
andi, ef hún fær ekki vald til þess
að veita stöður.
Dómari, sem Mbl. ræddi við,
sagði, að ástæða mótmælanna
væri almenn óánægja með veit-
ingu dómaraembætta og lögð er
áherzla á, að embættaveitingum
sé komið í það horf, sem víðast
hvar gildir í öðrum löndum, að
ekki einungis pólitfskur ráðherra
veiti embættin, heldur að við hlið
ráðherra sé nefnd, sem kanni all-
ar umsóknir og sé að minnsta
kosti ráðgefandi. Dómarafélag Is-
lands hefur lagt mikla vinnu í að
kynna þetta mál og hefur ritað
stjórnvöldum bréf um það.
Dómarinn benti á, að undanfar-
ið hafi verið skipaðir menn f dóm-
arastöður, sem ekkert hafi komið
nálægt dómarastörfum áður og
kvað hann það naumast geta verið
tilviljun, að í öllum tilfellum var
um framsóknarmenn að ræða.
Dómarar hyggjast ekki mótmæla
frekar en orðið er, en málinu
verður fylgt eftir með bréfum.
„Það eru nokkrar dómaraveiting-
ar í ráðherratíð Ölafs Jóhannes-
sonar, sem við erum sérstaklega
óánægðir með“, sagði dómarinn.
„Hef von um að hann reki sig á vegg”
segir Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins
um stjórnarmyndunartilraun Geirs Hallgrímssonar
FiFTIR að forseti Islands, herra
Kristján Eldjárn, hafði til-
kynnt þá ákvörðun sína í gær,
að fela Geir Hallgrfmssyni til-
raun til stjórnarmyndunar,
hafði Morgunblaðið samband
við forystumenn allra stjórn-
málaflokkanna, sem fulltrúa
eiga á Alþingi, og spurði þá
álits á ákvörðuninni. Svör
þeirra fara hér á eftir:
Olafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra var ekki í bænum og
ekki væntanlegur fyrr en eftir
helgi. Því ra-ddi Mbl. við vara-
formann Framsóknarflokksins,
F.inar Agústsson. Hann sagði:
„Það er forsetans að ákveða
þetta, og ég hefi ekkert víð það
að athuga".
Gylfi Þ. Gíslason, formaður
Alþýðuflokksins sagði: „Við
Alþýðuflokksmenn erum til-
búnir til viðræðna, hvenær sem
í okkur er kallað og ég mun
verða í bænum um helgina. Við
biðum eftir því, hvort við okkur
verður talað eða ekki“.
Hagnar Arnalds, formaður
Alþýðubandalagsins, sagði: „Ég
hef ekkert við ákvörðun forseta
Islands að athuga að fela Geir
Hallgrímssyni, formanni Sjálf-
stæðisflokksins, að gera tilraun
til stjórnarmyndunar. Mér er
hins vegar engin launung á þvf,
að ég ráðlagði forseta Islands
að veita- Olafi Jóhannessyni
umboð til þess að gera fyrstu
tilraunina, vegna þess að við
Alþýðubandalagsmenn teljum
æskilegast að fullkannað sé,
hvort ekki sé möguleiki á að
mynda nýja ríkisstjórn með
samstarfi núverandi stjórnar-
flokka og Alþýðuflokksins.
Teljum við líklegast eins og á
stendur, að sú tilraun hefði
borið árangur. Þetta breytir þó
ekki því, að forseti Islands er í
fyllsta rétti til að ákveða annað
og með hliðsjón af því, að
forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins hafa haft uppi opinberlega
kröfu um, að formaður flokks-
ins fengi að gera fyrstu til-
raunina, vegna þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn væri stærsti
flokkurinn og hefði unnið
mesta sigurinn — þá er f sjálfu
sér ekkert á móti þvf, að hann
fái að spreyta sig. Ég hef
óneitanlega nokkra von um, að
hann reki sig á vegg og gefist
fljótlega upp“.
Magnús Torfi Ólafsson, for-
maður Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna, sagði: „Ljóst er
að forseti Islands hefur talið
rétt að gefa formanni stærsta
flokksins, þess flokks, sem mest
vann á í kosningunum, fyrstum
tækifæri til að reyna stjórnar-
myndun. Nú er eftir að sjá,
hvaða undirtektir hann fær hjá
öðrum flokkum".
Fundur miðstjórnar
og þingflokks í gær
Dómarar í verkfall í gær
Mótmæla stöðuveitingum Olafs Jóhannessonar, dómsmálaráðherra