Morgunblaðið - 11.07.1974, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JULl 1974
M
jj ////,.! /,/;/r« i v
'Auum
22*0*22-
RAUDARÁRSTÍG 31
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR REIMTAL
TT 21190 21188
'Æmx
OAN-RSNTAL-
Hverfisgötu 1 8
i27060
/í? BÍLALEIGAN
V^IEYSIR
CAR RENTAL
«‘24460
I HVERJUM BÍL
PIOIVIŒŒR
ÚTVARP OG STEREO
KASSETTUTÆKI
HOPFERÐA-
BÍLAR
Til leigu i lengri og skemmri
ferðir 8—50 farþega bílar.
KJARTAN INGIMARSSON
Sími 86155 og 32716
Afgreiðsla B.S.Í.
Sími 22300.
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodh
UIGJUt
AUÐBREKKU 44-46.
SiMI 42600.
Ég þakka hiartanlega öllum, sem
glöddu mig með heimsóknum
og kveðjum á niræðisafmælis-
degi minum 27. júni sl. og
gerðu mér daginn ógleyman-
legan. Þakka sérstaklega börn-
um, barna- og tengdabörnum
rausnarlegar móttökur vina
minna.
Guð blessi
ykkur öll.
Þorbjörg
Hannibalsdó ttir.
Þjóðviljinn boðar
nýjar kosningar
Urslit alþingiskosninganna
30. júní sfðastliðinn gera það að
verkum, að mjög erfitt verður
að mynda nýja meirihluta-
stjðrn á þingræðisgrundvelli.
Þrátt fyrir sigur Sjálfstæðis-
flokksins eru styrkleikahlut-
föll flokkanna á Alþingi með
þeim hætti, að stjðrnarmyndun
verður bersýnilega mörgum
erfiðleikum háð. Framsóknar-
flokkurinn hefur nú tveimur
þingmönnum fram yfir það,
sem vera ætti miðað við kjör-
fylgi hans á landinu öllu.
Þjððviljinn lætur að því
liggja í forystugrein í gær, að
bráðabirgðastjðrn Ölafs Jð-
hannessonar muni rjúfa þing á
nýjan leik og efna til annarra
þingkosninga. Orðrétt segir f
forystugrein Þjððviljans:
„Þjððviljinn vill minna á, að
svo kann að fara, að til nýrra
alþingiskosninga dragi, áður en
langt um Ifður. Það er verkefni
alls vinstra fðlks að tryggja í
slfkum kosningum þann
herzlumun, sem nú vantaði til
að greiða götu nýrrar og betri
vinstri stjðrnar, — að tryggja
úrslitasigur Alþýðubandalags-
ins f næstu lotu.“
Fram til þessa hefur þaðekki
gerzt hér á landi, að efnt hafi
verið til nýrra alþingiskosn-
inga innan svo skamms tfma
vegna erfiðleika við stjórnar-
myndun. Þessi yfirlýsing mál-
gagns Alþýðubandalagsins er
þvf athyglisverð fyrir þær sak-
ir.
Erfið
stjórnarmyndun
Erfiðleikar við myndun
meirihlutastjórnar á þingræð-
isgrundvelli eru á hinn bðginn
ekkert nýmæli f fslenzkri
stjðrnmálasögu, þð að nokkuð
sé nú um liðið, sfðan alvarlegar
stjórnarkreppur urðu. Rfkis-
stjðrn Ásgeirs Ásgeirssonar sat
þannig f rúmlega hálft ár 1934
sem bráðabirgðastjðrn. Megin-
hlutann af þvf tfmabili voru þð
engar tilraunir gerðar til
stjðrnarmyndunar. Stjðrnmála-
flokkarnir völdu fremur þann
kost að bfða alþingiskosninga,
er fðru fram sumarið 1934.
Eftir að slitnaði upp úr sam-
starfi Sjálfstæðisflokksins, Ál-
þýðuflokksins og Sðsfalista-
flokksins f nýsköpunarstjðrn-
inni 1946, stðð stjórnarkreppa
yfir f fjðra mánuði. Allan þann
tfma var sleitulaust unnið að
tilraunum til stjðrnarmyndun-
ar. Árið 1942 var hins vegar
skipuð utanþingsstjðrn, þegar
stjðrnmálaflokkarnir höfðu
ekki eftir einn mánuð komið
sér saman um stjórn á þingræð-
isgrundvelli. Síðan hefur ekki
verið horfið að þvf ráði að skipa
utanþingsstjórnir, þð að nokkr-
um sinnum hafi slfkar stjðrnir
verið f burðarliðnum.
Einnig er það athyglisvert, að
mjög mismunandi aðferðir
hafa verið hafðar á við stjðrn-
armyndunartilraunir. Oft hef-
ur einstökum forystumönnum
stjðrnmálaflokkanna verið fal-
ið að hafa á hendi forystu um
stjórnarmyndun eins og nú. En
sá háttur hefur einnig verið á
hafður, að forseti og áður rfkis-
stjóri hafi ðskað eftir þvf, að
stjðrnmálaflokkarnir skipuðu
allir fulltrúa f nefnd, þar sem
sameiginlega færu fram við-
ræður um hugsanlega stjðrnar-
myndun.
Ljðst er, að það er ekkert
nýmæli f fslenzkri stjðrnmála-
sögu, þð að nú komi upp erfið-
leikar við myndun rfkisstjðrn-
ar. Oftast nær hefur ágreining-
ur um efnahagsaðgerðir leitt til
stjórnarslita. En afstaðan til
kjördæmaskipunarinnar og
varnarliðsins hefur einnig haft
áhrif að þessu leyti. Svo virðist
sem öll þessi atriði geti einnig
nú orðið að ásteytingarsteini
við st jórnarmyndun.
Fróðlegt verður að fylgjast
með þrðun mála við þá könnun
á stjðrnarmyndun, sem nú
stendur fyrir dyrum. Áugljðst
er, að hún er sérstaklega vanda-
söm og erfið viðureignar vegna
þeirra ðvenjumiklu efnahags-
erfiðleika, sem nú er við að
etja.
Lóð nágrannans
Ræktunaráhugamönnum,
sem fletta byggingarsamþykkt
þeirri, sem nú er í gildi fyrir
Reykjavík, er það sjálfsagt
verulegt ánægjuefni, að í henni
er fátt að finna af tilskipunum
um ræktunarmál. Mönnum er
nokkurnveginn f sjálfsvald sett,
hvernig þeir hafa ræktun þess
lóðarskika, er þeim var úthlut-
að sem byggingarlóð. Meira að
segja er engin bein tilskipun
um það, að lóðin skuli ræktuð.
„Hverju húsi skal fylgja óbyggð
lóð, og fer um stærð hennar
eftir notkun hússins og skipu-
lagsákvörðunum. Á óbyggðri
lóð skal að jafnaði koma fyrir
bifreiðastæðum, bifreiða-
geymslum, leiksvæði barna svo
og öðru þvf, sem þarf í sam-
bandi við notkun hússins.“
Seinna kemur svo hótun um, að
byggingaryfirvöldum skuli
heimilt að láta fjarlægja gróð-
ur, ef hann veldur óþægingum
eða hættu fyrir umferð, einnig
ef gróður skerðir verulega
birtu í íbúð eða á lóð. Margur
húseigandi má sennilega vera
þakklátur byggingaryfirvöld-
um fyrir það, hvað þau eru af-
skiptalítil um hina ytri umgerð
húsanna. Fyrir vikið er oftlega
hægt, án þess að mikið beri á,
að breiða yfir mannleg mistök
með fallegum laufkrónum og
limþéttum trjám. Og nú á þess-
um sfðustu og verstu tilskipun-
ar tímum, þegar þau ósköp
dynja yfir þá, sem lóðir fá til að
byggja yfir sig og sína, að vera
skikkaðir til að steypa sín hús í
nákvæmlega sömu mót og ná-
grannarnir, hvort sem það
hentar þörf þeirra eða ekki, þá
er það eflaust eina huggunin að
mega njóta fjálsræðis til að
rækta lóðina á annan veg en
nágranninn. Byggingarnefnd
getur þó bannað, að hæðarlegu
lóðar sé breytt frá samþykktum
uppdrætti, ef ætla má, að slíkt
geti valdið tjóni eða óþæging-
um á lóðum nágranna. Það þarf
þó að gæta þess vandlega að
yfirborðsvatn af lóð geti ekki
valdið tjóni eða óþægindum á
nágrannalóðum eða nær-
liggjandi gangstéttum. Ef hins-
vegar einhverjum dettur í hug,
að undirstrika umráðarétt sinn
yfir húslóðinni með þvf að setja
upp girðingu, er haldi óvel-
komnum utan lóðarmarkanna,
þá þarf að leggja fram full-
nægjandi uppdrætti og sækja
um leyfi hjá byggingaryfirvöld-
um. Slík girðing má þó ekki
vera hærri en það, að hún nái
meðal manni í mittishæð. Hitt
er einnig augljóst mál, að eng-
inn getur byggt múrvegg milli
sín og nágrannans, nema með
samþykki hans. Það er svo aft-
ur annað mál, að heilbrigðis-
samþykkt borgarinnar segir í
10. fr. „Lóðareigendum er skylt
að girða lóðir sfnar sæmilegum
girðingum og halda þeim við,
enda skal girðingum svo háttað,
að rottur og mýs geti ekki falizt
í þeim.“ Annars er heilbrigðis-
samþykktin í stöðugri endur-
skoðun eins og öll góð rit, sem
veita okkur leiðbeiningar og
nauðsynlegt aðhald í menning-
arlegri umgengni og sambýli
hver við annað. Það væri þó
nokkur ástæða til, að samræma
þessar vel meintu siðareglur,
þannig að ekki stangist á f boð-
orðunum, og síðan væri mark-
vist að þvf unnið, að allir tækju
fullt tillit til settra ákvæða,
hvort sem þau stæðu í bygg-
ingarsamþykkt, heilbrigðissam-
þykkt eða lögreglusamþykkt.
ORÐ I EYRA
Menníngarsumar
Nú fara þjóðhátíðir yfir
landið einsog logi yfir akur, og
þótti víst eingum mikið, því
flestum ber saman um, að þessi
stórgáfaða þjóð hafi þraukað
hér á túndrunni f ellefu-
hundruð ár, hvorki meira né
minna. Þó eru sembeturfer
ekki allir á einu máli, hvað það
snertir fremuren kjaramál
uppmælíngaraðalsins. Líndal
stendur tilaðmynda á því fastar
en fótonum, að Ingólfur
Arnarbur osfrv. hafi aldrei
existerað fremuren Örvar-Odd-
ur og Guðmundur sálugi á Búr-
felli. Jakob telur það litlu
skipta, enda Ingólfur á Hellu
prýðilega lifandi og mundi
aldrei villast á grágrýttum
útnesjum við Faxaflóa og græn-
um góðsveitum Suðurlands,
þaðan sem Sláturfélagið er
ættað einsog nafnið ber með
sér.
Að vísu skyggir það nokkuð á
þjóðhátíðarstolt okkar sannra
menníngarvita, að þjóðarbók-
hlaðan þrumir enn innan
höfuðskelja örfárra öndvegis-
manna, en sýnileg teikn hennar
sjást eingin.
Þó finnst okkur dulítil bót í
máli, að á Skipaskaga hafa
einkvurs konar vitar tekið nýtt
safnahús í notkun. Og þó aldrei
væri hátt á þeim risið í
menníngarefnum þar efra og
meira um snæri en snillínga, þá
er ekki fyrir það að synja, að
leynst geti þar eitthvað, sem
vert væri að minnast á þjóð-
hátíðarári. Væntanlega muna
Skagamenn, á meðan glóa glös í
mold og gróir nokkur stjarna,
eftir þeim þjóðhetjonum og
séníonum Jóni heitnum á Rein,
Hallbjörgu Bjarnadóttur og
Steinari skáldi Sigurjónssyni,
fyrst þeir eru á annað borð
farnir að föndra við menníng-
una ásamt með fótboltanum og
ferjunni.
Annars lítur út fyrir, að þetta
verði gott þjóðhátíðarár og vel
það, enda höfum við Jón minn
Ásgeirsson látið hendur standa
fram úr ermum og sólin skinið
lon og don á hátíðargesti. Og
svo eru þraungsýnir mál-
vöndúngar að stagast á þvf í
sólskininu, að þjóðhátfðarplatti
séubarasta ill danska.eneingin
íslenska. Erða nú heilsa.
Norrænt prestkvenna-
r
mót haldið á Islandi
Aðalfundur Prestkvenna-
félags Islands, hínn átjándi f
röðinni, var haldinn f Norræna
húsinu 26. júnf s.l. og var hann
fjölsóttur.
Tilgangur félagsins er að efla
kynningu og samstarf fslenskra
prestkvenna.
Að loknum aðalfundarstörf-
um er venja að prestkonur úr
prófastdæmum landsins sjái
um dagskrá. Að þessu sinni var
hún í umsjón prestkvenna af
Austfjörðum og sagði m.a. frú
Hildur Torfadóttir, Hofi í
Vopnafirði, frá ársdvöl á
Hveravöllum.
Stjórn Prestakvennafélags
Islands skipa nú frú Rósa Björk
Þorbjarnardóttir, Kópavogi,
formaður, frú Áslaug Sigur-
björnsdóttir, Grundarfirði,
gjaldkeri, og frú Anna
Magnúsdóttir, Skálholti, ritari.
Dagana 29. júlí til 1. ágúst
verður haldið norrænt prest-
kvennamót hér á landi og munu
erlendir þátttakendur verða
hátt á annað hundrað.
Mót norrænna prestkvenna
eru haldin þriðja hvert ár og er
það nú í fyrsta sinni að slfkt
mót er haldið hérlendis. Stjórn
Prestkvennafélags íslands sér
um allan undirbúning mótsins,
sem fer fram í Norræna húsinu
og Háskóla íslands og vonast
hún eftir góðri þátttöku
íslenskra prestkvenna.
Formaður mótsnefndar er
frú Guðrún S. Jónsdóttir, símar
17030 og 32195.